Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 24
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 24 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ NIÐURSTAÐA fundar um stöðu og framtíðarsýn þorskeldis á Vestfjörð- um er sú, að það sé ákjósanlegur kostur. Fundurinn var haldinn í fyr- irlestrarsal Menntaskólans á Ísafirði. Um sextíu manns mættu til fundarins en til hans höfðu verið boðaðir rann- sóknar- og hagsmunaaðilar í sjávar- útvegi, þingmenn, ráðherrar, fulltrú- ar ráðuneyta og sveitarfélaga. Auk framsögu um þorskeldi var fjallað um umhverfismál fiskeldis og sjúkdóma og sníkjudýr í fiskeldi og varnir gegn þeim, sem og kynbætur í fiskeldi. Áframeldi á þorski í átta ár Í framsöguræðu Hjalta Karlsson- ar, forstöðumanns Hafrannsókna- stofnunar á Ísafirði, kom m.a. fram að tilraunir með áframeldi þorsks á Vestfjörðum hafa staðið yfir um átta ára skeið á sjö stöðum á Vestfjörðum af um þrettán stöðum á landinu. Hann sagði lengstu samfelldu til- raunirnar hafa farið fram í Skutuls- firði en einnig hefðu verið gerðar til- raunir um nokkurra ára skeið í Tálknafirði og á Patreksfirði. Á síð- ustu þremur árum hefur yfir 70% þess eldisþorsks sem hefur komið til slátrunar, verið í eldi á Vestfjörðum eða um 54 tonn árið 2001 af um 70 tonnum á landsvísu. Hjalti sagði aðstæður til þorskeldis í sjókvíum vera ákjósanlegar af mörgum ástæðum, m.a. nálægðar við fiskimiðin, skjólgóðra og djúpra fjarða og viðunandi hitastigs sjávar auk þess sem þekking og reynsla væri til staðar. Helsta vandamálið væri fóðrið, þ.e. loðnan, en lítið hefur veiðst af henni við Vestfirði til þessa. Steinbíturinn gott fóður Sigurjón Arason, efnafræðingur hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðar- ins, kynnti tilraunir sem gerðar hafa verið á Tálknafirði með steinbít sem fóður. Sagði hann tilraunirnar hafa skilað góðum árangri og ekkert benti til að steinbíturinn væri síðra fóður en loðnan. Sigurjón sagði að reynslan hefði sýnt að notkun fiskúrgangs væri mjög góður kostur og benti í því sambandi á að þyngdaraukning eldis- fisksins hefði numið rúmlega 100% á þremur mánuðum og þar hefði smá- fiskurinn þyngst mest. Umhverfismálin mikilvæg Þorleifur Eiríksson, forstöðumað- ur Náttúrustofu Vestfjarða, fjallaði um umhverfismál fiskeldis og um- hverfisathuganir á Vestfjörðum. Hann sagði umhverfismál skipa mik- ilvægan sess þegar farið væri út í þorskeldi í stórum stíl. Safna þyrfti upplýsingum um dýpi, strauma og hvort fyrir væru þrengsli eða þrösk- uldar sem hindruðu streymi vatns. Einnig þyrfti að kanna botngerð og lífríki út frá straumum, dýpi og öðr- um umhverfisástæðum. „Út frá þessu er síðan hægt að áætla upp- söfnun lífrænna efna á botninum. Með því að færa eldiskvíarnar til eftir ákveðnu ferli og með marktækum rannsóknum og sýnatökum er hægt að forðast neikvæð áhrif á umhverf- ið,“ sagði Þorleifur. Kristján G. Jóakimsson, vinnslu- og markaðsstjóri Hraðfrystihússins – Gunnvarar hf., taldi framtíðarsýn í þorskeldi á Vestfjörðum fela í sér tvö- til þreföldun framleiðslu á næstu þremur til fimm árum. Hann sagði að koma þyrfti upp miðstöð atferlis- og eldisrannsókna á