Morgunblaðið - 11.03.2004, Blaðsíða 61
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 11. MARS 2004 61
www.opera.is midasala@opera.is 511 4200
Brúðkaup Fígarós eftir Mozart hefur verið sýnt oftar en nokkur önnur
ópera, en sjaldan hafa leynimakkið og erótíkin blómstrað eins og í
þessari uppfærslu Íslensku óperunnar. Í aðalhlutverkum er einvalalið
söngvara: Bergþór Pálsson, Auður Gunnarsdóttir, Hulda Björk Garðars-
dóttir, Ólafur Kjartan Sigurðarson og Sesselja Kristjánsdóttir.
Láttu þig ekki vanta í þessa bráðskemmtilegu veislu!
4. sýning sunnudag 14. mars kl. 19
5. sýning föstudag 19. mars kl. 20
6. sýning sunnudag 21. mars kl. 19
Aðeins fáar sýningar (lokasýning 2. apríl)
• Afgreiðslutími innan þriggja vikna
• Bjóðum margar gerðir af heyrnartækjum
sem búa yfir nýjustu tækni
• Verð frá 47.000 – 150.000 kr fyrir eitt tæki
• Persónuleg og góð þjónusta
EFTIR mjög góðar undirtektir í
fyrra býður Félagið Ísland – Ung-
verjaland aftur þrjá (einum fleiri en í
fyrra) styrki fyrir Íslendinga til ung-
verskunáms í Ungverjalandi. Styrk-
irnir eru í boði ungverska mennta-
málaráðuneytisins. Námskeiðin sem
eru í boði eru öll haldin við virta há-
skóla í Ungverjalandi, segir í frétta-
tilkynningu. Fólk getur valið eftirfar-
andi háskóla (University of Debrecen
- www.nyariegyetem.hu; Balassi Bál-
int Institute (Budapest) -
www.bbi.hu; University of Pécs -
www.isc.pte.hu; University of Szeg-
ed; www.arts.u-szeged.hu/hungar-
ianstudies; Eötvös Loránd University
(Budapest), http://www.elte.hu/), sem
eru meðal þekktustu tungumálaskóla
fyrir erlenda nemendur í Ungverja-
landi.
Námskeiðin sem um ræðir sumarið
2003 eru mörg og fólk getur valið allt
frá tveggja til fjögurra vikna nám-
skeiða. Styrkirnir fela í sér: Skóla-
gjöld, húsnæði, fullt fæði (morgun-,
hádegis- og kvöldmat), kvölddagskrá,
ferðir og annað á vegum skólans,
strætókort og u.þ.b. 500 HUF á dag í
vasapening. Styrkurinn felur ekki í
sér flugfarið.
Þeir sem áhuga hafa á að sækja um
styrkinn sendi ferilskrá sína ásamt 1
bls ritgerð um ástæður, áhuga á Ung-
verjalandi og ungversku. (Af hverju
vilt þú læra ungversku, til hvers,
o.þ.h.)
Umsóknarfrestur er til 31. mars og
umsóknum skal koma til Félagsins
Ísland-Ungverjaland, C/o Maurizio
Tani, Hagamel 45 107 Reykjavík.
Nánari upplýsingar er að fá á heima-
síðu félagsins ( http://ungverja-
land.supereva.it) og með því að senda
tölvupóst á netfangið maurizio@hi.is
eða í síma 5512061 – 6967027.
Styrkir til ungversku-
náms í Ungverjalandi
„ÞAÐ URÐU talsverð átök í for-
sætisnefnd þingsins um þá tillögu
mína að koma skjaldarmerkinu fyr-
ir á þinghúsinu, en ég man ekki
betur en hún hafi verið formlega
samþykkt. Þeir voru nefnilega
margir sem töldu það óhæfu að
eiga þetta fallega skjaldarmerki og
nota það ekki til að prýða Alþing-
ishúsið,“ sagði Árni Gunnarsson,
fyrrum alþingismaður, í samtali í
framhaldi af greininni Íslands
merki og Alþingishúsið, sem birtist
í Lesbók Morgunblaðsins 28. febr-
úar sl.
„Ég var nú svo harður að ég vildi
láta fjarlægja kórónuna af húsinu,
en tók rökum og sættist á að hún
yrði áfram en skjaldarmerkinu
komið fyrir á húsinu,“ sagði Árni.
