Dagblaðið - 25.11.1975, Qupperneq 14
14
Pagblaðið. Þriðjudagur 25. nóvember 1975.
ÁTRÚNAÐARGOÐ Á
ÁTTRÆÐISALDRI
Ekki einungis siðhærðar og
gullklæddar poppstjörnur safna
um sig sæg ungra aðdáenda,
sem leggja á sig endalausar bið-
raðir til að komast á hljómleika
átrúnaðargoða sinna.
Alexander Stein, sem er 13
ára New Yorkbúi, tók sér stöðu
fyrir utan Carnegie Hall á há-
degi á mánudegi til að næla sér i
miða að tónleikum hins 72 ára
pianóleikara, Vladimir Horo-
witz, þann 16. nóvember.
Sala á 1800 aðgöngumiðum
átti að hefjast klukkan 10 á
þriðjudagsmorgni. Fjöldi ungra
og gamalla aðdáenda hins
heimsfræga pianóleikara eyddi
nóttinni i biðröðinni fyrir utan
Carnegie Hall, margir tóku með
sér mat og svefnpoka og tveir
ungir ákafir Mozartaðdáendur
tóku með sér helztu tónverk
meistarans til að lesa á meðan
þeir biðu. Haldiðiasénú!
ÞÚ FÆRÐ AÐ SJÁ
MÍNA EF ÉG FÆ
AÐ SJÁ ÞÍNA
Borgarhverfið Haringey i
London vill ekki vera á eftir sin-
um tima. Fyrir niu árum sam-
þykkti hverfisstjórnin að félag-
ar i náttúrudýrkendaklúbb i
hverfinu fengju að synda bað-
fatalausir i almenningslaug
staðarins og nú á að leyfa kon-
um og körlum að sækja sauna-
baðstofuna slfammt frá sam-
timis og án klæða.
Það eru ibúar i hverfinu, sem
farið hafa fram á þetta fyrir-
komulag. Vissar hömlur eru þó
settar á baðgestina. Enginn
undir átján ára aldri fær inn-
göngu og hver gestur verður að
vera i fylgd einstaklings af
gagnstæða kyninu. Til að eigin-
menn geti virt nágranna-
frúrnar fyrir sér i allri sinni
dýrð verða þeir þvi að fá sina
eigin frú til að baða sig fata-
lausa.
BREIÐHOLTSBÚAR
Sparið bensin og verzlið ódýrt í Iðufelii
Ýmsar vörur á markaðsveröi
ódýrt hvalkjöt
Úrvals nautakjöt
Tilbúið í frystikistuna,
388 kr. pr. kíló
Pakkasúpur 52 kr. pakkinn
Libbys tómatsósa 157 kr. flaskan.
Ferskjur í 1/1 dósum 230 kr. dósin.
Fay WC pappír, 10 rúllu poki á 600 kr.
Eplakassinn á 960 kr.
Ávallt ný linu-ýsa í fiskbúðinni
VERZLUNIN
Opið til 10 á föstudögum
og 9 til 12 á laugardögum
IIIUFEtL
Iöufelli 14, Breiðholti
simar 74550 og 74555
DAGBLAÐIÐ ER
SMÁAUGLÝSINGABLAÐ
„Herra Emmanuelle"
vinnur annan sigur
— og James Bond kominn í kassonn
Fyrsta mynd franska leik-
stjórans Just Jaecklin hefur
verið mikill sigur fyrir þennan
unga kvikmyndagerðarmann.
Þetta er myndin „Emmanu-
elle” sem Stjörnubió sýnir um
þessar mundir.
En á meðan „Emmanuelle”
nýtur enn gifurlegrar aðsóknar i
Frakklandi er nýjasta mynd
Jaecklin þegar farin aðdraga til
sin stóra hópa aðdáenda.
Mynd þessi heitir „The Story
of O”. f henni leikur hinn kunni
brezki leikari, Anthony Steel,
rikan höfðingja ungra (og vitan-
lega illa klæddra) ambátta.
Hollywood hefur nú fengið
augástað á Just Jaecklin og
mun hann leikstýra næstu mynd
sinni þar.
Áður en Just Jaecklin datt i
lukkupottinn með „Emman-
uelle” hafði hann unnið við gerð
auglýsingakvikmynda eins og
raunar allir þeir sem tóku þátt i
gerð myndarinnar með honum.
