Dagblaðið Vísir - DV - 27.06.1997, Blaðsíða 20
32
FÖSTUDAGUR 27. JÚNÍ 1997
Fréttir
Hafnarfjörður:
Tveir innbrotsþjófar gómaðir
Lögreglumenn í Hafnarfirði
gómuðu óvænt tvo innbrotsþjófa í
fyrrinótt þegar þeir stöðvuðu
númerslausa bifreið í miðbænum.
Þegar betur var að gáö kom í
ljós að bíllinn var fullur af þýfi.
Um var að ræða hijómflutnings-
tæki, tölvur, prentara og mikið af
skartgripum sem hafði verið
stolið úr húsum í Kópavogi fyrr
um nóttina.
Mennirnir viöurkenndu inn-
brotin við yfirheyrslur og þýfinu
hefur nú nær öllu verið komið til
réttra eigenda sinna.
-RR
-besti tími dagsins!
Blaðberar óskast
Blaðberar óskast á stór
Reykjavíkursvæðinu.
Upplýsingar I síma 460 6100 eða 800 7080.
x>v
^ Garðabær:
Ófært að láta ung-
lingagengi ógna
heilu bæjarfélagi
- segir verslunarfólk við Garðatorg
„Þeir vaða hér uppi með svívirð-
ingum og ógnunum við almenna
borgara. Þeir hafa valdið fólki lík-
amsmeiðingum. Það er ófært að
láta svona unglingagengi ógna
heilu bæjarfélagi,“ sögðu tveir
verslunarmenn við Garðatorg við
DV, aðspurðir um ofbeldis- og
skemmdarverk 8 pilta i Garðabæ
sem kærðir hafa verið ítrekað til
lögreglu.
Verslunarmennirnir vildu ekki
láta nafna sinna getið af ótta við
áreitni eða hefnd. Þeir sem og ann-
að verslunarfólk við Garðatorg
hafa fengið að kenna á ofbeldi og
skemmdarverkum piltanna og segj-
ast búnir að fá sig fúllsadda af
ástandinu.
Veröur aö stööva þetta
„Við förum fram á það við bæjar-
yfirvöld hér í Garðabæ að þau
stöðvi þetta. Mjúka leiðin hefúr ver-
ið farin gagnvart þessum piltum en
það hefur ekki gengið hingað til. Ef
það dugar ekki verður að láta hart
mæta hörðu. Það verður þá bara
hreinlega að taka piltana úr umferð
og setja þá í hendur einhverra sem
geta hjálpað þeim. Ef þeir eiga að
vera lausir verður að setja upp
aukna gæslu héma í miðbænum tU
að fólk geti verið öruggt.
Piltarnir hafa undanfama mán-
uði valdið tjóni í verslunum við
Garðatorg sem nemur mörg hundr-
uð þúsundum króna.
Bera ekki virðingu fyrir neinu
„Þeir hafa brotið hér rúður, stolið
og eyðilagt hluti. Þeir hafa ógnað
fólki og ráðist á það hér af engu til-
efni. Harðasti kjarninn í þessu
gengi eru fjórir piltar en svo eru
fjórir til viðbótar oftast með þeim.
Þeir virðast ekki bera virðingu fyr-
ir einu eða neinu. Ég veit ekki
hvers konar eðli þetta er eiginlega,“
sagði verslunareigandi við Garða-
torg. -RR
Pú gætlr unnið giæsiiega vinninga hjá
Skátabúðinni sem dregnir verða út
vlkulega eða Camp-Let-Appollo Lux
tjaldvagn frá gísla jómssvmi hf
Rfkutega tMHnn 17m2 Camp-Let Apolio tjakfvaen me* stóru áföstu
fortjaldi, aó verémæti 4$4>000lcr.
Scarpa Arfvance
m«Ó Gore-Tex vatosvöm
i — — ádkjk .w’lk | fr*
Vy VViUavra 'ÖV. v@;
1S.«90kr.
Það borgar sig að
w w
Áskriftarsími
SIO 1000
Garöabær:
Þarf að endue
skoða réttar-
kerfi okkar
- segir bæjarstjórinn
„Það er auðvitað mjög alvarlegt
mál þegar ofbeldismenn ganga um
bæjarfélagiö. Það er að sjálfsögðu
áhyggjuefni allra hér í bænum. Það
er hins vegar hlutverk lögreglu að
halda uppi lögum og reglu en ekki
sveitarstjórna. Við höfum rætt
þetta ástand við lögregluyfirvöld og
lagt áherslu á að þetta verði stöðv-
að,“ sagði Ingimundur Sigurpáls-
son, bæjarstjóri í Garðabæ, að-
spurður um málið.
„Vandamálið tel ég vera réttar-
kerfið sem við búum við. Það er allt
of langur tími sem líður frá því
menn brjóta af sér og þar til þeir fá
dóm. Menn eru frjálsir á meðan og
brjóta þá jafnvel enn frekar af sér.
Ef fólk leggur ekki í að leggja fram
kæru þá veröur auðvitað að vera til
einhver aðili sem getur þá gert það
í þeirra stað. Ég veit ekki annað en
það sé hlutverk ríkissaksóknara að
gera það í meiri háttar árásarmál-
um. Þegar um minni háttar árásar-
mál er að ræða er að ætlast til að
þolendur geri það. Þá er spumingin 1
hvar þessi mörk eru.
Svona ofbeldisverk hafa ekki bara
gerst hér i Garðabæ heldur í öllum
bæjarfélögum hér á höfuðborgar-
svæðinu og víðar. Þetta er stórt
vandamál og það verður að fara að
endurskoða réttarkerfi okkar. Það
virðist ekki vera hægt að taka á
þessum afbrotamönnum nógu fljótt
og nógu röggsamlega til að vernda
borgarana. Þegar fólk er ekki lengur
öruggt heima hjá sér er þetta auðvit- |
að orðið gríðarlega alvarlegt mál,“
segir Inigmundur. -RR
Grindavík:
Fjöldi umsókna
um lóðir
DV, Suðurnesjum:
„Það hefur verið mikið af um- I
sóknum um byggingarlóðir í vor og
sumar. Okkur líst vel á að menn
vilji vera hér og fjárfesta í nýjum
húsum. Hér er mjög gott að vera,“
sagði Jón Gunnar Stefánsson, bæj-
arstjóri í Grindavík, við DV.
Mikill íjöldi umsókna um bygg-
ingarlóðir í Grindavík hefur borist
bygginganefhd bæjarins á undan-
förnum mánuðum. Mest kemur á
óvart hvað unga fólkið sækir í lóðir
undir einbýlishús. Þeir sem sækja |
um eru frá 18 ára aldri. -ÆMK