Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 33
LISTIR/KVIKMYNDIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 33 Aðalfundur Hampiðjunnar hf. Aðalfundur Hampiðjunnar hf. verður haldinn í fundarsal félagsins, Bíldshöfða 9, Reykjavík, föstudaginn 8. mars 2002 og hefst kl. 16:00. Dagskrá fundarins: 1. Venjuleg aðalfundarstörf. 2. Tillaga um heimild félagsins til að kaupa eigin hluti samkvæmt 55.gr.hlutafélagalaga. 3. Önnur mál sem löglega eru upp borin. Tillögur frá hluthöfum sem bera á fram á aðalfundi skulu hafa borist í hendur stjórnar með skriflegum hætti eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins, ásamt skýrslu endurskoðenda, munu liggja frammi á skrifstofu félagsins, Bíldshöfða 9, Reykjavík, hluthöfum til sýnis, sjö dögum fyrir aðalfund. Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað. Hluthafar sem ekki geta mætt á fundinn en hyggjast gefa umboð verða að gera það skriflega Stjórn Hampiðjunnar hf. Miðasala er í húsinu klukkutíma fyrir alla viðburði. Laugardagskvöld á Gili - „Fullt hús af söng“ í Tónlistarhúsinu Ými 2. mars. Jóhanna V. Þórhallsdóttir kynnir: Léttsveit Reykjavíkur, Álafosskórinn, Skólahljómsveit Mosfellsbæjar, Kvennakór Bolungarvíkur og þjóðlagasveitina Alba. Dagskráin hefst kl. 22:00, en húsið verður opnað kl. 21:30. Við tökum á móti gestum með léttri hressingu. Miðasala er í s: 595 7999 og 800 6434 virka daga á milli kl. 9-17 og á www.midasala.is, en einnig má leggja inn miðapantanir á símsvara 551 5677. fljótlega hversu miklu ranglæti fangarnir verða fyrir og ákveður að taka til sinna bragða. Hann fær í lið með sér nokkra samfanga sína og setur á fót litla herdeild til að gera uppreisn gegn fangelsisstjóranum. Winter fangelsisstjóri tekur þátt í baráttunni og telur að um leik sé að ræða, en fljótlega kemur annað í ljós. Þá hyggst hann taka til ofbeld- isfyllri aðgerða, en það gæti verið of seint og reynst honum skeinuhætt. Að mati framleiðanda myndarinn- ar var einkar vel til fundið að fá Rod Lurie til að leikstýra myndinni þar sem hann þekkir persónulega vel til herþjónustu. En þrátt fyrir að vera ef til vill ekki eini leikstjórinn í Hollywood til að gegna herskyldu, er hann sá eini sem útskrifast hefur frá West Point US Military Aca- demy. Myndin var nær öll tekin í hinu sögufræga Tennessee ríkisfangelsi, en á meðan það starfaði í nær heila öld eða frá árinu 1898 til 1992, hýsti það margan afbrotamanninn, þeirra á meðal James Earl Ray, sem var dæmdur fyrir morðið á Dr. Martin Luther King. Ákjósanlegast þótti að filma á þessum stað þar sem að um var að ræða alvöru fangelsi og ekki skemmdi það fyrir að arkitektúr fangelsisins þótti hafa kastala-yfir- bragð. Leikarar: Robert Redford, James Gand- olfini, Mark Ruffalo, Delroy Lindo, Clifton Collins, Brian Goodman, Paul Calderon, Frank Military. Leikstjóri: Rod Lurie. burðarás myndarinnar sé í raun mjög raunsæ og geti allt eins átt við okkar daglega líf í dag, sér í lagi eftir þá at- burði er áttu sér stað hinn 11. sept- ember síðastliðinn þegar hundruð saklausra borgara létu lífið í hryðju- verkaárás á tvíburaturnana í New York. Leikstjóri myndarinnar er Andrew Davis sem leikstýrði