Fréttablaðið - 28.11.2008, Page 48

Fréttablaðið - 28.11.2008, Page 48
föstudagur FYLGIRIT FRÉTTABLAÐSINS FRÁBÆR FÖSTUDAGUR Alan Jones söngvari 2 3 4 5 28. NÓVEMBER 2008 Slaka á, því mér finnst frábært að taka því rólega og horfa á góða mynd með vinum, eða bara einn. Hitta vini í kaffi og spjall, það er svo gott að hitta vinina reglulega og tala um daginn og veginn. Sofa, því það er fátt betra en góður nætur- svefn eftir langa og stranga viku. 1 Ég myndi vilja syngja fyrir fólk til að sýna hvað í mér býr. Tónlist- in er stór hluti af mér og hefur kraft til að lækna sálina. Fara í líkamsrækt því það tekur burt stress og lætur mér líða vel. „Stefán Máni Sigþórsson er fæddur 03.06.1970. Lífstalan hans er því 26, sem er jafnt og 8. Áttustrákarnir eiga það oft sameiginlegt að vera dálít- ið ofvirkir, kraftmiklir og vinna hlutina í skorpum. Karlmenn sem eru fæddir í áttunni vita alltaf hvað þeir vilja og ganga beina leið að takmarkinu. Oftar en ekki reka þessir menn fyrirtæki, eru frumkvöðlar, áber- andi í íþróttum og því starfi sem þarfnast krafts og dugn- aðs. Karlmenn með lífstöluna 8 þurfa alltaf að hafa eitt- hvað fyrir stafni, annars hundleiðist þeim. Stefán Máni er að byrja á árstölunni 1 á þessu ári svo þetta ár er honum nýtt upphaf, sem skapar honum fengsæld og frama. Framhaldið á næsta ári segir til um að Stefán mun blómstra, afkasta meiru og verða einn af afkastamestu rithöfundum sem Ísland hefur alið. Karlmenn í áttunni eiga það sameiginlegt að vera með extra mikinn kynþokka sem hjálpar þeim áfram til að ná takmarki sínu. Yfirleitt eru þessir menn líka með fegurri mönnun, eins og sannast á Stefáni Mána. Hann ætti að vera í essinu sínu þessi ár sem eru framundan, allavega hvað starfsframa varðar. Mikilvægt er fyrir hann að tengjast náttúrunni, verða hálf- gerður hellisbúi þegar hann skrifar, fá vind- inn í fangið og fylla vitund sína af lyktinni af þanginu. Hann fær innblástur af höfuðorkum Íslands, svo Ísland mun fleyta honum út um allan heim og engar áhyggjur þarf hann að hafa af ástandi krónunnar. Til hamingju Stefán Máni.“ www.klingenberg.is KLINGENBERG SPÁIR Stefán máni Sigþórsson rithöfundur

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.