Tíminn - 25.06.1974, Síða 8
8
TÍMINN
Þriöjudagur 25. júni 1974.
NÝR FLUGFREYJUBÚNINGUR
í BYRJUN næsta mánaðar verða
teknir i notkun nýir flugfreyju-
búningar hjá Loftleiðum. Verða
þá liðin rúm þrjú ár, frá þvi er
meiriháttar breytingar voru
gerðar á flugreyjubúningum
félagsins. Var sá búningur, sem
þá var upp tekinn all fráburgðinn
þeim hefðbundnu „uniformum”
er tiðkazt höfðu fram að þessu, og
sniðinn mcir að kröfum kvenlegr-
ar tisku.
Hinn nýi búningur fylgir sömu
hefð kvenleika og tizku, og hafa
flugfreyjur sjálfar verið hafðar
með i ráðum um útlit hans og
snið, efnisval o. fl. Hönnuður er
Jón Þórisson og eru búningarnir
saumaðir hjá fyrirtæki hans,
Model Magasin h.f. Þeir eru
dökkbláir að lit, stangaðir með
rauðu. Efnið er franskt, svonefnt
Soperlaine, en það mun vera
blanda af ull og gerviefnum
tergal endingargott og krumplast
ekki.
Búningurinn er kápa, jakki, pils
og skokkur — allt i dökkbláum lit.
Hattur er rauður „knapahattur”,
blússan hvit með stórum rauðum
og bláum doppum.hanskar og
skór dökkbláir, veski litil rauð
hliðartaska og silkilútur i rauð-
um, bláum og hvitum litum. Við
þjónustustörf bregða stúlkurnar
um sig svipmiklum, hárauðum
smekksvuntum. Þegar haustar
bætast sibuxur við búninginn og
hvit eða rauð peysa með rúllu-
kraga.
Hér sjást nokkrar flugreyjanna
skarta hinum nýja búningi. Þær
eru Susann Þorvaldsson, Ragn-
hildur Gunnarsdóttir og Jenný
Matthiasdóttir.
NÝBORG
Armúla 23
9 Sterkar
# Endingargóðar
# Auðveldar í
uppsetningu
0 Gott verð
önnumst uppsetningu
Sendum í póstkröfu
Plast-bakrennu
Almennur kjósendafundur
Framsóknarfélögin ó Akureyri og Eyjafjarðarsýslu efna
til kosningafundar
að Hótel KEA í kvöld
þriðjudaginn 25. júní kl. 21. — Frambjóðendur
Framsóknarflokksins flytja stutt óvörp. — Þeir:
Hilmar
Daníelsson
Heimir
Hannesson
Ingi
Tryggvason
Ingvar Stefán
Gíslason Valgeirsson
Omar Ragnarsson
flytur nýjan
skemmtiþátt
Fundarstjóri:
Jón Kristinsson
Stuðningsmenn flokksins eru hvattir til að fjölmenna á
þennan síðasta opinbera fund flokksins fyrir kosningar í
þessu kjördæmi.
— Fundurinn er Öllum opinn og veittar verða
kaffiveitingar í sölum hótelsins.
— B-LISTINN.
Það er ekki ganrýnisiaust að nýi búningurinn er skoðaður.
Á viðreisnartíma
Viðreisnarstjórnin olli landflótta árið 1969, en
það hafði aldrei gerzt áður undir islenzkri rik-
isstjórn, og ætti það að nægja viðreisnarstjórn-
inni til ævarandi skammar á spjöldum sögunn-
ar.
Vorið 1969 birtist i Morgunblaðinu auglýsing,
þar sem iðnrekendur voru hvattir til að sam-
einast um útflutning á þeim vélum, er þeir
höfðu notað til starfsemi sinnar.
Nokkur dómur er það um viðreisnina.
K.Sn.
L
Söluskattur
Hér með úrskurðast lögtak fyrir söluskatti
1. ársfjórðungs 1974, svo og viðbótar-
álagningum söluskatts v/eldri timabila.
Fer lögtakið fram að liðnum 8 dögum frá
birtingu úrskurðar þessa.
A sama tima verður stöðvaður atvinnu-
rekstur þeirra, sem ekki hafa gert full skil
á söluskattinum, án frekari aðvarana.
Bæjarfógetinn i Kópavogi,
21. júni 1974
Sigurgeir Jónsson.
Hestaþing Faxa
verður haldið að Faxaborg sunnudaginn
21. júli og hefst kl. 15 með hópreið félags-
manna.
Keppt verður i þessum greinum:
Skeið 250 m, stökk 800 m, stökk 300 m,
stökk 250 m, brokk 1500 m. — Gæðinga-
keppni A og B flokkur.
Gæðingar mæti laugardaginn 20. júli kl. 16. Þátttaka
tilkynnist fyrir 18. júli til Þorsteins Valdimarssonar,
Borgarnesi. simi 7190og 7194 eftir kl. 7 á kvöldin.
DANSAÐ Á PALLI að loknum kappreið-
um:
Stjórnin.