Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 20

Morgunblaðið - 01.03.2002, Blaðsíða 20
LANDIÐ 20 FÖSTUDAGUR 1. MARS 2002 MORGUNBLAÐIÐ RÆKTUNARBÚIÐ Torfunes í Ljósavatnshreppi opnar heimasíðu um hesta á næstunni þar sem hægt er að nálgast allar upplýsingar um starf- semina og sjá þá hesta sem þar hafa verið ræktaðir undanfarna áratugi. Um er að ræða mikið af myndum og umsagnir um Torfuneshrossin. Á undanförnum árum hefur Torf- unes notið álits fyrir hæfileikarík, samvinnuþýð, traust og viljamikil hross og hægt er að lesa um þá keppnishesta sem notið hafa mestrar athygli. Einnig er að finna texta um þær hryssur sem vakið hafa athygli á sýningum. Á heimasíðunni er hægt að skoða afkvæmin, framtíðarefnivið ræktun- arinnar og þar má m.a. sjá folann Fald frá Torfunesi sem er á fyrsta vetri og varð hlutskarpastur á sýn- ingu sem haldin var í Saltvík hinn 24. janúar sl. Hann hlaut eignarbikar. Mikil uppbygging er framundan á Ræktunarbúinu Torfunesi sem mun verða hlutafélag, en til stendur að út- búa aðstöðu fyrir ferðamenn og kaup- endur, þar sem þeir geta gist ef á þarf að halda. Torfunes er í samstarfi við Bjarna Pál Vilhjámsson sem skipu- lagt hefur hestaferðir fyrir ferða- menn. Í nágrenni Torfuness eru fjöl- breytilegir möguleikar hvað varðar hestaferðir, en ferðirnar með Bjarna sem mest hafa verið um sunnanverða Þingeyjarsýslu hafa vakið athygli er- lendra ferðamanna og hefur m.a. ver- ið fjallað um þær í blaðinu Sunday Times. Um er að ræða átta daga ferð- ir þar sem farið er um fjalllendið norðan Mývatns og þar í kring og um svæði Dimmuborga og Jökulsár- gljúfra. Baldvin Kristinn Baldvinsson, bú- stjóri Ræktunarbúsins í Torfunesi, segir aðstöðuna fyrir kaupendur nauðsynlega til þess að þeir geti tekið sér tíma til þess að kynnast þeim hrossum sem þeir ætla að kaupa. Markmiðið sé að veita ráðgjöf til þeirra sem velja sér hesta og leið- beina um val og kaupendurnir geti dvalið um tíma á búinu. Mikilvægt sé að markaðssetja hross með metnaði og til að allir geti verið ánægðir þarf að finna hesta sem henta fyrir hvern og einn. Á heimasíðunni gefur einnig að líta umsagnir kaupenda og hvernig þeir hestar sem koma frá Torfunesi hafa staðið sig. Þar eru m.a. umsagnar- aðila Sigurbjörn Bárðarson verð- launahafi. Búið er að þróa fullkomið vefumsjónarkerfi fyrir hrossabænd- ur, en það hefur fyrirtækið Netlist gert í samvinnu við Ræktunarbúið Torfunes og Gísla B. Björnsson hönn- uð. Það kerfi gerir ræktendum hrossa kleift á einfaldan og þægileg- an hátt að halda úti sölu- og upplýs- ingavef með öllum þeim þáttum sem þeir vilja kynna og varðar ræktunina. Þar er m.a. að finna upplýsingar um ræktunarbú, ættartré hrossa, af- kvæmi, myndasöfn, myndbandaskrár o.m.fl. Allt efnið er auðvelt að upp- færa beint á Netið í gegnum stjórn- kerfið ODIN, vefumsjónarkerfi fyrir hrossaræktendur. Baldvin Kristinn væntir góðs af þessu þróunarstarfi sem átt hefur sér töluverðan undirbúning og býst við að Ræktunarbúið Torfunes muni vaxa og dafna í framtíðinni sé vel á haldið. Uppbygging og kynn- ing á Torfuneshrossum Laxamýri Morgunblaðið/Atli Vigfússon Torfunes hefur notið álits fyrir hæfileikarík og viljamikil hross. MJÓLKURBÚ Flóamanna á Sel- fossi tekur við rekstri Mjólkursam- lags Kaupfélags Héraðsbúa á Egils- stöðum í dag. Árleg