Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 53

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 53
ÁRVISS vorsýning Hundaræktarfélags Ís- lands verður haldin í reiðhöll Gusts í Kópa- vogi helgina 2. og 3. mars næstkomandi. Þetta er alþjóðleg sýn- ing þar sem hundar eiga þess kost að fá al- þjóðleg meistarastig, telji dómari þá vera frábæra fulltrúa sinn- ar tegundar á alþjóð- legan mælikvarða. Vert er að geta þess að fjölmargir hundar hér á landi hafa fengið al- þjóðleg meistarastig og telst það mjög góður árangur, þar sem ekki eru mörg ár liðin síðan innflutn- ingur gæludýra var leyfður til landsins. Til keppni að þessu sinni eru skráðir tæplega 300 hundar af 45 tegundum, örsmáum jafnt sem risastórum, auk þess sem fjöl- margir ungir sýnendur keppa um hæfni í að sýna hunda sína. Í keppni ungra sýnenda er áhersla lögð á samband hunds og sýnanda jafnframt því sem lagt er mat á tækni og framkomu gagn- vart dómara. Unglingastarf Hundaræktarfélagsins hefur eflst mikið á síðustu árum og er sú þró- un mjög ánægjuleg. Hundaræktarfélag Íslands hefur ávallt lagt mikinn metnað í að fá til landsins virta dómara á sýningar sínar og að þessu sinni koma hing- að Hans V.D. Berg frá Hollandi og Knut Sigurd Wilberg frá Englandi til að velja bestu hundana. Báðir hafa þeir mikla reynslu og njóta mikillar virðingar á sínu sviði. Alþjóðleg hundasýning um helgina TIL SÖLU Til sölu ljósritunarvél Toshiba 9050, 92 blöð á mín., 40 stöðva raðari og hefting. Selst ódýrt. Upplýsingar í síma 893 6938. STYRKIR Menningarsjóður Íslands og Finnlands Tilgangur sjóðsins er að efla menningartengsl Finnlands og Íslands. Í því skyni veitir sjóðurinn árlega ferðastyrki og annan fjárstuðning. Styrk- ir verða öðru fremur veittir einstaklingum, stuðningur við samtök og stofnanir kemur einnig til greina ef sérstaklega stendur á. Styrk- ir til að sækja norrænar eða alþjóðlegar ráð- stefnur koma að jafnaði ekki til greina. Umsóknir um styrki úr sjóðnum fyrir síðari hluta árs 2002 og fyrri hluta árs 2003 skulu ber- ast sjóðstjórninni fyrir 2. apríl 2002. Ákvörðun um úthlutun úr sjóðnum verður tekin á fundi sjóðstjórnar í lok júní nk. Áritun á Íslandi: Menntamálaráðuneytið, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík. Æskilegt er að um- sóknir séu ritaðar á sænsku, dönsku eða norsku. Sérstök umsóknareyðublöð fást í ráðu- neytinu. Stjórn Menningarsjóðs Íslands og Finnlands, 1. mars 2002, menntamalaraduneyti.is . Uppboð Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Hörðu- völlum 1, Selfossi, (Lögreglustöðin), föstudag- inn 8. mars 2002 kl. 14.00: EI-255 JY-298 LG-708 LI-515 LK-582 NO-308 OA-194 PO-820 RG-647 RL-759 X2919 Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Selfossi, 28. febrúar 2002. SMÁAUGLÝSINGAR FÉLAGSLÍF I.O.O.F. 1  182318  Dd. Á fimmtudögum kl. 16.30— 18.30 er bókaþjónustan opin með miklu úrvali andlegra bók- mennta. Guðspekifélagið er 122 ára alþjóðlegt félag um andleg mál, hið fyrsta sem byggði á hug- myndinni um algert frelsi, jafn- rétti og bræðralagi meðal mannkyns. www.gudspekifelagid.is Í kvöld kl. 21 heldur Kristján Valur Ingólfsson erindi: „Mystík í músík“í húsi félagsins, Ingólfs- stræti 22. Á morgun, laugardag kl. 15— 17 er opið hús með fræðslu og umræðum, kl. 15.30 í umsjón Páls J. Einarssonar: „Eiturefna- sálfræði“. Á sunnudögum kl. 17—18 er hugleiðingarstund með leiðbein- ingum fyrir almenning. Á R A Ð A U G L Ý S I N G A R Uppboð Eftirtaldir munir verða boðnir upp á Hörðuvöll- um 1, Selfossi, (Lögreglustöðin), föstudaginn 8. mars 2002 kl. 14.00: DEUTZ-FAHR KM 3,16 sláttuvél, serial no GT185333, JF sláttuvél, vörunr. (GX 320 árg. 2000), TB-038, Metalovouga, árg. 1983, og ZC- 353, Case 685 dráttarvél, árg. 1986. Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki uppboðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg. Sýslumaðurinn á Selfossi, 28. febrúar 2002. