Fréttablaðið - 28.11.2008, Blaðsíða 48
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS
FRÁBÆR
FÖSTUDAGUR
Alan Jones söngvari
2
3
4
5
28. NÓVEMBER 2008
Slaka á, því mér finnst frábært
að taka því rólega og horfa á
góða mynd með vinum, eða
bara einn.
Hitta vini í kaffi og spjall, það
er svo gott að hitta vinina
reglulega og tala um daginn
og veginn.
Sofa, því það er fátt
betra en góður nætur-
svefn eftir langa og
stranga viku.
1
Ég myndi vilja syngja
fyrir fólk til að sýna
hvað í mér býr. Tónlist-
in er stór hluti af mér og
hefur kraft til að lækna
sálina.
Fara í líkamsrækt því það
tekur burt stress og lætur mér
líða vel.
„Stefán Máni Sigþórsson er fæddur
03.06.1970. Lífstalan hans er því 26,
sem er jafnt og 8. Áttustrákarnir eiga
það oft sameiginlegt að vera dálít-
ið ofvirkir, kraftmiklir og vinna hlutina
í skorpum. Karlmenn sem eru fæddir í áttunni vita alltaf
hvað þeir vilja og ganga beina leið að takmarkinu. Oftar
en ekki reka þessir menn fyrirtæki, eru frumkvöðlar, áber-
andi í íþróttum og því starfi sem þarfnast krafts og dugn-
aðs. Karlmenn með lífstöluna 8 þurfa alltaf að hafa eitt-
hvað fyrir stafni, annars hundleiðist þeim.
Stefán Máni er að byrja á árstölunni 1 á þessu ári svo
þetta ár er honum nýtt upphaf, sem skapar honum
fengsæld og frama. Framhaldið á næsta ári segir til um
að Stefán mun blómstra, afkasta meiru og verða einn af
afkastamestu rithöfundum sem Ísland hefur alið.
Karlmenn í áttunni eiga það sameiginlegt að vera með
extra mikinn kynþokka sem hjálpar þeim áfram til að ná
takmarki sínu. Yfirleitt eru þessir menn líka með fegurri
mönnun, eins og sannast á Stefáni Mána. Hann ætti að
vera í essinu sínu þessi ár sem eru framundan, allavega
hvað starfsframa varðar. Mikilvægt er fyrir
hann að tengjast náttúrunni, verða hálf-
gerður hellisbúi þegar hann skrifar, fá vind-
inn í fangið og fylla vitund sína af lyktinni af
þanginu. Hann fær innblástur af höfuðorkum
Íslands, svo Ísland mun fleyta honum út um
allan heim og engar áhyggjur þarf hann
að hafa af ástandi krónunnar. Til
hamingju Stefán Máni.“
www.klingenberg.is
KLINGENBERG SPÁIR
Stefán máni Sigþórsson rithöfundur