Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Page 15
14
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
27
íþróttir
íþróttir
Framlengt í Krikanum:
„Spiluðum illa
en unnum"
- Borgnesingar höföu betur í lokin
1-0 Ásmundur Haraldsson (5.)
1-1 Hilmar Hákonarson (7.)
1-2 Valdimar Sigurðsson (107.)
Upphafsmínúturnar í Hafnarflrði
lofuðu svo sannarlega góðu þegar
FH og SkaUagrimur mættust í sext-
án liða úrslitum bikarkeppninnar í
gærkvöldi. Bæði lið komu mjög
ákveðin til leiks og eftir aðeins sjö
mínútna leik höfðu liðin skorað sitt
markið hvort.
Næstu mínútur voru bráðfjörug-
ar og bæði lið áttu ágætis mark-
tækifæri sem ekki tókst að nýta.
FH-ingar fengu kjörið tækifæri á 25.
mínútu til að ná aftur forystunni en
skot frá vítapunkti fór hárfint yfir.
Borgnesingar sneru þá vöm í sókn
en þrumuskot þeirra var varið á
marklínu.
Síðari hálfleikurinn var ekki
nærri eins fjörugur og sá fyrri og
var á köflum afar slakur. Borgnes-
ingar virtust hálfáttavfltir í upphafi
hálfleiksins því á fyrstu 15. mínút-
unum sköpuðu þeir tvívegis stór-
hættu upp við eigið mark en Friðrik
Þorsteinsson markvörður bjargaði
vel. FH-ingar sóttu heldur meira
það sem eftir lifði venjulegs leik-
tíma. Á síðustu sekúndum leiksins
vörðu Borgnesingar á marklínu og
náðu að knýja fram framlengingu.
FH-ingar komu miklu grimmari
til framlengingarinnar og áttu tvö
frábær færi á fyrstu 10. mínútunum,
fyrst Jón Gunnar Gunnarsson og
svo Hrafnkell Kristjánsson en
Borgnesingar vörðust vel. Á sið-
ustu sekúndum fyrri hálfleiks fram-
lengingarinnar tryggði Valdimar
Sigurðsson Borgnesingum sæti í
átta liða úrslitunum með stórglæsi-
legu skoti rétt utan vítateigs.
„í tómu rugli“
„Þetta var alveg arfaslakt. Við
vorum í tómu rugli megnið af leikn-
um þótt það kæmu kaflar í leiknum
sem voru ágætir. í fyrri hálfleik þá
áttu þeir 5-6 góð tækifæri sem við
vorum að gefa þeim. Við spiluðum
iila en unnum samt og það er plús,“
sagði Sigurður Sigursteinsson, leik-
maður Skallagríms, eftir leikinn.
„Við lögðum okkur alla fram en
það dugði bara ekki til. Við hittum
ekki á það i dag þrátt fyrir að við
legðum okkur fram,“ sagði Níels
Dungal, leikmaður FH, dapur í
bragði að leikslokum.
-ih
KR-ingar voru brosmildir eftir leikinn gegn Stjörnunni í Garöabænum en heimamönnum var þyngra í skapi
Arnar Gunnlaugsson á heimleið:
„Skaginn það eina
sem kom til greina“
- laus allra mála í Frakklandi
Landsliðsmaðurinn í knatt-
spymu, Amar Gunnlaugsson, hef-
ur ákveðið að snúa heim úr at-
vinnumennskunni og ætlar að
spila með Skagamönnum það sem
eftir er af íslandsmótinu.
„Ég fékk mig lausan hjá
Sochaux í dag (í gær). Ég er búinn
að vera mikið meiddur og þvi hef-
ur dvölin hér í Frakklandi verið
hálfdöpur hvað knattspymunni
viðvíkur. Ég tel því betra að koma
bara heim og reyna að koma mér í
toppform með Skagamönnum. Ég
stefni á að koma heim á sunnudag-
inn og vera tilbúinn í slaginn gegn
KR á miðvikudaginn," sagði Amar
við DV í gær.
