Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 32
LISTIR/KVIKMYNDIR 32 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ LÍF Quoyle, sem búið hefur í New York allt sitt líf, hefur verið mis- heppnað, einmanalegt og sársauka- fullt og þegar hann verður svo fyrir þeirri ógæfu að missa fyrrum eigin- konu sína í bílslysi, breytist líf hans til frambúðar. Í sorg sinni leitar hann skjóls hjá frænku sinni og ungri dótt- ur á Nýfundnalandi, í leyndardóms- fullum heimkynnum forfeðranna. Í litla fiskiþorpinu Killick-Claw verður Quoyle sér úti um vinnu sem blaða- maður á bæjarblaðinu, The Gammy Bird. Þegar fram líða stundir og fleiri greinar eru skrifaðar, fer hann að skynja bæjarbraginn og sjálfan sig sem hluta af honum. Smám saman leitar hugur hans til Wavey, konu sem sjálf þarf þó að berjast við fortíð- ardrauga, en óhætt er að segja að til- vera Quoyle gerbreytist í nýja land- inu, sem er allt í senn svo magnað, óhagganlegt, fallegt og harðneskju- legt. „The Shipping News“, sem Smára- bíó frumsýnir í dag, er byggð á sam- nefndri bók Annie Proulz, sem fékk Pulitzer-verðlaunin fyrir hana á sín- um tíma. Sagan fjallar um ferðalag blaðamanns, sem leikinn er af Kevin Spacey, til heimkynna forfeðranna á Nýfundnalandi þar sem hann fær tíma og næði til að skoða sjálfan sig í nýju ljósi. Myndin er ekki síst saga um jákvæða umbreytingu manns, sem sækist eftir því að byggja upp brotið líf sitt og bæta skaddaða sál til að endurnýja lífskraftinn. Höfundur bókarinnar er einkar ánægður með afraksturinn og segir að myndin sé allt í senn fyndin, falleg, hjartnæm og hnyttin. „Snilldarleikur, þaulhugsuð smáatriði og hrjóstrug og kröftug náttúra Nýfundnalands hjálpast að við að gera þessa frábæru og óvenju- legu mynd, sem ég gat ekki einu sinni látið mig dreyma um að gæti orðið að veruleika,“ segir Proulz. Robert Nelson Jacobs var fenginn til að skrifa kvikmyndahandritið upp úr sögu Proulz, en hann var jafnframt handritshöfundur að hinni margverð- launuðu mynd Chocolat sem notið hefur vinsælda og sýnd var hér á landi ekki fyrir margt löngu. Leikstjóri myndarinnar er Lasse Hallström, sem tilnefndur hefur verið til Óskarsverðlauna fyrir My Life as a Dog og Cider House Rules. Hann er á þeirri skoðun að frásagnargáfa rithöf- undarins eigi sér fá mörk og sérstak- lega laðist hann að heiðarlegum og raunverulegum mannlýsingum. Fyrsta verk leikstjórans var að brjóta söguna niður til að skilja í reynd aðal- persónu myndarinnar, sem frá unga aldri var svipt öllu sjálfsáliti af for- eldrum sínum, sem sjálfir höfðu litla sem enga sjálfsvirðingu. Við verðum síðan vitni að því hvernig aðalpersón- unni tekst á sinn hátt að endurheimta sjálfsvirðinguna og hefja nýtt líf. Leikarar: Kevin Spacey (LA Confidential, Midnight in the Garden of Good and Evil, The Negotiator, Hurlyburly, The Big Kah- una, American Beauty); Julianne Moore (The End of the Affair, Magnolia, An Ideal Husband, Not I, A Map of the World, Hannibal); Judi Dench (Chocolat, Shake- speare in Love); Scott Glenn (The Sil- ence of the Lambs, Fighting Mad, Angels Hard as they Come) Rhys Ifans (Notting Hill, Little Nicky); Jason Behr (Pleas- antville, Rites of Passage); Gordon