Fréttablaðið - 28.11.2008, Blaðsíða 22
22 28. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
FRÉTTASKÝRING: Evran og Norðurlönd
Þessi forna og fjölmenna hafnarborg á norðvestanverðum Indlandsskaga er
þekktust undir heitinu Bombay, sem er sá ritháttur sem varð ríkjandi eftir að
Bretar náðu yfirráðum á þessum slóðum á 17. öld. Portúgalar voru fyrstu Evr-
ópumennirnir sem komu sér upp bækistöð í borginni, en á portúgölsku heitir
borgin Bombaim. Af því heiti er enska heitið dregið.
■ En elsta portúgalska heimildin fyrir nafni borgarinnar er frá árinu 1516.
Þar er talað um Benamajambu eða Tena-Maiambu. Í portúgalskri orðsifja-
bók er þetta heiti rakið til Mumba-Devi, hindúagyðju sem staðurinn heitir
eftir á Marathi, tungumáli heimamanna í þessum hluta Indlands. Á 16. öld
hafi Portúgalar tíðkað að nota ritháttinn Mombaim en frá því um 1600 hafi
Bombaim fest í sessi.
■ Hið maratíska nafn borgarinnar, Mumbai, var valið sem opinbert nafn í
stað Bombay af yfirvöldum þar árið 1996. Á hindí, útbreiddasta tungumáli
Indlands, og úrdú heitir borgin hins vegar eftir sem áður Bambai.
■ Útbreiddur misskilningur er að Bombay-nafnið eigi rætur sínar að rekja til
„Góða flóa“ á portúgölsku, þar sem bom þýðir góður og baía flói á því máli.
En samsett væri „góðiflói“ á réttri portúgölsku „boabaía“, ekki „bombaía“.
FBL-GREINING: UPPRUNI NAFNS BORGARINNAR MUMBAI
Nafn borgarinnar
rakið til gyðjuheitis
TAJ-MAHAL-HÓTELIÐ Í MÚMBAI Eftir hryðjuverkaárás á miðvikudag.
Það er víðar en á Íslandi
sem áhrif alþjóðlegu
fjármálakreppunnar eru
að breyta viðhorfum fólks
til evrunnar. Bæði í Dan-
mörku og Svíþjóð sýna nýj-
ustu skoðanakannanir að
stuðningur við að ganga til
liðs við evrusvæðið hefur
stóraukist á síðustu vikum.
Danir sömdu um undanþágu frá
þátttöku í Efnahags- og mynt-
bandalagi Evrópu (EMU) – og
reyndar frá þremur öðrum þátt-
um ESB-samstarfsins – eftir að
þeir felldu staðfestingu
Maastricht-sáttmála Evrópusam-
bandsins í þjóðaratkvæðagreiðslu
árið 1992. Þeir kusu síðast árið
2000 um það hvort þeir ættu að
falla frá þessari undanþágu, en
53,2 prósent danskra kjósenda
valdi þá að gera það ekki. Þess í
stað hafa dönsk stjórnvöld alveg
frá því að evran varð að veru-
leika, fyrst sem bókfærslugjald-
miðill árið 1999 og síðan sem
seðlar og mynt í umferð árið
2002, fylgt fastgengisstefnu
gagnvart Evrópumyntinni (með
vikmörkum). Reyndar hefur sú
stefna gengið svo langt að Danir
taka þátt í ERM II-fastgengis-
kerfi ESB, og hafa uppfyllt öll
aðildarskilyrði myntbandalags-
ins þrátt fyrir undanþáguna.
Samkvæmt niðurstöðum við-
horfskönnunar sem Synovate-
stofnunin gerði og birt var í dag-
blaðinu Politiken í byrjun
nóvember er stuðningur meðal
Dana við að ganga alla leið inn í
myntbandalagið kominn í 52 pró-
sent. Aðeins hálfum mánuði áður
mældist þessi stuðningur sjö pró-
sentustigum minni. Í annarri
könnun sem gerð var fyrir Dans-
ke Bank á tímabilinu 1.-17. nóv-
ember mældist stuðningurinn við
evru-aðild 44 prósent, en hlutfall
þeirra sem vilja halda dönsku
krónunni 37,8 prósent. Af þeim
sem tóku afstöðu var stuðningur-
inn í þessari könnun þar með líka
vel yfir helmingi aðspurðra.
Gengis- og vaxtaórói
„Það virðist vera af völdum
óróans í kring um dönsku krón-
una, sem stuðningurinn við mynt-
bandalagsaðild hefur aukist,“
skrifa aðalhagfræðingar Danske
Bank, Steen Bocian og Tore Dam-
gaard Stramer, í skýringum við
niðurstöður könnunarinnar. Þeir
leiða líkum að því að fjölmiðla-
umræða um aukinn vaxtakostnað
Dana af því að standa utan við
evrusamstarfið hafi þau áhrif að
æ fleiri Danir séu að komast á þá
skoðun að réttast væri að ganga
til liðs við það. Hagfræðingarnir
slá þó þann varnagla, að þótt skoð-
anakannanir sýni nú gott forskot
evru-sinna þá væri of snemmt að
fullyrða nokkuð um hvort sam-
þykki fengist við inngöngu í
myntbandalagið ef ný þjóðar-
atkvæðagreiðsla yrði haldin fljót-
lega.
