Morgunblaðið - 03.09.2003, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 3. SEPTEMBER 2003 49
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 12 ára.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. B.i. 10 ára.
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KVIKMYNDIR.IS
KVIKMYNDIR.COM
ÓHT RÁS 2
SG DV
MBL
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.30, og 8.15. B.i. 10.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10.30. B.i. 10
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50. Með íslensku tali.
KRINGLAN
Sýnd kl. 5.
BASIC SINBAD SÆFARI ÁSTRÍKUR OG KLEOPATRABRUCE ALMIGHTY
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.
YFIR 38.000 GESTIR! YFIR 38.000 GESTIR!
98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”! 98% aðspurðra í USA sem höfðu séð myndina
sögðu “góð” eða“stórkostleg”!
Skonrokk FM 90.9 Skonrokk FM 90.9
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 4 og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
Með
íslensku
tali
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP KL. 5, 7.45 OG 10.15.
ÁLFABAKKI
Synd kl. 4 og 6. Ísl tal
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 8. Enskt tal
Sýnd áklukkutímafresti
KVIKMYNDIR.IS
síðasta Bang Gang plata kom út, en
platan nýja er önnur Bang Gang
platan sem hann semur á þessum
fimm árum; hann henti plötu sem
hann var kominn að því að taka upp á
síðasta ári og byrjaði upp á nýtt.
Henti heilli plötu
„Það eru fimm ár síðan síðasta
plata kom og ég er búinn að vera að
dúlla mér við þetta síðan; fyrstu tvö
árin var ég að undirbúa plötu en tók
mér svo hlé vegna þess að ég vildi
ekki vinna með plötufyrirtækinu
sem ég var samningsbundinn hér
heima og endaði með því að ég þurfti
að borga fullt af pening til að losna
við það svo ég gæti haldið áfram. Svo
þegar ég hlustaði á það sem ég var
búinn að gera fannst mér það ekki
rétt og ákvað því að henda því og
byrja upp á nýtt. Sú plata verður því
aldrei kláruð,“ segir Barði með lítilli
eftirsjá. „Svo bjó ég til aðra með
tuttugu lögum sem ég fækkaði niður
í tólf og það er sú plata sem kemur út
í haust.“
Á Bang Gang plötunni nýju ber
svo við að Barði syngur helminginn
sjálfur, en aðrir sem syngja á plöt-
unni eru meðal annars Daníel Ágúst,
Ester Thalía, Nicolette, Phoebe og
Keren Ann, en þess má geta að Barði
launar henni greiðann með því að
syngja eitt lag á hennar sólóplötu
sem kemur út í haust.
Ekki er bara að þau syngi hvort
fyrir annað Barði og Keren Ann
heldur gerðu þau plötu saman í sum-
ar, Lady & Bird, sem kemur út
fyrstu vikuna í október. „Það er svo
sérkennilegt með þá plötu að hún er
fullkláruð áður en skrifað er undir
samning um útgáfu,“ segir Barði, en
undirfyrirtæki EMI/Capitol hyggst
gefa hana út í haust. „Það var stefnt
að því að gefa hana út í október en
því verður sennilega frestað til að út-
gáfa hennar falli ekki í skuggann af
útgáfu Bang Gang og svo plötunnar
hennar Keren Ann.“
Sérkennilegt sumarfrí
Barði segir að sumarið hafi verið
sérkennilegt, hann hafi unnið að
tveimur plötum og komið nokkuð við
sögu á þeirri þriðju, sólóskífu Keren
Ann. Plöturnar voru unnar á Íslandi,
í Belgíu og Frakklandi og hann seg-
ist hafa verið lokaður inni í hljóðveri
að mestu frá því í byrjun apríl.
„Lady & Bird var unnin á viku í Par-
ís og síðan þremur vikum í Brussel.
Bang Gang platan var tekin að
mestu upp hér heima en síðan vann
ég hana áfram í París, Keren Ann
platan var svo öll gerð í Belgíu nema
nokkur lög í París svo ég hef verið
mikið á ferðinni. Þetta er vitanlega
búið að vera geðveiki og rennur allt
saman í eitt; mér finnst ég búinn að
vera að vinna í þrjár vikur en ekki
fjóra eða fimm mánuði.“
Að lokum ber þess að geta að 20.
september stendur til að halda veg-
lega útgáfutónleika með Bang Gang
og er gert ráð fyrir að fjöldi erlendra
útgefenda og blaðamanna verði við-
staddir tónleikana.
NOKKUÐ ER um liðið síðan heyrst
hefur í Barða Jóhannssyni og Bang
Gang enda fimm ár liðin síðan You
kom út. Hann hefur þó ekki setið
auðum höndum, allra síst í sumar,
því þá lauk hann við tvær breiðskífur
og kemur að auki við sögu á þeirri
þriðju. Í haust kemur út ný plata
Bang Gang, önnur ný plata sem
Barði gerir með frönsk, indónesísku,
ísraelsku, hollensku söngkonunni
Keren Ann og hann kemur einnig við
sögu á sólóskífu hennar sem er líka
væntanleg í haust.