Vestfjörðum svo rannsóknir gætu verið í nánu sam- bandi við vinnsluna. Á fundinum fluttu einnig fyrirlestur þeir Sigurður Helgason, fisksjúkdómafræðingur hjá Tilraunastöð Háskóla Íslands í meinafræðum, sem fjallaði um sjúk- dóma og sníkjudýr í villtum þorski, Vigfús Jóhannsson, framkvæmda- stjóri Stofnfisks hf., sem fjallaði um kynbætur í fiskeldi, og Gísli Jónsson, dýralæknir fisksjúkdóma á Keldum, sem fjallaði um sjúkdóma og sníkju- dýr í fiskeldi og varnir gegn þeim. Að fyrirlestrunum loknum fóru fram pallborðsumræður sem Smári Har- aldsson líffræðingur stjórnaði. Að fundinum stóðu Atvinnuþróun- arfélag Vestfjarða hf., Hraðfrysti- húsið – Gunnvör hf., Ketill Elíasson, Náttúrustofa Vestfjarða og Þórsberg ehf. Þorskeldi á Vestfjörð- um ákjósanlegur kostur Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson Um sextíu manns mættu til fundarins sem haldinn var í fyrirlestrarsal Menntaskólans á Ísafirði. Ísafirði. Morgunblaðið. ÚTGERÐ Bervíkur SH frá Ólafsvík hefur í Héraðsdómi Vesturlands ver- ið dæmd til að greiða vélstjóra tæp- lega 1,4 milljónir króna í bætur fyrir að víkja honum að ósekju úr skips- rúmi og ráða annan í hans stað í verk- falli sjómanna á síðasta ári. Vélstjórinn var ráðinn sem yfirvél- stjóri á Bervík SH í febrúar á síðasta ári, en 15. mars hófst boðað verkfall vélstjóra á fiskiskipum. Þann dag var Bervík SH á veiðum á Selvogsbanka. Daginn eftir var siglt í Breiðafjörð, lagðar 8 trossur og þær skildar eftir en siglt til heimahafnar í Ólafsvík. Þegar til hafnar var komið neitaði vél- stjórinn að ganga til frekari starfa fyrir útgerðina, á þeim forsendum að verkfallsaðgerðir stéttarfélags hans væru hafnar. Var þá ráðinn annar vél- stjóri og skipinu haldið til veiða. Þeg- ar verkfallinu var frestað 19. mars var vélstjórinn ekki boðaður til skips. Verkfallsbrot fyrirfram ráðgert Útgerðin hélt því hinsvegar fram fyrir dómi að fljótlega eftir ráðningu vélstjórans hafi hann farið að óska eftir því að vera leystur frá störfum þar sem hann hafi ekki talið sig geta sinnt starfi sínu um borð í Bervík SH. Þegar ljóst var að verkfall var skollið á hafi vélstjórinn ítrekað óskir sínar um að fá að hætta störfum fyrir út- gerðina og enn borið fyrir sig að geta ekki sinnt starfi sínu um borð. Því hafi vélstjóranum verið veitt lausn frá störfum í sátt og samlyndi við hann og annar maður ráðinn í hans stað. Vélstjórinn hafi síðan ekki verið boð- aður til skips þegar verkfallinu var frestað, enda hafði hann ekki óskað þess. Í niðurstöðum dómsins segir að Bervík SH hafi verið haldið út til veiða í verkfalli. Verkfallsbrot hafi verið fyrirfram ráðgert með þeim hætti að stofna nýtt einkahlutafélag með hlutdeild skipverja til að gera skipið út í verkfallinu. Vélstjórinn hafi hinsvegar neitað að taka þátt í þessum aðgerðum og því hafi verið ráðinn annar vélstjóri í hans stað. Þá sé ekki sannað að samkomulag hafi orðið milli vélstjórans og útgerðar- innar um að vélstjórinn hætti störfum og ráðningarsamningi hafi því ekki verið slitið með löglegum hætti. Vél- stjórinn hafi verið reiðubúinn að koma til skips að verkfalli loknu en ekki hafi verið gerð tilraun til að