Morgunblaðið - 11.03.2004, Síða 66
ÍÞRÓTTIR
66 FIMMTUDAGUR 11. MARS 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÚRSLIT
KÖRFUKNATTLEIKUR
Úrslitakeppni karla, Intersportdeildin, 8-
liða úrslit, fyrstu leikir:
Keflavík: Keflavík - Tindastóll .............19.15
Stykkishólmur: Snæfell - Hamar.........19.15
1. deild karla, úrslitakeppni – fyrsti leikur
í undanúrslitum:
Borgarnes: Skallag. - Árm./Þróttur ....19.15
HANDKNATTLEIKUR
ÍR – Fram 36:33
Austurberg, Reykjavík, úrvalsdeild karla,
RE/MAX-deild, miðvikudag 10. mars 2004.
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 4:4, 6:6, 8:8, 8:11,
11:13, 14:14, 16:16, 17:20, 22:21, 23:23,
25:25, 27:27, 30:28, 32:30, 34:31, 36:33.
Mörk ÍR: Einar Hólmgeirsson 8, Ingi-
mundur Ingimundarson 7, Hannes Jón
Jónsson 6/2, Fannar Örn Þorbjörnsson 5,
Sturla Ásgeirsson 5, Bjarni Fritzson 4/2,
Júlíus Jónasson 1.
Varin skot: Ólafur Gíslason 19 (þar af 4 aft-
ur til mótherja).
Utan vallar: 8 mínútur
Mörk Fram: Héðinn Gilsson 7, Valdimar
Þórsson 6, Stefán B. Stefánsson 6, Arnar
Sæþórsson 6/4, Jón B. Pétursson 4, Haf-
steinn Ingason 3, Martin Larsen 1.
Varin skot: Egidijus Petkevicius 16/2 (þar
af 2 aftur til mótherja), Sölvi Thorarensen
3/1 (þar af 1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Hlynur
Leifsson, mjög slakir.
Áhorfendur: 183 eða þar um bil.
Grótta/KR – Valur 23:20
Íþróttamiðstöðin Seltjarnarnesi:
Gangur leiksins: 0:1, 2:1, 3:3, 3:6, 5:6, 6:9,
12:9, 12:12, 14:13, 16:16, 18:16, 21:20, 23:20.
Mörk Gróttu/KR: Magnús Agnar Magn-
ússon 5, Daði Hafþórsson 5, Konráð Olav-
son 4, Brynjar Hreinsson 4, Oleg Titov 2,
Kristinn Björgúlfsson 2/2, Kristján Þor-
steinsson 1.
Varin skot: Gísli Guðmundsson 24/2 (þar af
fóru 6 aftur til mótherja).
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk Vals: Markús Máni Mikaelsson 5,
Heimir Örn Árnason 5, Hjalti Gylfason 4,
Sigurður Eggertsson 3, Freyr Brynjarsson
2, Hjalti Pálmason 1.
Varin skot: Pálmar Pétursson 15/1 (þar af
fóru 7/1 aftur til mótherja), Örvar Rúd-
ólfsson 2 (þar af fór 1 aftur til mótherja).
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Arnar Kristinsson og Þorlákur
Kjartansson.
Áhorfendur: Um 290.
HK – Haukar 28:31
Gangur leiksins: 0:1, 3:1, 3:6, 7:11, 12:14,
12:16, 15:16, 19:20, 20:26, 26:27, 28:31.
Mörk HK: Andrius Rackauskas 11, Ólafur
Víðir Ólafsson 3, Alexander Arnarson 3,
Atli Þór Samúelsson 3/1, Elías Már Hall-
dórsson 3/2, Davíð Höskuldsson 2, Haukur
Sigurvinsson 2/2, Jón Bersi Ellingsen 1.
Varin skot: Hörður Flóki Ólafsson 8 (þar af
1 til mótherja), Björgvin Gústavsson 14/1
(þar af 8 til mótherja).
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk Hauka: Ásgeir Örn Hallgrímsson 6,
Vignir Svavarsson 6, Jón Karl Björnsson
5/3, Þórir Ólafsson 4, Gísli Jón Þórisson 4,
Andri Stefan 4, Aliaksandr Shamkuts 1,
Þorkell Magnússon 1.
Varin skot: Birkir Ívar Guðmundsson 18/2
(þar af 7 til mótherja).
Utan vallar: 14 mínútur.
