Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 16
AKUREYRI 16 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ VOGIR Eltak sérhæfir sig í sölu og þjónustu á vogum Bjóðum eitt mesta úrval á Íslandi af smáum og stórum vogum Hafðu samband Síðumúla 13, sími 588 2122 www.eltak.is X Y Z E T A / S ÍA Bakkavör Group hf. 2002 Aðalfundur Aðalfundur Bakkavör Group hf. vegna starfsársins 2001 verður haldinn í Salnum Tónlistarhúsi Kópavogi, Hamraborg 6, föstudaginn 8. mars nk. kl. 17.00 Dagskrá: 1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt samþykktum félagsins. 2. Tillaga um heimild til kaupa félagsins á eigin hlutum skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 3. Önnur mál löglega upp borin. Dagskrá, endanlegar tillögur og ársreikningur félagsins ásamt skýrslu stjórnar og endur- skoðenda mun liggja frammi á skrifstofu félagsins að Hamraborg 10, 200 Kópavogi, 7 dögum fyrir aðalfund. Fundargögn verða afhent við upphaf fundar. Atkvæðaréttur hluthafa miðast við stöðu hluthafaskrár að morgni 8. mars 2002. Að loknum aðalfundarstörfum verður hluthöfum boðið upp á léttar veitingar. Stjórn Bakkavör Group hf. FEBRÚAR hefur verið fremur svalur hér um slóðir og kveður nú með kaldasta degi mánaðarins, en þá var 22° frost með lognkyrru veðri. Niðri við vatnið þrengir að vökum og hrím sest á gróðurinn frá síðasta sumri. Myndin er tekin við Hótel Reykjahlíð. Morgunblaðið/BFH Kalt hefur verið í Mývatnssveit í febrúarmánuði. Febrúar kveður heldur kuldalega Mývatnssveit HELGI Daníelsson, fyrrverandi rannsóknarlögreglumaður, dvaldi hér í Grímsey í nokkra daga við gagnasöfnum vegna væntanlegrar bókar um Grímsey. Helgi á ættir sínar að rekja til Grímseyjar þar sem móðir hans var fædd og uppalin á Borgum í Grímsey. Bókin mun spanna líf og starf Grímseyinga frá 1890 og fram til okkar daga. Helgi kom hingað til að viða að sér fróðleik frá íbúum sem enn muna vel sögur og atvik frá þessum tímum um fólk og byggð. Eins til að fá ljósmyndir í bókina. Birna Óladóttir, Grímsey- ingur og húsfrú í Grindavík, var stödd hér að blóta þorra með Grímseyingum en Birna er sér- stakur velunnari og stuðningsmað- ur bókarinnar. Hún sagði mikilvægt að skrá þessa sögu einmitt nú svo hún færi ekki í glatkistuna. Þorlákur Sig- urðsson oddviti segir markmið bókarinnar vera að safna saman miklum fróðleik á einum stað um þetta tímabil. Helgi Daníelsson er umsjónar- maður bókarinnar en margir munu koma að þessu verki áður en yfir lýkur. Safnar efni í bók um Grímsey FLUGNEMAR í Flugskóla Ís- lands í Reykjavík skelltu sér í hóp- flug til Akureyrar í gær. Á Ak- ureyri fengu þeir sér hamborgara að borða og héldu svo suður yfir heiðar aftur. Hópurinn kom norður á 8 tveggja sæta eins hreyfils flug- vélum, alls 13 manns og fyrir utan það að fá sér í svanginn fyrir norð- an, var hópurinn að skoða landið úr lofti og ná sér í flugtíma. Margir sýndu skíðasvæðinu í Hlíðarfjalli sérstakan áhuga og gerðu sér ferð þar yfir. Allir flugnemarnir eru með einkaflugmannspróf og eru að læra til atvinnuflugmanns. Högni Jónsson, einn úr hópnum, sagði að veðrið á landinu hefði ver- ið mjög fallegt og útsýnið því hreint frábært. Á Akureyrarflug- velli mætti gestunum hins vegar 22 stiga frost en