Dagblaðið - 25.11.1975, Page 6
6
Pagblaðið. Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
Mikill bylur i Colorado og næriiggjandi fylkjum Bandarikjanna að undanförnulicfurorðið fjöida manns
að bana og gert enn fleiri heimilislausa. Þessi fallega haustmynd frá Denver er þó i fuliu gildi, ekki að-
eins þar, heldur hvarvetna.
Eftir friðargönguna miklu
til Sahara:
Þríveldastjórn
tekur við
völdum
Þrfveldastjórn tekur form-
lega við völdum i Vestur-Sahara
i dag samkvæmt samkomulagi
Spánar, Marokkó og Máritaniu,
sem gert var fyrr i þessum
mánuði.
í tilkynningu frá skrifstofu
spænska landstjórans i E1 Aaiun
i V-Sahara sagði að ásamt hon-
um i þrlveldastjórninni myndu
eiga sæti fulltrúar Máritaniu og
Marokkó. Myndu þeir gegna
embættum aðstoðarlandstjóra.
í samkomulagi rikjanna
þriggja um Vestur-Sahara er
í dag
gert ráð fyrir þvi, að Spánverjar
veröi farnir úr landinu fyrir 28.
febrúar á næsta ári. Samkomu-
lagið var gert i kjölfar „friðar-
göngu” 350 þúsund Marokkó-
manna inn i Vestur-Sahara.
Gangan stöðvaðist skammt inn-
an við norðurlandamæri eyði-
merkurrikisins, þar sem
spænskt jarðsprengjusvæði
varö fyrir göngumönnum.
Valdatakan tekur gildi um
leiö og yfirlýsing þar um hefur
veriö gefin út af skrifstofu land-
stjórans.
Aöstoðarlandstjórarnir verða
Reynt að þvinga Sovét-
menn til kjarnorkuaf-
vopnunar í S-Ameríku
líbonon:
„Þjóðin
þolir
ekki
meira"
Þing Libanon
kemui’ saman til
i'undar i dág til að
ræða aukin innan-
landsátök. Forsætis-
ráðherra landsins,
ilashid Karami, hefur
varað landsmenn við
þvi, að þjóðin ,,þoli
ekki meira”.
Karami sagði þetta I gær-
kvöldi, eftir að fundur ráðs 20
forystumanna stjórnmálalifs-
ins leystist upp vegna fjarveru
Camille Chamoun innanrikis-
ráðherra.
Chamoun, sem hefur veru-
leg áhrif meðal kristinna
manna i landinu, sagði frétta-
mönnum siðar, að hann heföi
tafizt vegna öryggismála.
Reuter- hefur eftir heimild-
um innan nefndarinnar, að
Karami hafi sagt á fundi
hennar, að vopnaðir hópar, er
styddu Suleiman Franjieh for-
seta og Chamoun væru ábyrg-
ir fyrir auknum vopnaviö-
skiptum og götubardögum.
Leiðtogi vinstrimanna,
Kamal Junblatt, hefur spáð
þvi, að átökin muni halda
áfram allt til jóla. Hann skor-
aði á Franjieh forseta og inn-
anrikisráöherrann til að segja
af sér.
Tólf manns féllu i gær i
bardögum hægri- og vinstri-
manna I Beirút. Rúmlega 250
manns hafa fallið I átökunum i
Libanon undanfarnar fjórar
vikur.
Fyrrum forsætisráðherra
Frakklands Maurice Couve
de Murville, heldur i dag
áframhaldandi fundi með
stjórnmála- og trúarleiðtog-
um i landinu. Hann kom fyrir
hönd frönsku stjórnarinnar
til Libanon i siðustu viku til
að kanna ástandið. Frakkar
sem fyrrum réðu Libanon
gera sér vonir um að geta
haft jákvæð áhrif á ástandið i
landinu.
Meirihluti þjóða í S-
Ameríku og við Karabfska
hafið hefur hvatt Allsherj-
arþing Sameinuðu þjóð-
anna til að reyna að fá
Sovétríkin til að sam-
þykkja sáttmála, er gerir
ráð fyrir Suður-Ameríku
sem kjarnorkuvopnalausu
svæði.