Dómarar: Bjarni Viggósson og Valgeir
Ómarson, ekki sannfærandi og voru við að
missa tökin á leiknum.
Áhorfendur: 300.
KA – Stjarnan 32:30
KA-heimilið, Akureyri:
Gangur leiksins: 2:0, 6:3, 11:6, 14:11, 16:12,
18:13, 21:16, 23:20, 29:23, 29:27, 31:28,
31:30, 32:30.
Mörk KA: Andrius Stelmokas 10/2, Arnór
Atlason 7/2, Einar L. Friðjónsson 5, Sævar
Árnason 5, Jónatan Magnússon 3, Árni B.
Þórarinsson 1, Magnús Stefánsson 1.
Varin skot: Hans Hreinsson 12/1 (þar af 5
til mótherja), Stefán Guðnason 3/1 (1 til
mótherja).
Utan vallar: 12 mín.
Mörk Stjörnunnar: Bjarni Gunnarsson 8/1,
David Kekelia 7/1, Arnar Theodórsson 5,
Gunnar Ingi Jóhannsson 5/3, Björn Frið-
riksson 3, Arnar Jón Agnarsson 2.
Varin skot: Guðmundur Karl Geirsson 11/1
(þar af 2 til mótherja), Jacek Kowal 4.
Utan vallar: 12 mín.
Dómarar: Jónas Elíasson og Ingvar Guð-
jónsson. Þokkalegir.
Áhorfendur: Nálægt 200.
Staðan:
Valur 8 5 1 2 218:204 19
Haukar 8 5 2 1 254:221 17
ÍR 8 4 1 3 249:233 17
KA 8 5 0 3 245:236 17
Fram 8 3 0 5 229:231 12
Grótta/KR 8 4 0 4 202:206 11
Stjarnan 8 2 0 6 209:251 10
HK 8 2 0 6 215:239 9
Markahæstir:
Arnór Atlason, KA.............................. 77 / 26
Andrius Rackauskas, HK .................. 72 / 14
Andrius Stelmokas, KA ..................... 63 / 11
Einar Hólmgeirsson, ÍR ...................... 57 / 0
Markús Máni Michaelsson, Valur....... 54 / 9
Ásgeir Örn Hallgrímsson, Haukar ..... 50 / 1
Héðinn Gilsson, Fram.......................... 46 / 0
Páll Þórólfsson, Grótta/KR ............... 43 / 15
Valdimar Þórsson, Fram ..................... 43 / 8
Hannes Jón Jónsson, ÍR...................... 41 / 3
1. deild karla
FH – Víkingur...................................... 26:24
Mörk FH: Logi Geirsson 11, Brynjar Geirs-
son 5, Guðmundur Pedersen 3, Hjörtur
Hinriksson 3, Jón Jónsson 2, Svavar Vign-
isson 1.
Mörk Víkings: Benedikt Árni Jónsson 6,
Bjarki Sigurðsson 4, Þröstur Helgason 4,
Tomas Kavolius 3, Ásbjörn Stefánsson 3,
Brjánn Bjarnason 2, Þórir Júlíusson 2.
Breiðablik – Selfoss............................. 25:28
Mörk Breiðabliks: Davíð Ketilsson 7,
Gunnar B. Jónsson 5, Björn Óli Guðmunds-
son 4, Orri Hilmarsson 2, Skúli Guðmunds-
son 2, Sigurður Valur Jakobsson 2, Krist-
inn Logi Hallgrímsson 2, Ágúst
Guðmundsson 1.
Mörk Selfoss: Ramunas Kalendauska 8,
Ramunas Mikalonis 6, Arnar Gunnarsson
3, Ívar Grétarsson 3, Guðmundur Eggerts-
son 2, Hörður Bjarnason 1, Atli Freyr Rún-
arsson 1.
Afturelding – Þór ................................ 24:32
Mörk Aftureldingar: Daníel Jónsson 6,
Hilmar Stefánsson 5, Hrafn Ingvarsson 4,
Jóhann Jóhannsson 4, Níels Reynisson 3,
Ernir Hrafn Arnarson 3, Ásgeir Jónsson 2,
Einar Ingi Hrafnsson 1.
Mörk Þórs: Árni Þór Sigtryggsson 7, Davíð
Sigursteinsson 5, Sigurður B. Sigurðsson 5,
Goran Gusic 5/3, Bergþór Morthens 3, Þor-
valdur Sigurðsson 3, Cedric Åkeberg 2,
Sindri Viðarsson 2.
