Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 4
FRÉTTIR 4 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ SAUTJÁN ára piltur hefur í Hér- aðsdómi Vestfjarða verið sviptur ökurétti í 12 mánuði og dæmdur í fjársekt fyrir nokkur umferðarbrot en í einu tilvikinu beið sautján ára piltur sem var farþegi í bifreið sem hann ók bana. Var hann dæmdur fyrir að hafa valdið dauða hans af gáleysi. Þar sem ákærði er aðeins 17 ára að aldri og hefur ekki sætt refs- ingum áður ákvað dómari að fresta ákvörðun refsingar að öðru leyti og fellur sá hluti hennar niður eftir tvö ár haldi hann almennt skilorð. Pilt- inum var gert að borga 15.000 króna sekt til ríkissjóðs innan fjögurra vikna og greiða allan kostnað sak- arinnar, þ.m.t. samtals 40.000 króna þóknun skipaðra verjenda sinna, Björns Jóhannessonar hdl. og Björns L. Bergssonar hrl. Ákærði játaði sök en hann var sóttur til saka fyrir þrjú umferð- arlagabrot, tvö í ágúst og eitt í des- ember. Fyrsta brotið framdi hann hinn 16. ágúst þegar hann ók bifreið sinni um Óshlíðarveg á 74 km hraða á klukkstund en hámarkshraði þar er 50 km/klst. Þremur dögum síðar þótti hann hafa ekið bifreið án nægjanlegrar aðgæslu og var talinn líkamlega ófær um að stjórna henni örugglega vegna svefnleysis þannig að hann sofnaði við stjórn hennar með þeim afleiðingum að á vegarkafla neðan við Brekku í Súðarvíkurhreppi lenti bifreiðin út af veginum og valt niður í fjöru. Við það kastaðist piltur sem var farþegi í aftursæti bifreiðarinn- ar út úr henni og hlaut svo mikla áverka á höfði að hann lést sam- stundis. Var pilturinn dæmdur fyrir að hafa valdið dauða hans af gáleysi. Annar farþegi í aftursæti meiddist lítillega. Loks var hann stöðvaður fyrir of hraðan akstur á Skutuls- fjarðarbraut í desember en þar ók hann á vegarkafla við Karlsá á 75 km hraða en leyfður hámarkshraði var 60 km. Í samræmi við gögn málsins og játningu piltsins þótti sekt hans full- sönnuð. Erlingur Sigtryggsson dómstjóri kvað upp dóminn. HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær út- gerðarfélagið Ingimund hf. til að greiða fyrrverandi matsveini á skipi fyrirtækisins, Helgu RE-49, bætur vegna ólögmætrar uppsagn- ar. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði fallist á að uppsögnin hefði verið ólögmæt en taldi matsveininn hafa fyrirgert rétti sínum til bóta þar sem tuttugu mánuðir hefðu liðið frá því manninum var sagt upp þar til hann stefndi fyrirtækinu. Hæstiréttur taldi einnig að upp- sögnin hefði verið ólögmæt enda hefðu verið færðar sönnur á að maðurinn hefði fengið leyfi skip- stjóra til fjarvista meðan hann fór í frí til Taílands vegna veikinda haustið 1998. Þegar hann kom til baka tjáði framkvæmdastjóri út- gerðarfélagsins honum að hann væri ekki lengur í áhöfn skipsins. Sú uppsögn var dæmd ólögmæt. Bæturnar voru dæmdar skv. 25. grein sjómannalaga. Voru mann- inum dæmd laun í fjórtán daga uppsagnarfresti, 224.280 krónur með dráttarvöxtum. Þá var útgerð- arfyrirtækið dæmt til að greiða málsvarnarlaun lögmanns hans, Guðna Á. Haraldssonar hrl., bæði í héraði og Hæstarétti, samtals 400.000 krónur. Sigurbjörn Magn- ússon hrl. flutti málið f.h. útgerð- arfélagsins. Fær bætur vegna ólög- mætrar uppsagnar OPNUNARHÁTÍÐ fagsýning- arinnar „Construct North – hönn- un, tækni og mannvirkjagerð á norðurslóðum“ fór fram í Laug- ardalshöll í gær. Fjölmenni var við opnunina og sótti forseti Íslands hana meðal annarra. Á málþingi sem efnt var til í gær í tengslum við sýninguna var fjallað um stjórnunaraðferðir í byggingariðnaði og mann- virkjagerð og möguleika til aukins samstarfs og útflutnings á hugviti, byggingarvöru, hönnun og þjón- ustu verktaka. Í fyrradag var einn- ig ráðstefna þar sem fjallað var um mögulegan ávinning af gæðastjórn- un í opinberum framkvæmdum. Í dag hefst fagsýningin formlega í Laugardalshöll og er ætluð fag- fólki í dag og á morgun, en verður opnuð almenningi sunnudaginn 3. mars, sem er síðasti sýning- ardagur. Í dag verður einnig haldin ráðstefna fyrir íslenska framleið- endur og útflytjendur á Evr- ópumarkað. Á morgun verður haldin ráðstefna um hönnun á norðurslóðum, arkitektúr, verk- fræði, skipulag byggða o.fl. Morgunblaðið/Ásdís Sýningargestir litast um á fagsýningunni Construct North. Fagsýning byggingar- iðnaðarins opnuð ♦ ♦ ♦ BROTIST var inn í einbýlishús í Breiðholti í gærdag og stolið þaðan talsverðu af tölvubúnaði. Að sögn lögreglu uppgötvuðu íbúar hússins að brotist