Það er alveg ijóst að Amar verð-
ur Skagamönnum gífurlegur lið-
styrkur í baráttunni um íslands-
meistaratitilinn en hyggst hann
fara utan aftur í haust?
„Ég er mjög ánægður með það
að vera laus allra mála hér í
Frakklandi og ætla nú að leggja
mitt af mörkum til að við höldum
titlinum heima á Skaganum og
stöndum okkur vel í Evrópukeppn-
inni. Eins og staðan er í dag er ég
ekki í samböndum við nein önnur
lið og hlakka bara til að koma í
baráttuna heima og láta að mér
kveða,“ sagði Amar að lokum.
-ÖB
Yfirburðir KR-inga í Garðabænum:
„Mikil breidd“
- varamennirnir létu mikið að sér kveða
0-1 Bjarni Þorsteinsson (3.)
Hörkuskalli eftir aukaspymu frá
vinstri.
1-1 Ingólfur Ingólfsson, (11.),
með hörkuskoti af tun 25 metra
færi.
1-2 Þorsteinn Jónsson (60.).
Gott skot af 20 m færi i bláhomið.
1-3 Ríkarður Daðason, víta-
spyrna (62.), eftir að honum
hafði verið brugðið.
1^1 Einar Þór Danlelsson (68.),
skallamark eftir góða fyrirgjöf.
1-5 Brynjar Gunnarsson (88.),
hljóp af sér vöm Stjörnunnar eft-
ir góöa stungusendingu og renndi
fram hjá úthlaupandi markverði.
KR-ingar fengu óskabyrjun
og náðu forystu á 3. mín.
Stjörnumenn létu það þó ekk-
ert á sig fá og voru mjög sókn-
djarfir nánast allan fyrri hálf-
leikinn og hefðu alveg eins
getað haft forystu í leikhléi,
en staðan var 1-1.
í síðari hálfleik skiptu KR-
ingar inn þeim Heimi Guð-
jónssyni, Ríkarði Daðasyni og
Guðmundi Benediktssyni í
þessari röð og byrjaði Heimir
á því að taka öll ráð í sínar
hendur á miðjunni og Ríkarð-
ur og Guðmundur styrktu
mjög framlínuna og gerðu
mikinn usla í vörn Stjörnunn-
ar og mörkunum tók bókstaf-
lega að rigna yfir Garðbæ-
inga. Þorsteinn Jónsson átti
einnig mjög góðan dag og
skoraði afar mikilvægt mark.
„Ég er mjög ánægður með
sigurinn og gekk þetta allt
saman upp í síðari hálfleik.
Það er mikil breidd í liðinu
sem sýndi sig i þessum leik,“
sagði Haraldur Haraldsson,
þjálfari KR-inga.
Stjörnumenn lentu í mikl-
um vandræðum í síðari hálf-
leik og gengu KR-ingar á lag-
ið og gerðu út um leikinn á
einfaldan hátt.
Ljóst er að KR-liðið er að
komast á beinu brautina en
þeir voru þó alls ekki nógu
sannfærandi i fyrri hálfleik.
Heyra mátti á framámönn-
um Stjömunnar að mikill á-
hugi væri á því að ráða
Bjarna Sigurðsson sem þjálf-
ara liðsins.
„Við áttum að hafa forystu
í leikhléi, en heppnin var með
KR-ingum. Aðstæður leyfa
ekki að ég taki að mér þjálfun
Stjörnunnar því ég á mjög
erfltt um vik vegna atvinn-
unnar,“ sagði Bjami Sigurðs-
son, tímabundinn þjálfari
Garðabæj arliðsins.
Ljóst er að mikill vandi
blasir við liðinu ef dregst öllu
lengur að ráða þjálfara til
frambúðar.
KR-ingarnir eru aftur á
móti að eflast mjög og geta
orðið erfiðir viðureignar í
næstu leikjum. Liðið ætti því
að geta bætt stöðu sína veru-
lega á næstunni í úrvalsdeild-
inni.
