Dagblaðið - 24.07.1981, Blaðsíða 2
EIGNANAUST
SKIPHOLTI5
Raðhús við Vesturberg
Til sölu fallegt raðhús á einni hæð. 140 ferm. Mjög falleg
eign. Verð 900 þúsund.
Lóð á Arnarnesi
Rúmlega 1700 m2 byggingarlóð á fallegum stað. Gott út-
sýni. Nánari upplýsingar aðeins á skrifstofunni.
Seiás, Egilsstöðum
6 herb. einbýlishús, ca 250—270 ferm. Góður bílskúr.
Verðtilboð.
Jöldugróf
3ja herb. éinbýlishús. Ein hæð og ris, 80—85 ferm. Stór
lóð. Verð 680 þúsund.
Unnarbraut
3x77 ferm parhús. 30 ferm. bílskúr. Verð 1.150.000.
Laufvangur
4ra herb. íbúð á 3. hæð. 111 ferm. Verð 580 þúsund.
Breiðás, Garðabæ
4ra herb. sérhæð í tvíbýli. 130 ferm. Verð 680 þúsund.
Æsufell
3ja-4ra herb. íbúð á 4. hæð. 100 ferm. Verð 430 þúsund.
Vesturberg
3ja herb. íbúð á jarðhæð. 85 ferm. Sameiginlegur
inngangur. Verð 450 þúsund.
Arnarhraun
3ja herb. sérhæð. 95 ferm. 30 ferm. bílskúr. Verð 570
þúsund.
Gaukshólar
3ja herb. íbúð á 2. hæð. 87 ferm. Verð 440 þúsund.
Brattakinn, Hafnarfirði
3ja herb. risíbúð, 75 ferm. Verð 420 þúsund.
Dvergabakki
2ja herb. íbúð á 1. hæð. 55 ferm. Verð 360 þúsund.
Haiiveigarstígur
2ja herb. íbúð á jarðhæð. 95 ferm. Sérinngangur. Verð 290
þúsund.
Óskum eftir 2ja, 3ja og 4ra
herb. íbúðum og raðhúsum
í smíðum á Stór-Reykja-
víkursvæðinu.
•
Skoðum og metum íbúðir
samdægurs, leitið upplýs-
inga. Fljót og góð þjónusta
er kjörorð okkar.
Opið frá kl. 1-5 laugardagog
sunnudag.
EIGNANAUST HF.
Skipholti 5
SÍMI29555
Þorvaldur Lúðvíksson hrl.
/■
_________________DAGBLAÐIÐ. FOSTUDAGUR 24, JULI1981.
Grundf irðingar skora
„á ráðherra að ganga
ekki f ramhjá eina
skipherra Gæzlunnar'’
— vilja að Helgi Hallvarðsson verði næsti forstjóri
Landhelgisgæzlunnar
0991-5109 hringdi frá Grundarfiröi:
í einu lesendabréfi Dagblaðsins,
20. þ.m., kom fram að Helgi Hall-
varðsson skipherra er meðal umsækj-
enda um stöðu forstjóra Landhelgis-
gæzlunnar.
Ég og fjölmargir aðrir Grund-
firðingar erum þeirrar skoðunar, að
fyrst Helgi er eini skipherrann, sem
sótti um forstjórastöðuna, þá beri
skilyrðislaust að veita honum það
Undrandi skrifar:
Margir vilja rit- og prentfrelsi feigt
í þessu landi, svo ótrúlegt sem það nú
er! — Einn slíkur skrifar um það
grein í Vísi að óhæfa sé, að ritstjórar
blaðanna séu að leyfa fólki að skrifa
gagnrýnisgreinar um málefni undir
dulnefni.
Það á að birta allar greinar og les-
endabréf undir fullu nafni, helzt með
mynd IÍKa, segir greinarhöfundur.
Hætt er við að fáir myndu senda
blööunum tilskrif um eitt og armað,
sem þeim liggur á hjarta, ef þeir ættu
að láta birta af sér mynd með nafni
undir.
