Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 44
MINNINGAR 44 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Erna HelgaMatthíasdóttir fæddist á Patreks- firði 27. júní 1930. Hún lést 22. febrúar síðastliðinn. Foreldr- ar hennar voru Stein- unn G. Guðmunds- dóttir, f. 5.8. 1894, d. 27.6. 1967, og Matt- hías Pétur Guð- mundsson, f. 22.2. 1888, d. 8.7. 1964. Erna var níunda í röð tólf systkina. Þau eru Olgeir Haukur, f. 5.11. 1914, d. 19.8. 1928; Ásmundur, f. 30.8. 1916, d. 21.5. 1994; Þórdís, f. 7.8. 1918, d. 11.1. 2000; Málfríður Jóhanna, f. 7.6. 1920; Guðmundur Kristinn, f. 14.6. 1923, d. 7.8. 1939; Áslaug, f. 14.9. 1924, d. 16.12. 1997; Inga Lára, f. 20.6. 1926, d. 5.1. 1998; Ol- geir Haukur, f. 7.8. 1928; Jón, f. 20.8. 1931; Hallgrímur, f. 7.11. 1932; og Lárus, f .6.12. 1933, d. 4.7. 1935. Erna giftist 24. júní 1950 Ferdinand Söebech Guðmunds- syni, f. 14.2. 1922. Þau eignuðust átta börn, sex þeirra eru á lífi, átján barna- börn og þrjú barna- barnabörn. Börn þeirra eru: Smári, f. 28.6. 1951, d. 5.4. 1986; Sigríður Guð- munda, f. 4.11. 1952, á þrjú börn og þrjú barnabörn; óskírð stúlka, f. 21.3. 1955, lést sex vikna gömul; Steinunn, f. 30.4. 1956, á fjögur börn; Erla, f. 13.1. 1958, á fjögur börn; Sæ- mundur Birgir, f. 16.5. 1960, á þrjú börn; Freyr, f. 9.7. 1961, á þrjú börn; og Ríkey, f. 23.8. 1970, hún á einn son. Útför Ernu fer fram frá Kópa- vogskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Elsku Erna mín, dáin, farin. Nú þegar ég sest niður til að skrifa nokkur minningarorð og hugleiði farinn veg, þá fara margar ljúfar minningar gegnum hugann. Mér finnst æviskeiðið hafa liðið eins og örskot. Ég sé okkur, ungar mömmur í vesturbænum, stormandi með barnavagnana til að heimsækja hvor aðra. Svo komu húsbyggingar, fleiri börn, stækkun á húsnæði eftir því sem fjölskyldan stækkaði og nú báð- ar fluttar í minna húsnæði þegar börnin voru flogin burt og búnar að eignast langömmubörn sem við dáum. Æviskeiðinu fylgdu sorgir og sigrar. Svona er lífsins saga. Þó má segja að Erna mín hafi verið ljóssins og gleðinnar barn þótt lífið hafi ekki verið henni áfallalaus gleðiganga. Gæfa hennar og gleði var samheldna fjölskyldan hennar og góð heilsa meginhluta ævinnar. Hún var mikil fjölskyldumanneskja, stóð þétt við bakið á sínu fólki. Á vinafundi var Erna hrókur alls fagnaðar enda orðheppin og bráð- fyndin, sagði skemmtilega frá mönn- um og málefnum á Patreksfirði þar sem hún ólst upp. Hún var einkar minnug á alla hluti, ekki síður á upp- komur í stórum systkinahópi, það var gaman að hlusta á þessar frá- sagnir hennar. Það voru oft líflegar umræður við eldhúsborðið á Engja- hjalla þegar Elsa æskuvinkona hennar var í heimsókn, þær voru góðar saman að rifja upp spaugilegu hliðarnar á á tilverunni í gamla daga. Það var mikið áfall þegar hún greindist með krabbamein fyrir nokkrum árum. Erna mín vildi lifa, hún var ekki tilbúin að yfirgefa sína góðu fjöl- skyldu, hún vildi mega fylgjast með ,,ömmulíngum“ miklu lengur. Það hefur verið yndislegt að sjá öll börn- in hennar við sjúkrabeð móður sinn- ar, hve kærleiksrík þau voru, þau hafa vakað yfir henni allar stundir ásamt sínum góða föður sem hefur verið eins og klettur við hlið konu sinnar allt hennar veikindastríð. Þakkir til lækna og alls hjúkrunar- fólks á krabbameinslækningadeild Lsp og líknardeild í Kópavogi fyrir frábæra umönnun og hlýtt viðmót. Elsku Söebeck og fjölskylda og systkini Ernu, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Elskulega mágkona, ég kveð þig með söknuði. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. (Vald. Briem.) Þó sértu heimi farin frá og falin okkar ytri sýn mun barna þinna börnum hjá samt blessuð geymist minning þín. (Ók. höf.) Arnfríður Aradóttir. ERNA HELGA MATTHÍASDÓTTIR ✝ Stefán Júlíussonrithöfundur fæddist í Þúfukoti í Kjós 25. september 1915. Hann lést á Sól- vangi í Hafnarfirði 20. febrúar síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Helga Guð- mundsdóttir hús- móðir, f. í Hafnar- firði 3.8. 1888, og Júlíus Jónsson verkamaður, f. í Reykjavík 1.7. 1891. Systkini Stefáns voru Sigurjón bóndi, f. 4.5. 1914, Karl Kristján verkamaður, f. 19.2. 1920, Jóhannes bókbindari, f. 5.7. 1922, Vilbergur skólastjóri, f. 20.7. 1923, Guðlaug, f. 1.10. 1924, og Bjarni, f. 19.10. 1925. Þau eru öll látin. Stefán kvæntist Huldu Sigurðardóttur kennara, f. 18.2. 1922. Sonur þeirra er Sigurður B. Stefánsson, f. 25.2. 1947, kvæntur Kristínu Bjarnadóttur, f. 9.1. 1950. Synir þeirra eru Stefán Bjarni, f. 1969 til 1977 og framkvæmdastjóri Hjartaverndar og ritstjóri 1977 til 1990. Hann var auk þess virkur í flokksstarfi Alþýðuflokksins frá æskuárum fram að miðjum átt- unda áratugnum. Hann var bóka- vörður um skeið, blaðamaður 1956 til 1958, sat í fræðsluráði Hafnar- fjarðar, skólanefnd Iðnskólans, stjórn Kaupfélags Hafnarfjarðar, bókasafnsstjórn o.fl. Hann var rit- ari og formaður Félags íslenskra rithöfunda, formaður og varafor- maður Rithöfundasambandsins eldra 1958 til 1969, fyrsti varafor- maður Rithöfundasambandsins yngra 1969, í útvarpsráði 1972 til 1978 og varamaður 1958 til 1972 auk þess sem hann var fyrsti for- maður Rithöfundasjóðs og í fyrstu stjórn Kvikmyndasjóðs. Hann var í framkvæmdastjórn Hjartaverndar 1971 til 1991 og umdæmisstjóri Rotaryhreyfingarinnar á Íslandi 1987 til 1988. Stefán Júlíusson var afkastamikill rithöfundur og skrif- aði skáldsögur, barnabækur, greinar og frásagnir. Á meðal verka hans eru Kárabækurnar en auk þess þýddi hann fjölda barna- og unglingabóka. Útför Stefáns fer fram frá Hafn- arfjarðarkirkju í dag og hefst út- förin klukkan 15. 19.10. 1974, kvæntur Lilju Maríu Sigurðar- dóttur, f. 14.5. 1975, og Sveinn Birgir, f. 22.7. 1979, kvæntur Claudiu Avila, f. 3.5. 1975. Stefán tók kennara- próf frá Kennaraskóla Íslands 1936, BA-próf í bókmenntum og ensku frá Carleton College í Northfield í Minnesota, Bandaríkj- unum, 1943, stundaði nám í uppeldisfræðum og skólarekstri við Columbia University í New York 1941 til 1942 og var við nám í nú- tímabókmenntum við Cornell Uni- versity í Íþöku í Bandaríkjunum 1951 til 1952. Hann var kennari, yf- irkennari og skólastjóri Barna- skóla Hafnarfjarðar 1936 til 1955, kennari og yfirkennari Flensborg- arskóla 1955 til 1963, forstöðumað- ur Fræðslumyndasafns ríkisins 1963 til 1969, bókafulltrúi ríkisins Rúmir sex áratugir eru síðan ég vissi fyrst af Stefáni Júlíussyni þegar ég, tæplega 10 ára stráklingur, las fyrstu bók hans, Kári litli og Lappi, sem kom út árið 1938. Mér er það enn í fersku minni að mér fannst bókin sú besta sem ég hafði fram að þessu lesið og lengi síðan. Kynnin urðu síðar meiri og persónulegri eftir að Stefán kvæntist frænku minni, Huldu