Staðan:
ÍBV 6 5 1 0 198:147 11
FH 7 5 0 2 203:185 10
Selfoss 7 5 0 2 216:202 10
Víkingur 7 4 1 2 212:177 9
Þór 7 3 0 4 184:217 6
Afturelding 7 1 0 6 167:202 2
Breiðablik 7 0 0 7 186:236 0
Þýskaland
Minden – Kiel........................................ 25:47
Wilhelmshavener – Magdeburg ......... 28:25
Flensburg – Wallau-Massenheim....... 44:30
Lemgo – Wetzlar .................................. 29:23
Staða efstu liða:
Flensburg 25 20 2 3 817:663 42
Magdeburg 24 19 1 4 739:632 39
Kiel 24 18 2 4 772:637 38
Lemgo 25 18 2 5 809:693 38
Hamburg 25 18 1 6 701:629 37
Essen 25 14 3 8 686:627 31
KNATTSPYRNA
Deildabikar karla
Efri deild, A-riðill:
KA – Þór ................................................... 4:0
Jóhann Þórhallsson 3, Kristján Elí Örnólfs-
son.
Staðan:
KA 3 3 0 0 13:2 9
KR 2 1 1 0 6:2 4
Haukar 2 1 0 1 6:5 3
Grindavík 3 1 0 2 6:8 3
Fylkir 2 1 0 1 5:7 3
Þór 2 1 0 1 2:5 3
Víkingur R. 1 0 1 0 1:1 1
Njarðvík 3 0 0 3 4:13 0
Reykjavíkurmót kvenna
Efri deild:
KR – Valur................................................ 0:4
Kristín Ýr Bjarnadóttir, Rakel Logadóttir,
Nína Ósk Kristinsdóttir, Dóra María Lár-
usdóttir.
Staðan:
Valur 6 5 0 1 35:13 15
KR 6 3 0 3 15:21 9
Breiðablik 4 2 0 2 12:14 6
ÍBV 4 0 0 4 8:22 0
Valur varð Reykjavíkurmeistari.
Meistaradeild Evrópu
16-liða úrslit, seinni leikir:
AC Milan – Sparta Prag.......................... 4:1
Filippo Inzaghi 45., Andrei Shevchenko
65., 79., Ivan Gattuso 85. – Jun 59. – 50.000.
AC Milan áfram, 4:1 samanlagt.
Arsenal – Celta Vigo ............................... 2:0
Thierry Henry 14., 34. Rautt spjald:
Contreras 73. (Celta). – 35.402.
Arsenal áfram, 5:2 samanlagt.
Mónakó – Lokomotiv Moskva ................ 1:0
Dado Prso 60. Rautt spjald: Dmitri Loskov
22. (Lokomotiv) – 16.500.
2:2, Mónakó áfram á marki á útivelli.
Real Madrid – Bayern München............ 1:0
Zinedine Zidane 32. – 78.000.
Real Madrid áfram, 2:1 samanlagt.
England
1. deild:
Sunderland – Preston .............................. 3:3
2. deild:
Brighton – Tranmere............................... 3:0
KÖRFUKNATTLEIKUR
NBA-deildin
Washington – Denver .........................87:117
Miami – Orlando..................................100:89
New York – Boston ...............................84:87
Indiana – Toronto..................................94:84
Eftir framlengdan leik.
Memphis – San Antonio........................94:88
Chicago – Philadelphia .........................81:89
Houston – LA Clippers.........................90:85
Seattle – Minnesota ............................92:105
Sacramento – Golden State..................96:92
Í KVÖLD
VALUR varð Reykjavíkurmeistari
kvenna í knattspyrnu fjórða árið í
röð með því að sigra KR af ör-
yggi, 4:0, í Egilshöllinni í gær-
kvöld. Þetta var lokaleikur beggja
liða og KR þurfti risasigur til að
ná titlinum en Breiðablik hefði átt
veika von ef Valur hefði tapað
leiknum. Markadrottningin Nína
Ósk Kristinsdóttir skoraði eitt
marka Vals og gerði því hvorki
fleiri né færri en 21 mark í 6
leikjum í mótinu, af þeim 35 sem
Hlíðarendaliðið skoraði. Hin mörk-
in gerðu Kristín Ýr Bjarnadóttir,
Rakel Logadóttir og Dóra María
Lárusdóttir.
