Þjóðviljinn - 01.04.1979, Síða 23
Sunnudagur 1. apríl 1979 ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 23
kompan
E- - L 1 KATTH— LT -
L —■ T1 — L - ÐIÍUF-----KUR - NK
GU----I TAR - AI.
LE - KHO - - - R Ð - Ð
\
FÉLAG- JE — 0 —
ELV - - KARL - - - N
Hvað heita
bækurnar?
Þessi ritvél er orðin gömul. Sumir stafirnir
eru svp slitnir að þeir sjást alls ekki. Það vant-
ar fjóra stafi. Reyndu að finna hvaða stafir
það eru. Þá getur þú lesið heiti bókanna sem
ég reyndi að vélrita á gömlu vélina. Allar bæk-
urnar komu út á síðasta ári. Hverjar þeirra
hefur þú lesið? Skrifaðu Kompunni um það.
Hver á
að fá
bréfið?
Utanáskrift þessa bréfs
er myndgáta. Getur þú
lesið úr henni. Það er
starfsheiti, nafn og heim-
ilisfang (eitt staðar-
nafn).
Reyndu að búa til svip-
aða myndgátu handa
Kompunni.
UGG
Umsjón:
Vilborg
Dagbjartsdóttir
Gömul þula
verður ný
Bokki sat í brunni,
hafði blað í munni,
hristi sína hrínga,
bað fugl að sýngja.
Grágæsamóðir!
Ijáðu mér vængi,
svo ég geti flogið
upp til himintúngla.
Túnglið, túnglið taktu mig
og berðu migupp til skýja,
þar situr hún móðir mín
og kembir ull nýja.
Þar sitja nunnur,
skafa gulltunnur.
Þar sitja systur,
skafa gullkistur
Þar sitja karlar,
skafa gulldalla.
Þar sitja einglar
og skafa gullteiná.
Þar sitja Jónar,
skafa gullprjóna.
Þar sitja sveinar
skafa gullteina.
Þar sitja Freyjur
skafa gulltreyjur.
Þar sitja mágar,
skafa gulltágar.
Þar situr faðir minn
og skefur gullhattinn sinn.
Þessi alþekkta þula er
úr safni Jóns Árnasonar
og ólafs Daviðssonar.
Stundum er hún lengri, þá
er bætt inn í hana eftir því
hvað hverjum og einum
dettur i hug og tekst að
fella i formið á undan
tveim síðustu hending-
unum:
Þarsitur hann faðir minn
og skefur gullhattinn
sinn.
Nú átt þú að yrkja við
þuluna og gæta þess að
halda forminu. Þulan þín
á að byrja:
Túnglið, túnglið taktu
mig
og berðu mig upp til
skýja,
þar situr hún móðir mín
og kembir ull nýja.
Hún á að enda svona:
Þar situr hann bróðir
minn
og skefur gullskrjóðinn
sinn.
Reyndu að finna upp á
nýjum óvæntum
tengslum og vertu
óhrædd(ur) að nota orð úr
daglegu máli, þótt þú
hafir kannski ekki séð
þau á prenti áður.
Sendu Kompunni þul-
una fyrir sumardaginn
fyrsta. Helst áttu að láta
teikningu fylgja.
Spegilkipp
Það er gaman að klippa
út myndir. Allir krakkar
hafa einhvern tíma
skemmt sér við að klippa
snjókorn, dúka eða
mynstur; eins geta allir
klippt út karla og kerling-
ar. Að þessu sinni er
klippimynd Kompunnar
svokallað spegilklipp.
Blaðið er brotið saman
(einbrotið um miðju) og
þegar klippt er kemur
samskonar mynd beggja
megin við brotið. AAyndin
heitir tveir svanir. Svan
irnir speglast i vatninu.
Reyndu að klippa
spegilklipp og sendu
Kompunni það falleg
asta.
Eftir Kjartan Arnórsson