Dagblaðið - 25.11.1975, Blaðsíða 10
10
Hagblaðið. Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
WBIAÐIÐ
írjálst, óháð dagblað
Ctgefandi: Dagblaðið hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Iþróttir: Hallur Simonarson
Ilönnun: Jóhannes Reykdal^
Blaðamenn: Anna Bjarnason, Asgeir Tómasson, Atli Steinarsson,
Bragi Sigurðsson, Erna V. Ingólfsdóttir, Ilallur Hallsson, Helgi
‘Pétursson, Ólafur Jónsson, ómar Valdimarsson.
Handrit: Asgrimur Páisson, Hildur Gunnlaugsdóttir, Inga
Guðmannsdóttir, Maria ólafsdóttir.
Ljósmyndir: Bjarnleifur Bjarnleifsson, Björgvin Pálsson
Gjaldkeri: Þráinn Þorleifsson
Auglýsingastjóri: Asgeir Hannes Eiriksson
Drcifingarstjóri: Már E.M. Halldórsson
Askriftargjald 800 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 40 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Ritstjórn Siðumúla 12, simi 83322, auglýsingar, áskriftir og af-
greiðsla Þverholti 2, simi 27022.
Tvöfalt verð og hálft verð
Sjómaður, sem siglir með afla sinn,
fær i erlendri höfn tvöfalt hærra verð
en hann fær i sinni heimahöfn. Ef
bóndi hins vegar sigldi með afurðir
sinar, fengi hann i erlendri höfn að-
eins hálft verð á við það, sem hann
fær i kaupfélaginu.
Þessi samanburður sýnir i hnotskurn, hve litið er
að marka verðkerfið hér á landi. Millifærslur hins
opinbera eru orðnar svo miklar, að enginn veit
lengur, hvað neitt kostar. Verðmyndun i landinu er
orðin að bókfærsluatriði hins opinbera.
Frá upphafi verzlunar i heiminum og til þessa
dags hefur viðast hvar i heiminum rikt sjálfvirkt
verðmyndunarkerfi markaðsins. í sliku kerfi er
greitt fyrir árangur starfsins en ekki fyrirhöfnina.
Slikt kerfi tryggir, að framfarir og uppfinningar
fara um heiminn eins og eldur i sinu.
Þetta kerfi á meginþátt i hraðri útbreiðslu afleið-
inga iðnbyltingarinnar. Á einni öld lækkaði hlutur
landbúnaðar i atvinnuskiptingunni úr 80% i 3% i
nokkrum mestu iðnrikjum heims, og eru þetta samt
þau riki, sem helzt allra eru aflögufær með land-
búnaðarafurðir.
Við tengjumst þessu alþjóðlega kerfi i sölu fiskaf-
urða okkar á erlendum markaði, þar sem við kepp-
um við margar aðrar fiskveiðiþjóðir. Verðið, sem
við náum, er svo hátt, að það stendur undir nútima-
lifi og nútimalúxus islendinga að verulegu leyti.
Sala fiskafurðanna er eiginlega eina sambandið.
sem við höfum við eðlilegt verðmyndunarkerfi. En
hinu sérislenzka bókhaldskerfi er kippt inn i mynd-
ina um leið og dollurunum fyrir fiskinn er breytt i
krónur. Og siðan fylgir á eftir endalaus röð af milli-
færslum.
Gengi islenzku krónunnar er skráð nógu hátt til
þess, að fiskiðnaðurinn skrimti á núlli i reikningum
Þjóðhagsstofnunar og geti einungis greitt mjög lágt
fiskverð, sem miðað er við að útgerðin skrimti á
núlli i reikningum Þjóðhagsstofnunar.
Hvorki fiskverð né gengi er i neinu sambandi við
alþjóðleg markaðsverð. Hvorki fiskiðnaður og út-
gerð né starfsfólk þessara greina hefur tekjur i
samræmi við afköst sin i alþjóðlegum samanburði.
Mismunurinn er tekinn með millifærslum til að
halda uppi ýmsum öðrum þáttum þjóðfélagsins.
Rikið stjórnar fjárfestingunni með spariskirtein-
um, sem fjármagna opinbera sjóði forréttinda-
greina. Verðlagsráð af ýmsu tagi reikna visitölur og
ráða verðlagi i landinu. Mikill og vaxandi hluti af
tekjum þjóðarinnar er notaður i mismunandi þarfa
samneyzlu af ýmsu tagi.