Þegar Írar höfnuðu staðfest-
ingu Lissabon-sáttmálans svo-
nefnda í þjóðaratkvæðagreiðslu í
júní sagði danski forsætisráð-
herrann Anders Fogh Rasmussen
að frysta yrði öll áform um að
gefa Dönum færi á að kjósa á ný
um ESB-undanþágurnar fjórar
uns tekist hefði að finna lausn á
því hvað yrði um þá uppfærslu á
stofnana- og ákvarðanatökukerfi
sambandsins sem stóð til að inn-
leiða með hinum nýja sáttmála.
Að sögn Politiken er það nú svo
sársaukafullt fyrir danskt efna-
hagslíf að standa utan við evruna
að svo virðist sem Fogh hafi
breytt þessari afstöðu sinni. „Það
er alveg hægt að halda þjóðarat-
kvæðagreiðslu (um undanþág-
urnar í Danmörku) án þess að öll
aðildarríki ESB hafi lokið full-
gildingu Lissabonsáttmálans,“
sagði Fogh Rasmussen á blaða-
mannafundi í Brussel 7. nóvem-
ber. En hann tók jafnframt fram
að danska stjórnin hefði enn sem
komið er ekki tekið neinar
ákvarðanir þar að lútandi.
Efnahagslegur og pólitískur
kostnaður
Í úttekt sem danska alþjóðamála-
rannsóknastofnunin DIIS gerði
fyrir danska þjóðþingið fyrr á
árinu um þróun mála varðandi
dönsku ESB-undanþágurnar
síðan árið 2000 segir, að kostnað-
ur dansks efnahagslífs við að
standa utan evrusamstarfsins
geti verið verulegur á óróleika-
tímum, en minni á stöðugleika-
tímum. Sá kostnaður felist helzt í
hærri vöxtum og gengiskostnaði.
Fyrir danska þjóðarhagsmuni
muni hins vegar mestu um pólit-
íska kostnaðinn sem hlýzt af því
að standa utan evru-samstarfs-
ins, að mati sérfræðinga DIIS.
Með því að eiga ekki aðild að
samráði fjármálaráðherra evru-
svæðisins, sem hittast jafnan á
sérfundi fyrir mánaðarlega sam-
ráðsfundi svonefnds Ecofin-ráðs
fjármálaráðherra allra hinna 27
ESB-ríkja séu Danir útilokaðir
frá vettvangi fyrir efnahagspól-
itíska stefnumótun innan sam-
bandsins, sem hefur reynzt verða
æ mikilvægari á síðustu árum.
Danskir fulltrúar séu líka útilok-
aðir frá samstarfi seðlabanka
evru-landanna um stefnumótun í
peningamálum, en peningamála-
stefna evru-svæðisins hefur bein
áhrif á dönsku krónuna vegna
fastgengisstefnunnar.
Flokkarnir átta sem eiga full-
trúa á danska þjóðþinginu eru
klofnir í tvo hópa í afstöðunni til
evru-aðildar. Þeir flokkar sem
vilja hana, og njóta þar stuðnings
margra forkólfa dansks atvinnu-
lífs sem og verkalýðsfélaga, telja
myntbandalagsaðild vera til þess
fallna að veita dönsku efnahags-
lífi vernd á óróatímum sem þeim
sem nú ríkja, og auka áhrif Dana
innan ESB. Flokkarnir sem vilja
halda í undanþáguna frá evru-
samstarfinu óttast hins vegar það
fullveldisframsal sem í því
fælist.
Minni hreyfing í Svíþjóð
Þetta síðastnefnda viðhorf er líka
það sem hefur verið ríkjandi í
Svíþjóð, allt frá því Svíar gengu í
Evrópusambandið árið 1995.
Þjóðaratkvæðagreiðsla var hald-
in um málið fyrir rúmum fimm
árum, og reyndust þá 55 prósent
landsmanna vilja halda tryggð
við sænsku krónuna. Skoðana-
könnun sem Synovate gerði fyrir
Dagens Nyheter nú í nóvember
sýndi mikla aukningu meðal
evru-inngöngusinna. Frá því í
síðustu könnun í maí uxu herbúð-
ir þeirra um níu prósent, úr 35 í
44 prósent. En þrátt fyrir það
mælast evru-andstæðingar enn
fleiri, eða 48 prósent.
Þar sem meðal borgaraflokk-
anna fjögurra, sem setið hafa í
stjórn í Svíþjóð síðan haustið
2006, er einn sem barðist gegn
evru-aðild í þjóðaratkvæða-
greiðslunni 2003, hefur það ekki
verið á dagskrá stjórnarinnar að
beita sér fyrir nýrri atlögu að því
að endurskoða afstöðu Svía til
evrunnar. Ljóst er þó að verði
áþreifanleg hreyfing á málinu í
Danmörku mun sænska stjórnin
telja það vera ærið tilefni til að
skoða málið upp á nýtt.
Aðdráttarafl evru eykst
í Danmörku og Svíþjóð
VIÐHORFSBREYTING Sænskur andstæðingur evru-aðildar dreifir áróðri fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna í september 2003. Áhrif
fjármálakreppunnar hafa nú orðið mörgum Svíum og Dönum tilefni til að endurskoða hug sinn til evrunnar. NORDICPHOTOS/AFP
FRÉTTASKÝRING
AUÐUNN ARNÓRSSON
audunn@frettabladid.is
Blaðberinn
bíður
þín
Þú færð Blaðberann þinn í Skaftahlíð 24
alla virka daga frá kl. 8-17.
...góðar fréttir fyrir umhverfiðBlaðberinn...