Fréttablaðið - 17.03.2005, Blaðsíða 57
FIMMTUDAGUR 17. mars 2005
LAUGARDAG 19. 03. ‘05
FÖSTUDAG 18. 03. ‘05
HÚSIÐ OPNAR KL. 23, MIÐAVERÐ 1500 KR.
HÚSIÐ OPNAR KL.21, MIÐAVERÐ 1500 KR.
EIN FRÆGAST HLJÓMSVEIT SEM FINNAR HAFA ÁTT
FRÍTT INN TIL KL. 24.00
TÓNLEIKAR
SPÚTNIK
22-PISTEPIRKKO
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
NÁNARI UPPLÝSINGAR
K
Ö
-H
Ö
N
N
U
N
/
P
M
C
STÓRVIÐBURÐUR!
JÓNSI OG FÉLAGAR
STÍGA Á SVIÐ KL. 24.00
MIÐAVERÐ 1500 KR.
Í SVÖRTUM
FÖTUM
BALL SEM KLIKKAR EKKI ...PUNKTUR
Færri listamenn
komast að en vilja
Aldrei fór ég suður, rokkhátíð Al-
þýðunnar verður haldin á Ísafirði
annað árið í röð um þar næstu
helgi. Hátíðin er haldin sem hluti
af Skíðavikunni á Ísafirði. „Þetta
var hugmynd sem við pabbi
fengum á einhverri krá í fyrra,“
segir Ísfirðingurinn Örn Elías
Guðmundsson, betur þekktur sem
Mugison. „Ég nefndi hugmyndina
við Ragnar Kjartansson úr
Trabant sem var æstur í að gera
þetta og boltinn fór af stað.“
Um 30 listamenn koma fram á
hátíðinni og segir Mugison að
þetta verði góður kokteill heima-
og aðkomumanna. Heiðursgestur
á hátíðinni verður Villi Valli, ein
fyrsta rokkstjarna Íslands. Mugi-
son segir að vel hafi gengið að
safna liði í ár. „Eiginlega of vel
því það komast færri að en vilja
og við þurftum að neita sumum.
En þeim hefur verið lofað að troða
upp að ári.“
Hátíðin er haldin í samstarfi
við Flugfélag Íslands, Íslands-
banka og Símann og verður meðal
annars sýnt beint frá tónleikunum
á heimasíðu Símans. Nánari upp-
lýsingar um hátíðina má finna á
vefslóðinni skidavikan.is. - bs
MUGISON OG RASSI PRUMP Kynntu hátíðina á Ísafirði á þriðjudag og léku hátíðar-
lagið Gúanóstelpan mín við það tilefni.
Uppselt
á seinni
tónleikana
Uppselt er á seinni tónleika
norsku söngkonunnar Sissel
Kyrkjebö sem verða haldnir í Há-
skólabíói þann 1. október. Miða-
salan hófst klukkan 10.00 í gær-
morgun og voru allir miðar búnir
innan við hálftíma síðar. Verið er
að vinna í því að fá þessa feikna-
vinsælu söngkonu til að halda
þriðju tónleikana.
Sissel kom hingað til lands um
síðustu helgi og leist vel á Ísland.
Nýjasta plata hennar, My Heart,
hefur náð miklum vinsældum í
Bandaríkjunum og hefur hún
fylgt þeim eftir með tveggja mán-
aða tónleikaferðalagi. ■
SISSEL KYRKJEBÖ Norska söngkonan
heldur tónleika hér á landi í haust.