Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 68

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK. FORMLEGUM viðræðum einkavæð- ingarnefndar og danska símafélagsins TDC um sölu á Landssíma Íslands hefur formlega verið slitið. Jafnframt hafa stjórnvöld ákveð- ið að binda enda á það ferli sem staðið hefur yfir og miðast hefur að því að selja umtals- verðan hlut ríkisins í fyrirtækinu til kjöl- festufjárfestis. Kostn- aður við sölu Lands- símans er eitthvað á annað hundrað millj- ónir króna, að sögn Ólafs Davíðssonar, formanns einkavæð- ingarnefndar. Sl. föstudag fóru fram viðræður milli einkavæðingarnefnd- ar og TDC í Kaup- mannahöfn. Á fundin- um kynnti nefndin nokkrar lykiltölur um afkomu Símans á síð- asta ári. Ólafur sagði að þessar upplýsingar hefðu engu breytt um fyrri afstöðu TDC og því hefði verið ákveðið að slíta formlega viðræðum. „Við teljum að meginástæðan fyrir því að salan á Símanum hefur ekki gengið eftir með þeim hætti sem von- ast var eftir sé sú óvissa sem hefur verið á alþjóðlegum fjármálamarkaði og fjarskiptamálum. Sala fór fram ör- fáum dögum eftir hryðjuverkaárás- irnar í Bandaríkjunum. Það komu einnig strax upp þær raddir að verð hlutabréfanna væri of hátt,“ sagði Ólafur þegar hann útskýrði hvers vegna ekki hefði tekist að selja Sím- ann. Ólafur sagði að miklar sveiflur hefðu verið á fjármálamörkuðum um það leyti sem salan fór fram og þegar hún var undirbúin. Sveiflur hefðu einnig verið á gengi krónunnar. „Það skiptir ekki síður máli að hagur og staða fjarskiptafyrirtækja höfðu breyst mjög. Á síðustu misserum og árum hafði verið feiknaleg uppsveifla í gengi símafyrirtækja. Margir líktu því við ævintýri. Verð á þess- um fyrirtækjum hafði hækkað gríðarlega mikið, en síðan snerist það við. Það byrjaði að gerast þegar salan fór fram og ég held per- sónulega að þetta sé ein veigamesta ástæð- an fyrir því hvernig til tókst. Allur undirbún- ingurinn og kannski verðmatið fer fram þegar mikil bjartsýni ríkir um framgang og uppgang þessara fyr- irtækja,“ sagði Ólafur. Innlausnarskylda ríkisins Stefán Már Stef- ánsson prófessor og Ásgeir Thoroddsen hrl. hafa tekið saman greinargerð um innlausnarrétt vegna sölu Landssímans. Niðurstaða þeirra er að hluthafar sem keypt hafa hlut í fyrirtækinu að undanförnu eigi rétt á að krefjast innlausnar á sínum hlut. Í ljósi þessa hefur verið ákveðið að bjóða hluthöfum að innleysa hluta- bréfin í Símanum á genginu 5,75, en það var sölugengið. Ólafur Davíðsson sagði að þrátt fyrir innlausnarskyldu ríkisins væru einstakir hluthafar ekki skyldugir til að þola innlausn hluta- bréfa sinna og gætu þeir því áfram átt hlutabréfin óskuðu þeir þess. Hluta- bréfin verða áfram skráð á tilboðs- markaði Verðbréfaþingsins. Ólafur sagði að áfram yrði stefnt að því að einkavæða Landssímann. „Þessari formlegu sölu er lokið. Okk- ar samstarfi við ráðgjafana er að ljúka. En það er áfram stefna ríkis- stjórnarinnar að selja hlutabréf í Landssímanum, að einkavæða fyrir- tækið. Því verður haldið áfram um leið og aðstæður á fjármálamarkaði verða hagstæðari og áhuginn vonandi vakn- ar á ný. Á næstunni verður megin- áhersla lögð á að efla sjálft fyrirtæk- ið.“ ÚLFAR Þórðarson læknir lést í Reykjavík í fyrrinótt á nítugasta og fyrsta aldursári. Úlfar fæddist í Reykjavík 2. ágúst 1911, sonur hjónanna Þórðar Sveinssonar, yfirlæknis á Klepps- spítala, og konu hans Ellen Johanne Sveins- son, f. Kaaber, hús- freyju. Úlfar varð stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1930. Hann fékk námsstyrk frá Humboldt-stofnuninni og var við nám við Albert-Universität í Königs- berg í Þýskalandi 1933–34. Hann lauk læknanámi frá Háskóla Íslands árið 1936, fékk almennt lækninga- leyfi 1938 og sérfræðingsleyfi í augn- lækningum árið 1940. Hann dvaldi auk þess við nám, sérfræðinám og störf í Þýskalandi, Danmörku og Bandaríkjunum um lengri og skemmri tíma. Úlfar opnaði eigin lækningastofu í Reykjavík árið 1940 og starfrækti hana síðan. Hann var auk þess