Morgunblaðið - 09.05.2003, Blaðsíða 50
50 FÖSTUDAGUR 9. MAÍ 2003 MORGUNBLAÐIÐ
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Biskup Íslands auglýsir laust til umsóknar
embætti
sóknarprests
í Ingjaldshólsprestakalli
Snæfells- og Dalaprófastsdæmi
frá 1. september 2003.
● Kirkjumálaráðherra skipar í embætti sóknar-
prests til fimm ára.
● Óskað er eftir því að umsækjendur geri í um-
sókn skriflega grein fyrir menntun sinni,
starfsferli og öðru því sem þeir óska eftir að
taka fram.
● Umsóknarfrestur rennur út 30. maí 2003.
● Umsóknir sendist Biskupi Íslands, Biskups-
stofu, Laugavegi 31, 150 Reykjavík.
Með vísan til 13. og 15. gr. laga um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr. 96/2000 eru
konur hvattar til að sækja um ofangreint
embætti.
Allar nánari upplýsingar um embættið er að
finna á vef Þjóðkirkjunnar: http://
www.kirkjan.is/biskupsstofa og á Biskupsstofu.
Kennarar
Grunnskólinn í Búðardal óskar eftir
kennara til starfa næsta skólaár.
Meðal kennslugreina er tónmennt, handavinna
og ýmsar greinar á unglingastigi.
Grunnskólinn í Búðardal er einsetinn skóli með
um 80 nemendur.
Hér hefur þú, kennari góður, tækifæri til að
starfa í notalegu unhverfi þar sem góður
kennslufriður ríkir.
Nánari upplýsingar gefa:
Guðrún G. Halldórsdóttir, skólastjóri, í símum
434 1466 og 862 8778, og
Bergþóra Jónsdóttir, aðstoðarskólastjóri,
í símum 434 1133 og 434 1175
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
KENNSLA
Innritun
Innritun nemenda fyrir skólaárið 2003—2004
stendur yfir til 15. maí nk. Nemendur á biðlista
eru beðnir um að staðfesta umsóknir sínar.
Tónstofan er tónlistarskóli þar sem nemendur
með sérþarfir hafa forgang. Markmið kennslu
og þjálfunar í Tónstofunni fellur undir megin-
markmið sem skilgreind eru í aðalnámskrá
tónlistarskóla. Sérstaða þeirra felst hins vegar
í einstaklingsmiðuðum áföngum og kennslu-
aðferðum.
Samgönguráðuneytið
Styrkir
Samgönguráðuneytið óskar eftir umsóknum
í styrki af óráðstöfuðum hluta fjárlagaliðarins
Vetrarsamgangna og vöruflutningar 10 — 190
— 112.
Vetrarsamgöngur og vöruflutningar eru sér-
stakur liður á fjárlögum sem ætlaður er til
stuðnings við sveitarfélög þar sem svo háttar
til að sveitarfélagið eða hluti þess býr við erfið-
ar og kostnaðarsamar samgöngur og ekki er
veitt fullnægjandi samgönguþjónusta af hálfu
stofnana ríkisins.
Styrkir verða einungis veittir þeim sveitarfélög-
um, sem senda rökstuddar umsóknir um þá.
Umsóknir skulu berast samgönguráðuneytinu
fyrir 1. júní 2003.
Styrkir verða hvorki veittir til reksturs sérleyfa
á landi, sjó eða í lofti né til stofnkostnaðar
vegna kaupa á tækjum og búnaði.
Umsóknir berist samgönguráðuneytinu,
merktar Rúnari Guðjónssyni.
TILBOÐ / ÚTBOÐ
Útboð
Rekstur mötuneytis
Tækniháskóli Íslands óskar eftir tilboðum í
rekstur mötuneytis skólans.
Óskað er eftir sjálfstæðum og metnaðarfullum
einstaklingi með menntun og reynslu í mat-
reiðslu.
Útboðsgögn liggja frammi í afgreiðslu Tækni-
háskólans á Höfðabakka 9, 112 Reykjavík.
Tilboðum skal skila í afgreiðslu Tækniháskól-
ans eigi síðar en 20. maí næstkomandi.
TILKYNNINGAR
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Auglýsing um
deiliskipulag í Reykjavík
Í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingar-
laga nr. 73/1997, með síðari breytingum, eru
hér með auglýstar til kynningar tillögur að deili-
skipulagsáætlunum og breytingum á deili-
skipulagsáætlunum í Reykjavík:
Skúlatúnsreitur eystri, Vélamiðstöðvar-
reitur.
Tillaga að deiliskipulagi reits sem afmarkast af
Skúlatúni, Borgartúni, Höfðatúni og Skúlagötu.
Á fundi skipulags- og byggingarnefndar þann
16. 04. 03 var samþykkt að auglýsa á ný, deili-
skipulagstillögu að framangreindum reit með
nokkrum breytingum. Tillagan var áður auglýst
frá 14. nóv. til 12. des., 2001 með athuga-
semdafresti til 31. des. 2001. Tillagan er í
meginatriðum eins og sú tillaga sem áður var
auglýst.