En þessi skrif í Vísi eru þó sam-
hljóöa röddum, sem áður hafa komið
fram nokkrum sinnum, þ.á m. frá
stórfyrirtæki einu hér í borg þar sem
sagði, að lesendabréf um gagnrýni
séu flezt i ætt við tiltæki „hálfvax-
inna götustráka”! Það skyldi þó ekki
starf, í þakklætisskyni við þá menn
sem voru I eldlínunni í þorskastríðinu
og stóðu sig eins og raun ber vitni.
Við tökum undir orð bréfritara og
skorum á ráðherra að ganga ekki
framhjá eina skipherra Gæzlunnar
sem um starfið sækir.
Einnig erum við sannfærðir um að
þjóðaratkvæðagreiðsla um þetta mál
kæmi út á einn veg, Helga Hallvarðs-
syni til stuðnings.
vera eitthvert samband milli fyrir-
tækisins og höfundar Vísis-greinar-
innar um fordæmingu á ónafn-
greindum lesendabréfum! Og það eru
svo margir, sem taka að sér að skrifa
um ólíklegustu hluti. En auðvitað er
það mál hvers og eins.
En lesendabréf eru oftast sterkasta
gagnrýnin því I þeim er stungið á
ýmsum kýlum í þjóðfélaginu hverju
sinni, þar er gagnrýni á gerðir manna
eða stofnanir og fyrirtæki, eitthvað
sem varðar þjónustu við almenning
— eða mál sem koma upp og eru
gagnrýni verð og ennfremur mál sem
menn skiptast í hópa um skoðanir á.
Greinarhöfundurinn í Vísi og
fáeinir aðrir, sem aðhyllast afnám rit-
ogprentfrelsis.eigasem betur ferekki
marga formælendur, nema þá sem
fyrir gagnrýni verða, og þvi dyggari
formælendur sem gagnrýnin er rétt-
mætari.
Helgi Hallvarðsson sklpherra og
Pétur Sigurðsson forstjóri Land-
helgisgæzlunnar er lætur af þvi
starfi 1. september næstkomandi.
Raddir
lesenda
Lesendabréf
og dulnefni
„Við leggjum höfuðáherzlu á að öll samskipti við Sjúkrasamlagið og Læknamiðstöðina á Akureyri gangi sem snurðu-
lausast,” segir framkvæmdastjóri beggja, Ragnar Steinbergsson.
Þykir mjög miður ef Lækna
miðstöðin hef ur átt í hlut
—segir f ramkvæmdast jóri Læknamiðstöð varinnar
á Akureyri
Ragnar Steinbergsson, framkvæmda-
stjóri Sjúkrasamlagsins og Lækna-
miðstöðvarinnar á Akureyri, hringdi:
Ég sá lesendabréf í Dagblaöinu
þriðjudaginn 21. júlí þar sem sagt er
frá að kona nokkur utan af landi hafi
átt pantaðan tíma hjá sérfræðingi hér
á Akureyri, en sá hafi verið i frii,
j>egar á reyndi, og konan því farið
langa ferð að erindislausu.
Þykir mér mjög miður ef Lækna-
miðstöðin hefur átt í hlut og beini
þeim tilmælum til fóks að það hafi
samband við mig, ef eitthvað
bregður út af i samskiptum þess við
tvær ofangreindar stofnanir. Sérstak-
lega bið ég bréfritara að hafa sam-
band við mig. Auðveldast er að ná til
mín í sima 96-24150 alla virka daga
kl. 9—12 ög 13—17.
Ef stjórnum áðurnefndra tveggja
stofnana, hvor sem kann að eiga í
hlut hverju sinni, er ekki kunnugt
um hvað út af ber ( samskiptum al-
mennings við þær er ógerningur að
reyna að ráða bót á slíkum misbresti.
Við leggjum höfuðáherzlu á að
öli samskipti við Sjúkrasamlagið og
Læknamiðstöðina gangi sem snurðu-
lausast og viljum allt gera til þess að
stuðla að því að svo verði.
Að lokum vil ég taka fram, að
hvorki sjúkrahúsið né göngudeild
þess er á mínum vegum.