Morgunblaðið - 15.05.2006, Blaðsíða 37
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. MAÍ 2006 37
SAMBÍÓ ÁLFABAKKA SAMBÍÓ KRINGLUNNI
MI : 3 kl. 3 - 5:30 - 8 - 10:40 B.I. 14 ára
SHAGGY DOG kl. 5:50 - 8 - 10:10
INSIDE MAN kl. 5:30 - 8 - 10:40 B.I. 16 ára
SÝND Í
STAFRÆNNI
ÚTGÁFU,
MYND OG HLJÓÐ
SHAGGY DOG kl. 3:40 - 5:50 - 8:30 - 10:40
MI : 3 kl. 3:30 - 6 - 8 - 10:40 B.I. 14 ára
MI : 3 LÚXUS VIP kl. 5:30 - 8 - 10:30
FAILURE TO LAUNCH kl. 4 - 6 - 8 - 10:10
SCARY MOVIE 4 kl. 4 - 6 - 8 - 10:10 B.I. 10 ára
FIREWALL kl. 6 - 8:15 - 10:40 B.I. 16 ára
BAMBI 2 m/ísl. tali kl. 4
TIM ALLEN ( THE SANTA CLAUSE/
TOY STORY) SKIPTIR UM HAM Í
GRÍNVIÐBURÐI ÁRSINS.
VERÐUR HANN
HUNDHEPPINN
EÐA HVAÐ?
FRÁ J.J.ABRAMS,
HÖFUNDI LOST OG ALIAS
AF MÖRGUM TALIN VERA BESTA
MISSION IMPOSSIBLE MYNDIN TIL ÞESSA.
eeee
VJV, Topp5.is
eeeH.J. mbl
“ÞAÐ ER VEL HÆGT AÐ MÆLA MEÐ
“M:I:III” SEM GÓÐRI AFÞREYINGU
OG SUMARSMELLI.”
eee
JÞP blaðið
S.U.S. XFM
B
laðamannafundur Sylvíu Nætur í Ólympíuhöllinni í Aþenu í gær-
kvöldi var sá best sótti í undirbúningi Evróvisjónkeppninnar í ár.
Eftir þau læti sem urðu á fyrsta blaðamannafundi hennar, er
Silvía lét lífverði sína bera út blaðamann sem leyfði sér að horfa í
augu stjörnunnar, var mikill spenningur að fylgjast með hvað
gerast kynni í gærkvöldi. Það var Romario, unnusti Silvíu Nætur, sem hóf
fundinn og tilkynnti að vegna atburða liðinna daga myndi Silvía Nótt lesa yf-
irlýsingu.
„Það er afbrýðisamt, ljótt og hæfileikalaust fólk, sem er að reyna að bola mér
út úr keppninni,“ sagði Silvía í yfirlýsingu sinni. „Ég nefni engin nöfn, þið vitið
hver þið eruð, skamm, skamm – skammist ykkar!“
Hún rakti sigurgöngu sína, allt frá því hún var valin sjónvarpsstjarna ársins,
kynþokkafyllsta kona Íslands og loks sigurinn í undankeppni Eurovision á Ís-
landi og sagði að hún myndi að lokum sigra heiminn með heiðarlegri keppni. Að
lokinni yfirlýsingunni spurði fjölmiðlafólk Silvíu Nótt ýmissa spurninga, meðal
annars um þjóðerni afa hennar, um álit hennar á því að hin sænska Carola hefði
stolið hugmynd frá henni með því að vera með fána á sviðinu, og um finnsku
keppendurna. Silvía svaraði því sem henni sýndist, sagðist til að mynda þykja
Finnarnir flottir, en að þeir hefði verið mjög ljótir þegar hún sá þá ófarðaða.
Það var mikil stemmning á fundinum, og fjölmiðlafólk sást syngja með, þeg-
ar Congratulations var flutt í upphafi og lok fundar. Það var klappað fyrir kóm-
ískum svörum Silvíu og fjölmiðlafólk sem blaðamaður Morgunblaðsins ræddi
við, taldi hana eiga góða möguleika, og að hún myndi án nokkurs vafa komast
áfram úr undankeppninni.
Sviðsæfing á undan blaðamannafundinum, gekk ekki nægilega vel, meðal
annars vegna truflana í hljóðkerfi.
Gríska sjónvarpið hefur endurtekið fréttir af ögrandi framferði íslensku
Næturdrottningarinnar, og mikill áhugi fjölmiðla á Silvíu í gærkvöldi bendir til
þess að stjarna hennar haldi áfram að skína skært hér í Grikklandi.
Þess má geta að á blaðamannafundinum lagði Romario enn bann við því að
spyrjendur horfðu í augu Silvíu Nætur – enginn þeirra leyfði sér það. Einn
blaðamannanna sýndi þá auðmýkt að krjúpa á kné áður en hann bar upp
spurningu sína.
Blaðamannafundur Silvíu Nætur mjög vel sóttur
Mun að lokum sigra heiminn
Morgunblaðið/Eggert
Silvía var söm við sig á æfingum en truflanir í hljóðkerfi settu strik í reikninginn.
Þótt Silvía vilji ekki leyfa blaðamönnum að horfa í augun á sér virðist hún
ekki hafa neitt á móti því að láta taka af sér myndir.
Eftir Bergþóru Jónsdóttur í Aþenu
begga@mbl.is