Fjórði í röð
hjá Val og
Nína með 21
Nína Ósk
Kristinsdóttir
KEFLVÍKINGAR unnu stórsigur á
færeyska liðinu GÍ frá Götu, 7:2, í
Reykjaneshöll í gærkvöld en þetta
var fyrsti leikur Færeyinganna í æf-
ingaferð þeirra hingað til lands. Stað-
an var 3:0 í hálfleik. Þórarinn Krist-
jánsson og Hörður Sveinsson gerðu 2
mörk hvor og þeir Haraldur Freyr
Guðmundsson, Magnús Þorsteinsson
og Hjörtur Fjeldsted eitt hver. Fyrir
GÍ skoruðu Poul Arni Jacobsen og
Áslak Petersen.
GÍ mætir Njarðvíkingum í Reykja-
neshöll í kvöld og mætir loks ung-
lingalandsliðinu, U19, á laugardag-
inn.
Sjö mörk
Keflvíkinga
gegn GÍ
FÓLK
JÓHANN Þórhallsson lék fyrr-
um félaga sína í Þór grátt í gær-
kvöld þegar Akureyrarfélögin
mættust í deildabikarnum í knatt-
spyrnu, í Boganum. Jóhann skor-
aði þrennu fyrir KA sem sigraði af
öryggi, 4:0. Fjórða markið skoraði
Kristján Elí Örnólfsson, annar
Þórsari sem gekk til liðs við KA í
vetur.
ÓLAFUR Ingi Skúlason lagði
upp þriðja mark Arsenal þegar
varalið félagsins sigraði Fulham,
3:1, í fyrrakvöld. Ólafur lék allan
tímann í miðvarðarstöðunni hjá
Arsenal og fimm mínútum fyrir
leikslok fékk hann knöttinn eftir
hornspyrnu og kom honum til
Justin Hoyte sem skoraði. Hin tvö
Arsenal skoraði hinn 16 ára gamli
Spánverji, Cesc Fabregas.
RAFN Andri Haraldsson, tæp-
lega 15 ára knattspyrnumaður úr
Þrótti í Reykjavík, æfir þessa dag-
ana með unglingaliði Glasgow
Rangers í Skotlandi. Á vef Þrótt-
ar er sagt að George Adams, yf-
irmaður unglingamála hjá Rang-
ers, hafi hrifist af leikni Rafns og
boðið honum til félagsins.
ERIC Djemba-Djemba, leikmað-
ur Manchester United, rifbeins-
brotnaði í viðureigninni við Porto í
Meistaradeild Evrópu í knatt-
spyrnu í fyrrakvöld.
BRIAN Talbot sem á árum áður
gerði garðinn frægan með liði Ars-
enal var í gær ráðinn knattspyrnu-
stjóri enska 2. deildar liðsins Old-
ham. Talbot ákvað segja skilið við
Rushden & Diamonds en undir
hans stjórn vann liðið sig upp úr
utandeildinni í 2. deildina á tveim-
ur árum. Ian Dowie var stjóri hjá
Oldham en tók við liði Crystal Pal-
ace fyrir 11 vikum og síðan þá hef-
ur liðið leitað eftirmanns hans.
RENATE Götschl frá Austurríki
vann síðustu brunkeppni ársins í
kvennaflokki í heimsbikarkeppn-
inni á skíðum, en keppt var í
Sestriere á Ítalíu í gær. Þar með
innsiglaði Götschl sigurinn í stiga-
keppninni um brunbikarinn í
þriðja sinn en hún vann einnig
1997 og 1999. Önnur varð Sylviane
Bertod frá Sviss og þriðja í mark
kom Isolde Kostner, Ítalíu, 52/100
úr sekúndu á eftir Götschl. Heims-
bikarmeistarinn Anja Pärson frá
Svíþjóð var ekki á meðal keppenda
að þessu sinni.
BRESKI tenniskappinn Greg
Rusedski hefur verið sýknaður af
þriggja manna dómstóll banda-
ríska tennissambandsins af kæru
vegna meintrar steranotkunar en
lyfjapróf, sem Rusedski gekkst
undir í Bandaríkjunum á síðasta
ári leiddi í ljós að hann hefði neytt
steralyfsins nandrolone. Hann átti
yfir höfði sér tveggja ára keppn-
isbann ef hann hefði verið fundinn
sekur.
Arsenal átti tiltölulega náðugandag á heimavelli í gærkvöldi
þegar Celta Vigo var í heimsókn enda
hafði Arsenal betur, 3:2, þegar liðin
mættust á Spáni fyrir hálfum mánuði.
