NT - 27.09.1985, Síða 5
Allt gos í flöskum
á búðarverði.
Bæjarfógeti á Akranesi skipaður:
Sigurður Gizurarson
■ Sigurður Gizurarson sýslu-
maður í Pingeyjarsýslu, og
bæjarfógeti á Húsavík hefur
verið skipaður bæjarfógeti á
Akranesi, aðtillöguJónsHelga-
sonar dómsmálaráðherra.
Sigurður Gizurarson hefur
gegnt embætti sýslumanns í
Þingeyjarsýslu frá árinu 1974.
Sigurður tekur við stöðu bæjar-
fógeta á Akranesi fyrsta nóv-
ember.
Helgartilboð 28., 29. og 30. september
A. Stór nautavorrúla m/steiktum hrísgrjónum, súrsætri sósu og
salati.............................................. kr. 160,-
B. Lambavorrúlla m/steikum hrísgrjónum, karrýsósu og
salati............................................... kr. 160,-
C. 41 itlar rækjuvorrúllur m/stelktum hrisgrjónum, súrsætri sósu og
salati.............................................. kr. 165,-
D. Djúpsteikt ýsa m/ananassósu, hvítum hrísgrjónum og
salati.............................................. kr. 165,-
E. Steikur fiskur m/steiktum hrísgrjónum, salati og Hoi-Sin
sósu ................................................ kr. 165,-
F. Súrsætt svínakjöt m/hvítum hrísgrjónum og salati... kr. 230,-
G. Karrý-kjúklingapottréttur m/hvitum hrísgrjónum og salati
Kipptu með þér Kínamat.
KÍNA-ELDHÚSIÐ TEKUR AÐ SÉR VEISLUR
FYRJR STÓRA SEM SMAA HÓPA ,
REYNIÐ VIÐSKIPTIN
simi 687-455
■ Guðríður Þorsteinsdóttir, héraðsdómslög-
maður.
Háskóla-
menn f á sér
lögfræði-
aðstoð
■ Guðríður Þorsteinsdóttir héraðs-
dómslögmaður hefur verið ráðin til þess
að veita háskólamenntuðum mönnum
lögfræðilega aðstoð varðandi kjaramál,
lífeyrismál, réttindamál, og önnur þau
mál sem snerta þennan hóp sérstaklega.
Með ráðningu Guðríðar hyggst stjórn
BHM koma til móts við óskir félagsmanna
um að koma á fót lögfræðiþjónustu á
vegum bandalagsins.
Guðríður er þaulkunnug bæði réttinda-
málum almennt og málum háskólamanna,
en hún var framkvæmdastjóri BHM frá
1972-83 og er nú formaðurjafnréttisráðs. .
Viðtalstími Guðríðar verður á þriðju-
dögum milli kl. 16-18 á skrifstofu BHM í
Lágmúla 7.
íslendingar:
Frjósamasta þjóð
á Vesturlöndum!
Föstudagur 27. september 1965 5
Fréttir
■ Það er ekki búist við stór-
kostlegum breytingum á þróun
fólksfjölda á íslandi á komandi
árum. Framfarir í læknisfræði
koma heldur ekki til með að
hafa áhrif á heildarfólksfjölda
næstu áratugina nema komi til
stórkostlegra byltinga svo sem
að við gætum læknað krabba-
mein.
Þessi framtíðarsýn kom fram
í erindi Sigurðar Gústafssonar
hagfræðings á læknaþingi í gær.
