Tíminn - 13.03.1973, Qupperneq 5
Þri&judagur 13. marz 1973
TÍMINN
5
BRETAR
SUÐUR
AF
EYJUM
EYJÖLFUR Pétursson, skip-
stjóri á skuttogaranum Vest-
mannaey, hringdi til blaösins i
gær og tjáöi þvi, að brezkur togari
heföi fyrir tveim dögum komiö á
miöin út af Surtsey, og siöan
heföu togararnir komið hver af
öörum, tveir og tveir saman, upp
að tólf milna mörkunum á þess-
um slóöum.
— Þeir fylgja sýnilega eftir
fiskinum, sem nú er að skriða á
grunnið, og við höfum ekki orðið
þess varir, að neitt hafi verið
stuggað við þeim, sagði Eyjólfur,
er kvaðst ætla að Bretarnir yrðu
ekki betri viðfangs, þegar heill
floti yrði kominn á þetta svæði,
heldur en meðan skipin væru fá.
Olíu eytt
úrhöfninni
Alaugardagsmorgun s.l.veittu
menn þvi athygli i Keflavik, að
talsvert magn af svartoliu var
þar i höfninni. Var gizkað á, að
um sex lestir af oliu hafi runnið i
höfnina úr oliuleiðslu, sem lá
milli geyma, og var verið að dæla
á milli, en eitthvað fór þar
úrskeiðis og rann olian i sjóinn,
án þess að eftir væri tekið.
Viðkomandi oliufélag eyddi
oliunni úr höfninni og sér nú ekki
tangur né tetur af henni, hvorki á
sjónum né bryggjum eða i fjöru.
Var þar til gerðu efni dreift yfir
oliubrákina og eyddizt olian, svo
að enginn skaði varð af þessu.
— Oó.
Staurarnir
stóðu
en bíllinn
ónýtur
Bilstjóri, sem ók bil sinum
austur Miklubraut I gær, missti
vald á ökutækinu og fór upp á um-
ferðareyju. Þar varð fyrir honum
staur, sem billinn slóst utan i, en
stöðvaðist ekki fyrr en á næsta
staur, sem bognaði mikið.
Billinn, sem var af Ford Capri
gerð, gjöreyðilagðist og ökumað-
urinn slasaðist. Auk annarra
meiðsla var hann handleggsbrot-
inn. Var hann einn i bilnum.
— OÓ.
Finnar
semja við
Comecon
NTB-Moskvu. í gær hófust
umræður Finna og fulltrúa
austurevrópska efnahags-
bandalagsins Comecon I þvi
skyniað koma á samningi um
efnahags- tækni- og visinda-
lega samvinnu þessara aðila.
Finnar eru fyrsta vestræna
þjóðin, sem leitar sliks
samnings. Finnska sendi-
nefndin vonast í byrjun til að
ná samkomulagi um ramma-
samning um samvinnu.
Seinna verður reynt að ná sér-
samningum á grundvelli hans
Til greina kemur ekki að
Finnar gangi i Comecon, né
öðlist aukaaðild, svipað og
Júgóslavar.
Samningaumræðurnar hófust
i gær i aðalstöðvum Comecon i
Moskvu.
Kona slasaðist i bilaárekstri á Skúlagötu siðari hluta dags I gær. BIll á leið austur beygði þvert yfir akbraut við bensinstöðina á Klöpp og I
veg fyrir bil, sem kom úr gagnstæöri átt. Báöir bilarnir skemmdust nokkuð og kona f öðrum þcirra meiddist á höfði og var flutt á sjúkra-
hús. Tlmamynd Róbert.
Húsavík:
PÖKKUN KJÖTS Á AME-
RÍKUMARKAÐ AÐ HEFJAST
Gosmynd á
samkomu
í New Nork
ÞJ—Húsavik. — 1 þessari viku er
ráögert aö hefja pökkun kjöts i
neytendaumbúöir fyrir Ameríku-
markað f hinu nýja sláturhúsi
Kaupfélagsins. Ætiunin er að
fyrst verði pakkað 50 tonnum og
þaö sent vestur til tilrauna. Von-
andi ber sú sending þann árang-
ur, að áframhald verði á þessari
starfsemi, en þaö er Pylsugerð
KÞ, sem hana annast á vegum
SÍS og KÞ.