Thierry Henry skoraði tvívegis í fyrri
hálfleik og þar við sat. Fyrra markið
var sérlega glæsilega undirbúið af
Dennis Bergkamp sem átti frábæra
sendingu á Henry. Markaskorarinn
mikli hefur nú gert 31 mark í Meist-
aradeildinni í 65 leikjum.
Meistararnir í ham
Andriy Shevchenko skoraði tvíveg-
is þegar AC Milan lagði Sparta Prag
4:1. Inzaghi kom Milan yfir en gest-
irnir jöfnuðu strax og allt virtist
stefna í jafntefli og þá hefði Sparta
komist áfram. En Shevchenko var á
öðru máli. „Sem betur fer fórum við
ekki á taugum eftir að Sparta jafnaði,
það var virkilega erfitt en okkur tókst
að skora og við gerum það jafnan þeg-
ar við þurfum þess virkilega,“ sagði
Schevchenko eftir leikinn.
Zidane tryggði Real áfram
Zinedine Zidane gerði eina markið
sem skorað var í Madríd þegar Real
tók á móti Bayern München. Þetta
mark dugði Madrídingum því liðin
gerðu 1:1 jafntefli í Þýskalandi í fyrri
leiknum. Heimamenn léku án Ronal-
dos sem er meiddur og varnarmanns-
ins Roberto Carlos, sem var í banni.
„Eitt mark gegn Real í tveimur leikj-
um er einfaldlega ekki nóg,“ sagði
Hitzfeld, þjálfari Bayern.
Zidane var í nokkuð óvenjulegu
hlutverki, lék mun framar en venju-
lega og átti frábæran leik, var mjög
skapandi og sóknir heimamanna fóru
jafnan í gegn um hann. Bæði lið léku
hraða og skemmtilega knattspyrnu,
sérstaklega í fyrri hálfleik þegar þau
fengu nokkur færi til að skora en eng-
um tókst það nema besta manni vall-
arins, Zidane.
Það munaði ekki nema hársbreidd
að allt yrði vitlaust á lokamínútum
leiksins þegar nokkrum leikmönnum
laust saman. Slakur svissneskur dóm-
ari leiksins gerði ekkert í því nema
ræða við þjálfarana og dæmdi auka-
spyrnu þrátt fyrir að einn leikmanna
Bæjara löðrungaði leikmann Real
beint fyrir framan dómarann. Sem
betur fer tókst að róa mannskapinn
og ljúka leiknum.
Hamagangur í Mónakó
Það gekk mikið á í Mónakó þar sem
Lokomotiv Moskva var í heimsókn.
Heimamenn léku einum fleiri í 70
mínútur þar sem einum gestanna var
vísað af velli snemma leiks og tveir
aðrir voru bókaðir fyrir hlé. Króatinn
Dado Prso misnotaði vítaspyrnu
snemma í leiknum, lét verja frá sér,
en hann bætti fyrir það í síðari hálf-
leik með því að gera eina mark leiks-
ins og sitt sjötta í Meistaradeildinni á
þessu tímabili. Lokomotiv hafði unnið
2:1 í fyrri leiknum og Mónakó komst
því áfram á marki á útivelli.
„Þetta var virkilega erfiður leikur
fyrir okkur þrátt fyrir að vera einum
fleiri. Lokomotiv lék vel og við vorum
í miklum vandræðum. Ef við hefðum
skorað fyrr er hugsanlegt að þetta
hefði verið auðveldara, en það gekk
ekki eftir. Við erum með ungt lið og
það er frábært fyrir strákana að kom-
ast í átta liða úrslitin. Nú getum við
látið okkur dreyma enda munum við í
það minnsta leika tvo leiki til viðbótar
í deildinni, nokkuð sem við áttum ekk-
ert frekar von á,“ sagði Didier
Deschamps, þjálfari Mónakó.
Reuters
Samuel Kuffour, Bayern og Raúl Gonzalez, Real Madrid, lentu í
smá ryskingum undir lok leiksins.
Zidane var
hetja Real
ARSENAL, AC Milan, Mónakó og Real Madrid tryggðu sér í gær-
kvöldi sæti í átta liða úrslitum Meistaradeildarinnar í knattspyrnu.
Þau verða í pottinum í dag þegar dregið verður ásamt Deportivo La
Coruna, Porto, Lyon og Chelsea.