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 53 STJÓRN og samninganefnd Félags grunnskólakennara samþykkti á sameiginlegum fundi nýlega ályktun í tilefni af skýrslu Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands um styttingu grunn- og framhaldsskóla þar sem segir m.a.: „Sameiginlegur fundur stjórnar og samninganefndar Félags grunnskóla- kennara hefur fjallað fram komnar hugmyndir um að stytta námstíma til stúdentsprófs.... Fundurinn telur umræðuna um styttingu námstíma til stúdentsprófs tímabæra og bendir á eftirfarandi: Árlegur starfstími grunnskóla á Ís- landi er nú 9,5 mánuðir og skólaárið aðeins fjórum dögum styttra hér á landi en það var að jafnaði í öðrum löndum Evrópu skólaárið 1997–1998. Með auknum sveigjanleika við upp- haf og lok skólaárs og heimild til töku vetrarleyfis gefst skólum tækifæri til að laga skólaárið enn frekar að að- stæðum á hverjum stað. Mikilvægt er að kanna eftir t.d. 2 til 3 ár er hvernig skólarnir nýta sér það svigrúm sem kjarasamningurinn býð- ur upp á. Munu þeir teygja á skóla- árinu með vetrarleyfum eða leggja áherslu á að þjappa því saman til að stytta starfstíma skóla? Verður marktækur munur á starfstíma skóla milli t.d. þéttbýlis og dreifbýlis? Ef skólarnir velja mjög ólíkar leiðir bendir það til þess að skoðanir séu mjög skiptar og líklegt að frekari lengingu verði ekki alls staðar tekið fagnandi. Og augljóslega ekki ef flest- ir fara þá leið að þjappa dögunum á sem stystan tíma og taka þá ákvörðun að fella niður sérstaka skipulagsdaga kennara og lengja þannig sumarleyf- ið. Fjölgun vikulegra kennslustunda er nú að fullu komin til framkvæmda skv. grunnskólalögum og aðalnám- skrá. Varasamt er að lengja daglega og vikulega skóladag enn frekar því nauðsynlegt er að skapa rými fyrir heimanám, tónlistarnám, íþróttaiðk- un og annað tómstundastarf eða sam- veru með fjölskyldunni. Fundurinn tekur undir hugmyndir Félags leikskólakennara þess efnis að skólaskylda hefjist við 5 ára aldur án þess að sú breyting verði gerð að það verði fyrsti bekkur í grunnskóla. Auka þarf samstarf og samfellu á milli allra skólastiga þannig að t.d. duglegum nemendum sé gert fært að færast á milli skólastiga fyrr en hefð- bundnu skólastigi lýkur. Þá þarf grunnskólanemendum einnig að gefast kostur á að stunda nám í námsgreinum framhaldsskól- ans og taka próf í þeim samhliða grunnskólanámi. Fundurinn telur ekki að stefna beri að því að stytta grunnskólann um eitt eða tvö ár. Stefna ber að því að efla hann og auka gæði hans. Fundurinn bendir á að ekki hafa allir unglingar tök á að stunda fram- haldsskólanám í heimbyggð og það sé allt of ungt fyrir 14 og 15 ára unglinga að þurfa að flytja að heiman.“ Ályktun um stytt- ingu grunnskóla Forvarnar- námskeið NÁMSKEIÐIÐ Öflugt sjálfstraust verður haldið í Foreldrahúsinu í Von- arstræti 4b mánudaginn 4. mars kl. 18-21 og mánudaginn 11. mars kl. 18- 21. Þetta námskeið er fyrir alla for- eldra sem vilja styrkja sig í að verða sterkar fyrirmyndir fyrir börnin sín. Kenndar eru aðferðir til að efla sjálfstraust, hvað einkennir hátt/lágt sjálfstraust. Fjallað verður um áhrif hugarfars, viðhorfa og hugsunar á hegðun og líðan. Einnig verður fjallað um leiðir til að byggja sig upp og taka ábyrgð á eigin lífi og heilsu. Höfundar námskeiðsins eru Jó- hann Ingi Gunnarsson og Sæmundur Hafsteinsson sálfræðingar. Þeir flytja námsefnið á myndbandi og hafa þjálfað starfsfólk Foreldrahússins til að hafa umsjón með námskeiðunum. Námskeiðsgögn eru vinnubók og geisladiskur sem höfundarnir hafa lesið inn á. Allar nánari upplýsingar fást í Foreldrahúsinu, segir í frétta- tilkynningu. Fyrirlestur um Retinsýru Í FÖSTUDAGSFYRIRLESTRI Líf- fræðistofnunar Háskólans í dag verð- ur fjallað um Retinsýru-viðtaka. Það er Herborg Hauksdóttir sem flytur fyrirlesturinn á Grensásvegi 12, stofu G-6 og hefst hann kl. 12:20 stundvís- lega. Allir eru velkomnir meðan hús- rúm leyfir. Í fréttatilkynningu segir: „Rann- sókn þessi hefur sýnt að munur er á DNA-bindingu villigerðar RAR og stökkbreyttu próteinanna, sem gæti verið þáttur í APL-hvítblæði. Annar þáttur rannsóknarinnar fjallaði um náttúrulegar undirgerðir(isotýpur) RAR viðtaka og er sýnt fram á að fylgni er á milli getu viðtaka til að bindast kórepressor sterkt og getu til að letja umritun í fjarveru hormóna.“ Dansað í Kringlunni LAUGARDAGINN 2. mars nk. mun fjöldi keppnispara frá Dansskóla Jóns Péturs og Köru, sem eru fé- lagsmenn í Dansíþróttafélaginu Gulltoppi, í samstarfi við Kringluna halda danshátíð í Kringlunni. Þetta er árlegt samstarf dansskólans og Kringlunnar sem hefur tekist með eindæmum vel, segir í fréttatilkynn- ingu. „Enn sem fyrr er tilgangurinn fjáröflun dansparanna sem fara í keppnisferðir erlendis á hverju ári. Einstakir litir - einstakar tindrandi nýjungar. Þú hreinlega verður að prófa! Snyrtifræðingur frá LANCÔME gefur viðskiptavinum okkar góð ráð varðandi notkun snyrtivara í dag og á morgun, laugardag. Glæsilegir kaupaukar. Laugavegi 23, sími 511 4533 vor- og sumarlitirnir 2002 Velkomin í töfraheim litanna www lancome.com KVEN- SÍÐBUXUR 3 SKÁLMALENGDIR Bláu húsin við Fákafen. Sími 553 0100. Opið virka daga 10-18, laugardaga 10-16.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.