Pylsugerðin hefur annars búið
við mjög þröngan húsakost I
kjallara aðalverzlunar- og skrif-
stofuhússins. Siðar á þessu ári er i
ráði að flytja hana suður I slátur-
húsið, þar sem hún fær mjög auk-
ið svigrúm, en hún hefur að
undanförnu stöðugt verið að auka
starfsemi sina og verður það-enn
frekar við þau nýju verkefni, sem
hún hefur nú fengið I hendur. Þá
kemur það og til að með þvi fæst
mun betri nýting á sláturhúss-
bygginguna, en það er að sjálf-
sögöu mikils viröi, þegar búið er
að byggja stórt og dýrt, að meiri
nýting verði á húsinu. Það er dýrt
að láta bygginguna standa ónot-
aða, nema rétt smátima á haustin
og þvi hefur m.a. fjárréttin verið
tekin undir áburðargeymslu á
vorin.
KJ—Reykjavik. — A föstu-
daginn veröur haidin mikii
samkoma i New York á veg-
um Scandinavian Foundati-
on til ágóöa fyrir Vest-
mannaeyja söfnunina. A
þessari samkomu mun m.a.
Rió trfóiö skemmta, og sýnd
veröur kvikmynd um gosiö i
Vestmannaeyjum, sem feng-
in var frá islenzka sjónvarp-
inu.
Sovézkur
róðherra
d Kefla-
víkur-
flugvelii
Aðstoðarvarnarmálaráðherra
Sovétrikjanna, Zak'arov, hafði
tveggja klukkustunda viðdvöl á
Keflavikurflugvelli i gærmorgun.
Ráðherrann var á leið til Lima i
Perú, en flugvél hans kom við i
Keflavik til að taka eldsneyti.
Ráðherrann ásamt fylgdarliði,
var i Iljúsin IL-18 skrúfuþotu.
Lenti flugvélin kl. rúmlega 9,
en hingað var henni flogið beint
frá Moskvu. 10 manna fylgdarlið
var með ráðherranum. A móti
honum tóku Pétur Guðmundsson,
flugvallarstjóri og Þorgeir Þor-
steinsson, settur lögreglustjóri.
Var Sovétmönnum boðið upp á
hressingu i hótelinu meðan þeir
stóðu við.
Bifreiða-
viðgerðir
Flfóttog vel af hendi
leyst.
Reynið viðskiptin.
Bifreiðastillingin
Síðumúla 23, sími
81330.
LYFSALAR UM LYFJA-
STOFNUNARFRUAAVARPIÐ
Greinargerð lyfjamálanefndar Apótekarafélagsins
FYRIR Alþingi liggja tvö frum-
vörp, frumvarp til laga um Lyfja-
stofnun rikisins og frumvarp til
laga um lyfjaframleiðslu. Það
fyrrnefnda fjallar um stofnun
rikiseinkasölu á innflutningi og
heildsölu lyfja og hið siðara um
lyfjaframleiöslufyrirtæki, sem
rikið eigi að helmingi, en sem að
öðrum kosti sé deild i einkasöl-
unni. Bæði eru þau lögð fram af
heilbrigðismálaráðherra.
Komi til þessara framkvæmda
þarf rikissjóður að leggja fram
eða ábyrgjast allt að 125 milljónir
króna að mati frumvarpshöfund-
anna, en i rauninni mun sú upp-
hæð veröa hærri. Hér er þvi um
kostnaðarsamar framkvæmdir
að ræða og þvi mikilvægt, að
menn geri sér grein fyrir, hvort
nauðsyn liggi til þeirra.
Höfuðverkefni þessara fyrir-
tækja á að verða það, að yfirtaka
þá skyldu, sem nú hvilir á lyfsöl-
um, — þá að útvega þjóöinni þau
lyf, sem læknar vilja fá sjúkling-
um sinum og leyfilegt er aö nota
hérlendis, ennfremur að yfirtaka
starf lyfjaheildsala við dreifingu
lyfja innanlands til lyfjabúða,
sjúkrahúsa, héraðslækna og
dýralækna, en sjálfir eiga þeir þó
að halda heimild áfram til sjálfs
lyfjainnflutningsins að þvi marki,
sem hann fellur undir einkaum-
boð þeirra og spara þannig einka-
sölunni þann birgðakostnaö.
Meginmáli skiptir þvi, hvort
raunin sé sú, að lyfsalar og lyfja-
heildsalar hafi sinnt verkefnum
sinum svo slælega, að nauðsyn
beri nú til kostnaðarsamrar
ihlutunar rlkisins, sem jafnframt
leiðir til nokkurs skattteknamiss-
is þess, auk skaðabótaskyldu.