Sigurður starfar að útreikning-
um á mannfjölda og mannafla-
málum á vegum Framkvæmda-
stofnunar þar sem reynt er að
áætla þróun þessara mála á kom-
andi áratugum. „Við byggjum
spárnar á könnunum á fortíð-
inni og reynum svo að byggja
þær á forsendum sem líklegar
eru til að liafa áhrif. Sem dæmi
um þetta er nú reiknað með að
frjósemi íslendinga minnki
nokkuð í framtíðinni en tölur
sýna okkur að við erum einna
frjósamastir af öllum þjóðum
Vesturlanda í dag.“
í erindi sínu rakti Sigurður
þróun fólksfjölda á landinu á
umliðnum öldum og birti tölur
um líklega þróun allt til ársins
2020 en þá er talið að íslending-
ar verði um 275 þúsund. Sú spá
hefur reyndar verið gerð sér-
staklega fyrir Framtíðarnefnd-
— Reykjavflc sími: 687-455
Kirkjutónleikar:
Agústa og Gunnar á
förum til Þýskalands
- en halda þrenna tónleika hér heima áður
■ Ágústa Ágústsdóttir sópr-
ansöngkona og Gunnar Björns-
son sellóleikari hafa verið boðin
til Þýskalands til að halda þar
þrenna kirkjutónleika en áður
en þau halda utan munu þau
halda þrenna kirkjutónleika hér
heima ásamt Gúnther Baden -
Rúhlmann.
Fyrstu tónleikar þeirra verða
í Kristskirkju á Landakoti
þriðjudaginn 1. októbern.k. kl.
20.30. Aðrir tónleikarnir verða
í Selfosskirkju miðvikudaginn
2. október kl. 20.30 og hinir
þriðju í Landakirkju í Vest-
mannaeyjum fimmtudaginn 3.
október kl. 20.30.
í Þýskalandi verða fyrstu tón-
leikarnir 6. október í.Neuenk-
irchen í Weddingstedt-bei-
Heide í Holstein. Þá munu þau
Ágústa og Gunnar einnig koma
fram í Lúbeck á vegum Franz
Siemens konsúls. Auk þess mun
Ágústa syngja fyrir Nord-
Deutsches Rundfunk, útvarps-
stöðina í Hamborg.
Á efnisskránni á tónleikunum
hér heima og í Þýskalandi verða
verk eftir Rinck, Pachelbel, Vi-
valdi, Krieger, Bach, Caesar
Franck, Sigurð Þórðarson og
Jón Leifs.
■ Gunnar Björnsson sellóleikari og Ágústa Ágústsdóttir sópran-
söngkona.
■ Sigurður Gústafsson hagfræðingur fjallaði um fólksfjöldaspár á læknaþingi. „Öldruðu fólki kemur
til með að fjölga hlutfallslega á næstu árum en fækkun verður í yngri aldurshópunum.“
ina svo kölluðu sem Steingrímur
Hermannsson forsætisráðherra
skipaði á síðastliðnu ári.
„Þessir útreikningar eru fyrst
og fremst hjálpartæki fyrir þá
sem móta stefnuna á ýmsum
sviðum og gefa okkur vísbend-
ingar sem nauðsynlegt er að
hafa í huga. Hvað fólksfjölda-
spár fyrir aldraða snertir er ljóst
að öldruöu fólki kemur til með
að fækka eftir tíu ár eða svo en
þá fer að gæta þeirrar fækkunar
sem varð í fæðingum á kreppuár-
unum á milli 1930 og 1940.
Öldruðum mun svo aftur fjölga
þegar stóru árgangarnir sem
komu í kringum 1960 komast í
tölu aldraðra. En þegar á heild-
ina er litið er ekki búist við
stórkostlegum breytingum í þró-
un fólksfjölda á Islandi miðað
við þær forsendur sem við gef-
urn okkur."
Iðntæknistofnun íslands:
Ráðstefna um
framleiðni
■ Iðntæknistofnun ís-
lands efnir til ráðstefnu um
framleiðni í fyrirtækjum á
föstudaginn. Ráðstefnu-
stjóri er Ingjaldur Hanni-
balsson, forstjóri stofnunar-
innar. Mjög alþjóðlegur
blær verður á ráðstefnunni
því framsögumenn eru af
mjög ólíku þjóðerni, frá
Bandaríkjunum, Frakk-
landi, Kanada, Japan, Nor-
egi, Svíþjóð og íslandi.
Sverrir Hermannsson, iðn-
aðarráðherra mun setja
ráðstefnuna og að loknum
framsöguerindum verða
pallborðsumræður. Ráð-
stefnan verður haldin í Átt-
hagasal Hótel Sögu.