Það er ekki laust við að áhrifa
þess gæti eins og þeir sem þeg-
ar hafa séö myndina eflaust
kannast við.
Og svo við höldum áfram að
tala um kvikmyndir, þá hefur
BBC 2 sjónvarpsstöðin tilkynnt
að jólamynd hennar i ár verði
„Butch Cassidy and the Sun-
dance Kid” með þeim Paul
Newman og Robert Redford.
Sjónvarpsstöðin varð að semja
sérstaklega við Paul Newman
um sýningarréttinn, en þetta er
i fyrsta sinn sem umgetin mynd
er sýnd i sjónvarpi.
Keppinautur BBC, ITV sjón-
varpsstöðin, er hins vegar farin,
fyrst allra sjónvarpsstöðva, að
sýna James Bond myndir i sjón-
varpinu. Fyrsta James Bond
myndin, „Dr. No”, var sýnd i
siðasta mánuði.
Tvö stór kvikmyndahús i
London hafa nú einnig tilkynnt
jólamyndir sinar i ár. önnur
myndin er nýjasta mynd kvik
myndaleikstjórans Kubrick,
„Barry Lyndon”, með Ryan
O’Neal i aðalhlutverki og hin er
„Jaws”, sem ekki hefur verið
hægt að fá til Evrópu fyrr. Til-
kynnt hefur verið, ýmsum til
mikillar furðu, að myndin verði
ekki bönnuð börnum i Englandi.
I
Anthony Steel og einn af mót-
leikurum hans, Corinne Clery,
við upptöku á ,,The Story of O”
nýjustu mynd „Herra
Emmanuelle”.
EINKAVINEKRA HANDA
— poppkóngurinn kaupir sér lúxushöll í Englandi
Popptónlistarmaðurinn
heimsfrægi, Elton John, er ný-
búinn að festa kaup á nýju hús-
næði I Berkshire i Englandi.
Fyrir á hann stórt einbýlishús i
Californiu í Bandarikjunum.
Nýja húsið kostaði Elton 15
milljónir króna, sem kann að
virðast mikið i fyrstu en er
hreint gjafvirði þegar nánar er
athugað hvað húsið hefur að
geyma.
Þjóðsagan segir að umrætt
hús hafi verið byggt af Hinriki
konungi áttunda fyrir einhverja
elskuna. Siðasti eigandi á undan
Elton bjó húsið út með öllum
hugsanlegum nútimaþægind-
um, en varð svo að selja allt
saman vegna hins geigvænlega
rekstrarkostnaðar.
Kvikmyndasalur með kvik-
myndatjaldi i fullri stærð og
sætum fyrir 100 áhorfendur er I
húsinu og einnig iþróttasalur
með búningsherbergjum og
annarri aðstöðu, sem mundi
vekja öfund flestra iþróttafé-
laga.
Fimm aðalmóttökuherbergi
eru í húsinu og inn af viðhafnar-
herberginu er að finna plöntusal
með banana- og appelsinu-
trjám.sem teygja sig yfir glæsi-
lega skrauttjörn.
Eldhúsið á sér sennilega eng-
an jafningja nema vera kynni
eldhúsið i sjálfri Buckingham-
höll. Þar er stór djúpfrystiklefi,
grænmetiskæliklefi, þvottahús,
blómaskreytingaherbergi, vin-
geymsla og ekki minna en þrjár
eldavélar sin af hverri gerðinni.
Ef Elton gerist svo djarfur að
renna sér niður stigahandriðið á
aðalstiganum i húsinu sinu
brýtur hann i bága við landslög
og má búast við háum fjársekt-
um. Stiginn er nefnilega undir
lagalegri vernd þjóðminja-
varðar, sem safngripur. En
Elton ættiekki að hafa of miklar
áhyggjur af þvi, i húsinu er
nefnilega lyfta, sem þjóðminja-
vörður hefur enn sem komið er
engan áhuga á, og Elton getur
ferðazt i á milli hinna þriggja
hæða.
Utandyra er að finna sjálf-
sagða hluti eins og upphitaða
útilaug og tennisvöll en það sem
heillaði vinunnandann Elton
John fremur en allt annað er
Frainliliðin á höll Eltons John i Berkshire í Englandi.