Fréttablaðið - 28.11.2008, Side 40
8 föstudagur 28. nóvember
✽
ba
k v
ið
tjö
ldi
n
Ragnheiður Grön-
dal var ekki nema
sautján ára þegar hún
gaf út sína fyrstu plötu
upp á eigin spýtur.
Síðan þá hefur hún
sungið sig inn í hug og
hjörtu landsmanna og
var nú að gefa út sína
fimmtu sólóplötu, 24 ára
gömul.
Viðtal: Alma Guðmundsdóttir
Ljósmyndir: Arnþór Birkisson
É
g ætlaði alltaf að
verða „söngkona og
flugfreyja“ eða „söng-
kona og mamma“
þegar ég yrði stór,“
segir Ragnheiður Gröndal, spurð
hvenær hún hafi ákveðið að leggja
sönginn fyrir sig. „Mesti innblást-
urinn í tónlistinni kom frá Hauki
bróður. Þegar ég var lítil reyndi ég
gjarnan að troða mér að í partí-
um sem hann var með og fékk
þá yfirleitt að syngja gegn því að
fara svo að sofa,“ útskýrir Ragn-
heiður brosandi, en Haukur Grön-
dal hefur getið sér orð sem klar-
ínett- og saxófónleikari, útsetjari
og tónsmiður. „Mamma og pabbi
hvöttu mig líka mikið áfram og ég
var í tónlistarskóla frá því að ég
var sex ára þar til gelgjan helltist
yfir,“ bætir hún við, en Ragnheið-
ur hóf ung tónlistarnám í Tónlist-
arskóla Garðabæjar, fyrst á blokk-
flautu og svo á píanó. Eftir það lá
leiðin í Tónlistarskóla FÍH þar sem
hún hóf nám í djasssöng og lauk
burtfararprófi þaðan vorið 2005.
„Það var mest hlustað á útvarp-
ið á heimilinu þegar ég var barn
svo djassáhuginn kom kannski
fyrst og fremst í gegnum Hauk.
Síðan fékk maður náttúrulega æði
fyrir því sem var í gangi hverju
sinni og ég var til dæmis húkt á
Emilíönu Torrini á tímabili,“ segir
Ragnheiður og brosir.
ÁST
Ragnheiður var ekki nema sautján
ára þegar hún gaf út sína fyrstu
sólóplötu, sem innihélt gamla
djassslagara. „Ég gaf plötuna út
sjálf og var ofboðslega stolt af
mér. Gagnrýnanda fannst ég hins
vegar vera að ráðast á garðinn þar
sem hann var hæstur og ég man
hvað ég var ofboðslega sár. Mér
fannst ósanngjarnt að hann sæi
ekki hvað ég var ung og einblíndi
nánast bara á neikvæðu punktana
í gagnrýninni enda var ég með
mjög mikla fullkomnunaráráttu,“
segir Ragnheiður. Hæfileikar
hennar leyndu sér þó ekki og ári
síðar, árið 2003, söng hún Ást eftir
Magnús Þór Sigmundsson. Lagið
sló eftirminnilega í gegn og hefur
notið mikilla vinsælda allar götur
síðan.
„Ég bjóst ekki við því að lagið
yrði svona vinsælt og það fór
eiginlega í taugarnar á mér til
að byrja með. Þetta var ekki sú
tónlistarstefna sem ég ætlaði að
taka, en vinsældir lagsins ýttu
undir söluna á djassplötunni því
fólk hélt að hún væri í svipuðum
anda og Ást. Í dag er ég alveg búin
að taka lagið í sátt og finnst þetta
ljóð mjög fallegt. Það er líka alltaf
gaman að njóta velgengni, hvern-
ig sem hún er, en mig dreymdi um
að njóta hennar alveg á eigin for-
sendum,“ segir Ragnheiður sem
steig í fyrsta sinn fram sem laga-
höfundur á plötunni Vetrarljóð
sem kom út árið 2004. „Stein-
ar Berg átti hugmyndina að plöt-
unni, sem var blanda af vetrar-
ljóðum og jólalögum, en ég fékk
að koma inn fjórum lögum eftir
sjálfa mig,“ segir Ragnheiður um
Vetrarljóð sem naut gífurlegra
vinsælda og seldist í 13.000 ein-
tökum. Ári síðar tók Ragnheið-
ur algjöra u-beygju að eigin sögn
með plötunni After the Rain, sem
innihélt lög sem hún hafði samið
frá því hún var fjórtán ára gömul
og í kjölfarið fylgdi platan Þjóðlög
sem kom út 2006.
GEFUR SÉR TÍMA
Ragnheiður hefur átt í sambandi
við Guðmund Pétursson gítarleik-
ara frá því 2006. Guðmundur hefur
unnið að nokkrum plötum Ragn-
heiðar og gaf nýverið út sína aðra
sólóplötu, Ologies. Þau Guðmundur
höfðu unnið saman í ýmsum verk-
efnum áður en sambandið þróaðist
og aðspurð segist Ragnheiður hafa
haft augastað á honum um nokk-
urt skeið áður en hún gaf sig á tal
við hann. „Ég var búin að sjá hann
út, fannst hann sætur og heill-
andi, en það tók mig langan tíma
að þora að tala við hann og segja
honum hvernig mér leið. Það var
svona á fimm ára planinu,“ útskýr-
ir Ragnheiður brosandi og segir tólf
ára aldursmun ekki hafa sett strik
í reikninginn. „Ég gefst ekki upp
ef mig langar í eitthvað og beiti
öllum brögðum þar til ég næ settu
marki,“ bætir hún við og hlær. „Ég
er samt ekki mjög þolinmóð svo
ég er að reyna að temja mér hana,
öfugt við Gumma sem hefur mikla
þolinmæði og er mjög bjartsýnn.
Hann er rosalega jarðtengdur á
meðan ég er aðeins meira uppi í
skýjunum svo það fasast skemmti-
lega út,“ segir Ragnheiður. Nýver-
ið gaf hún út nýja plötu, Bella and
Her Black Coffee, en hún er meðal
annars unnin í nánu samstarfi við
Guðmund og Guðmund Kristin
Jónsson úr Hjálmum.
„Ég er mjög ánægð með þessa
plötu því mér finnst hún endur-
spegla mig bæði sem manneskju
og tónlistarmann. Ég réð förinni og
fékk meira að segja að hafa kisu
á plötuumslaginu sem er eitthvað
sem mig hafði alltaf langað að gera
en aldrei fengið samþykki fyrir,“
útskýrir Ragnheiður og brosir út í
KRÆKTI Í GÍTARLEIKARANN
Sívinsæl Ragnheiði Gröndal finnst skipta miklu máli að vera þakklát og sátt við það sem hún hefur áður en hún hugar að frekari landvinningum.
Stjörnumerki: Bogmaður.
Besti tími dagsins: Eftirmið-
degi.
Líkamsræktin:
Ashtanga jóga
í Yoga shala
miðstöðinni
og sund.
Geisladisk-
urinn í spil-
aranum: Ol-
ogies með
Gumma Pé
Uppáhaldsverslunin: Mál og
menning.
Uppáhaldsmaturinn: Ég elska
allan vel eldaðan mat úr góðu
hráefni. Ég lít mest upp til: Skýjanna.
Þráinn Skóari Skóbúð • Grettisgata 3
kr. 22,500,-
kr. 27,800,-
kr. 20,600,-
kr. 21,500,-