Þjóðviljinn - 01.04.1979, Side 7
Sunnudagur 1. aprn 1979 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 7
Svartur vetur
Kæru félagar — muniB þiö
hvaövar gaman I sumar þegar
viö vorum öll aö hjálpast af öll-
um kröftum á bólakafi I barátt-
unni viö aö fella ihaldiö og öll
þau öfl, sem koma i veg fyrir
(kæfa) fagurt mannlif i landinu
okkar ogróa aö þvl öllum árum
aö gera sjálfstæöi okkar aö fill-
eggi i skotbakka Nato. Sigurinn
vannst — viö kjörboröiö — og
mikiö vorum viö hamingjusöm
og bjartsýn, nú gátum viö held-
ur betur fariö aö taka til hönd-
unum „aö velta i rústir og
byggja á ný” eins ogskáldiö
sagöi.
Mér sýnist siguröliö heldur
óbragglegt og kenni ég þvi um
aö Kratarósin, sem vex uppúr
gamla hnefanum meö nýja and-
litíð sé ekki vel tíl slikrar öl-
geröar fallin. 011 erum viö nú aö
súpa þaö hiö beiska öl og svo er
þaö görótt aö hvergi sér til
botns.
Ekki hef ég séö eitt einasta
blóm i Reykjavik I allan vetur
og er ég þó si og æ á gangi um
fjölförnustu frjósömustu bletti
miöborgarinnar. Þar sem einu
sinni var sáö til grænnar bylt-
ingar varö uppskeran hellu-
lagning á einhverjum nöturleg-
asta götuspotta i miöbænum,
þar þinga allir vindar og þar
nær sól aldrei aö skina á jöröina
nema fyrir allar aldir á morgn-
ana.
Og svo er klukkan á Torginu
hætt aö ganga, hún er alltaf hálf
tólf og þaö finnst mér válegt
tákn, og úr kyrrstæöu gangverki
hennar blasir viö mér tvisvar á
dag eitt litiö kosningaloforö,
sem hefur veriö svikiö.
Þessi vetur hefur veriö hræöi-
legur fyrir gangandi fólk. Til
þess aö blessaöir bilarnir kom-
ist leiöar sinnar hefur öllum
snjóum vetrarins veriö ýtt uppá
gangstéttirnar. Þar hafa hlaöist
uppglerhálir skaflar, sem I hæö
sinni taka á sig ótrúlegar og
ógnvekjandi myndir i augurti
hins gangandi vegfaranda og
nægja ekkiganglimirnir einirtil
aö klöngrast yfir þessi ósköp —
auk þess er maöur i sifelldu
kapphlaupi —■ uppá lif og dauöa
viö akandi meöbræöur sina,
sem breytast i óargadýr undir
bilstýrinuogllta á okkur eins og
hægfara pöddur og sitja um lif
okkar leynt og ljóst.
Við þessar kringumstæöur
hefur fótgangandi maöur, þó
fullfriskur sé — álika lifsmögu-
leika og spjótittlingur 1 steypu-
hrærivél á fullri ferö.
Þaö er mér hlulin ráögáta
hvernig fatlaö fólk og gamal-
menni hefur fariö aö þvi I vetur
að sæk ja lff eyrinn sinn og koma
honum til Gjaldheimtunnar,
Hita- og Rafmagnsveitunnar,
Innheimtustofnunar Rikisút-
varps-Sjónvarps, Innheimtu
Bæjarsimans, Apótekaranna og
hvaö þeir nú heita allir hinir
sem biöa eftir þessu framlagi.
Kannski á ég ekki aö vera aö
hafa áhyggjur af þessu, etv.
hafa einhverjir þeirra fjöl-
mörguheilbrigöu.sem tóku þátt
i glæsilegri kröfugöngu fatl-
aöra, sýnt sinn góöa vilja i verki
og annast þessar útréttingar.
Ég vona aö þaö hafi komist til
skila aö ég er alveg hundóánægö
meö snjómokstursdeild borgar-
innar i vetur. Aftur á móti hefur
verið gaman aö sjá kaupahéöna
á Lækjartorgi og músikin, ysinn
og þysinn i kringum þaö hefur
svo góö og upplifgandi áhrif á
mig og gömlu húsin á Torfunni
veröa svo falleg og vinaleg þeg-
ar unga fðlkiö kemur þar meö
listmuni og blóm — svona á
þetta aö vera alltaf. Menningin
hefurstaöiö meö miklum blóma
i vetur sem endranær, okkur
hefur gefist kostur á aö sjá og
heyra stórkostlega hluti á hin-
um ýmsu sviöum, meira aö
segja hafa þyrpst hingað er-
lendir plötusnúöar til aö veröa
heimsfrægir i okkar frábæru og
troðfullu diskótekum, þrátt
fyrir þaö að tengdasonur ís-
lands flygi héöan I fússi. Viö
skulumbara vonaaöhannkomi
aftur þegar hann er búinn að
æfa sig svolitiö i hljómsveitar-
stjórn meö fullorönu fólki I út-
löndum.
