Dagblaðið - 25.11.1975, Síða 1
l.árg.— Þriðjudagur 25. nóvember 1975 — 65. tbl. Ritstjórn Síðumúla 12, sími 83322, auglýsingar og afgreiðsla Þverholti 2, sími 27022
ViL DÚÐAÐAR GEGN VEÐRINU
HER-
SKIPIN
KOMA
Brezka utanríkisráðuneyt-
iðkvaddi Niels P. Sigurðsson
sendiherra tslands i London
á sinn fund klukkan ellefu i
morgun og tilkynnti honum,
að herskip yrðu send til ts-
lands.
Freigátan Leopard er
væntanleg á íslandsmið i
dag, og tilkynnt hefur verið,
að tvær aðrar freigátur komi
hinn 29. nóvember.
Þetta kemur fram i sam-
eiginlegri tilkynningu utan-
rikis- og landvarnaráðuneyt-
isins, sem birt var i hádeg-
inu. —HH
Landhelgin:
Hlé á
undan
stórviðri
„Það er hlé á undan stdr-
viðri,” sagði Jón MagnUsson,
talsmaður Landhelgisgæzl-
unnar, i morgun.
Varðskip var i grennd við
togara norður af Melrakka-
sléttu og annað út af Hvalbak.
Á þessum stöðum voru 4—5
brezkir togarar, sem létu
reka. Skipstjórarnir voru
greinilega að biða frétta af af-
stöðu brezku stjórnarinnar.
Um 20 brezkir togaraskip-
stjórar tilkynntu i gær, að þeir
væru að sigla út fyrir 200
milnamörkin. —HH
Þvi verður vart á móti mælt
að veður gerast nú rysjótt i
meira lagi. t gær áttu borgarar
Reykjavikur við ramman reip
að draga i baráttu sinni við höf-
uðskepnurnar. Veðrið var á
timabili afleitt eins og greini-
lega má sjá á þessari mynd. I
dag er reiknað með að við fáum
allhvöss él, en með kvöldinu eða
nóttinni á að fara að kólna.
(I)B-mynd Björgvin).
DAGBLAÐIÐ ER SMÁAUGLÝSINGABLAÐIÐ
Dagblaðið hefur daglega tvöfalt fleiri nýjar, óður óbirtar,
smóauglýsingar en nokkurt annað dagblað -Sjó bls. 17, 18, 19, 20, 21
BLAÐIÐ FER „HAMFÖRUM"
— efnisniðurröðun breytt verulega
Lesendur Dagblaðsins eru
beðnir um aö vera þolinmóðir i
dag, þótt þeir finni ekki efni
blaösins á venjulegum siðum.
Við höfum nefnilega fært það til
og vonum, að það verði hér eftir
aðgengilegra fyrir lesendur. Ot-
varps- og sjónvarpsfréttirnar,
svo og auglýsingar kvikmvnda-
húsa og skemmtistaða, eru nú
komnar i öftustu opnu blaösins,
þarsem auðvelteraö finna þær.
Hin vinsælu lesendabréf eru
komin i fyrstu opnu blaðsins. t
tengslum við þetta hafa nokkrar
breytingar verið gerðar á dag-
bók, myndasögum og smáaug-
lýsingum. Vonum við, að allar
þessar breytingar falli lesend-
um vel i' geð, þegar þær fara að
venjast.
Útvarp og sjtínvarp á bls. 23
Bitíauglýsingar á bls. 22
Smáaugl. bls. 17, 18,19,20 og 21
Dagbtík á bls. 1«, 17
Haddir lesenda á bls. 2,3.
Mó ekki vera fyndinn!
Bretar geta verið meinfyndn-
ir, þegar þeir fjalla um Guð-
mund Kjærnested, skipherra, i
fjölmiðlum sinum. Hinsvegar
lita þeir það alvarlegum augum
ef stöðvarstjóri á járnbrautar-
stöð fer að gefa út fyndnar
meldingar um komu og brott-
farartima lestanna. Jón Björg-
vinsson, fréttamaður DB i
London, segir meðal annars frá
einu sliku tilviki i fréttagrein
sinni frá stórborginni, ,,ÞÁ
ERU ÞAÐ LUNDÚNAFRÉTT-
IRNAR...” — bls. 14
Er embœttismönn-
um hlíft við
dómsrannsókn?
Kjaltaragrein eftir
Kristjón Pétursson,
deildarstjóra
Tollgœziunnar
- bls. 10-11
BILL OG
MAÐUR
Það er betra að bill og öku-
maður séu i lagi á akvegunum
um þessar mundir, slysahættan
er meiri en nokkru sinni, og nú
verðum við að gera allt sem i
okkar valdi stendur til að koma i
veg fyrir þau. Atli Steinarsson
skrifar um ýmislegt það sem
ökumenn ættu að hafa hugfast i
umferðinni, — og um að hert
verði að innflutningi á ökutækj-
n — bls. 4.
NYTT
LÝÐVELDI
FÆDDIST
í MORGUN
— erlendar fréttir
bls. 6-7