bjart og fallegt veð- ur. „Það er frí í skólanum í dag (í gær) og því þótti okkur upplagt að skella okkur til Akureyrar. Það er heldur ekki á hverjum degi sem veðrið er gott á báðum stöðum,“ sagði Högni. Morgunblaðið/Kristján Gestirnir að sunnan tóku bensín áður en flogið var heim á ný. Flugnemar í hóp- flugi til Akureyrar FREKAR rólegt hefur verið hjá Slippstöðinni Akureyri í febr- úarmánuði og eru óvenju fá skip þar í viðhaldi þessa dagana. Anton Benjamínsson, verkefnisstjóri Slippstöðvarinnar, sagði að óvenju dauft hafi verið yfir greininni á landsvísu undanfarnar vikur. Útlit- ið framundan væri þó alls ekki slæmt, eftir slakan febrúarmánuð. „Það stendur yfir loðnuvertíð og íslenski fiskiskipaflotinn er því meira og minna á sjó. Þetta er sá árstími þar sem nauðsynlegt er að ná í stærri verkefni eða erlend verkefni. Við höfum verið með nokkur erlend skip hér á þessum árstíma undanfarin ár og það er nauðsynlegt til að halda fullum dampi,“ sagði Anton. Þessa dagana er einmitt stór grænlenskur frysti- togari í viðgerð í flotkvínni hjá Slippstöðinni. Togarinn heitir Polar Mattoralik, í eigu Polar Seafood og kom til Akureyrar á mánudags- kvöld vegna bilunar í skrúfubúnaði. Anton sagði að viðgerð á skipinu tæki um vikutíma. Frystitogarinn Mánaberg ÓF væntanlegur til Akureyrar Þormóður rammi – Sæberg í Ólafsfirði og Slippstöðin undirrit- uðu samning í nóvember sl. um um- talsverða endurbyggingu á frysti- togaranum Mánabergi ÓF og er þetta jafnframt einn stærsti samn- ingur sem undirritaður hefur verið í Slippstöðinni á síðustu árum. Helstu verkþættir eru endurnýjun á togdekki og vinnslulínu á milli- dekki og hefur fjöldi starfsmanna Slippstöðvarinnar unnið við for- smíði á þessum skipshlutum síðustu mánuði. Mánaberg er væntanlegt til Akureyrar 11. mars og er ráð- gert að skipið komist aftur til veiða í maí nk. Þá er von á rússneskum togara til viðhalds á næstunni, sem taka mun um þrjár vikur. Þessa dagana er unnið við nóta- skipið Sigurð Jakobsson ÞH í dráttarbrautinni og við slippkant- inn liggur Dagfari GK, sem og rússneski togarinn Omnya, sem legið hefur við bryggju á Akureyri undanfarin ár. Verkefnastaða hjá Slippstöðinni reyndist slök í febrúar Mun bjartara útlit er talið framundan Morgunblaðið/Kristján Starfsmenn Slippstöðvarinnar voru að öxuldraga grænlenska togarann í flotkvínni í gær og eins og sést eru skrúfan og öxullinn engin smásmíði. NÁMSKEIÐ í hraðlestri verður haldið á vegum símenntunar RHA 5. mars næstkomandi. Kennari er Sverrir Páll Erlendsson, kennari við Menntaskólann á Akureyri. Námskeiðinu er ætlað að hjálpa þátttakendum að stilla leshraða sinn og lestrarlag. Námið felst í því að ýta á eftir leshraða með ýmsum aðferðum og auka jafnframt einbeitinguna, þar sem svara þarf efnisspurningum úr texta að loknum lestri hverrar æfing- ar. Þannig er unnt að margfalda les- hraða án þess að hann komi niður á skilningi eða eftirtekt. Notaðar eru kennsluaðferðir og kennslubækur Fjölnis Ásbjörnssonar og Guðna Kolbeinssonar, Lestu bet- ur, sem notaðar hafa verið um árabil með góðum árangri við marga fram- haldsskóla. Heimalestur, lesin kjör- bók. Skráning er á skrifstofu RHA. Lestu hraðar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.