Pinsent (Pale Saints, Silence of the North); Pete Postlethwaite (In the Name of the Father, The Usual Suspects) og Cate Blanchett (Paradise Road, Thank God he met Lizzie). Leikstjóri: Lasse Hallström. Saga um týnda sjálfsvirðingu Smárabíó frumsýnir The Shipping News með Kevin Spacey, Julianne Moore, Judi Dench, Scott Glenn, Rhys Ifans, Jason Behr, Gordon Pinsent, Pete Postleth- waite og Cate Blanchett. Kevin Spacey í kvikmyndinni The Shipping News. Redford leikur Irwin, sem er þekktur og vinsæll þriggja stjörnu hershöfðingi í Bandaríkjaher með flekklausan feril. Hann er leiddur fyrir herrétt, sviptur stöðu sinni og dæmdur í herfangelsi af ströngustu gerð fyrir að óhlýðnast skipunum yfirmanna sinna í hernaðaraðgerð- um. Fangelsisstjórinn er Winter of- ursti, sem leikinn er af Sopranos- höfðingjanum James Gandolfini. Hann getur ekki leynt aðdáun sinni á þessum fræga fanga sínum, en sú aðdáun virðist síður en svo vera gagnkvæm. Winter stjórnar með harðri hendi innan fangelsismúr- anna og vílar ekki fyrir sér að aflífa fanga telji hann þess þörf. Irwin sér ROBERT Redford fer með aðal- hlutverkið í spennumyndinni The Last Castle í leikstjórn Rod Lurie, sem vakti þó nokkra athygli fyrir síðustu mynd sína The Contender með Joan Allen, Jeff Bridges og Gary Oldman í aðalhlutverkum og frumsýnd var árið 2000. Handrits- höfundar The Last Castle eru David Scarpa og Graham Yost, en fram- leiðslu annaðist Robert Lawrence. Robert Redford fer með aðalhlutverkið í The Last Castle. Uppreisn í fangelsi Laugarásbíó frumsýnir The Last Castle með Robert Redford, James Gandolfini, Mark Ruffalo, Delroy Lindo, Clifton Coll- ins, Steve Burton, Brian Goodman, Paul Calderon, Frank Military, Michael Irby, Samuel Ball og Jeremy Childs. SPENNUMYNDIN Collateral Dam- age segir af slökkviliðsmanninum Gordon í Los Angeles sem lendir í heimi hryðjuverka eftir að eiginkona hans og sonur deyja í sprengingu, sem hann verður sjálfur vitni að í mið- borginni þegar hann er rétt ókominn á fund þeirra. Talið er að hinn ill- ræmdi hryðjuverkamaður Úlfurinn hafi staðið fyrir sprengingunni, sem ætluð var starfsmönnum kólumbíska sendiráðsins og bandarísku leyni- þjónustunnar. Sprengingin hafi í engu átt að beinast að fjölskyldumeð- limum Gordons, heldur hafi hans nán- ustu látið lífið þar sem þau voru að- eins á röngum stað á röngum tíma. Þegar aðalsöguhetjan uppgötvar að ekki sé til neins að bíða eftir að op- inber yfirvöld rannsaki sprenginguna niður í kjölinn, svo hægt sé að láta hryðjuverkamennina svara til saka, ákveður Gordon, þvert á ráðlegging- ar vina innan FBI og CIA, að taka til sinna ráða til að ná sjálfur fram hefndum enda segist hann engu hafa að tapa lengur. Leikurinn berst alla leið til frumskóga Kólumbíu þar sem meintir hryðjuverkamenn eru taldir halda sig og svo aftur til Bandaríkj- anna, í þetta skiptið til höfuðborgar- innar Washington þar sem hryðju- verkamennirnir gera sig líklega til að vinna ný ódæði. Með aðalhlutverkið fer hinn stæði- legi Austurríkismaður Arnold Schwarzenegger. Handrit skrifuðu Peter Griffiths og Nicholas Meyer. Framleiðendur eru Steven Reuther og David Foster sem segja að at- Arnold Schwarzenegger