Fréttablaðið - 28.11.2008, Qupperneq 66
42 28. nóvember 2008 FÖSTUDAGUR
Ung kona leitar til Kvenspæjarastofu
númer eitt í Botsvana vegna óheiðar-
leika yfirmanns síns og hótana um
uppsögn en Mma Ramotswe kemst
brátt að því að fleira hangir á spýtunni.
Ný spennu- og gleðisaga um
snjallasta spæjara Afríku.
„Töfrandi bók.“
the new york times book review
kvenspæjarastofa
nr. 1
Gylfi Ægisson fagnar 30 ára
edrúafmæli sínu á næsta
ári. Hann klárar þetta ár
með málverkasýningu og
útgáfu á geisladiski með
vinsælustu lögum sínum.
Gylfi Ægisson situr ekki auðum
höndum í kreppunni. Nú hefur
hann gefið út „Perlur Gylfa Ægis-
sonar“ og safnar þar saman á einn
disk upprunalegum útgáfum af
25 vinsælustu lögunum sínum,
lögum eins og „Minning um
mann“ með Logum, „Stolt siglir
fleyið mitt“ með Halastjörnunni
og auðvitað „Í sól og sumaryl“
með Bjarka Tryggvasyni og
Hljómsveit Ingimars Eydal. „Það
var fyrsta lagið eftir mig sem
kom út,“ segir Gylfi. „Þannig var
að ég var á Akureyrartogurunum
og menn drukku stíft í landi.
Pétur prestur á Akureyri hefur
sagt mér hvernig þetta lag varð
til. Hann var í löggunni og eina
nóttina voru þeir kallaðir út vegna
hávaða í fólki í Lystigarðinum.
Þar var ég með gítarinn að semja
lagið. Þá sögðu félagarnir við
lögguna: Bíðiði aðeins, Gylfi er að
semja. Löggan beið en alltaf
þegar ég spila þetta lag síðan
heyri ég sírenuvæl.“
Lagið kom út á plötu Hljóm-
sveitar Ingimars árið 1972 og
varð gríðarvinsælt – „Vinsælasta
sumarlag allra tíma,“ fullyrðir
Gylfi. Þar með var tónninn gefinn
og næstu árin gengu margir í
lagasarp Gylfa. Sjálfur gerði
hann fyrstu LP-sólóplötuna árið
1974 með meðlimum Hljóma.
„Svo hætti ég að drekka árið 1979
og þá héldu margir að ég myndi
missa hæfileikana,“ segir Gylfi.
„Ég afsannaði það nú strax næsta
ár þegar ég átti vinsælustu plötu
ársins með Halastjörnunni. Ég á
30 ára edrúafmæli á næsta ári og
ætla að halda upp á það með tón-
leikum. Er að spá í að fá Sverri
Stormsker með mér því þá getur
hann haldið upp á að hafa verið
fullur í 30 ár.“
Gylfi hefur gefið út 23 plötur
síðan hann fór sjálfur að gefa út
diska í gegnum heimasíðuna
gylfiaegisson.is. Þar má einnig
panta málverk eftir Gylfa. Á
Fjörukránni stendur nú yfir mál-
verkasýning hans og þar treður
Gylfi upp um helgar, bæði í pásum
hjá Rúnari Þór og fyrir matar-
gesti. „Ég byrja nú samt ekki fyrr
en fólk er búið að borða svo það
standi ekki í því. Þetta eru allt svo
fjörug lög hjá mér,“ segir Gylfi
og hlær. drgunni@frettabladid.is
SÍRENUVÆL Í SÓL OG SUMARYL
TUTTUGU OG FIMM BESTU LÖGIN Gylfi Ægisson hefur safnað saman sínum vinsæl-
ustu lögum á safndiskinn Perlur. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
FLOTT UMSLAG Gylfi gerir auðvitað
umslagið á nýju plötunni.
Fyrstu tónleikar Stóns eru í kvöld
á Players í Kópavogi. Þetta er
tökulagasveit sem sérhæfir sig í
Rolling Stones-lögum. Stóns eru
valinkunnir menn úr íslenska
rokkinu, Frosti Júníor í Esju er
Charlie Watts, Kalli í Lights on the
Highway er Bill Wyman, Biggi í
Motion Boys er Brian Jones og
Bjarni og Bjössi í Mínus eru Keith
og Mick.