„Það var sett í gang vinna við
gerð merkisins og Garðar Hall-
dórsson teiknaði nokkrar tillögur
að því á þinghúsinu. En svo lentum
við í stríði við húsfriðunarnefnd,
þar sem Hörður Ágústsson fór
fremstur. Hann sættist þó á það
fyrir rest að setja skjaldarmerkið
upp inni í sal sameinaðs þings,
framan á ræðustólinn eða til hliðar
við forsetapúltið.
Ég datt svo út af þingi og við það
virðist málið hafa liðið í ómegin.
Ég er þó enn sama sinnis, mér
finnst að það eigi að fara eftir for-
setasamþykktinni og finna skjald-
armerkinu stað í Alþingishúsinu.“
Skjaldarmerkið
og þinghúsið
Húsameistari ríkisins, Garðar Hall-
dórsson, gerði teikningar af fjórum
tillögum á staðsetningu skjald-
armerkisins á Alþingishúsinu. Þessi
er samkvæmt aðaltillögunni;
skjaldarmerkið á svölum þinghúss-
ins. Hinar tillögurnar gerðu ráð
fyrir skjaldarmerkinu undir svöl-
unum; ofan á innganginn, upp und-
ir þaki fyrir ofan svalagluggann og
milli glugganna vinstra megin við
innganginn.
STÓRU upplestrarkeppninni
lýkur nú í mars með upplestr-
arhátíðum um land allt.
Keppnin er haldin í áttunda
sinn og lokahátíðir verða á 32
stöðum. Skáld keppninnar í ár
eru þau Stefán Jónsson og
Þuríður Guðmundsdóttir. Um
4.300 nemendur í 151 skóla
taka þátt í keppninni, eða um
95% árgangsins. Nemendur
hafa allt frá Degi íslenskrar
tungu æft upplestur og fram-
burð undir leiðsögn kennara
síns, og á hátíðunum koma
fram þeir sem lengst hafa náð
í sínum skóla.
Á hátíðunum koma einnig
fram ungir tónlistarmenn og
víða munu innflytjendur flytja
ljóð á móðurmáli sínu.
Edda – útgáfa veitir öllum
flytjendum bókarverðlaun en
Sparisjóðirnir veita þremur
bestu flytjendum peningaverð-
laun.
Upplýsingar um stað og
stund hátíða í hverju byggð-
arlagi má fá á vefsetri keppn-
innar: http://www.ismennt.is/
vefir/upplestur og í grunnskól-
um landsins eða á
skólaskrifstofum.
Stóru upp-
lestrar-
keppninni
að ljúka
Á AÐALFUNDI félagsins AUÐUR
sem haldinn var fimmtudaginn 4.
mars var ákveðið að opna félagið
öllum þeim konum sem stjórna og/
eða reka fyrirtæki, hafa áhuga á
stofnun og rekstri fyrirtækja og
frumkvöðlastarfsemi. Félagið var
áður eingöngu opið þeim konum
sem sóttu námskeiðið Frumkvöðla-
auður hjá Háskólanum í Reykjavík.
Heimasíða Félagsins AUÐUR,
felagid-audur.is hefur verið opnuð.
Þar er að finna gagnlegar upplýs-
ingar fyrir konur sem hafa áhuga á
stofnun og/eða rekstri fyrirtækja og
frumkvöðlastarfssemi. Einnig er
þar að finna upplýsingar um AUÐ-
AR-fyrirtæki sem hafa verið stofn-
sett og tilurð félagsins. Umsókn að
AUÐI er að finna á heimasíðu fé-
lagsins.
Félagið AUÐUR var stofnað hinn
18. mars 2003 í Háskólanum í
Reykjavík. Stjórn félagsins var kos-
in og heiðursfélagar kynntir, en þeir
eru; Guðfinna S. Bjarnadóttir, Guð-
rún Pétursdóttir og Halla Tómas-
dóttir. Félagið er afsprengi verkefn-
isins AUÐUR í krafti kvenna sem
Háskólinn í Reykjavík átti veg og
vanda af. „FrumkvöðlaAUÐUR var
ætlað konum sem vildu stofna og/
eða reka fyrirtæki. Markmiðið var
að gera konurnar færar um að reka
fyrirtæki, móta viðskiptahugmynd
og semja viðskiptaáætlun, sem
kynnt var í lok námskeiðsins. Hald-
in voru 6 námskeið og stóð hvert
þeirra í 16 vikur. Þátttakendur voru
163 og unnu að meira en 90 við-
skiptahugmyndum. Við verklok
höfðu þátttakendur í Frumkvöðla-
AUÐI stofnað 51 fyrirtæki sem
veittu 217 ný störf,“ segir í frétta-
tilkynningu.
Auður færir út kvíarnar