kalla hann til starfa. Þar sem hann hafi ekki verið til kallaður og annar maður ráðinn til að sinna starfi hans í verk- falli sé rétt að líta svo á að honum hafi verið vikið að ósekju úr skipsrúmi áð- ur en ráðningarsamningur hans var liðinn. Útgerðin var því dæmd til að greiða vélstjóranum tæpar 1,3 millón- ir króna í bætur, auk 114 þúsund króna sem vélstjórinn taldi sig eiga inni hjá útgerðinni, samtals um 1,4 millónir króna. Vélstjóra greiddar 1,4 milljónir í bætur Vöruskiptajöfn- uður batnaði verulega milli ára VÖRUR voru fluttar út fyrir 18,9 milljarða króna í janúarmánuði og inn fyrir 13,6 milljarða króna fob og voru vöruskiptin í janúar því hagstæð um 5,3 milljarða króna en í janúar 2001 voru þau hagstæð um 0,7 milljarða á föstu gengi. Samkvæmt frétt frá Hag- stofu Íslands var verðmæti vöruút- flutnings 15% meira á föstu gengi en sama tíma árið áður og verðmæti vöruinnflutnings var 14% minna á föstu gengi en sama tíma árið áður. Í desembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 17,9 milljarða króna og inn fyrir tæpa 13,8 milljarða króna fob. Vöruskiptin í desember voru því hag- stæð um 4,2 milljarða en í desember í fyrra voru þau óhagstæð um 5,8 millj- arða á sama gengi. Allt árið 2001 voru fluttar út vörur fyrir 196,4 milljarða króna en inn fyr- ir 203,1 milljarð króna fob. Halli var því á vöruskiptunum við útlönd sem nam 6,7 milljörðum króna en á sama tíma árið áður voru þau óhagstæð um 45,5 milljarða á sama gengi. Vöru- skiptajöfnuðurinn var því 38,8 millj- örðum króna skárri árið 2001 en árið 2000 á föstu gengi. Allt árið 2001 var heildarverðmæti vöruútflutnings 10% meira á föstu gengi en árið áður eða sem nam 17,7 milljörðum króna. Sjávarafurðir voru 62% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 8% (8,7 milljörðum) meira en árið áður. Stærstu liðir útfluttra sjáv- arafurða voru fryst fiskflök og salt- aður og/eða þurrkaður fiskur. Aukn- ingu vöruútflutnings má einna helst rekja til aukins útflutnings á saltfiski, fiskimjöli og lýsi. Útfluttar iðnaðar- vörur voru 32% alls útflutnings og var verðmæti þeirra 16% (8,5 milljörðum) meira en árið áður. Ál átti stærstu hlutdeild í útflutningi iðnaðarvöru. Aukningu útfluttra iðnaðarvara má aðallega rekja til aukins útflutnings á áli, lyfjavörum og rafeindavogum. Heildarverðmæti vöruinnflutnings árið 2001 var 9% minna á föstu gengi en árið áður, eða sem nam 21,2 millj- örðum króna á föstu gengi. Stærstu liðir innflutnings 2001 voru hrávörur og rekstrarvörur með 27% hlutdeild, fjárfestingarvörur með 22% hlutdeild og neysluvörur (aðrar en mat- og drykkjarvörur) með 19% hlutdeild. Af einstökum liðum varð mestur sam- dráttur í innflutningi á flutningatækj- um, 26% (10 milljarðar), aðallega í innflutningi á fólksbílum. Að öðru leyti má aðallega rekja samdráttinn til þess að innflutningur á fjárfesting- arvörum dróst saman um 16% (8,7 milljarðar) auk þess sem samdráttur varð á innflutningi á eldsneyti og neysluvörum (öðrum en matvörum og drykkjarvörum). Á móti kemur að innflutningur á hrávörum og rekstr- arvörum jókst um 7% (3,7 milljarðar).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.