-Hson
Úrslit
Coca-Cola bikar karla:
Stjaman-KR...................1-5
Keflavík-Fram ...............1-0
FH-Skallagrímur..........(1—1)1—2
KA-ÍBV ......................1-6
2. deild karla:
KVA-Þróttur N................4-5
Ægir-Leiknir R...............2-2
(Soran Stosic, Guðmundur L.
Gunnarsson - Róbert Arnþórsson,
Heiðar Ómarsson)
3. deild karla C:
Emir Í-Bolungarvík.............1-3
NM U17 ára kvenna:
Finnland-ísland ...............1-2
Noregur-ísland.................3-0
liáiiáu i-ÉMim
rsx*j
NAFN ÞÁTTTAKANDA
NAFN 1 inS NÚMFR 1 IDS
SEL LEIKMANN: NÚMFR NAFN VERÐ
KAUPI LEIKMANN:
NÚMFR _ NAFN VERÐ
SENT TIL: DV - ÍÞRÓTTADEILD/DRAUMALIÐ, ÞVERHOLT 11 105 REYKJAVÍK
Þjálfurum kennt um þegar illa gengur:
Nokkrir valtir í sessi
Tveimur þjálfurum í úrvalsdeildinni
í knattspyrnu hefur þegar verið vikið
úr starfí. Þeim Lúkasi Kostic hjá KR og
Þóri Lárussyni hjá Stjörnunni.
Eins og jafnan þegar illa gengur er
þjálfurum kennt um, jafnvel þó liggi I
augum uppi að við þá sé ekki að
sakast.
Af samtölum við aðila innan knatt-
spyrnuhreyfingarinnar undanfarna
daga má ljóst vera að Logi Ólafsson
landsliðsþjálfari er sá þjálfari sem hlýt-
ur að vera hvað tæpastur í sínu starfi.
Logi hefur litlum árangri náð með ís-
lenska landsliðið og liðið hefur hrapað
niður um ein 23 sæti á alþjóðlega list-
anum frá síðustu áramótum. Rétt væri
að skipta strax um landsliðsþjálfara í
stað þess að geyma þá ákvörðun þar til
samningur Loga rennur út. Stokka þarf
upp spilin og skipta út mörgum þreytt-
um landsliðsmönnum og gefa yngri
leikmönmun tækifæri. Það ætti að gera
strax. Leikimir tveir sem eftir eru í
undankeppni HM gegn Liechtenstein
em kærkomið tækifæri til að leyfa
ungum framtíðarmönnum í landslið-
inu að spreyta sig.
Af þjálfurum í úrvalsdeildinni
kunna Guðmundur Torfason hjá
Grindavík og Kristinn Bjömsson hjá
Leiftri að vera hvað valtastir í sessi
þótt erfitt sé að dæma um það. Sigur
Leifturs gegn ÍA í bikarnum í fyrradag
kann að breyta stöðu Kristins nokkuð
en staða Leifturs í úrvalsdeildinni hlýt-
ur að teljast óviðunandi á Ólafsfirði.
Grindvikingar eru úr leik í bikarnum
eftir tap gegn 1. deildar liði Breiða-
bliks. Staða liðsins í úrvalsdeildinni er
brothætt.
Af liðum í 1. deild er ljóst að staðan
er verst hjá Fylki í Árbænum. Þar er
Atli Eðvaldsson orðinn mjög „heitur"
þrátt fyrir að það sé skoðun margra að
fyrst og fremst sé við leikmenn liðsins
að sakast. í næstu tveimur til þremur
umferðum í deildunum kemur í ljós
hvaða þjálfarar halda starfi sínu i sum-
ar.
-SK
Hörkuleikur í Keflavík:
„Takmarkið að
komast alla leið“
- Framarar fóru illa með færin
DV, Suðurnesjum
1-0 Gunnar Oddsson (62.), fékk góða
sendingu frá Eysteini Haukssyni, Ólafur
Pétursson varöi fyrra skot Gunnars en
boltinn hrökk aftur til hans rétt við
markteig og hamraði hann þá boltanum
i netiö.
Keflvíkingar halda sigurgöngu
sinni áfram og nú í bikamum eftir
sigur á Fram í 16-liða úrslitum.