„Við erum allir gríðarlegir
Stóns-aðdáendur og okkur finnst
gaman að spila rokk og ról og því
varð þetta bara til,“ segir Bjössi
Jagger. „Þetta spurðist út og þegar
Palli Papi umboðsmaður bauðst til
að sjá um okkur tókum við þetta
bara alla leið.“
Bjössi hefur aldrei spilað á Play-
ers og bara einu sinni komið þang-
að inn til að spila pool. „Það er
spennandi að spila fyrir eldra fólk
en við erum vanir og ég get ekki
séð að það sé eitthvað verra að
spila á Players en til dæmis á
Nasa. Við tökum lög frá öllum ferli
Stones, eins konar blöndu af vin-
sælustu lögunum og uppáhalds-
lögunum okkar. Mitt uppáhalds-
tímabil eru árin sem Mick Taylor
var í bandinu.“
Bjössi leggur þunga áherslu á
að þetta uppátæki sé ekkert grín.
„Nei, við förum alla leið með þetta.
Klæðum okkur upp, erum með
takta og högum okkur eins og
Stóns. Ég er Mick þegar ég er á
sviðinu og það er eitt af því besta
sem ég veit um.“ - drg
Stóns loks á Íslandi
FARA MEÐ ÞETTA ALLA LEIÐ Fyrsta gigg Stóns er í kvöld: Frosti Watts, Kalli Wyman,
Bjössi Jagger, Biggi Jones og Bjarni Richards spá í Rollingana. FRÉTTABLAÐIÐ/BJÖRN ÁRNASON
Rokkararnir í Foo Fighters voru í
gestahlutverki í bandaríska
raunveruleikaþættinum Top Chef
sem var sýndur fyrir skömmu
vestanhafs. Í þættinum, sem var
tekinn upp í sumar, þurftu
keppendur að matreiða ofan í
rokkarana og þáttastjórnandann
Grant Achatz skömmu fyrir
tónleika þeirra. Eftir það gáfu
þeir kokkunum einkunn sína.
Foo Fighters eru um þessar
mundir í pásu eftir umfangsmikla
tónleikaferð um heiminn. Hefur
hún til að mynda tvívegis troðið
upp á Wembley-leikvanginum í
London.
Dæmdu mat
fyrir tónleika
Söngvarinn Cliff Richard ætlar í tónleikaferð seint á
næsta ári með sínum gömlu félögum í The Shadows í
tilefni af fimmtíu ára afmæli hljómsveitarinnar.
The Shadows með Cliff innanborðs náði gríðarleg-
um vinsældum á sjötta og sjöunda áratugnum og
komu þeir nítján lögum í efsta sæti breska vinsælda-
listans, þar á meðal Move It og Living Doll. Þetta
verður í fyrsta sinn sem þeir spila saman í tuttugu ár.
Hljómsveitin segir að tónleikaferðin verði sú
síðasta sem hún fari en í henni ferðast hún víðs vegar
um Bretland. The Shadows var upphaflega stofnuð til
að aðstoða Cliff Richard. Fyrst um sinn hét hún The
Drifters en þurfti að breyta um nafn þegar hún komst
að því að bandarísk hljómsveit með sama nafni væri
starfandi.
The Shadows spilaði víða um heim á áttunda og
níunda áratugnum en á sama tíma naut Cliff mikilla
vinsælda sem sólótónlistarmaður. Hann kom meðal
annars hingað til lands á síðasta ári og söng í
Laugardalshöllinni við góðar undirtektir.
Cliff til liðs við Shadows á ný
Í HÖLLINNI Cliff Richard á tónleikum sínum í Laugardalshöll á
síðasta ári. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
BRUCE WILLIS Leikarinn Bruce Willis
hefur fengið endurgreidda háa upphæð
frá fyrirtækinu Petra Group.
Tæknifyrirtækið Petra Group frá
Malasíu hefur endurgreitt leikar-
anum Bruce Willis 900 þúsund
dollara eftir að hann höfðaði mál
gegn því.
Krafðist hann þess að fá endur-
greidda fjárfestingu sína í fyrir-
tækinu.
Willis lagði á síðasta ári tvær
milljónir dollara í Green Rubber,
sem er í eigu Petra Group, og
þróar tækni sem endurvinnur
gúmmí úr gömlum hjólbörðum.
Fyrr á þessu ári fékk Willis
endurgreidda 1,1 milljón frá Petra
Group þegar hann ákvað að hætta
við fjárfestingu sína. Höfðaði
hann mál þegar hann virtist ekki
ætla að fá afganginn endur-
greiddan.
Fékk endurgreitt
DAVE GROHL Rokkararnir í Foo Fighters
smökkuðu á mat í raunveruleikaþættin-
um Top Chef.