Sig- urðardóttur, árið l946 og þótti mér, unglingnum, líklegt að sá ráðahagur mundi verða fjölskyldunni til giftu og virðingarauka sem og varð. Stefán var þá þegar þekktur barnabókahöf- undur þótt segja megi að langur og farsæll rithöfundarferill hans hafi um það bil verið að hefjast á þessum ár- um. Ákveðin skil má greina á þeim ferli árið 1950 en það ár kom út bók sem ber heitið Leiðin lá til Vesturheims, höfundarnafn Sveinn Auðunn Sveins- son. Almennt könnuðust menn ekki við þennan höfund og þeirra á meðal var ég. Ég las þessa bók og þótti hún góð. Síðar upplýstist að höfundur var eng- inn annar en Stefán Júlíusson. Stefán var afkastamikill rithöfund- ur um sína ævidaga enda þótt rit- störfin teldust hjáverk að jafnaði lengst af. Kennsla og störf að skóla- málum urðu aðalviðfangsefni hans. Hann hlýtur að hafa verið góður kennari svo natinn sem hann var að leiðbeina og upplýsa. Síðar á ævi veitti hann forstöðu Fræðslu- myndasafni ríkisins og hann var bókafulltrúi ríkisins um árabil. Hann var mikill félagsmálamaður og kom þar víða við, ekki hvað síst á sviði fé- lags- og hagsmunamála rithöfunda. Á tímum síðari heimsstyrjaldar lá leið Stefáns til Vesturheims til náms í kennslu- og uppeldisfræðum sem hann stundaði í New York-borg og víðar. Má leiða að því líkur að rekja megi rætur skáldsögunnar áður- nefndu, Leiðin lá til Vesturheims, til þess tíma. Þegar ég síðar fór sjálfur til framhaldsnáms í New York-borg fékk ég ítarlegar leiðbeiningar og upplýsingar frá Stefáni um flest það sem máli skipti þar um slóðir. Einnig lét hann mér í té nöfn og heimilisföng nokkurra vina sinna og kunningja sem þar bjuggu og trúi ég að hann hafi jafnvel sent þeim línu um komu mína þangað. Nú er Stefán allur. Merkur maður er horfinn af sjónarsviði okkar. Hans er saknað af mörgum. Honum eru þökkuð löng og góð kynni. Sérstakar þakkir fyrir vinsemdina við fjölskyld- una sem bjó í mörg ár á Bergþóru- götu 15. Samúðarkveðjur frá okkur Maríu til Huldu eiginkonu hans og Sigurðar Birgis sonar þeirra og hans fjöl- skyldu. Haukur Þórðarson. Kveðja frá Hjartavernd Árið 1972 var Stefán Júlíusson rit- höfundur kosinn í aðalstjórn Hjarta- verndar. Stefán sat óslitið í stjórninni til 1990 en lét þá af störfum að eigin ósk. Hann var kosinn í framkvæmda- stjórn félagsins 1977. Sama ár var Stefán skipaður útgáfu- og félags- málastjóri Hjartaverndar og tók þá jafnframt sæti í ritstjórn tímaritsins „Hjartaverndar“ og var í reynd fram- kvæmdaritstjóri þess allt til 1997. Í framkvæmdastjórn sat Stefán til 1990. Hjartavernd naut þannig starfs- krafta Stefáns í meira en tuttugu ár. Það var ekki lítill fengur fyrir sam- tökin að fá til starfa mann með þá reynslu sem hann hafði bæði af rit- störfum og félagsmálum. Eftir að Stefán tók við starfi útgáfu- og félags- málastjóra hjá Hjartavernd var eitt aðalverkefni hans fræðsla fyrir al- menning um hjartaverndarmál. Eins og kunnugt er hafði Hjartavernd starfrækt rannsóknarstöð allt frá árinu 1967 til þess að afla upplýsinga um hjarta- og æðasjúkdóma meðal Ís- lendinga sem gætu lagt grundvöll að árangursríkum forvörnum í barátt- unni við þessa sjúkdóma. Nauðsyn- legt var að kynna niðurstöður þessara rannsókna sem best, bæði almenningi og heilbrigðisstarfsmönnum. Í þessu efni var Stefán mikilvirkur. Hann skrifaði fjölda greina í tímaritið „Hjartavernd“ auk þess