Keflvíkingar eru til alls líklegir eins
og liðið hefur verið að spila og hafa
alla burði til að ná æðsta takmarki
hvers knattspyrmnnanns, að spila
bikarúrslitaleik.
Keflvíkingar þurftu svo sannar-
lega að hafa fyrir sigrinum. Bæði
lið sýndu feiknalega baráttu og gáfu
leikmenn ekki þumlung eftir enda
er bara eitt tækifæri í bikarleik.
Leikurinn var á köflum mjög
skemmtilegur og fengu áhorfendur
að sjá mjög góð marktækifæri fara í
súginn hjá báðum liðum. Framarar
byrjuðu leikinn mun betur og voru
sterkari aðilinn án þess að skapa
sér hættuleg marktækifæri fyrstu
DV, Akureyri
0-1 Rútur Snorrason (25.)
0-2 Rútur Snorrason (42.)
0-3 Ingi Sigurösson (54.)
0-4 Steingrímur Jóhanness. (59.)
0-5 Hlynur Stefánsson (73.)
0-6 Tryggvi Guðmundsson (75.)
1-6 Jóhannes Guðjónsson (89.)
1. deildar lið KA tók á móti
úrvalsdeildarliði Eyjamanna í 16-
liða úrslitum bikarkeppninnar í
gærkvöld í sól og blíðu á Akureyri.
Áhorfendur fengu að sjá mörk í
öllum regnbogans litum sem öll
nema eitt voru hönnuð af sterku liði
gestanna.
Leikurinn fór nokkuð rólega af
stað og var í jafnvægi fyrstu 15
mínúturnar. Það var eins og dag-
skipunin væri að setja öryggið á
oddinn og spila eftir því enda dýr-
mætt að gera engin mistök í leik
sem þessum. Framara fengu besta
marktækifæri sitt á 16. mín. þegar
þeir fengu vítaspyrnu eftir aö brotið
var á Þorbirni Atla Sveinssyni inn-
an vítateigs. Ólafur Gottskálksson,
góður markvörður heimamanna,
gerði sér hins vegar lítið fyrir og
varði vítið frá Þorbirni Atla. „Ég sá
hvað hann kom rólega að boltanum
og ákvað þá að bíða á línunni og
láta hann spyrna fyrst og kasta mér
svo,“ sagði Ólafur við DV eftir leik-
inn. „Það var röng ákvörðun hjá
þjálfaranum að láta Þorbjörn Atla
taka vítið,“ sagði Ásgeir Elíasson,
þjálfari Fram.
Um miðjan fyrri hálfleik komu
Keflvíkingar meira inn í leikinn og
náðu nokkrum stórhættulegum
skyndisóknum og komst Haukur
Ingi til að mynda einn í gegn en
skaut yfir markið. Á síðustu mínútu
fyrri hálfleiks sofnaði síðan vöm
mínúturnar. Eftir það má segja að
Eyjapeyjar hafi sett í fluggír og voru
miklu betri en heimamenn og
hreinlega yfirspiluðu andstæðing
sinn langtímum saman. KA-menn
áttu ekki skot að marki Eyjamanna
sem heitið gat í fyrri hálfleik og
Gunnar Sigurðsson, markvörður
Eyjamanna, hefur líklega sjaldan
haft það jafnnáðugt og í þessum
leik. Sigur gestanna hefði getað
orðið miklu stærri og geta
heimamenn þakkað markverði
sínum það að tapið varð ekki enn
stærra en hann sýndi oft góð tilþrif
á milli stanganna og hafði í nógu að
snúast.
Eyjamenn sýndu það 1 þessum
Keflvíkinga illilega og Þorbjöm Atli
komst einn í gegn en skaut fram hjá
á ótrúlegan hátt.
Keflvíkingar vora sterkari aðil-
inn í síðari hálfleik og eftir markið
héldu þeir áfram að spila sinn bolta
og'reyna að bæta við marki í stað
þess að pakka í vörn. Framarar
fengu þrjú góð færi til að skora úr
en heppnin var ekki með liðinu og
því fór sem fór fyrir Safamýrarpilta.
