Tíminn - 25.06.1974, Qupperneq 20
20
TÍMINN
Þriðjudagur 25. júni 1974.
Skömmustuleqir
yfirqáfu ítalir
leikvanginn,,,
— þeir áttu aldrei möguleika gegn Pólverjum
ítalir, sem margir höföu
búizt viö að myndu leika
úrslitaleikinn í þessari
keppni/ og jafnvel verða
hei msmeista ra r, eru
dottnir út úr keppninni.
Þeir áttu aldrei minnsta
möguleika gegn hinu stór-
skemmtilega pólska liði/
sem hefur sýnt það og
sannað/ að það var engin
tilviljun, að þeir slógu
Englendinga út úr keppn-
inni.
Fyrri hálfleikurinn í leik Pól-
lands og Italiu fór að mestu fram
á vallarhelmingi Itallu. Vörn Ital-
anna hélt þar til á 40. minútu, að
hún varð að láta undan hinni
miklu pressu, sem á henni hafði
veriö, og það ekki einu sinni,
heldur tvisvar á siðustu fimm
minútum hálfleiksins. I bæði
skiptin var það Kasperczak, sem
gaf góðan bolta inn fyrir vörnina.
A 40. minútu kom Szarmach á
fullri ferð og skallaði inn send-
ingu hans, óverjandi fyrir Zoff.
Og á 45. minútu var það fyrirlið-
inn Deyna, sem rak endahnútinn
á sókn, sem Kasperczak var upp-
hafsmaður að. Á Sminútum hafði
þvi staðan breytzt úr 0-0 i 2-0 fyrir
Pólland. betta gerði útslagið á
leikinn. ttalirnir voru tauga-
óstyrkir allan seinni hálfleikinn
og áttu fá tækifæri umtalsverð.
Aftur á móti varð Zoff aö taka á
öllu sinu tit þess að hindra, að
Pólverjarnir skoruðu fleiri mörk.
Það var svo á 86. minútu, að
Itölum tókst að skora mark, og
var Capello þar að verki. En þeim
vannst ekki timi til aö jafna, og
það voru skömmustulegir Italir,
sem yfirgáfu leikvanginn, þegar
dómarinn flautaði leikinn af.
Italirnir á áhorfendapöllunum
létu óánægju sina i ljós og púuðu á
italska liðið, þegar það gekk af
leikvelli.
Leikur þessi var nokkuð harð-
ur, en ekki ruddalega leikinn.
Þrir voru samt bókaðir, þeir
Kasperczak og Musial frá Pól-
landi og Boninsegna frá ítaliu .
Áhorfendur voru 73000 á Wald-
stadion i Frankfurt, og hrifust
þeir flestir af skemmtilegum leik
Pólverjanna, sem komu til leiks
með þeim eina tilgangi að vinna,
þótt það væri öruggt, að þeir áttu
þegar tryggt sæti i úrslitakeppn-
inni. Italir þurftu aðeins jafntefli i
þessum leik til að komast áfram
ásamt Pólverjunum, en þeir áttu
aldrei möguleika gegn þeim.
Ó.O.
V-Þjóöverjar
forðuðust
Hollendinga
— þeir voru ónægðir með úrslitin gegn A-Þjóðverjum
Flestum á óvart sigruöu A-Þjóö-
verjar V-Þjóðverja I Ilamborg á
laugardagskvöldið með einu
marki gegn engu. Volkspark-
stadion var troðfullur af áhorf-
endum, sem vonuðust eftir góðum
leik. En þar sem þau voru fyrir
leikinn bæði örugg um áfram-
haldandi keppni, tóku þau enga
áhættu í þessum leik. Leikurinn
bauð þannig áhorfendum ekki
upp á mikla spennu, þau léku ró-
legan fótbolta, sem að visu skap-
aði nokkur tækifæri, en áhuginn
til að nýta þaö sem bauðst var i
lágmarki hjá leikmönnum lið-
anna. Fyrir þennan leik var vitað
mál, að það liö, sem lenti f öðru
sæti I þessum riðli, myndi fá
nokkuð auðveldari milliriðil. Lið-
iö, sem yröi i fyrsta sæti lenti
örugglega með Brasilfu og likast
til HoIIandi og ttallu I undanúr-
slitariðli. Það var þvi ekki að
mikiu að keppa, að ienda I fyrsta
sæti, og má þvi ekki taka úrslitin i
þessum leik mjög alvarlega.
En svo að vikið sé að gangi
leiksins, þá áttu bæði liðin góð
tækifæri i fyrri hálfleik, sem ekki
tókst þó að nýta. Það næsta, sem
þau komust, var þegar Muller
skaut í stöng fyrir V-Þjóðverja.
1 seinni hálfleik skipti Helmut
Schoen Netzer inn á fyrir Over-
ath. Kom Netzer mjög vel út úr
leiknum, þvi að i seinni hálfleik
sóttu V-Þjóðverjar stanzlaust, en
þeir notuðu ekki þau færi, sem
buðust. 1 þessum hálfleik þekktu
menn loks hinn „gamla” Netzer,
— hinar löngu hárnákvæmu
sendingar hans sköpuðu mikinn
usla i vörn A-Þjóðverja. Má telja
það vist, að hann á eftir að koma
við sögu i sjálfri úrslitakeppninni.
Það var svo á 78. minútu eftir
mikla pressu V-Þjóðverja, að A-
Þjóðverjar fengu skyndiupp-
hlaup, sem endaði með þvi, að
Jurgen Sparwasser átti skot að
marki, sem Maier réði ekki við.