að kynna nið- urstöður rannsóknanna í öðrum fjöl- miðlum. Það er vissulega ánægjulegt að tíðni hjarta- og æðasjúkdóma á Ís- landi hefur lækkað um helming sl. tvo áratugi. Það er trú okkar að marg- víslegar forvarnir sem byggjast á nið- urstöðum rannsókna Hjartaverndar eigi þar verulegan hlut að máli. Stefán sinnti ýmiss konar sam- skiptum við hjartaverndarfélög er- lendis fyrir hönd Hjartaverndar og sótti meðal annars nokkur þing Evr- ópusamtaka þessara félaga. Stefán átti sæti í ýmsum nefndum sem fulltrúi Hjartaverndar, m.a. í undirbúningsnefnd að stofnun endur- hæfingarstöðvar fyrir hjarta- og lungnasjúklinga í Reykjavík ásamt fulltrúum SÍBS og Landssamtaka hjartasjúklinga en stöðin tók til starfa 1988. Eins og að framan getur átti Stefán sæti í aðalstjórn frá 1972 til 1990 og í framkvæmdastjórn félagsins frá 1977 til 1990. Störfum sínum í þessum stjórnum sinnti hann alla tíð af áhuga og samviskusemi. Fyrir langt og heilladrjúgt starf í þágu Hjartavernd- ar erum við, fyrrverandi samstarfs- menn hans, honum þakklát og vottum eftirlifandi eiginkonu hans, Huldu Sigurðardóttur, og syni samúð okkar. Nikulás Sigfússon. Kveðja frá Rótarýklúbbi Hafnarfjarðar Ég kom í heiminn um það leyti sem Stefán Júlíusson kom frá Ameríku úr framhaldsnámi í bókmenntum. Þá hafði hann þegar verið kennari í nokkur ár. Þegar hann kenndi mér síðar sem unglingi í Flensborgar- skóla, var hann í mínum huga alltaf rithöfundurinn sem við krakkarnir vorum svo heppin að fá inn í tíma til okkar. Við Stefán vorum grannar og því fór ég oft hjá steinsteypta húsinu þeirra Huldu með dökku kvarsmuln- ingsáferðinni við Brekkugötu. Gatan er bókstaflega sprengd inn í Hamars- kotshamar og er fyrir sitt leyti eins konar minnisvarði um framfarahug og trú manna á mátt sinn og megin milli heimsstyrjalda. Handan götunn- ar er þverhnípt grjótstál eftir spreng- ingarnar og upp af því brött gras- brekka þar sem við krakkarnir lékum á spennandi háskasvæði. Uppi á Hamrinum stendur Flensborgarskóli eins og ósigrandi virki. Skólinn og hús Stefáns eru í fúnkisstíl, byggð á kreppuárunum. Það var ekki fyrr en í seinni tíð sem ég gerði mér grein fyrir því að með hreinstefnustíl sínum eru þau í raun einnig táknmyndir um bjarta sýn á betri tíma sem í engu skeytti um gamlar hefðir og úrelt lífs- munstur en stefndi á framfarir, rétt- látt og fagurt mannlíf. Stefán var órofa hluti af þessu umhverfi. Grann- ur, lágvaxinn, háleitur, virðulegur í fasi en alltaf vingjarnlegur þegar hann talaði við okkur með sinni sér- stæðu, syngjandi rödd. Stefán gekk í Alþýðflokkinn um fermingaraldur og hélt tryggð við hann æ síðan þótt ekki hafi hann af flokksforystunni verið talinn sérlega léttur í taumi, eins og hann skrifar á einum stað. Engu að síður voru honum falin ótal opinber STEFÁN JÚLÍUSSON                                                            !  "   #        ! "# $%  &'   ! "#   #  &'  ' (  #  &'  ( ) " ! $#& *+, -  #  &'   !! !! .'!!  #  !/ ( ! 0 1 ! ( &'  .'! !   !! $#& #2#!&&'  ' ( 0 !3&'  $% #   !  (-!                  4.5  $0   $+%2  "  $ %   &      ' ( &    ) *   &   +   ,,-             .    &    * (!&" '2 &'  $ 2 !! (+'!  3!     &'  '2  (+'! $ ! ! &'  6  "# (+'&'  ! .3"#! (&" (+'&'  7 " 6 3  !! !! 8  "! (+'&'  $  0%  - $ ! '2  6 ! !&  7 #  $ -   !+ " )'  #2   ! /
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.