Tillagan gerir m.a. ráð fyrir að á norðurhluta
reitsins (norðan lóðanna við Skúlagötu) verði
heimilt að byggja nýbyggingar sem að jafnaði
skulu vera 4-6 hæðir. Heimilt er þó að byggja
þar eina Turnbyggingu sem má vera allt að 16
hæðir. Á suðurhluta reitsins er gert ráð fyrir að
heimilt verði að byggja 1-2 hæðir ofan á húsin
við Skúlagötu 59 og 3-4 hæðabyggingar á
lóðum aftan við húsin við Skúlagötu. Bíla-
stæðakrafa er 1 stæði á hverja 40 fm húsnæðis
auk 75 bílastæða fyrir stofnanir Reykjavíkur-
borgar að Skúlatúni 2 og Borgartúni 3. Land-
notkun á reitnum er miðsvæði og M5
samkvæmt Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-
2024 og því fyrst og fremst gert ráð fyrir
blandaðri atvinnustarfsemi s.s. fjármála-,
hátækni- og þekkingarfyrirtækjum, rann-
sóknarstarfsemi, hóteli og þjónustu tengdri
slíkri starfsemi.
Breytt tillaga gerir ráð fyrir m.a., að á
norðurhluta reitsins verði heimilt að byggja
bílgeymslu ofanjarðar. Við það eykst nýtingar-
hlutfall á norðurhluta reitsins lóðinni úr 1,5 í
1,93. Á tillögunni er nú einnig sýndur möguleiki
á að byggja inndregna hæð ofan á Höfðatún 12
í staðinn fyrir byggingu á baklóð sem sam-
kvæmt deiliskipulagstillögunni er gert ráð fyrir
að verði fjarlægð. Nánar um tillöguna vísast til
kynningargagna.
Suður-Mjódd, flettiskilti ÍR
Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Suður-
Mjóddar, á horni Breiðholtsbrautar og Skógar-
sels/Stekkjarbakka.
Tillagan gerir m.a., ráð fyrir að flettiskilti, sem
áður hafði verið samþykkt við bifreiðastæði við
Álfabakka, verði staðsett í brekkufót vestan við
undirgöng undir Breiðholtsbraut, rétt utan við
gatnamót Breiðholtsbrautar og Skógarsels/
Stekkjarbakka á borgarlandi. Skilmálar: Innan
afmarkaðs svæðis er heimilt að reisa tölvustýrt
flettiskilti með þremur myndflötum ofan á
steyptum sökkli. Stærð hvers myndflatar má
vera allt að 6,4m x 4,3m. Hæð skiltis má vera
allt að 8,5m frá núverandi landi. Skiltið skal
staðsetja minnst 35m frá miðlínu Breiðholts-
brautar og 62m frá miðlínu Skógarsels. Vanda
skal frágang við fót skiltis. Með þessari tillögu
er heimil frávik frá samþykkt um skilti í lögsögu
Reykjavíkur gr. 6.7 og 7.2 sbr. gr. 9.1. Nánar um
tillöguna vísast til kynningargagna.
Tillögurnar liggja frammi í upplýsingaskála
skipulags- og byggingarsviðs í Borgartúni 3, 1.
hæð, virka daga kl. 10.00 – 16.15 og fimmtu-
daga til 18.00, frá 09.05. 2003 - til 20.06. 2003.
Einnig má sjá tillögur á heimasíðu sviðsins,
skipbygg.is. Eru þeir sem telja sig eiga
hagsmuna að gæta hvattir til að kynna sér til-
lögurnar. Ábendingum og athugasemdum við
þær skal skila skriflega til skipulagsfulltrúa eigi
síðar en 20. júní 2003.
Þeir sem eigi gera athugasemdir innan tilskilins
frests, teljast samþykkja tillögurnar.
Reykjavík, 9. maí 2003.
Skipulagsfulltrúi Reykjavíkur
ÝMISLEGT
Grensásvegi 3-5, 101 Reykjavík,
sími 553 9210, nyton@ismennt.is
Burtfararprófstónleikar
Önnu Jónsdóttur, sópran, verða í Víðistaða-
kirkju laugardaginn 10. maí kl. 16:00.
Richard Simm leikur með á píanó.
Hvað gerist hér?
Í hádegisfrétt RUV 08.05.03 var sagt að á annað
hundrað kínverskum embættismönnum hefði
verið refsað vegna þagnar þeirra um bráð
lungnabólgutilfelli. Hve lengi heldur þögn og
aðgerðaleysi íslenskra embættismanna um
meint gróf lögbrot tengt Kárahnjúkavirkjunar-
ferlinu, sjá auglýsingu í Lögbirtingablaðinu
10.01.03?
Tómas Gunnarsson, áhugamaður um opinbera stjórnarhætti.