Herstöðvaandstæöingar hafa
staöiö fyrir mikilli hugvekju
undanfarna daga og var
sannarlega timi til kominn aö
hrista uppl öllum landslýö og
hafa þeir staöiö aö þessum að-
geröum meö miklum bravúr.
Þaö er mln skoöun aö hér sé
vaxin upp stór hluti yngri kyn-
slóöar Islendinga, sem ekki veit
eða trúir þvi aö viöbúum 1 her-
setnu landi.
Þaö mætti opna augu þessa
fólks meö þvi aö skylda dátana
tíl aö vera 1 fullum herklæöum
þegar þeir koma til manna-
byggöa. Þaö ætti i' raun og veru
aö skylda dátana til aö sýna sig
og drápstæki sin 1 hverjim
landshluta a.m.k. einu sinni á
ári — t.d. 30. marz.
Slikar sýningar eru ævinlega
haföar á Rauöa torginu a.mlc.
einu sinni á ári.
Nú er blaöiö búiö og ég fer nú
aö hætta þessu rausi, en sú
mynd frá liönum vetri sem er
skýrust I huga mér er af gömlu
konunni, sem tommaði varla á
móti noröanrokinu á hálkunni,
þar tilhenni loks tókstaö ná taki
áhorni IönaöarbankanSkþar hélt
hún sér og grét.
Aö lokum, Alþjóðlegur bæna-
dagur kvenna var 2. marz og þá
var helgistund I Dómkirkjunni.
IWIér datt það í hug...
Kvikmyndahátíö her-
stöðvaandstæðinga hófst í
Félagsstof nun stúdenta við
Hringbraut á föstudags-
kvöldið/ með sýningu á
chilnesku myndinni Sjak-
alinn frá Nahueltoro.
Hátiðin mun standa til 9.
apríl og alls verða sýndar
10 kvikmyndir. Tvær
myndanna eru banda-
riskar, ein frönsk og sjö
suður-amerískar. Dagskrá
hátíðarinnar birtist í blað-
inu i gær. Hér á eftir
verður fjallað lítillega um
þessar myndir.
Sjakalinn frá Nahueltoro
Miguel Littin, þekktasti kvik-
myndastjóri Chile, geröi þessa
mynd áriö 1969, og var hún fyrsta
langa myndin sem hann stjórnaöi
og jafnframt fyrsta leikna kvik-
myndin af fullri lengd sem fram-
leidd var i Chile.
Sjakalinn er byggö á sönnum
heimildum og segir frá fátækum
ómenntuðum bónda sem fremur
fjöldamorð i ölæöi og er siöan
eltur uppi, fangelsaöur og
dæmdur til dauöa. í fangelsinu er
hann settur i endurhæfingu og þar
lærir hann aö lesa og einnig að
þekkja þau verömæti sem æöst
eru talin i þjóöfélaginu. Þegar
hann er kominn nokkuö áleiöis
útúr frumskógi vanþekkingar-
innar og eymdarinnar er hann
leiddur fyrir aftökusveitina.
Þessi mynd hefur viða fariö og
hlotiö mikiö lof, enda er I henni aö
finna skarplega og nákvæma lýs-
ingu á ömurleikanum sem er dag-
legur veruleiki miljóna manna I
hinum fátækari löndum heims.
Myndin er einnig nöpur ádeila á
þaö ómennSka kerfi sem viö-
heldur ömurleikanum.
Margir muna eflaust eftir
annarri mynd Littins, Fyrir-
heitna landiö, sem sýnd var hér á
kvikmyndahátiöinni i febrúar
1978. Littin starfar nú i Mexiko,
þar sem hann dvelst i útlegö, og
hefur gert tvær frægar kvik-
myndir þar: Marusia-skjölin og
E1 recurso al método, en hin
siöarnefnda er byggö á skáldsögu
kúbanska rithöfundarins Alejo
Carpentier, og fjallar um dæmi-
geröan suöur-ameriskan harö-
stjóra.
Refsigarðurinn
Bandarisk mynd frá árinu 1971.
Leikstjóri er Peter Watkins, sem
einkum er frægur fyrir leiknar
heimildarmyndir, og er Refsi-
garöurinn ein þeirra.
Myndin fjallar um andófiö gegn
striörekstri Bandarikjanna 1
Indókina. 1 henni er sögö tákn-
saga, sem verður óhugnanlega
raunveruleg vegna þess aö not-
aöar eru aöferöir heimilda-
myndatöku.
Viðtöl við My-Lai-morð-
ingjana
Þessa mynd geröi bandariski
kvikmyndastjórinn Joseph Strick
árið 1970. í henni eru klippt
saman viötöl viö fimm menn sem
allir tóku þátt 1 hinu ógeöslega
fjöldamoröi sem bandariski her-
inn framdi i þorpinu My Lai I
Vietnam og frægt er orðiö.
Viöhorf þessara manna til
verknaöarins sem þeir frömdu
koma ef til vill skýrast i ljós
þegar einn þeirra segir: „Viö
bjuggumst alls ekki viö aö svo
mikiö veður yröi gert úr þessu —
þetta geröist oft, bæöi fyrr og
siöar”. Einn þeirra talar um
Vietnama sem furöufólk, þeim sé
eiginlega alveg sama hvort þeir
lifi eöa deyi. Svo heföu þeir lika
drepist hvort eö var.