Einna fullkomnast er bókfærslukerfið i verð-
myndun landbúnaðarafurða. Þær eru verðlagðar
eftir fyrirhöfn en ekki árangri. Ákveðið er, að tekjur
bænda skuli sem næst fylgja tekjum verkamanna,
sjómanna og iðnaðarmanna. Siðan er það bókhalds-
atriði, hve hátt verð er sett á hverja afurð.
Þessi sérislenzku bókhaldskerfi draga úr eðlileg-
um straumi fjármagns og starfskrafta til hag-
kvæmustu greinanna og eru hemill á framleiðni og
hagþróun i landinu.
Juan Carlos I. ásamt fjölskyldu sinni nýlega. Frá vinstri: dóttirin Beatrix, 10 ára, konungur, Felipe
prins, 7 ára, erfingi spænsku krúnunnar, Sofia drottning og Elena, prinsessa, 12 ára. Litli snáöinn er Al-
l'onso frændi þeirra, sem leikur sér með lakkhatt spænsks þjóðvarðliða.
Kóngar og drottningar,
frœndur og frœnkur
Konungssinnar um allan heim
eru ofsakátir yfir þvi að nýr
konungur er kominn til valda á
Spáni eftir 44 ára hlé.
Með valdatöku Juans Carlos-
ar I á Spáni er rofin sú „hefð”
sem skapazt hefur á undanförn-
um áratugum; nefnilega sú að
konungsveldum sé steypt dia
þau lognist út af.
A siðasta áratug hafa konung-
dæmi verið lögð niður i Eþiópiu,
Afganistan, Libýu, Grikklandi
og smárikinu Sikkim i Hima-
lajafjöllum.
„Við erum afar glaðir yfir þvi
að þessi óheillaþróun sé stöðvuð
með friðsamlegri og vinsælli
valdatöku Don Juan Carlos de
Borbón,” sagði talsmaður Kon-
ungssinnasambandsins i Lond-
on sem stofnað var 1943 til að
aðstoða útlæga konunga er flúið
höfðu undan framgangi Hitlers.
Guy Sainty, framkvæmda-
stjóri sambandsins, sagði
fréttamanni Reuter-fréttastof-
unnar að hann teldi að hinn nýi
konungur á Spáni myndi hafa
meiri völd — að minnsta kosti i
orði — en nokkur annar rikjandi
konungur i heimi, nema ef til
vill konungar og keisarar i Mið-
austurlöndum.
riundi Borbóninn
„Konungssinninn”, rit sam-
takanna, hefur lýst hinum nýja
konungi sem „ungum, gáfuðum
og sérlega þjálfuðum” fyrir
hina nýju stöðu hans.
„Mikilvægast er þó,” sagði
timaritið, „að hann hefur hlotið
viðamikla menntun og þjálfun i
þeim flóknu stjórnarskrár-
breytingum sem gert er ráð fyr-
ir á næstu áratugum og hann er
reiðubúinn til að eiga samvinnu
við þá sem vilja láta málin þró-
ast i þá átt að á Spáni verði lýð-
ræði i stjórnarskrárlegu kon-
ungdæmi.”
Konungurinn er hinn tiundi úr
röðum Borbóna til að vera kon-
ungur á Spáni siðan ættin erfði
krúnuna frá Habsborgurum ár-
ið 1700.
Með valdatöku konungs fjölg-
ar rikjandi konungum heimsins
i þrjátiu og tvo.
Konungsriki heimsins
Evrópsk konungdæmi, auk
Spánar, eru Bretland, Noregur,
Sviþjóð, Danmörk, Belgia, Hol-
land, Luxembourg, Monaco og
Lichtenstein.
önnur konungdæmi eru Jap-
an, Laos, Thailand, Tonga, Nep-
al, Marokkó, Sádi-Arabia,
Jórdania, Oman, Iran, Bahrnja,
Kuwait, Qatar, Abu Dhabi, Aj-
man, Duabi, Fujairah, Ras-al-
Khaimah, Sharjah, Umm-al-
Qaiwain og Bhutan.
