Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
5
I
»
I
I
I
I
I
I
i
I
>
I
I
I
I
I
\
i
\
i
DV
Fréttir
Alvarlegur vélstjóraskortur á fiskiskipaflotanum:
Smuguvélstjórum
boðnar hundruð
þúsunda króna
- stór hluti stéttarinnar á undanþágum og vélstjóra leitaö í Færeyjum
Umferðareftirlit:
Fjölmargir nota
ekki bílbeltin
DV, Akureyri:
Lögreglumenn frá Ólafsfirði og
Dalvík, sem tóku þátt í „Norð-
lensku umferðarátaki" og héldu í
ferð um Norðurland nú í vikunni,
höfðu afskipti af 16 ökumönnum í
ferðinni.
Skömmu eftir að þeir héldu frá
Dalvík stöðvuðu þeir mann á
miðjum aldri sem steig fast á
bensíngjöfina og mældist bifreið
hans á 140 km hraða. Sá á von á
ökuleyfissviptingu.
Lögreglumennirnir fóru til
Blönduóss og síðan í Skagafjörð-
inn, til Siglufjarðar og um Fljótin
í bakaleið. í ferðinni stöðvuðu
þeir 6 ökumenn vegna hraðakst-
urs og 10 sem ekki notuðu bíl-
belti. Aö sögn Felix Jósafatssonar,
lögreglumanns á Dalvík, urðu
þeir varir við mun fleiri sem ekki
notuðu bílbeltin en tókst ekki að
stöðva þá.
Norðlenskt umferðarátak
stendur yfir í allt sumar en þá
fara lögreglumenn frá ýmsum
stöðum á Norðurlandi í ferðir um
fjóröunginn og einbeita sér að því
að ná til þeirra sem fara ekki að
lögum í umferðinni. -gk
„Það er mjög mikil eftirspurn eftir
vélstjórum. Við erum með það í at-
hugun núna að flytja þá inn frá Fær-
eyjum. Ástandið er þannig að menn
eru á undanþágum með nánast eng-
in réttindi," segir Elias Kristjánsson
hjá ráðningarþjónustunni Sjótaki
sem tekur að sér að útvega útgerðum
mannskap til sjómennsku.
Elías segir ástæður þess að vél-
stjórar fáist ekki á sjó vera annars
vegar hversu fá skipspláss gefi góðar
tekjur. Hins vegar séu vélstjórar
með allt að 5 ára nám að baki og gefi
sig því ekki til sjómennsku nema
mikið sé í boði.
„Það eru oröin fá pláss í dag sem
gefa eitthvað af sér. Fyrir menn sem
eru með svo langt nám að baki er
óviðunandi að stunda þetta með að-
eins einn og hálfan hlut. Til að fá
sama hlut þurfa stýrimennirnir að-
eins að stunda nám í tvö ár. Vél-
stjóranámið er fast að því að vera
eins og læknisnám," segir Elías.
Hann segir yfirborganir þekktar í
greininni og dæmi séu um að þeim
séu boðin lágmarkslaun sem sam-
svara tvöfaldri kauptryggingu. Þetta
eigi sérstaklega við um Smuguveið-
arnar.
„Það er ekki algilt að mönnum séu
boðnar yfirborganir. Það eru þó
dæmi um það og nýlega gerðum við
samning fyrir vélstjóra sem fer á
Smuguskip. Hann fær 250 þúsund
krónur í lágmarkslaun," segir Elías.
Hann segir ástæður þess hversu er-
fitt er að manna skip til Smuguveið-
anna vera þá að oft sé um léleg afla-
brögð að ræða á sama tlma og ein-
angrun sé mikil og langar fjarvistir.
„Við gerðum þetta i sameiningu
enda þessar Smuguveiðar á köflum
glórulausar vegna aflatregðu og langr-
ar útivistar. Þá er oft aðaltilgangur-
inn að halda skipum frá veiðum á
heimamiðum,“ segir Elías. -rt/-RR
Veriö er aö mála og fegra Akurey RE í Reykjavíkurhöfn. Til stendur að reyna
aö selja skipiö til útlanda. DV-mynd jak
25.-28. júní
Frystitogaraútgerðir huga að Smuguveiðum:
Árviss áróður
strandgæslunnar
um ördeyðu
- segir Eiríkur Tómasson útgerðarmaður
„Við hugsum til þess að halda
sama munstri og á síðasta ári. Við
hlustum ekki á þessar fréttir um ör-
deyðu ár eftir ár. Þetta er orðið ár-
visst eins og koma lóunnar. Þeir eru
að reyna að halda okkur frá Smug-
unni í þeirri trú að við hlustum á
þá,“ segir Eirikur Tómasson, út-
gerðarmaður hjá Þorbirni hf. í
Grindavík, um væntanlegar Smugu-
veiðar.
Hann segir fréttir frá norsku
strandgæslunni þess eðlis að enginn
fiskur sé til staðar í Smugunni vera
áróðursbragð Norðmanna og frysti-
skip Þorbjamarins, Gnúpur GK og
Hrafn Sveinbjarnarson GK, færu í
Smuguna undir lok næsta mánaðar.
Ekkert íslenskt skip er nú í Smug-
unni en útgerðir eru þó farnar að
hugsa sér til hreyfings. Viðbúið er
þó að ekki muni margir ísfisktogar-
ar halda til þessara veiöa norður í
hafi. Emil Thorarensen, útgerðar-
stjóri hjá Hraðfrystihúsi Eskifjarðar,
segist ekki reikna með að togarar
fyrirtækisins haldi til þessara veiða.
„Það er ekki fyrirhugað hjá okk-
ur að fara til Smuguveiða í sumar.
Það er alltof mikil áhætta fyrir ís-
fisktogara að fara vegna þess að
þeir hafa aðeins stuttan tima á veið-
um. Þar er í mesta lagi um að ræða
viku. Menn myndu kannski hugsa
sig um ef álit skipstjómarmanna
yrði í þá veru að veiðivonin væri
slík að túramir gætu gengið upp,“
segir Emil. -rt
Akranes:
Leitað að köldu vatni
DV, Akranesi:
Iðnaðarráðherra hefur veitt
500.000 krónur í leit að köldu vatni
fyrir vatnsveitu Akraness. Neyslu-
vatn Akumesinga er yfirhorðsvatn
úr Akrafjalli. Meiri hætta er á að
það mengist en lindarvatn.
„í næsta nágrenni við Akrafjall er
Járnblendiverksmiðjan á Grundar-
tanga og þar rís nú álver. Akurnes-
ingar eru því uggandi um vatnsból
sitt vegna þessarar stóriðju. Ég geri
ráð fyrir því að þetta sé svar iðnað-
arráðherra við erindi sveitarfélag-
anna sunnan Skarðsheiðar um að
kanna vatnslindir á svæðinu með
það að framtíðarmarkmiði að menn
geti nýtt það til vatnsveitu þar í
heild. Þetta er verkefni sem sveitar-
félögin ætla að vinna sameiginlega
að og þess vegna var óskað eftir lið-
sinni ráðuneytisins viö það,“ sagði
Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akra-
nesi, í samtali við DV.
>
komdu í
Gerðu
ævintýralega
goð lcaup
Enn fleiri tiiboð
í ©nn stærri
Kringlu
Nyjar
vör
%
KRINGMN
-DVÓ