Eftir þetta mark sóttu V-Þjóð-
verjar áfram, en svo virtist samt,
að þeir væru ánægðir með þessi
úrslit. Ekki er óliklegt, að þeir
hafi verið að reyna að forðast
Hollendinga, — viijað heldur
mæta þeim i úrslitum. Með þvi að
lenda i öðru sæti, verða V-Þjóð-
verjar I riðli með Júgóslaviu, Svi-
þjóð og Póllandi.
ó.O.
WORLD
CUPI®
JAIRZINHO... skoraði fyrsta mark Brasiliumanna f HM.
Brassarnir
vekja ekki
hrifningu
— 30 þús. óhorfendur létu óspart í Ijós
óónægju sína með leik
heimsmeistaranna gegn Zaire
Brasiiiumenn vissu fyrir þennan leik, að ef þeir ynnu 3-0, þá væru
þeir öruggir með sæti i úrslitakeppninni. Þessi vitneskja þeirra virt-
ist gera þá taugaóstyrka og gerðu þeir mistök I leiknum, sem ekki
eiga að sjást hjá heimsmeisturum. En að Iokum fór allt vel hjá þeim
og þeir náðu þessum 3-0 sigri, en það var alls ekki átakalaust.
Að visu byrjuðu þeir vel, ekki voru liðnar nema 12 mínútur, þegar
Jairzinho, maðurinn, sem skoraði I hverri umferð i HM 1970 i
Mexikó, skoraði fyrsta mark þeirra i þessari keppni- En svo leið
næstum klukkustund áður en næsta mark kom. Brasiliumenn voru
stöðugt I sókn, en inn vildi knötturinn ekki. Annað hvort bjargaði
marvörðurinn, Kaladi vel, eða Zairemennirnir björguöu undursam-
lega á linu. A 34. minútu voru Zairemenn nærri búnir að skora, þegar
varnarmaður Brasiliu, Mario Marinho lagði knöttinn fyrir fætur
Myanga, en Leao varði meistaralega skot hans. En Brasiliumenn
urðu fyrir áfalli i leiknum. Strax á fimmtu minútu meiddist Leicinha
illa, og kom Valdomiro inn á 1 hans stað. Er búizt við að Leicinha
missi af leiknum á móti A-Þýzkalandi á miðvikudaginn.
í seinni hálfleik héldu Brasiliumenn áfram sókn sinni og loks á 65.
minútu bar hún árangur. Rivelinó átti skot með sinum fræga vinstra
fæti af tuttugu metra færi, og rataði þaðrétta boðleiö I netmöskvana.
Við þetta mark færðist fitónskraftur I Brasiliumenn, þar sem þeir
voru nú svo nærri takmarki sinu. Og sókn þeirra bar árangur á 80.
minútu, þegar Valdomiro átti að þvi er virtist saklaust skot að
marki, en markvörðurinn missti knöttinn mjög klaufalega undir sig.
Brasiliumenn voru mjög ósannfærandi i leiknum, og verða þeir að
taka á honum stóra sinum, ef þeir ætla sér ekki að tapa öllum leikj-
um úrslitakeppninnar. Leikur þessi fór fram I Gelsenkirchen að við-
stöddum 30.000 áhorfendum, sem létu óspart I ljós óánægju sina
með brasilíska liðið. Liðin voru þannig skipuð:
Brasilia: Leao, Nelinho, Pereira, Mario Marinho, Francisko
Marinho, Piazza, Rivelino, Paulo Cesar, Jarizinho, Levinha,
Edu.
Zaire: Kaladi, Mwepu, Mukombo, Buhanga, Libilo, Kibonge,
Tishinabu, Mana, Ntumba, Kidumu, Mayanga.
— Ó.O.
Kvöddu með
—jafntefli___
Ástralíumenn nældu
Chile varð að vinna þennan leik til
þess að eiga einhverja von um að
komast áfram. Það leit lengi vel
út fyrir að ieikurinn gæti ekki haf-
izt á réttum tima, þvi að i Berlín
rigndi óskaplega og ólympiu-
völlurinn varö mjög erfiður tii
keppni. En rétt fyrir leikinn stytti
upp, og gat hann þvi hafizt sam-
kvæmt áætlun. Chilemenn sóttu
stanzlaust, en án árangurs, þvi að
vörn Ástralíumanna var góð og
gaf hvergi undan. t raun og veru
átti Chile aðeins eitt skot að
marki i fyrri hálfleik, sem mark-
vörðurinn varði, án fyrirhafnar. í
leikhléi kom óskapleg skúr, og
varð dómarinn að fresta seinni
hálfleik um 5 minútur. Þegar
leikurinn átti að fara að hefjast að
nýju, hljóp inn á hópur fólks, sem
var með þvi að mótmæla núver-
andi stjórn Chile, Tókst fljótlega
sér í stig gegn Chile
að fjarlægja hópinn og leikurinn
gat hafizt.
En leikurinn varð mjög þóf-
kenndur, þar sem völlurinn var
mjög háll og mönnum gekk mjög
illa að fóta sig. Chilemenn sóttu
meira, en af og til áttu Astraliu-
menn hættuleg skyndiupphlaup.
A 85. minútu rak dómarinn Ray
Richards frá Astraliu af leikveili
fyrir að koma i veg fyrir að Chiie-
menn gætu tekið aukaspyrnu.
Richards þessi hafði fengið bókun
fyrr I ieiknum.
Leiknum lauk án þess að mark
væri skorað og mega Astraliu-
menn vel við una, að hafa krækt
sér i stig i HM. Chilemenn þurftu
aftur á móti að vinna ieikinn 3-0,
en það mistókst algjörlega hjá
þeim, enda eru þeir ekki vanir að
keppa við þessar aðstæður.
Ó.O.