sér- fræðingur á Landakotsspítala 1942– 81, læknir flugbjörgunarsveitar Reykjavíkurflugvallar 1950–84 og trúnaðarlæknir Flugmálastjórnar 1962–97. Úlfar gegndi margvíslegum trún- aðarstörfum um ævina. Hann var í stjórn sund- félagsins Ægis 1931–34 og formaður knatt- spyrnufélagsins Vals 1946–50. Hann var heiðursfélagi í báðum þessum félögum. Þá var hann formaður Íþróttabandalags Reykjavíkur 1967–82 og sat í stjórn íþrótta- vallanna í Reykjavík um skeið. Hann var stofnfélagi Fugla- verndarfélags Íslands árið 1963 og fyrsti for- maður þess. Úlfar var borgarfulltrúi fyrir Sjálfstæðisflokkinn um tveggja ára- tuga skeið frá 1958–78 og sat í sjúkrahúsnefnd Reykjavíkurborgar 1960–70. Hann var fulltrúi í heil- brigðismálaráði Reykjavíkurborgar 1970–78 og formaður þess 1972–74, formaður stjórnar sjúkrastofnana Reykjavíkurborgar 1975–78 og for- maður bygginganefndar Borgarspít- alans 1973–78. Þá sat hann í bygg- ingarnefnd aldraðra 1980–84. Úlfar ritaði greinar í innlend og erlend blöð og var í ritstjórn Acta Ophthalmologica 1958–78. Úlfar var kvæntur Unni Jónsdótt- ur kennara. Hún lést árið 1994. Þau eignuðust fjögur börn og eru þrjú þeirra á lífi. Andlát ÚLFAR ÞÓRÐARSON UNGT fólk úr Bústaðahverfi, á aldr- inum 13 til 16 ára, hefur undanfar- inn mánuð unnið hörðum höndum að því að undirbúa nýstárlega og viðamikla uppfærslu á söngleiknum Jesus Christ Superstar eftir And- rew Lloyd-Webber í Bústaðakirkju. Stóra stundin rennur svo upp í kvöld þegar frumsýningin er, en fyrirhugað er að sýna söngleikinn á a.m.k. þremur sýningum yfir helgina. Um sjötíu ungmenni taka þátt í uppfærslunni auk sex kóra, en til- efnið er að um þessar mundir fagn- ar Bústaðakirkja þrjátíu ára afmæli. Morgunblaðið/Sverrir Jesús Kristur í jakkafötum  Æfingar/62 Viðræðum við TDC hefur verið slitið Morgunblaðið/Ásdís Ólafur Davíðsson, formaður einkavæðingarnefndar, og Skarp- héðinn B. Steinarsson, starfsmaður nefndarinnar. Kostnaður við sölu Landssímans yfir 100 milljónir VERÐ á eldsneyti lækkar um eina krónu á lítrann í dag. Er verðbreytingin sú sama hjá öll- um olíufélögunum. Sé miðað við fulla þjónustu er verð á 95 oktana bensíni eftir lækkun 91,20 krónur á lítrann en verð á dísilolíu 45,90 krónur. Verð á 98 oktana bensíni hjá Esso er 95,90 krónur á lítrann en verð á 99 oktana bensíni hjá Skeljungi 99,99 krónur. Verð á gasolíu er 41,90 krón- ur, skipaolía kostar 28,80 krón- ur og svartolía 26,72 krónur á lítrann. Elds- neytis- verð lækkar AFL fjárfestingarfélag hefur að undanförnu aukið eignarhlut sinn í fjórum sjávarútvegsfyrirtækjum, Granda, Hraðfrystihúsinu-Gunn- vöru, Þormóði ramma-Sæbergi og Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna. Þorsteinn Vilhelmsson, hluthafi og stjórnarformaður Afls, á sæti í stjórn eða varastjórn allra félaganna. Nú er svo komið að Afl á 17,2% í Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru þar sem Þorsteinn er stjórnarformaður, 2,33% í SH þar sem Þorsteinn á sæti í stjórn, 10,5% í Þormóði ramma-Sæ- bergi þar sem Þorsteinn er varamað- ur í stjórn og 2,44% í Granda þar sem Þorsteinn á sæti í stjórn. Eignarhaldsfélagið Örvar ehf. er að fullu í eigu Þorsteins Vilhelmsson- ar og í gær birtist tilkynning á VÞÍ þess efnis að félagið hefði selt öll bréf sín í Hraðfrystihúsinu-Gunnvöru hf. að nafnverði kr. 67.390.855. Eignar- hlutur Eignarhaldsfélagsins Örvars ehf. var áður 10,01%. Afl fjárfestingarfélag varð til í lok síðasta árs en félagið hét áður Ís- lenski fjársjóðurinn. Þorsteinn Vil- helmsson og Landsbankinn fjárfest- ing keyptu hlutabréf fyrir 120 milljónir hvor aðili, og eiga 17,08% hlutafjár í Afli hvor um sig. Þá kom einnig fram að markmið fjárfesting- arinnar hefði verið að efla Íslenska fjársjóðinn hf. verulega á sviði áhrifafjárfestinga tengdra sjávarút- vegi, en Íslenski fjársjóðurinn var stofnaður árið 1995 með það að markmiði að fjárfesta í íslenskum sjávarútvegi. Afl eykur hlut sinn í sjávarút- vegsfyrir- tækjum
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.