Engin kvörtun um lélegt ástand
lyfjaverzlunarinnar hefur borizt
frá landlækni né öðrum heil-
brigðisyfirvöldum. Það sem
frumvarpshöfundar færa fram i
greinargeröum, er smávægilegt
og stendur til bóta, rikinu að
kostnaðarlausu. Þar á meöal taka
þeir dæmi I greinargerð af tveim
islenzkum lyfjum, sem lyfjaeftir-
litið hefur orðið vart, að stæðist
ekki styrkleikakröfur. I rauninni
er furðulegt, aö sliks dæmis sé
getið i greinargerð með frum-
varpi til laga, þvi hér er ekki um
annað að ræða en atriði, sem
hugsanlega getur hent hjá öllum
lyfjaframleiðendum og er m.a.
verkefni lyfjaeftirlitsins að fylgj-
ast með og gera hlutaöeigendum
aövart um til lagfæringar. Má I
þessu sambandi geta, að lyfsalar
hafa ávallt verið hvatamenn þess
að hafa gott og óhlutdrægt lyfja-
eftirlit til aðhalds framleiöend-
um.
Engin rök hafa þvi komið fram,
sem bendi til þess, að ástand lyf-
sölumála sé slæmt, og sizt svo, að
rikissjóður þurfi að leggja fé til
fjárfrekrar verzlunarstofnunar
til úrbóta. Þvert á móti hefur is-
lenzk lyfjaverzlun fylgzt mjög vel
með nýjungum og framförum i
lyfjaiðnaðinum og hafa ís-
lendingar notið góðs af þvi og
fengiö til ráðstöfunar ný lyf, sem
nágrannalönd okkar og önnur
vestræn riki hafa taliö til bóta og
leyft not á I sinum löndum jafn-
harðan og heilbrigðisyfirvöld við-
komandi landa hafa talið þau
tryggilega reynd.
Leita þarf þvi annarrar orsakar
en slælegrar frammistööu Is-
lenzkrar lyfjaverzlunar fyrir
framkomnum frumvörpum, og i
upphafi greinargerða þeirra er
hennar getið. Þar segir svo: I
meginatriðum er frumvarp þetta
samið af nefnd til aö gera tillögur
á grundvelli stefnumarks rikis-
stjórnarinnar um ,,að endur-
skipuleggja lyfjaverzlunina með
þvi að tengja hana við heil-
brigöisþjónustuna og setja hana
undir félagslega stjórn.”
Ekki er gerö grein fyrir þvi,
hvaö átt er við með þessari setn-
ingu, né hvað þeim, sem sömdu
stefnuskrá rikisstjórnarinnar,
þykir áfátt I þessum efnum.
Islenzk lyfjaverzlun undir nú-
gildandi lögum er einmitt I mjög
nánum tengslum við heilbrigöis-
stjórnina. Lyfsalarnir hafa er-
indisbréf frá forseta tslands og
heilbrigðismálaráðherra, auk
þess fá þeir náin fyrirmæli heil-
brigöisstjórnarinnar i reglugjörð-
um um hvað eina I starfi slnu og
eftirlitsmaður heilbrigðis-
stjórnarinnar fylgist með þvi eftir
föngum, að allra réttra starfs-
hátta sé gætt, auk þess að lyfsalar
gefa heilbrigðisyfirvöldum mán-
aðarlega skýrslur um ávana- og
fiknilyf og áfengislyfjanotkun.
Lyfjaheildsalar fá einnig sér-
stakt leyfi heilbrigðismálaráðu-
neytisins til starfs sins og fylgja
settum reglum þess undir eftir-
liti. Hvorki þeir né lyfsalar mega
flytja inn til sölu önnur sérlyf en
þau, sem nefnd skipuð af heil-
brigðismálaráðherra, lyfjaskrár-
nefnd, leyfir, og lyfsalar mega
hvorki selja þau né heimagerö lyf
á öðru verði en þvi, sem önnur
nefnd, skipuö af heilbrigöismála-
ráöherra, lyfjaverðlagsnefnd,
ákveður.
Af þessu má ljóst vera, að ekki
skortir tengsl milli lyfja-
verzlunarinnar og heilbrigðis-
stjórnarinnar. Er þá aðeins eftir
að gera sér grein fyrir þvi, ef unnt
Framhald á bls. 19