Vísbending


Vísbending - 22.12.2006, Blaðsíða 18

Vísbending - 22.12.2006, Blaðsíða 18
Siðgœði í viðskiptum og stjórnmólum VLsbending er óþreytandi í því aö ræöa um siðgæði í viðskiptum manna á milli, jafnt athafnamanna sem pólitíkusa: Hversu algengt er samráð um verðlag? Rannsóknir sýna að samráð er býsna algengt. Samkvæmt könnunum telur meira en helmingur forstjóra í l(XX) stærstu fyrirtækjum Bandaríkjanna samráð í viðskiptalífinu algengt. 10. mars. Hclgi Gunnlaugsson. Ajbroí hiima efnameiri. Sé þetta rétt túlkun á viðskiptalegum tilgangieru öll önnur lán til stjómenda en þau sem veitt eru í þessum tilgangi óheimil og gildir þá einu hvemig til þeirra vai' stofnað. Staða á viðskiptareikningi sem á sér mótbókun í handbæru fé eða öðmm eignum er því andstæð hlutafélagalögum. 31. rnars. Stefán Svavarsson. Lán og lagasmíöi. Enron-málið er fullflókið til þess að menn geti dregið af því lærdóm. Enn og aftur hef'ur sést að eftirlit þarf að vera í lagi og framkvæmdastjórar mega ekki hafa endurskoðendur í vasanum. Það var aftur á móti erfitt í tilviki Enrons, eins og víðar, vegna þess að endurskoðendurnir vissu að þeir gátu átt á hættu að missa margvísleg verkefni fyrir fyrirtækið ef jxíir viem með múður vegna reikninganna. Allir höfðu því hag af því að taka þátt í leikrítinu. 2.jiiru. Enron-máliö. Davíð Oddsson lagði ffam þá hugmynd að banna framlög einkaaðila til stjómmálaflokka. Sú tillaga hefur aldrei verið rædd sem skyldi. Á henni má eflaust bæði ftnna kost og löst. Aðalatriði er að ljóst sé hver borgar brústmn, en það getur íúltaf eitrað umræðuna ef ekki Iiggur fyrir hver fjármagnar framboð. 1. september. Þakkarskuldin. Y firleitt hefur ekki þurft að kenna Islendingum hvemig á að fara fram hjá lögum, einkum ef þeir geta hagnast á tiltækinu. Ein helsta röksemd fyrir breytingunum er að með því sé verið að tryggja að alþingismenn sem farí með mörg hundruð milljarða af almannafé séu ekki keyptir. Þannig mátti skilja málflutning Helga Hjörvars í Kastljósi 21. nóvember. En auðvitað fjallar frumvarpið ekkert um það. Þeir alþingismenn sent em til sölu verða áfram keyptir þó að það verði kannski ekki gegnum prófkjör eða kosningar. 24. nóvember. Lýörœöi til sölu. J Úr einu í annaö Blaðinu er fátt óviðkomandi eins og eftirfarandi upptalning sýnir. Herinn fór öllum að óvörum. Árum saman hafa menn rembst við að halda honum en á endanum virðist tapið af brottförinni lítið: Alls gæti þá brottför varnarliðsins kostað íslendinga sex til sjö milljarða til skamms tíma en nær fjórum til fimm ef litið er til lengri tíma. Á móti kemur að líklegt er að upp byggist arðbærari starfsemi á svæðinu til frambúðar og því gæti frjáls markaður verið fljótur að vinna upp skammtímatapið. 24. mars. Varnirnar og veskið. Frelsi, réttlæti og fagleg vinnubrögð eru mörgum pennum Vísbendingar umhugsunarefni: Lífeyriskerfi íslendinga er um margt til fyrirmyndar en þar bíða óleyst verkefni. Lífeyriskerfið er ekki aðeins reist á samningum og löggjöf heldur einnig óskrifuðum samfélagssáttmála. Forsenda hanserjafnrétti ílífeyriskjörum landsmanna. Veikist sú forsenda er vegið að undirstöðum kerfisins. 30.júní. Ólafur ísleifsson: Hrœringar í llfeyriskerfinu. Skipun nýs Seðlabankastjóra fyrir skömmu kann að marka þáttaskil í baráttunni gegn verðbólgu. Margir bjuggust við að fráfarandi forsætisráðheira hlyti stöðuna, en þess í stað var starfsmaður bankans skipaður. 4. ágúst. Sigurður Jóhannesson: Breytt peningastefna? Vísbending hefur oft birt greinar sem hafa verið gagnrýnar á það hversu lítil arðsemi er af virkjun við Kárahnjúka. Talsmenn andstæðra sjónarmiða þáðu ekki boð um að birta greinar í ritinu. En blaðið féllst ekki á örvæntingarfullar tilraunir andstæðinga virkjunarinnar á elleftu stundu: En nú er framkvæmdunum nær lokið og það er kjánalegt að halda áfram að berjast gegn þeim eins og hópur útlendinga gerir enn. Síðast bættist þar í hópinn undarleg kona sem segist vera amerískur verkfræðiprófessor. Ég sé að bornar eru brigður á styrk mannvirkja og undirstaða, en þótt rétt væri; hvemig getur hún sagt til um þetta eftir að hafa verið hér í örfáa daga? Háskólapróf veitir enga tryggingu fyrir því að fólk sé skynsamt eða heiðarlegt. 18. ágúst. Lítils virði. Vísbending hefur talið evruna góðan kost fyrir Islendinga en blaðið er opið fyrir ýmsum sjónarmiðum: Að ígrunduðum kostum og göllum sem fylgja aðild að myntbandalagi Evrópu annars vegar og núverandi peningastefnu hins vegar er það niðurstaða okkar að Islendingum sé betur borgið með núverandi fyrirkomulag í gengismálum en með því að taka upp fastgengisstefnu og ganga í evrópska myntsamstarfið. 27. janúar. Gylfi Zoega og Tryggvi Þór Herbertsson: Fyrirkomulag gengismála á íslandi. Ekki fer illa á því að enda á heilræði sem menn geta gert að áramótaheiti: Nýlega hlýddi ég á erindi merks læknis hér á landi sem sagði frá stórum rannsóknum á heilsu fólks. Meðal helstu niðurstaðna var að menn ættu að drekka tvö til fjögur glös af rauðvíni á dag, stunda fjörugt kynlíf, kjósa hægriflokka og fara oft í óperuna. lO.febrúar. Táp ogfjör. 18 IVÍSBENDING

x

Vísbending

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísbending
https://timarit.is/publication/281

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.