m.a. The Fug- itive með Harrison Ford og Tommy Lee Jones í aðalhlutverkum, en sú mynd var á sínum tíma tilnefnd til sjö Óskarsverðlauna. Davis, sem er frá Chicago og lagði stund á fjölmiðlun á sínum yngri árum, leikstýrði sinni fyrstu bíómynd, Stony Island, árið 1979, en síðan hafa fjölmargar spennumyndir farið um hendur hans. Þeirra á meðal eru: The Final Terror, Beat Street, Code of Silence, Above the Law, The Package, Under Siege, Chain Reaction og A Perfect Murder. Leikarar: Arnold Schwarzenegger (Kind- ergarten Cop, Last Action Hero, True Lies, Eraser, Batman & Robin); Franc- esca Neri (Hannibal, Live Flesh, Dispara, Las Edades De Lulu); John Leguizamo (Moulin Rouge, Joe The King, King of the Jungle, Summer of Sam); John Turturro (O Brother Where Art Thou?, The Man who Cried, Company Man, The Cradle Will Rock); Elias Koteas (Crash, Novo- caine, Harrison’s Flowers, Shot in the Heart, The Thin Red Line). Leikstjóri: Andrew Davis. reyna að finna leiðir út úr þeirri klemmu sem þeir eru komnir í berst þeim hjálp frá liðþjálfa úr röðum Sameinuðu þjóðanna, sem hafði fengið þær skipanir að láta kyrrt liggja. Fjölmiðlar fylgja mál- um eftir, sem hefur alþjóðlegar af- leiðingar í för með sér. Á viðkvæm- um tíma, þar sem margir eru flæktir inn í átök og heimspressan bíður niðurstöðu, reyna Ciki og Nino að semja um líf sitt mitt í vit- firrtu stríðinu. KVIKMYNDIN „No Man’s Land“ eða „Einskismannsland“ eftir Bosníumanninn Danis Tanovic, sem er bæði handritshöfundur og leikstjóri, verður frumsýnd í dag. Myndin keppti á kvikmyndahátíð- inni í Cannes árið 2001 og fékk þar tvenn verðlaun, fyrir besta hand- ritið og svokölluð „special jury price“-verðlaun. Þá fékk myndin Golden Globe-verðlaunin 2002 sem besta erlenda myndin og er hún nú tilnefnd til Óskarsverðlauna sem besta erlenda myndin. Söguþráðurinn er Bosníustríðið árið 1993 og eru söguhetjurnar tveir hermenn, annars vegar Bosn- íumaðurinn Ciki og Serbinn Nino, sem lenda mitt á milli óvinasvæða, í einskismannslandi. Á meðan þeir Leikstjórinn Danis Tanovic, sem fæddur er í Bosníu-Hersegóvínu, hefur leikstýrt fjölmörgum metn- aðarfullum myndum sem styrktar hafa verið af ýmsum stofnunum, allt frá ríkisstjórn Bosníu til Mann- réttindaskrifstofu Evrópu, og hafa margar hverjar notið viðurkenn- inga af ýmsum toga. Myndir Tan- ovic hafa þó að mestu snúist um áhrif og afleiðingar stríðsátakanna í heimalandinu. Auk kvikmynda- gerðar er Tanovic jafnframt ábyrg- ur fyrir hermyndasafni Bosníu, en hann gekk í það verkefni að kvik- mynda á vígvellinum í stríðinu og hafa myndir hans verið notaðar í fréttum víðsvegar um heim. Einnig hefur Tanovic unnið við auglýs- ingagerð og stýrt kosningabaráttu. Leikarar: Branko Djuric, Rene Bitor- ajac, Filip Sovagovic, Georges Siatid- is, Katrin Cartlidge, Simon Callow, Serge-Henri Valcke. Leikstjóri: Danis Tanovic. Líf í Einskismannslandi Regnboginn frumsýnir No Man’s Land eða Einskismannsland með Branko Djuric, Rene Bitorajac, Filip Sovagovic, Georges Siatidis, Katrin Cartlidge, Sim- on Callow og Serge-Henri Valcke. Úr kvikmyndinni No Man’s Land. alltaf á föstudögum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.