Þjóðviljinn - 01.04.1979, Side 11
Sunnudagur 1. aprn 1979 ÞJOÐVILJINN — SÍÐA 11
Sönghópur frá Neðra-
Saxlandi heldur tónleika
I dag kemur til lands-
ins kór frá V-Þýskalandi
og heldur hér tónleika
fyrir styrktarfélaga
Tónlistarfélags Reykja-
vikur. Kórinn nefnist
Der Niedersachsische
íslendingar
til Jamaica
Samvinnuferftir - Landsýn
munu á næsta sumri gefa landan-
um kost á lúxusferðum til
Jamaica i Vestur-Indium. Meö
tilkomu stærri flugvéla og lægri
fargjalda gefst okkur sem byggj-
um noröurhjara veraidar kostur
á aö leika nýlenduherra nokkrar
vikur úr ári I þessari suörænu
Paradfs. Loftslag er þarna ákaf-
lega notalegt og s jórinn kvaö vera
jafn tær og hann var'á dögum
Jóns Indiafara. Þarna mun vera
gnótt annarar ósnortinnar nátt-
úru.
Dvalist veröur i villum meö
bandariskum þægindum og mun
hver og einn þátttakenda i
Jamaicaferöunum fá eina slika til
umráöa. Þá fylgir hverju húsi
hjúaliö, matreiöslumaöur sem
annast matseld og aödrætti til
hennar, þjónustustúlka sem sér
um alla hluti innan stokks og loks
garöyrkjumaöur sem jafnframt
er ábyrgur fyrir öllu innan lóöar.
Þarna býöst islenskri alþýöu aö
lifa i vellystingum pragtuglega
hluta úr sumri fyrir u.þ.b. 330.000
kr.
Singkreis og er þekktur i
heimalandi sinu jafnt og
erlendis fyrir kynningu
nýrrar tónlistar og
nýstárlegar útsetningar
evrópskra þjóðlaga.
Kórinn mun halda tvenna tón-
leika hér i Reykjavik en einnig
efna til námskeiös og halda tón-
leika á Akureyri. Fyrri tón-
leikarnir veröa haldnir i Mennta-
skólanum viö Hamrahliö n.k.
mánudag kl. 20.30 en þeir síðari i
Háteigskirkju miðvikudaginn 4.
april á sama tima. Stjórnandi
kórsins og stofnandi er Willi
Trader, prófessor viö Tónlistar-
Flestir ferða-
menn frá
Norðurlöndum
Á árinu 1978 komu sam-
tals 86.167 erlendir ferða-
menn til landsins,en það er
aukning um 4.318 ferða-
menn frá árinu áður eða
5.3%.
Þetta kom fram á fundi,
sem Ludvig Hjálmtýsson,
ferðamálastjóri, og for-
stjórar nokkurra ferða-
skrifstofa héldu með
fréttamönnum nú fyrir
skemmstu.
Af heildarfjölda hinna erlendu
ferðamapna komu 73.210 með is-
lensku flugvélum, 2.490 meö fær-
eysku ferjunni Smyrli og 10.467
með skemmtiferðaskipum.
Flestir hinna erlendu ferða-
manna koma frá Norðurlöndun-
um sameiginlega eða 25,4% af
heildarfjöldanum. Bandarikja-
menn eru að visu fleiri eða 31.1%
af heildinni en það er ekki raun-
hæf tala þar sem varnarliðsmenn
á Keflavikurflugvelli eru með I
henni. Ætla má þó að ferðamenn
frá Bandarikjunum séu um 20%
af heildinni. Næstir koma svo
Vestur-Þjóðverjar, sem voru á
árinu 1978 15,6% heildartölunni og
þar næst koma Bretar eða 7,8% af
heild.
Komum íslendinga erlendis frá
hefur fjölgað úr 70.992 á árinu
1977 i 80.273 á árinu 1978 eða um
9.281 milli ára. Árið 1976 voru
komur Islendinga til landsins
hinsvegar 59.879 og áriö 1975 voru
þær 51.438. Komum Islendinga
hefur þvi fjölgaö um ca 10 þús. á
ári sl. fjögur ár.
Beinar og óbeinar tekjur af er-
lendum ferðamönnum voru á ár-
inu 1978, samkv. upplýsingum
Seðlabanka Islands, kr. 10.3 milj-
arðar. Geta má þess, að sam-
kvæmt upplýsingum, sem ferða-
málastjóri hefur fengið úr ýms-
um áttum, mun aflaverðmæti
loðnu upp úr sjó á sl. vertið nema
ca. kr. 8-9 miljörðum.