í kvik- myndinni Collateral Damage. Hryðjuverkaárás á saklausa borgara Sambíóin Álfabakka, Snorrabraut, Kringlunni, Keflavík og á Akureyri frum- sýna Collateral Damage með Arnold Schwarzenegger, Francesca Neri, John Leguizarno, John Turturro og Elias Koteas. KVIKMYNDIN A Beautiful Mind, sem farið hefur sigurför um Bandaríkin og frumsýnd verður á Íslandi í dag, fjallar um stærð- fræðisnillinginn John Forbes Nash yngri, sem vann til Nóbelsverð- launa árið 1994 fyrir merkar upp- götvanir í hagfræði, en áður hafði geðveiki þjakað hann í áratugi. Nash fæddist árið 1928 og var því ungur að árum þegar hann hóf að beita óhefðbundnum aðferðum við að koma með stærðfræðikenningar af ýmsum toga. Rétt fyrir miðja síðustu öld setti hann svo fram kenningar í leikjafræði sem hafa æ síðan haft áhrif í hagfræði. Myndin hefst árið 1947 á náms- árum Nash í Princeton-háskóla og ekki líður á löngu þar til hann fer að vinna fyrir bandarísk stjórn- völd. Meðal annars er hann ráðinn til að ráða dulmál sovéska hersins á dögum kalda stríðsins og fæst auk þess við kennslustörf í MIT- tækniskólanum þar sem hann kynnist verðandi eiginkonu sinni, Aliciu Larde. Myndin segir sanna sögu geðhvarfasjúks stærðfræði- snillings, sem berst hetjulegri bar- áttu við sjúkdóm sinn og vinnur til Nóbelsverðlauna. Hún lýsir einnig sambandi hans við eiginkonuna, en af mörgum var Nash talinn mjög sérvitur þó í dag sé hann lifandi goðsögn. Ferill Nash sem vísinda- manns um miðbik aldarinnar spannar ekki nema um áratug því hann veiktist á geði og leið í um þrjá áratugi fyrir vænisýki og geð- klofa. Á síðasta áratug aldarinnar náði hann sér af veikindum sínum og hlaut Nóbelsverðlaunin árið 1994 ásamt John Charles Harsanyi og Reinhard Selten, sem höfðu stundað rannsóknir á sama sviði. Myndin, sem tilnefnd hefur ver- ið til margra Óskarsverðlauna, hlaut fern Golden Globe-verðlaun í janúar, en auk þess að vera kosin besta myndin fékk hún verðlaun fyrir besta handritið og aðalleik- ararnir, þau Russel Crowe, sem fer með hlutverk Nash, og Jenni- fer Connelly, sem leikur eiginkon- una, hlutu verðlaun fyrir besta leikinn. Með önnur aðalhlutverk fara Ed Harris, Christopher Plummer, Paul Bettany og Adam Goldberg. Leikstjóri er Ron How- ard. Handritsgerðin var í höndum Akiva Goldsman og framleiðendur eru Art Linson og Elie Samaha. Leikarar: Russel Crowe (Gladiator, The Insider, LA Confidential, Mystery Alaska, Proof of Life); Jennifer Conn- elly ( Once Upon A Time in America, Requiem for a Dream, Walking the Dead, Inventing the Abbotts, Higher Learning); Ed Harris (Pollock, Enemy at the Gate, Buffalo Soldiers, The Third Miracle, The Truman Show); Adam Goldberg ( Saving Private Ryan, All Over the Guy, Dazed and Confused); Christopher Plummer (The Sound of Music, The Man who would be King, Waterloo, The Pink Panther, Silent Partner). Leikstjóri: Ron Howard. Geðsjúklingur fær Nóbels- verðlaunin Sambíóin Álfabakka og Háskólabíó frumsýna A Beautiful Mind með Russel Crowe, Jennifer Connelly, Ed Harris, Adam Goldberg og Christopher Plumm- er. Russel Crowe í hlutverki stærðfræðisnillingsins John Forbes Nash, yngri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.