Ekki er aö sjá á brosandi and-
litum þeirra aöslátrunin sem þeir
lýsa á hrollvekjandi skeytingar-
lausan hátt hafi valdiö þeim mikl-
um andvökum. Niöurstaöa
áhorfandans hlýtur aö veröa sú,
aö þessir menn séu varla annaö
en lifandi lik. Þeir hlutu þá þjálf-
un sem þurfti til að brengla siö-
feröisvitund þeirra og breyta
þeim i sálarlausa slátrara.
„Skipun er skipun og þegar
maöur er i hernum, þá hlyöir
maður skipunum”.
Orrustan um Chile I og II
Þessr tvær myndir voru sýndar
i Fjalaketinum um siöustu jól, en
vegna hins óheppilega sýningar-
tima komust mjög fáir til aö sjá
þær þá, og hafa komið fram óskir
um aö þær yröu endursýndar.
Hér á siöunni var fjallaö um
þessar myndir i alllöngu máli rétt
fyrir jólin. Þær eru geröar af hópi
chilenskra kvikmyndara undir
leiösögn Patricio Guzman. Efniö
var kvikmyndaö i Chile og fyrir
valdarániö og meöan þaö var aö
gerast, og var filmunni siöan
smyglaö úr landi til Kúbu, þar
sem Guzman lauk við gerö mynd-
anna. Þriöji hlutinn hefur nýlega
veriö frumsýndur, en hann fékkst
ekki hingaö aö þessi sinni.
Baráttan um Chile er ómetan-
leg heimild um ástandiö á siðustu
mánuöum Allende-timans og þá
atburöi sem uröu Alþýöu-
einingarstjórninni aö falli i
september 1973.
Ljónið hefur sjö höfuð
Glauber Rocha frá Brasiliu er
einn af upphafsmönnum nýbylgj-
unnar i suöur-ameriskri kvik-
myndalist og átti stóran þátt I þvi
aö Brasilia varö eitt mesta gósen-
land kvikmyndarinnar um
nokkurra ára skeiö eöa þartil
herforingjunum sem sitja þar á
valdastóli þótti meira en nóg
komiö og hófu ofsóknir á hendur
listamönnum. Glauber Rocha er
nú i útlegö.
Myndina Ljóniö hefur sjö höfuð
geröi hann i Afriku 1970 fyrir
Italskan framleiöanda. Þar út-
skýrir hann á sin táknræna og sér
stæöa máta heimsvaldastefnuna
einsog hún sýnir sig i Afriku.
Sjálfur sagöi Rocha m.a. um
þessa myJd: „Hún er andheims-
valdasinnuö. Hún er byltingar-
sinnuö. Hún hrópar og veinar
hátt, vegna þess aö tunga
byltingarinnar er ekki lágmælt.”
Mexico, frosin bylting
Raymundo Gleyzer heitir
argentinskur kvikmyndastjóri,
höfundur myndarinnar Mexico,
frosin bylting. Hann er einn
þeirra sem horfiö hafa sporlaust I
Argentinu eftir aö hana lent I
höndum lögreglunnar. Yfirvöld
neita statt og stööugt aö hann sé I
haldi hjá þeim, en fengist hafa
sannanir fyrir þvi að hann hafi
verið I fangabúöum og sætt þar
illri meöferö.
1 myndinni segir frá bylting-
unni i Mexico 1910 og afleiðingum
hennar. Lýst er ástandinu i land-
inu einsog það er I dag, og þaö sett
i sögulegt samhengi viö atburöina
sem uröu 1910-17. Myndin lýsir
þvi sem gerist þegar bylting er
gerö án þess aö henni sé stjórnaö
af öryggi og hún byggö á hug-
myndafræðilegum grunni.
September í Chile
Nokkrum dögum eftir valda-
rániö i Chile fór hópur franskra
kvikmyndara þangaö og fékk
leyfi til að kvikmynda þaö sem
fyrir augu bar. Reyndar ætluðu
herforingjarnir aö telja þeim trú
um aö allt væri með felldu I land-
inu, og má viöa sjá þess merki I
þessari áhrifariku mynd, að þeir
voru meö ámátlega tilburöi til aö
breiöa yfir ástandið.
En Frakkarnir létu ekki snúa á
sig, og þeir náöu viötölum viö fólk
á götum úti, sem var ekki hrætt
við að segja skoðun sina og mót-
mæla þeim ofsóknum sem þá
voru i hámarki. Einn sterkasti
kaflinn i myndinni er sá sem
sýnir jaröarför Pablo Neruda,
þjóöskáldsins og kommúnistans.
Herinn neyddist til aö láta þá út-
för aö mestu afskiptalausa vegna
nærveru erlendra blaöamanna, og
þessvegna gat fólkiö þyrpst út á
Framhald á blaösiöu 22
Ingibjörg Haralds-
dóttir skrifar um
kvikmyndir