hefði verið inn þegar þeir komu heim úr vinnu um eftirmiðdag- inn. Ekki er vitað hver eða hverjir voru að verki. Brotist inn í einbýlishús ♦ ♦ ♦ HÆSTIRÉTTUR dæmdi í gær karlmann í átján mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot gegn dóttur sinni fæddri árið 1983 og staðfesti þar með dóm Héraðsdóms Reykja- víkur. Hæstiréttur dæmdi ákærða enn fremur til að greiða stúlkunni 700 þúsund krónur í miskabætur auk greiðslu alls áfrýjunarkostnað- ar. Maðurinn var ákærður fyrir að hafa brotið gegn dóttur sinni tvisvar sinnum árið 1990, þegar stúlkan var sjö ára. Ákærði var einnig ákærður fyrir kynferðisbrot gegn henni á tímabilinu 1990–1996. Ákærði var sakfelldur af tveimur ákæruliðum en sýknaður af þeim þriðja, þ.e. fyrir brotin frá 1990– 1996, þar sem framburður stúlkunn- ar þótti ekki njóta sama stuðnings í málsgögnum og skýrsla hennar um atvik samkvæmt öðrum ákærulið- um. Vitnisburður stúlkunnar var tal- inn trúverðugur og vísað til þess að hann væri styrktur af skýrslum vitna um frásagnir hennar af at- höfnum ákærða gagnvart sér. Málið dæmdu Guðrún Erlends- dóttir, Garðar Gíslason, Haraldur Henrysson, Hrafn Bragason og Pét- ur Kr. Hafstein. Sigríður Friðjóns- dóttir, saksóknari hjá ríkissaksókn- ara, sótti málið. Verjandi ákærða var Sigmundur Hannesson hrl. 18 mánaða fangelsi fyrir kynferðisbrot „SKYLDI skipið koma í dag?“ gæti þetta par verið að hugsa þar sem það stendur með barnavagn á ein- hverju sem líkist lítilli bryggju. Fólkið horfir eftirvæntingarfullt á haf út en allt í kring má sjá um- merki Veturs konungs; íshröngl og klakabreiðu. Líklega er fólkið þó ekki að bíða eftir næsta kaupskipi þar sem myndin er tekin í Naut- hólsvík í gær. Kannski það sé vorið sem beðið er eftir? Morgunblaðið/Ómar Beðið eftir vorinu Missti framan af fingri VINNUSLYS varð í IKEA í Holta- görðum í gær þegar maður missti framan af fingri. Að sögn lögreglu klemmdist maðurinn með fyrr- greindum afleiðingum. Slysið varð um tvöleytið í gær. SÝSLUMAÐURINN í Borgarnesi, fulltrúi yfirdýralæknis, héraðsdýra- læknir og lögregla fóru í gær að fengnum dómsúrskurði á bæ í Þver- árhlíð og hófu rannsókn á aðbúnaði og umhirðu búfjár vegna gruns um að dýraverndarlög hafi verið brotin með illri meðferð á dýrum. Stefán Skarp- héðinsson sýslumaður staðfesti þetta í samtali við Morgunblaðið í gær- kvöldi en rannsóknin stóð þá enn yfir. Skv. upplýsingum sýslumanns hef- ur um skeið verið orðrómur um meinta illa meðferð á búfé á umrædd- um bæ og bréfaskipti gengið á milli bæjarstjóra og ábúanda en sveitar- stjórn fer með búfjárhaldsmál og forðagæslu í umdæminu. Hafa yfir- völd áður gert tilraun til að rannsaka aðbúnað búfjár á bænum en ábúend- ur hafnað aðgengi að húsunum að sögn Stefáns. Varð því að fara þá leið að fá dómsúrskurð til aðgerðanna. Rannsóknin beinist að aðbúnaði sauðfjár og hrossa auk þess sem verið er að kanna fjölda búfjár á bænum m.t.t. húsakosts. Skv. lögum um dýravernd getur lögregla farið í fylgd héraðsdýra- læknis eða fulltrúa dýraverndarráðs á hvern þann stað þar sem dýr eru höfð og kannað aðstæður þeirra og aðbún- að. Ekki er þó heimilt að fara í þess- um tilgangi inn í íbúðarhús, útihús eða aðra þvílíka staði án samþykkis eiganda eða umráðamanns nema að fengnum dómsúrskurði og mun þetta vera í fyrsta skipti sem slíks úrskurð- ar dómara er aflað í umdæmi sýslu- manns í Borgarnesi. Fengu dómsúrskurð til aðgerða á bæ Meint ill með- ferð búfjár rannsökuð Hæstiréttur dæmdi föður fyrir misbeitingu á dóttur sinni Dæmdur fyrir að valda dauða farþega af gáleysi SAMKEPPNISSTOFNUN hefur frest til 12. mars til að skila grein- argerð vegna kröfu olíufélaganna um að öllum afritum skjala á tölvu- tæku formi sem stofnunin lagði hald á hjá félögunum hinn 18. des- ember sl. verði eytt. Gestur Jónsson, hrl. og lögmaður Skeljungs hf., telur að framkvæmd haldlagningarinnar hafi verið veru- lega ábótavant og ekki hafi verið virt ákvæði um meðferð opinberra mála. Skv. lögunum má bera undir dómara ágreining um lögmæti rannsóknaraðgerða. Það gerðu olíu- félögin með kæru sem nýlega var lögð fram í Héraðsdómi Reykjavík- ur. Áhersla er lögð á að flýta málinu eftir mætti og er líklegt að mál- flutningur fari fram skömmu eftir að Samkeppnisstofnun leggur greinargerðina fram. Allan V. Magnússon héraðsdómari mun að því búnu kveða upp úrskurð. Samkeppn- isstofnun hefur frest til 12. mars ♦ ♦ ♦ ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.