Fyrir stuttu lauk Barði við aðra
nýja Bang Gang plötu sem kemur út
ytra í fyrstu vikunni í október, verð-
ur gefin út í Frakklandi fyrir Evr-
ópu, en eftir á að ganga frá útgáfu í
Bretlandi og vestur í Bandaríkjun-
um. 1001 Nótt gefur út hér á landi.
Eins og getið er eru fimm ár síðan
Ný skífa frá
Bang Gang
Barði Jóhannsson
Lithimnulestur
Með David Calvillo
fimmtudag og
föstudag
Lithimnulestur er gömul fræðigrein þar sem
upplýsingar um heilsufar, mataræði og
bætiefni eru lesnar úr lithimnu augans.
Á fimmtudag og föstudag mun David Calvillo
vera með lithimnulestur í Heilsubúðinni, Góð
heilsa gulli betri. Njálsgötu 1, uppl. og tímapantanir í s:561-5250.
ROKKAFARNIR í Rolling Ston-
es sinna umhverfisvernd í verki í
tengslum við tónleikahald sitt sem
nú stendur yfir í
Bretlandi með
því að gróð-
ursetja þúsundir
trjáa til að vega
upp á móti
koltvíildi sem
tónleikagestir
gefa frá sér.
Fyrir tilstilli
fyrirtækisins
Future Forests
hefur verið reiknað út hversu mik-
il koltvíildismengun fylgir hverjum
tónleikum fyrir sig út frá stærð
tónleikasvæðisins, vegalengd milli
tónleika og meðalvegalengd sem
tónleikagestir leggja að baki til að
komast á vettvang og heim aftur.
Samkvæmt þeim útreikningum
þarf eitt tré til að vega upp út-
blástur frá 57 áhangendum hljóm-
sveitarinnar. Áætlað er að 160.000
manns sæki níu tónleika Stones í
Bretlandi sem leiðir til þess að
sveitin mun láta gróðursetja
a.m.k. 2.800 tré í Skotlandi.
Talsmaður Future Forests segir
að bæði fyrirtæki á borð við
Barclays-banka og hljómsveitir
svo sem Coldplay og Foo Fig-
hters, hafi ákveðið að taka þátt í
gróðursetningu af sama
tagi …Leik- og söngkonan Ma-
donna er í miklu uppáhaldi hjá
þeim sem skemmta sér við að
setja saman lista yfir það versta í
kvikmyndum. Hún hefur safnað að
sér hindberjaverðlaunum, sem ár-
lega eru veitt í Bandaríkjunum
fyrir verstu frammistöðu í kvik-
myndum og nú hefur breska kvik-
myndablaðið Empire valið ástar-
senu hennar og Williams Dafoe, í
myndinni Body of Evidence verstu
ástarsenu í kvikmynd. Í senunni
er Dafoe bundinn fastur við rúm
en Madonna lætur heitt kertavax
leka á hann. Tilburðir þeirra
Michaels Douglas og Sharon
Stone í myndinni Basic Instinct
koma næstir að mati Empire og
Stone fær einnig „viðurkenningu“
fyrir myndina Sliver. Þá kemst
Mickey Rourke á listann fyrir fimi
með ísmola og önnur hjálpargögn
í myndinni 91/2 Weeks.
Listi Empiere:
1. Body of Evidence (1992)
2. Basic Instinct (1991)
3. Last Tango in Paris (1972)
4. The Color of Night
(1994)
5. The Matrix
Reloaded. (2003)
6. Killing Me Softly.
(2002)
7. Showgirls (1995)
8. Disclosure (1994)
9. 9 1/2 Weeks (1986)
10. Sliver (1993) …
Norðmaðurinn Steph-
en Ackles, Elvis
Presley-eftirherma,
setti heimsmet í fyrra-
dag með því að syngja
Elvis-lög samfleytt í
30 klukkustundir, 12
mínútur og eina sek-
úndu. Eldra metið átti
landi hans, Kjell Henning Björ-
nestad, en það var 26 klukku-
stundir, fjórar mínútur og 40 sek-
úndur.
Ackles sagðist himinlifandi, eftir
að hann hafði sett metið á karoke-
bar í Ósló í gær, í samtali við
norska ríkisútvarpið, NRK. Heim-
ildir herma að Kjell-Elvis ætli að
reyna að ná metinu aftur … Svo
gæti farið að Justin Timberlake
tæki lagið með gömlu sítt-að-aftan
goðunum í Duran Duran. Birm-
ingham-sveitin kom nýverið öll
saman í fyrsta sinn í 18 ár á MTV
verðlaunahátíðinni um daginn.
Þar var sveitin heiðruð fyrir fram-
lag til tónlistarinnar og lentu þeir
á spjalli, Simon Le Bon söngvari
Duran Duran, og Timberlake. Vel
fór á með þeim og segir Le Bon
að Timberlake hafi þá lýst yfir
áhuga sínum á að vinna með Dur-
an Duran …
FÓLK Ífréttum
Reuters