Vísbending - 22.12.2006, Blaðsíða 21
Til forna var vel skilgreind frístundastétt d íslandi, stétt sem tók sér auð með valdi
eða brellum, ef ekki svikum, Þeir menn voru engir iðjuleysingar heldur voru þeir iðnir
við að sölsa undir sig auðœfi af einskœru rœningjaeðli að mati Thorsteins.
minna áhugaverð en lýsing Tocquevilles fimmtfu ámm fyrr, en
báðir sáu landið með augum gestsins. Thorstein notaði hugtök
eins og „eftirtektarverð neysla“ (e. Conspicuous Consumption) og
„fnstundastéttin11 (e. Leisure Class) sem hafa gleymst en eiga enn
erindi. Það skemmtilega við lýsingu hans, í þessu samhengi, er að
Islendingasögumar em rótin að hugmyndafræði hans. Þó að bókin,
The Theory of the Leisure Class, sé rétt rúmlega hundrað ára gömul
þá er hún glettilega góð lýsing á Islandi eins og það er um þessar
mundir.
Til foma var vel skilgreind frístundastétt á Islandi, stétt sem tók
sér auð með valdi eða brellum, ef ekki svikum. Þeir menn voru engir
iðjuleysingar heldur vom þeir iðnir við að sölsa undir sig auðæfi
af einskæm ræningjaeðli að mati Thorsteins. Þeir sköpuðu aldrei
auð með vinnu eða hæfni. Þeir stunduðu iðju sína með fulltingi
samfélagsins og var jafnvel litið upp til þeirra sem valdamanna. Sóun
og eyðsla var aldrei sett í samhengi við þessa höfðingja. Thorstein
hélt því fram að samfélög á þeim tíma sem hann lifði hefðu erft
margt frá hinum fmmstæðu samfélögum og þó línumar væm ekki
eins skýrai' væri frístundastéttin enn áberandi.
Utleiðsla Thorsteins var á þann veg að smám saman færi það að
verða hetjulegt og aðdáunarveit að sölsa undir sig auð með valdi og
klókindum en drægi úr göfugleika vinnunnar. Thorstein sá fyrir sér
að vinnusemin, sem eitt sinn hefði verið svo göfug, yrði niðurlægð
og það myndi grafa undan þjóðfélaginu. Ekki er ljóst hvort hann sá
að hið íslenska klíkustríð, sem leiddi til þess að Islendingar afsöluðu
sér sjálfstæði sfnu, væri afleiðing af þessu. Islendingar hafa verið
vinnusöm þjóð allt til loka tuttugustu aldarinnai' en einhvem tímann
á síðari hluta tíunda áratugarins urðu „gömul sannindi“ eins og
„vinnan göfgar manninn" hlægileg.
Neysla, sérstaklega neysla á lúxusvörum og þjónustu, er
aðdáunarverð í þjóðfélagi frístundastéttaiinnar en vinnusemin er
fáránleiki lágstéttarinnar. Vinnusemin verður þó að vera fyrir hendi til
jsess að fjármagna neysluna ellegar þarf að gera það með lántökum.
Það getur verið hættulegt smndargaman.
Ameríski draumurinn
Ihaldssamir Evrópubúar hafa stundum litið niður á Bandaríkin
sem land úrkynjunar og fávisku. Það gerðu þeir þegar Bandaríkin
voru að byggjast upp og gera það enn þó að Bandaríkin hafi hoppað
fram úr Evrópu á flestum ef ekki öllum sviðum. Þeir em einnig til
sem horfðu með aðdáun til vesturs en aðdáunin er blendin, þeir
aðhyllast frelsið en fordæma afleiðingamar.
Ovíða er ójöfnuður meiri en í Bandaríkjunum. Forstjórar
stórfyrirtækja og bankamenn sópa til sín auðæfum í nafni
kaupréttar og þóknunar fyrir aðstöðumismun, oft einskorðaðan
aðgang að upplýsingum. Hugmyndafræðilegur misskilningur á
eiginhagsmunum, hvatningu og leiðtogahæfni hefur gert forstjómm
kleift að safna auði en njóta um leið aðdáunai'. A sarna tíma sópa
fátæklingamir skítugum brauðmolunum upp af gangstéttinni.
Evrópskum menntamönnum, sem sjaldnast hafa sjálfir gert handtak í
lífinu, blöskrar og kalla á mikilvægi jafnaðar. Upphaflega vom rökin
komin úr smiðju Karls Marx, á þann veg að uppreisn öreiganna
myndi valda stríðsástandi í samfélaginu þegar þeir sameinuðu krafta
sína og uppgötvuðu óréttlætið. Núna snúast rök jafnaðarmanna um
hvað er „mannúðlegt". Vandræðagangurinn er skiljanlegur þar sem
góð hugmyndafræði sem útskýrir efnahagsleg áhrif jafnaðar og
ójafnaðar og hvað drffur slík hagkeifi áfram er ekki til.
Gjöf til framtíðar
Leggðu góðan grunn að framtíð barnsins
með Framtíðarbók KB banka.
Með 5.000 kr. gjafabréfi fær nýr Framtíðarbókareigandi
2.500 kr. mótframlag frá bankanum.
Að auki fylgir glæsilegt flísteppi öllum 5.000 kr. gjafabréfum
til nýrra jafnt sem eldri Framtíðarbókareigenda.
Þú getur gengið frá kaupum á Framtíðarbók í síma 444 7000
eða í næsta útibúi KB banka.
VÍSBENDING I 21