NT - 27.09.1985, Qupperneq 2
Föstudagur 27. september 1985
Hádegisviðtal við Pálma Gíslason
formann Ungmennafélags fslands
■ Framkvæmdastjórn UMFÍ: Frá vinstri eru Sigurður Geirdal framkvæmdastjóri, Pálmi Gíslason formaður og Diðrik Haraldsson
stjórnarmaður.
Nýr mAguleiki í nskutflutningi:
- T
- Hvað hefurðu veríð að gera
í morgun?
„Það voru nú þessi daglegu
störf fyrir bankann. Ég mætti
snemma í morgun til að ganga
frá ýmsu í sambandi við bók-
haldið, síðan átti ég erindi niður
í Aðalbanka og.fór síðan yfir
ýmislegt sem hér er verið að
gera í útibúinu."
- Er mikil ásókn í lán eða
þjónuslu afhendi hankans?
„Já, já því þarf alltaf talsvert
að sinna og alltaf fer nokkur
tími í það.”
- Það er nú oft barlómur í
bankamönnum, segjasl aldrei
eiga krónu, er ástandið verra
eða betra en verið hefur?
„Já, það er nú ekki verra en
verið hefur. Við höfum verið í
talsverði sókn að undanförnu,
og þetta útibú hefur verið að
vaxa mjög ört, en auðvitað er
aldrei nóg af peningum.”
- En Pálmi hér vinnur þú, en
stór hluti afþínu lífi fer íþað að
stjórna Ungmennafélagi
íslands, hvað ertu búinn að vera
formaður þar lengi?
„Ég er búinn að vera í 6 ár,
og var að taka að mér fjórða
starfstímabilið, þannig að árin
verða allavega átta.“
- Þú vilt kannski segja okkur
frá uppbyggingu ungmennafé-
lagshreyfingarínnar. Hvað er
Ungmennafélag íslands og
hvaða hlutverki gegnir það?
„Ungmennafélag íslands er
samtök héraðssambanda sem
aftur eru byggð upp af einstök-
um ungmennafélögum, svo eru
8 félög sem eru með beina aðild
að UMFÍ þannig að sambands-
aðilar eru 26, en ungmennafé-
lögin í heild eru 213.“
- Eiga allir landsmenn mögu-
leika á að vera í ungmennafé-
lögum ?
„Nei, það eru staðir þar sem
ekki eru starfandi ungmennafé-
lög, það eru nokkrir af stærri
kaupstöðum landsins. Það er
reyndar eitt félag í Reykjavík
en ekkert í Hafnarfirði, Akra-
nesi, Isafirði, Siglufirði, Akur-
eyri og Vestmannaeyjum.
- Þar eru íþróttafélög og svo-
kölluð íþróttabandalög. Ung-
mennafélögin taka að sér miklu
víðtækarí þátt heldur en al-
mennt íþróttafélag gerir, sér-
staklega, þar sem þau eru oft
eina félagið sem margt fólk
starfar í á fámennari stöðum.
Hver eru helstu verkefni ung-
mannafélags?
„íþróttir eru stór þáttur í
starfinu, hjá mörgum félögum
lang stærsti, en það er fjölda
margt annað sem ungmennafé-
iögin hafa á sinni stefnuskrá,
t.d. eru mörg ungmennafélög
með leiklist, rekstur félagsheim-
ila, allskonar skemmtanahald
og ýmsa þætti í mannlegu sam-
starfi. T.d. erum við með sér-
'stakan göngudag fjölskyldunn-
ar.”
- Hvað er göngudagur fjöl-
skyldunnar?
„Það er ákveðinn dagur sem
er valinn af UMFÍ, sem göngu-
dagur fjölskyldunnar, síðan
auglýsum við en að öðru leyti
sjá félögin alfarið um hann sjálf,
hvert á sínu félagssvæði.“
- En er Ungmennafélagið sjálft
með einhverja starfsemi, eða
eruð þið einungis þjónustuaðili?
„Við erum fyrst og fremst
þjónustuaðilar, og vinnum eftir
þeim ákvörðunum sem Sam-
bandsþing ákveður en stundum
fitjum við uppá verkefnum.
Kannski er stærsta verkefni sem
við höfum fitjað uppá „Eflum
íslenskt", sem við vorum með á
afmælisárinu 1982, 75 ára af-
mæli UMFÍ.“
- Hvað var það?
„Það fólst í því að hvetja fólk
til að kaupa íslenska fram-
leiðslu, fremur en innflutta, og
við höfðuðum þar til ástandsins
í nágrannalöndum okkar þar
sem atvinnuleysi hrjáir ungt fók
og þau vandamál sem það hefur
valdið. Við vildum hvetja ungt
fólk til þess að velja frekar
innlenda framleiðslu en inn-
flutta, og til þess að vekja
athygli á þessu fórum við í 17
daga hjólreiðaferð hringinn í
kringum landið og hjóluðum
ysta hring, eins og hægt var að
fara, þannig að við komum víða
við. Það voru yfir 6 þúsund
manns sem að tóku þátt í þessari
hjólreiðaferð. Það er samdóma
álit þeirra sem til þekkja að
þetta hafi borið árangur. Við
höfum reyndar hugleitt hvernig
við getum haldið þessu starfi
áfram, og verður framtíðin að
leiða í ljós hvað verður, en það
er ástæða til að halda þessu
vakandi."
- Hvernig er skipulag, og
stjórnun á ungmennafélags-
hreyfingunni?
„Það er sjö manna stjórn í
Ungmannafélagi íslands, og
stjórnarmenn dreifðir um
landið. Formaður er kosinn sér-
staklega, síðan verður hvert
kjördæmi utan Reykjavíkur, sjö
kjördæmi samtals að velja tvo
menn í framboð til stjórnarkjörs
og úr þessum 14 manna hópi eru
i
■ Pálmi Gíslason setur 18. landsmót UMFÍ.