„Við duttum niður á kafla í
seinni hálfleik en náðum að halda
þessu á kraftinum. Við þurfum að
nýta þessi 5-6 dauðafæri sem við
fáum annars förum við að tapa.
Takmarkið er að komast alla leið,“
sagði Gestur Gylfason, fyrirliði
Keflvíkinga.
„Við vorum að mínu mati með
sterkara lið í fyrri hálíleik og áttum
að vera búnir að afgreiða leikinn þá
en svona er bara fótboltinn," sagði
Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, í
lokin.
-ÆMK
leik að það er mikill styrkleika-
munur á þessum tveimur liðum.
Liðið er greinilega fimasterkt og
nokkuð jafnt þó svo kannski erfitt
sé að dæma liðið af þessu leik þar
sem mótspyrnan var harla lítil en
þeir eiga eflaust eftir að ná langt í
bikarkeppninni.
KA-menn náðu stundum upp
ágætis samleik úti á vellinum en
þegar nálgast fór vítateig
Eyjamanna fjaraði þetta allt út hjá
þeim. Eftir þriðja mark gestanna
virtist liðið gefast hreinlega upp og
hugmyndaleysi einkenndi leik
liðsins.
-GN
Keila:
Jón Helgi
í banastuöi
Jón Helgi Bragason hefur náð
frábærum árangri á Evrópu-
meistaramótinu i keilu sem fer
nú fram í Nottingham á
Englandi. Hann er nú í 8. sæti i
samanlögðu með 4972 stig í 24
leikjum, 207,2 stig að meðaltali,
og hefur tryggt sér sæti í 16-
manna úrslitum, sem spiluð
verða í dag og á morgun, en ís-
lendingar hafa aldrei áður átt
fulltrúa í 16-manna úrslitum. í
úrslitunum keppa allir við alla
og svo er spilaður svokallaður
stöðuleikur, þ.e.a.s. nr. 1 spilar
við nr. 2, 3 við 4, 5 við 6 o.s.frv.
Elín Óskarsdóttir stóð sig vel
á mótinu og best islensku kven-
anna og endaði í 32. sæti með
4630 stig í 24 leikjum sem gerir
192,9 stig að meðaltali. í keppni
fimm manna liða varð karlaliðið
í 18. sæti með 5614 stig, 935 að
meðaltali í leik, en kvennaliðið i
því 15. með 5264 stig, 877 að með-
altali. -ÖB
Um helgina
Föstudagur
2. deild karla:
Fjölnir-HK..................20.00
3. deild karla:
Bruni-GG....................20.00
Léttir-Smástund.............20.00
ÍH-Haukar...................20.00
KSÁÁ-Grótta ................20.00
Höttur-Leiknir F............20.00
Magni-Tindastóll ...........20.00
Neisti H.-Hvöt .............20.00
Nökkvi-KS...................20.00
Njarðvik-Afturelding........20.00
Laugardagur
3. deild karla:
Snæfell-Víkingur Ó..........14.00
HVÍ-Reynir Hn...............14.00
Hamar-Smástund .............14.00
1. deild kvenna:
KVA-Leiknir F...............14.00
Sindri-Höttm-...............17.00
Sunnudagur
Sjóvá-Almennra deildin
ÍBV-Skallagrimur............17.00
1. deild karla
Þróttur R.-Dalvik...........16.00
Víkingur R.-Fylkir..........20.00
2. deild karla
Víðir-Völsungur.............14.00
Sindri-Selfoss..............16.00
Eyjapeyjar áfram í bikarnum:
Markaregn á Akureyri
- KA átti aldrei möguleika
Fallvaltir
þjálfarar
- staða þjálfara á íslandsmótinu í knattspyrnu 1997 -
Atli Eðvaldsson
FYLKIR
Logi Ólafsson
KSÍ
Lúkas Kostic
KR
Kristinn Björnsson
LEIFTUR
Þórður G. Lárusson
SJARNAN
DV
Ásgeir Elíasson
FRAM
Bjarni Jóhannsson
ÍBV
Gunnar Oddsson
ÍBK
*
Sigurður Björgvinsson
ÍBK