í stuttorðri ályktunartil-
lögu 21 þjóðar, sem lögð
var fram í stjórnmála-
nef nd þingsins, sagði — og
itrekaði f lutningsmaður,
mexíkanski sendiherrann
Alfonso Garcia Robles það
í ræðu sinni — að tilgangur
tillögunnar væri að reyna
enn einu sinni að fá Sovét-
ríkin til að skrifa og sam-
þykkja ályktun II.
Samkvæmt þeirri álykt-
un er það hlutverk kjarn-
orkuveldanna að sjá um að
kjarnorkuvopn verði aldrei
höfð i S-Ameríku.
Að sögn mexíkanska
sendiherrans hafa Bretar,
Bandaríkjamenn, Frakkar
og Kínverjar þegar skrifað
undir ályktunina.
„Leggja verður áherzlu
á það," sagði Garcia, „að í
meira en ár hafa Sovétrík-
in staðið ein gegn sam-
þykkt tillögunnar."
Ahmed Bensouda af hálfu
Marokkómanna og Abdalah Uld
Chiej af hálfu Máritaniumanna.
Spænska fréttastofan CIFRA
skýrði frá þvi i morgun, aö Ben-
souda hefði komið til Vest-
ur-Sahara I gær og að fulltrúi
Máritaniustjórnar væri væntan-
legur i dag.
1 tilkynningu spænska land-
stjórans sagði að mennirnir
tveir yröu kynntir fyrir þjóö-
þingi Vestur-Sahara, „sem er
æösta fulltrúastofnun ibúa
landsins”.
Samkvæmt þriveldasam-
komulaginu verður framtið
landsins borin undir ibúa þess.
Að sögn hefur einn embættis-
manna máritaniska landstjór-
ans yfirgefið hann og gengiö til
liðs við Hassan Marokkókon-
ung.
Stjórn Alsir hefur hafnað þri-
veldasamkomulaginu og lýst
þaö ómerkt. Alsirmenn styðja
helztu sjálfstæðishreyfingu
Vestur-Sahara, Polisario, sem
segist stjórna stórum landsvæö-
um, er spænskar hersveitir hafa
þegar yfirgefiö.
Argentína:
Isabella mœtir ekki í vinnuna,
120.000 verkamenn í verkfalli
Isabella Perón, forseti Argen-
tinu, mætti ekki til vinnu sinnar á
skrifstofunni I forsetahöllinni I
morgun og hefur þar meö á ný
komiö af stað vangaveltum um
heilsufar sitt.
I stjórnarherbúðum i Buenos
Aires var i gær skýrt frá þvi, að
forsetinn myndi koma til vinnu i
fyrsta skipti siðan 31. október, en
i morgun sögöust embættismenn
ekkert vita um það.
Blöð I Argentinu hafa eftir
heimildum, sem þau telja áreið-
anlegar, að frú forseti hafi ekki
viljaö taka á móti nokkur þúsund
ungum perónistum á laugardag-
inn, þar sem hún liti ekki nægi-
lega vel út til aö sýna sig meöal
almenings.
Stærsta bilaverksmiöja Argen-
tinu var lokuð i morgun vegna
sólarhrings verkfalls allra starfs-
manna, sem eru um 120 þúsund
talsins.
Talsmenn verkalýðssambands-
ins sögöu verkfallið vera háð til
að mótmæla tilraunum til að
sameina samband starfsmanna i
bilaverksmiðjum sambandi
verkamanna I málmiðnaði. Einn-
ig er farið fram á bætt laun.
Taliö er að þessar tilraunir til
sameiningar verkalýðssamband-
Isabella Pérón á fundimeð rikisstjórn sinni I forsetabústabnum i Buones Aires: skrópar I vinnunni.
anna tveggja beri vitni um ákafa
valdabaráttu innan Perónista-
hreyfingarinnar.
Stjórnin lýsti þvi yfir I morgun,
aö kauphækkun, sem næmi 1500
pesos (4000 krónum) mánaðar-
lega, heföi verið ákveöin handa
rikisstarfsmönnum og starfs-
mönnum einkafyrirtækja.
Fjöldi verkalýösfélaga I
Argentinu hefur krafizt meiri-
háttar kauphækkana að undan-
förnu til aö eiga eitthvað upp i
verðbólgu, sem nú er 240% á árs-
grundvelli.