Borbón-fjölskyldan hefur ráð-
ið rikjum i Frakklandi, Spáni,
Sikiley og Parma. Hún fékk
Luxembourg i sinar hendur og
ræður þar enn. Auk þess er
keisarafjölskyldan i Braziliu
náskyld henni.
Skyldleiki við aðra
kouunga
Juan Carlos I er frændi Elisa-
betar Englandsdrottningar.
Þau eiga sömu ömmu, Viktoriu
Evgeniu prinsessu af Batten-
berg, dóttur Viktoriu drottning-
ar.
Konungurinn nýi er einnig
skyldur Konstantin, fyrrum
Grikklandskonungi, Karli Gúst-
af Sviakonungi, Margréti Dana-
drottningu og Ólafi Noregskon-
ungi.
t gegnum móður sina hefur
hann náið samband við brazi-
lisku, itölsku, búlgörsku og
portúgölsku konungsfjölskyld-
urnar.
Juan Carlos er kominn i
beinan karllegg frá Hugh Capet
sem varð konungur Frakklands
árið 987.
Völd hins nýja konungs verða
töluvert meiri en völd Elisabet-
ar Englandsdrottningar.
Brezka konungsveldið, sem er
elzta ættarstofnun Bretlands, er
einnig langlifasta konungsveldi
i Evrópu.
Elisabet drottning á ættir að
rekja til Egberts konungs sem
sameinaði EJngland undir sina
stjórn árið 829.
Um meðferð dómsmála, lög-
reglurannsóknir og tollamál
hefur verið rætt og ritað nokkuð
að undanförnu. Ljóst er að spill-
ing þessara máia er mjög afger-
andi, enda hefur verið upplýstur
fjöldi mála sem staðfesta
ástandið i þessum efnum.
Það sem vekur þó mesta
athygli á þessum vettvangi er
hversu athafna- og sinnulausir
eru yfirmenn dómsmála i land-
inu. M.a. hafa verið upplýst
ýmiss konar sakamál, sem eru
þess eðlis að krefjast hefði átt
dómsrannsóknar á hendur
embættismönnum vegna
meintrar hlutdeildar þeirra i
sakamálum. I öðrum tilvikum
hafa embættismenn sýnt vita-
vert kæruleysi i starfi og látið
pólitiska afstöðu ráða gjörðum
sinum. 1 slikum tilfellum hafa
lög og regluverðir verið virtar
að vettugi. Afleiðingar slikra
málsmeðferða hljóta öllum að
verða ljósar. Virðingarleysi,
agaleysi og tillitsleysi einkenna
mjög alla stjórnsýslu okkar og
Virðingarleysi
hvers konar spilling eykst hröð-
um skrefum. Meira að segja er
þegnunum alvarlega mismunað
gagnvart lögunumog þannig er
einn af merkustu hornsteinum
stjórnarskrárinnar þverbrot-
inn.
Fyrir kemur að stjórnmála-
mönnum (einnig ráðhr.) eru
borin á brýn opinberlega meiri-
háttar lögbrot eða ótimabær af-
skipti af meintum lögbrotum.
Sjaldnast svara þessir aðilar
fyrir og þögnin ein er látin
nægja i þeim efnum. Að sjálf-
sögðu ætti Saksóknaraembættið
að hafa frumkvæði að rannsókn
slikra mála, enn fremur ættu
alþingismenn að sjá sóma sinn
og virðingu i þvi að slikar rann-
sóknir færu fram. Ef alþingi er
þess ekki megnugt að hreinsa til
innan sinna veggja, hvers má
þá vænta af öðrum aðilum?
Alþingismönnum og
rikisstjórn ætti að vera það ljóst
hvaða hættur steðja að þjóð-
félagi okkar þegar almennt
virðingarleysi rikir i
framkvæmd dómsmála á mjög
breiðum grundvelli. Má þar sér-
staklega tilnefna skattamál,
meðferð gjaldeyrismála, tolla-
mál, áfengislöggjöfina o.fl. Ef
þessir fjórir málaflokkar eru
kannaðir nánar kemur i ljós að
tugþúsundir Islendinga brjóta
árlega lög og reglur þar að lút-
andi.
Viðkomandi rikisstofnanir
gera mjög takmarkaðar ráð-
stafanir til að koma i veg fyrir
slik lagabrot eða framkvæma
nauðsynlegar breytingar á