Fréttablaðið - 28.11.2008, Síða 46
14 föstudagur 28. nóvember
tíðin
✽ stuðáhöfnin komin í gír
DÍANA MIST
JANIS JOPLIN Nú eru síðustu forvöð að sjá Janis
27 eftir Ólaf Hauk Símonarson, því í kvöld er síðasta
sýning fyrir jól. Ilmur Kristjánsdóttir og Bryndís Ás-
mundsdóttir fara á kostum í hlutverki Janisar svo það
er um að gera að skella sér í Íslensku óperuna í kvöld.
JÓLAMARKAÐUR Í HEIÐMÖRK Jólamarkaður
Skógræktarfélags Reykjavíkur við Elliðavatn opnar á morgun.
Þar er hægt að kaupa nýhöggvin íslensk jólatré, handunnar
jólaskreytingar og föndra sitt eigið jólaskraut úr náttúruefni
skógarins. Tilvalinn staður til að koma sér í jólaskapið.
Föstudagur 21.nóvember: Engir reyniviðir á ferð
Jæja, flöskudagurinn runninn upp bjartur og fagur. Það
er þetta sem maður lifir víst fyrir. Í leit að ást og ævin-
týrum en þau gerast varla þegar maður er einn heima.
Fór í smá boð í heimahús sem var svo fjandi leiðinlegt
að ég neyddist til að fara í bæinn hið snarasta. Á b5
var allt á fullsving. Góðærisblakk-
ur passaði upp á að allt færi vel
fram og svona. Þar voru Guð-
björg Huldís förðunarmeistari,
Helga Ólafs fatahönnuður, Björn
Ólafsson og Hulda Pé hjá Nýja
Kaupþingi. Eftir nokkur dansspor
og smá sveiflu kíktum við vin-
konurnar á Kaffibarinn. Þar var Stefán Svan í KRON
KRON í geðveiku stuði og það var líka Natalie DJ. Eftir
nokkra drykki kíkti ég yfir á Ölstofuna. Þar var Kolbrún
Björnsdóttir útvarpskona og Hjördís Rut Sigurjóns-
dóttir, ritstýra á Nýju lífi. Á þessum tímapunkti ákvað
ég að drífa mig heim enda hafði enginn reynt við mig,
djöfull...
Laugardagur 22.nóvember: Hot hot or not
Tók laugardaginn frekar rólega framan af. Maður verður
að jafna sig þegar það er ekkert reynt við mann á bör-
unum. Sá að pallíettusamfestingurinn sem ég klæddist
um þarsíðustu helgi var miklu sleikvænni. Svo klikkar
náttúrulega aldrei að vera í stuttu
pilsi, strákum finnst það hot.
Kíkti á huggulega opnun á veit-
ingastaðnum Pisa í Lækjargötu.
Þar var Magga Rósa, eigandi
staðarins, í miklu stuði og bauð
upp á heitt kakó og girnilegustu
tapassnittur sem ég hef smakk-
að. Þar voru Valentína Björnsdóttir, framkvæmda-
stjóri Móður Náttúru, Valur Grettisson blaðamaður,
myndarlegi sjónfræðingurinn Jóhannes Ingimundar-
son, Guðrún Ásmundsdóttir leikkona og Brynd-
ís Berg ofurhjúkka. Um kvöldið kíkti ég
á opnunarteiti bókarinnar, Forstjóri
dagsins. Þar sá ég glitta í Togga
kvikmyndgerðarmann, Óttarr
Proppé og Óttar Norðfjörð rit-
höfund. Þar voru líka Krummi
og Bjarni í Mínus, Lóa og Árni
plús 1 úr FM Belfast og Hug-
leikur Dagsson. Það var
alveg sama sagan þarna
svo ég fór bara heim, hit-
aði mér kakó og horfði á
fyrstu seríuna af Dallas …
MYRRA LEIFSDÓTTIR
listakona
SILFURHÁLSMEN
sem kærastinn smíðaði
handa mér í afmælisgjöf
í sumar.
RÚMIÐ MITT sem er uppáhaldsstaðurinn heima.
FJÖLSKYLDUMYNDIR pabbi,
Leifur ljósmyndari og konan hans
Sissa eru dugleg að dokumenta
fjölskylduna á filmu.
MYNDAVÉLIN góða.
SVARTIR FILTPENNAR,
lífsnauðsyn.
KEYPTI ÞESSA FRÁBÆRU SKÓ frá Fly London í Svíþjóð
í fyrra, hef átt margar góðar stundir í þeim.
STYTTUSAFNIÐ MITT, sem er blanda af styttum og
leikföngum frá ýmsum heimshornum.
TOPP
10
UPPÁHALDSKJÓLLINN
MINN frá Aftur sem
Bára Hólmgeirsdóttir
rekur og hannar.
LITLA LISTASAFNIÐ er ómetanlegt,
er farin að líma inn myndirnar eftir Eld í möppur.
DAGA-
TALS-
BÆK-
URNAR,
sem við Kría
gerðum ásamt
mörgum góðum
konum, þær koma
skipulagi á tilveruna.