—mhg
og leiklistarskóla rikisins i
Hannover.
Kórinn hefur unnið söngva-
keppnir á lrlandiyítaliu og Ung-
verjalandi en auk þess haldið tón-
leika víða um heim og gefið út
hljómplötur. Hann kynnir einkum
nýja tónlist og nýstárlegar út-
setningar á evrópskum þjóðlög-
um. Á dagskrá fyrri tónleikanna
eru m.a. evrópskir madrigalar
frá 15. og 16. öld og verk eftir
Knut Nystedt, Zoltán Kodály,
Johannes Brahms, Paul Hinde-
mith og Béla Bartók. A efnisskrá
siðari tónleikanna eru verk eftir
Henry Rurcell, Johann Seb.Bach,
Mendelsohn, Brahms, Distler og
Pepping.
—AI
Blaðberar
óskast
Vesturborg:
Grenimelur — Reynimelur
(sem fyrst)
Skjól (1 april)
Austurborg:
Akurgerði (1. april)
DWÐVIUINN
Siðumúla 6, simi 8 13 33
•r«-
Jafngreiðslulánakerfi
Samvinnubankinn kynnir nýja
þjónustu, SPARIVELTU,
sem byggist á mislöngum
en kerfisbundnum sparnaði
tengdum margvíslegum lána
möguleikum.
Hið nýja spariveltukerfi er í 2 flokkum A og B,
sem bjóða upp á fjölda mismunandi lántökuleiða
með lánstíma allt frá
3 mánuðum
^ til 5 ára.
Auk þess
er þátttak-
endum heimilt
að vera með fleiri
en einn reikning í Spariveltu-B.
Fyrirhyggja í fjtirmálum
Lengri sparnaður leiðir til hagstæðara
lánshlutfalls og lengri lánstíma.
Ekki þarf að ákveða tfmalengd
sparnaðar umfram 3 mánuði í
A-flokki og 12 mánuði í B-flokki.
f Allir þátttakendur eiga
kost á láni með
hagstæðum
vaxta- og
greiðslukjörum.
Þátttaka í
SPARI-
VELTUNNI
auðveldar
þér að láta
drauminn rætast.
Markviss sparnaður = öruggt lán
mm/m
LÁNAMÖGULEIKAR MEÐ HÁMARKSSPARNAÐI
SPARIVELTA-A Sparnaðarflokkar: 25, 50 og 75 þús.kr. á mánuði.
Sparnaðar- tímabil Mánaðarlegur sparnaður Sparnaður í lok tímabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé með vöxtum Mánaðarleg endurgr. Endurgr. tími
3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir 75.000 75.000 75.000 75.000 225.000 300.000 375.000 450.000 100% 100% 100% 100% 225.000 300.000 375.000 450.000 454.875 608.875 764.062 920.437 78.108 78.897 79.692 80.492 3 mánuðir 4 mánuðir 5 mánuðir 6 mánuðir
SPARIVELTA-B Sparnaðarflokkar: 15, 25 og 35 þús.kr. á mánuði.
Sparnaðar- tímabil Mánaðarlegur sparnaður Sparnaður í lok timabils Láns- hlutfall Lán frá Sam- vinnubanka Ráðstöfunarfé með vöxtum Mánaðarleg endurgr. Endurgr. tími
12 mánuðir 18 mánuðir 24 mánuðir 30 mánuðir 36 mánuðir 35.000 35.000 35.000 35.000 35.000 420.000 630.000 840.000 1.050.000 1.260.000 125% 150% 200% 200% 200% 525.000 945.000 1.680.000 2.100.000 2.520.000 982.975 1.664.420 2.677.662 3.411.474 4.165.234 49.819 45.964 55.416 64.777 73.516 12 mánuðir 27 mánuðir 48 mánuðir 54 mánuðir 60 mánuðir
Gert er ráð fyrir 19.0% innlánsvöxtum og 24.69% útlánsvöxtum svo og lántökugjaldi. Vaxtakjör eru háð ákvörðun Seðlabankans.
Upplýsingabæklingur er fyrir hendi í öllum afgreiöslum bankans.
Sam vi i mubankinn
REYKJAVlK, AKRANESI, GRUNDARFIRÐI, KRÓKSFJARÐARNESI, PATREKSFIRÐI.SAUDARKRÓKI, HÚSAVlK,
KÓPASKERI, VOPNAFIROI, EGILSSTOOUM, STÖÐVARFIROI, VlK I MÝRDAL, KEFLAVfK, HAFNARFIROI.
v