mjólkurfram- leiðsla MBF verður nú um 42% af heildarmjólkurmagni í landinu. Birgir Guðmundsson er mjólkur- bússtjóri MBF. Aðspurður um fyr- irsjáanlega aukningu verkefna í mjólkursamlaginu á Egilsstöðum svarar Birgir, að rúlla eigi rekstr- inum hægt og rólega af stað, í svip- uðum farvegi og verið hefur. „Síðan ætlum við að gefa okkur tíma til að fara nákvæmlega ofan í allar hug- myndir til að fá út bestu samlegð- aráhrif í dæminu. Við höfum allskyns hugmyndir sem ekki er tímabært að fjalla um á þessu stigi. Menn eru bjartsýnir á að það sé hægt að gera þetta allt saman vel,“ sagði Birgir. Talað er um að hugsanlega verði ostagerð á Egilsstöðum aukin að tegundum og magni. Mjólkurstöðin hefur tekið inn um 3,5 milljónir lítra mjólkur árlega, þar af hefur ríflega 1/3 hluti farið í framleiðslu á moz- arellaosti. Helga Jónsdóttir lét í gær af störf- um sem mjólkurbússtjóri á Egils- stöðum en verður eitthvað áfram hjá fyrri eigendum, Kaupfélagi Héraðs- búa, til að gera upp rekstur samlags- ins það sem af er ári. Guttormur Metúsalemsson verður vinnslustjóri Mjólkursamlagsins á Egilsstöðum, en hann hefur áður gegnt þar stöðu mjólkurbússtjóra og verkstjóra. Guttormur segir menn bjartsýna á þróun mála og að verk- efni aukist jafnvel, en of snemmt sé að segja til um það nú. Væntanlega verði hlutirnir skoðaðir með vorinu. Framleiðendur eystra gerast í framhaldinu félagar í MBF, en fé- lagssvæðið nær nú frá Hellisheiði syðri til Hellisheiðar eystri. Hugsanlega farið út í aukna ostagerð Egilsstaðir MBF tekur við rekstri Mjólkursam- lagsins á Egilsstöðum í dag TÓLF þátttakendur taka þátt í próf- kjöri Sjálfstæðisflokksins í Árborg sem fram fer 9. mars. Prófkjörið er opið flokksmönnum og stuðnings- mönnum flokksins. Þeir sem taka þátt í prófkjörinu eru: Ari Thorarensen, Benedikt Benediktsson, Björn Ingi Gíslason, Halldór Valur Pálsson, Ingunn Guð- mundsdóttir, Jón Sigurðsson, Magn- ús Gíslason, Nína Björg Borgars- dóttir, Páll Leó Jónsson, Ragnhildur Jónsdóttir, Samúel Smári Hreggviðs- son og Sigurður Þór Sigurðsson. Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fer fram föstudaginn 1. mars og föstu- daginn 8. mars í Óðinsvéum, Austur- vegi 38 á Selfossi, milli kl. 18 og 20. Tólf í próf- kjöri í Árborg Selfoss LEIKSKÓLINN Ásheimar á Sel- fossi sendi nýlega frá sér ný- gerða skólanámskrá sem er stefnumótandi leiðarvísir um uppeldisstörf og sýnir leiðir leikskólans að markmiðum aðal- námskrár leikskóla. Leikskólinn Ásheimar starfar í samnefndu húsi við Austurveg og hefur verið þar síðan 24. nóvember 1979. Stöðugildi í Ásheimum eru rúmlega tíu, þar dvelja samtímis 48 börn og er dval- artíminn 4–9 klukkustundir. Leikskólastjóri er Helga Geir- mundsdóttir. Gerð námskrárinnar byggist á samþykkt sem gerð var í bæj- arstjórn Árborgar 1999 um að gert yrði átak í leikskólum til að fylgja eftir aðalnámskrá leikskóla. Frá því í nóvember sama ár hafa leikskólakennarar og starfsfólk Ásheima unnið reglulega að námskrárgerðinni. Við formlega útgáfu skóla- námskrár Ásheima flutti Helga Geirmundsdóttir leikskólastjóri ávarp og börnin sungu nokkur lög fyrir gesti. Morgunblaðið/Sig. Jóns. Börnin sungu fyrir gesti við útgáfu námskrárinnar í Ásheimum. Leikskólinn Ásheimar með skólanámskrá Selfoss ♦ ♦ ♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.