Tíminn - 25.06.1974, Side 4
4
TÍMINN
Þriöjudagur 25. júni 1974.
Gulu strikin
verða hvít
Fyrir sex mánuöum tilkynnti
Oliver Guichard, sem þá var
ráöherra i frönsku stjórninni, að
ákveöiö heföi veriö, að gul
strik, sem máluö eru á götur i
Frakklandi og skipta götum og
vegum i akreinar, skyldu veröa
hvit, og átti þetta að gerast i
samræmi viö götumerkingar i
öörum löndum Efnahagsbanda-
lagsins. Viða hefur þessi breyt-
ing þegar farið fram i Frakk-
landi, en annars staðar hefur
þaö þó ekki orðið. Astæðan er
sú, aö breytingin reyndist miklu
dýrari þegar til átti að taka,
heldur en talið haföi verið. Það
er reyndar ekkert vandamál
aö mála hvitu strikin, en ekki
eins auðvelt að hreinsa gula
litinn af götunum. Guli liturinn
er blandaöur endurskinsefnum
og er einhvers konar plasthúð,
sem var sérstaklega ætlað að
standast núning bflhjóla og
þolir þvi töluvert, eins og gera
má ráö fyrir. Þetta er þvi heldur
seinlegt verk
Sartre
hættur störfum
Hinn vinstrisinnaði heimspek-
ingur Jean-Paul Satre, sem nú
er 68 ára gamall hefur hætt rit-
stjórn tveggja timarita og for-
stööu þriggja bókaútgáfufyrir-
tækja og einnig fréttamiðstöð,
af heilsufarsástæðum. I raun-
inni voru þessi störf hans að
mestu til málamynda , þar sem
frönsk lög mæla svo fyrir, að hjá
hverju blaði og útgáfufyrirtæki
sé ritstjóri, sem beri ábyrgð á
þvl, sem í blaðinu stendur og
megi lögsækja hann fyrir það,
sem i þvi birtist, og kann að
teljast ólöglegt. Sartre hafði þvi
tekiö að sér áðurnefnd störf til
þess aðallega að verja unga
vinstrisinnaða útgefendur og
ritstjóra fyrir þvi að verða fyrir
baröinu á lagalegum ofsóknum,
sem Sartre taldi óréttlátar.
V.V.V.V.V.V.V.V.’.VAV.1
Annars hefur litið verið gert að
þvi, að lögsækja Sartre að
undanförnu, og telja menn, að
það sé aðallega vegna þess, að
hann er mjög vel þekktur um
allan heim, og yfirvöld i Frakk-
landi hafa óttazt skrif um málin
erlendis, ef þau virtust vera að
leggja Sartre I einelti.
Sovétríkin birg
að hagnýtum
jarðefnum
Arið 1975 verða unnin 500
milljónir tonna af oliu og 320
milljarðar rúmmetra af jarð-
gasi I Sovétrikjunum. Forði
landsins af hagnýtum jarð-
efnum fullnægir alveg þjóðar-
búskapnum. Auk oliu og jarð-
gass, eiga Sovétrikin
geysimiklar steinkola og
brúnkolanámur, um það bil hel-
ming þess magns, sem til er i
heiminum. Hvað járn- og
mangannámi viðvikur eru
Sovétrikin i 1. sæti. Svo til öll
steinefni jarðar eru til I Sovét-
rikjunum, og vinnsla hagnýtra
jaröefna fer fram á rúmlega
5000 stöðum I landinu. Yfir
400.000 manns með æðri
menntun eöa iðnskólamenntun
vinna á vegum jarðfræðiráðu-
neytis Sovétrikjanna, og þau
veita mörgum þjóðum heims
tæknilega aðstoð við leit að
málmum og vinnslu þeirra.
Sovézkir jarðfræðingar eru nú
starfandi i 29 ríkjum utan Sovét-
rlkjanna.
Verzlunarviðskipti
Sovétríkjanna og
Indlands aukast
um 35%
1 viðskiptasamningi þeim fyrir
árið I ár, sem stjórnir Sovét-
rikjanna og Indlands hafa
undirritað, er gert ráð fyrir, að
viðskiptin aukist um 35% frá
siðastliðnu ári. Samkvæmt
samningnum munu Sovétrikin
selja Indverjum ýmsar tegundir
véla og tækja, mun meira af
oliuafurðum en áður, tilbúinn
áburð, m.a. karbamid o.fl. A
listanum yfir vörur sem Ind-
verjar selja Sovétmönnum eru
ýmsar iðnaðarvörur, te, krydd-'
vörur, júta,. kaffi, prjónles og
fatnaöur.
Neðanjarðar-
saltfjall
Jarðfræðingar hafa fundið I
grennd við Kujbytsjev við Volgu
viðáttumikið saltsteinslag.
Hefur komið I ljós við rann-
sóknir, að það nær yfir miklu
stærra svæði en menn héldu i
fyrstu eða frá Volgusvæðinu
alla leið til Ural og Kasakstan.
sérfræðingarnir eru nú önnum
kafnir við að finna auðveldustu
aðferðina til að vinna þetta
verðmikla iðnaðarhráefni úr
þessu stóra neðanjarðar salt-
fjalli.
VWWrtV.WAWW^WAVW.'JWW^JWMWIAWW^W.W^V.V.W.V
í?
Sýningarhlutir
frá síðustu öld
Hér sjáiö þið gamlan Benz og
gamlan Daimler, sem báðir
þóttu mikil meistarastykki,
þegar þeir voru smlðaðir fyrir
meira en einni öld. Þeir eru á
sýningu i Stuttgart, og er þess-
ari sýningu ætlað að gefa fólki
tækifæri til þess að sjá nokkuð
af þvi, sem þótti merkilegt á
slnum tlma. Málverkin á veggj-
unum eru lika eftir vel þekkta
málara siðustu aldar, og þóttu
ekkert slor, svo ekki sé talað um
flygilinn, sem sjá má á mynd-
inni.
*
■bi er fótboltadómari. Nú
' i hann á ólöglega líkams- ~ nauðsynlegt að lesa
ní,u af rafmagnsmælinum tvisvar og
þrisvar á dag...?
DENNI
DÆMALAUSI
Heyrðu góöa, hvernig opnarðu
þetta meöalaglas, með barnalæs-
ingunni. Ég skal hjálpa þér pabbi.