Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 46

Morgunblaðið - 16.06.2006, Side 46
46 FÖSTUDAGUR 16. JÚNÍ 2006 MORGUNBLAÐIÐ MENNING www.bluelagoon.is Afl TÍMINN tvinnaður nefnist sjónlistasýning sem opnuð verður í kvöld í Listasafni Reykja- nesbæjar í Duushúsum. Sýningin kannar hug- myndir fyrirbærafræði vísindanna, end- urtekningarinnar og líkamans, að sögn aðstandenda en að henni stendur alþjóðlegi listhópurinn Distill. Bollaleggingar á hugtökunum tími og endurtekning Distill samanstendur af sjö nútíma- listamönnum sem búsettir eru víða um heim en eiga það sameiginlegt að hafa á sínum tíma stundað listnám í Colarado í Bandaríkjunum. List þeirra spannar sviðið frá tvívíðum hlutum til skúlptúra og innsetninga. Listaverkin sem um ræðir eru unnin úr margvísilegum efniviði og má meðal annars berja augum verk búin til úr ýmsum og ólíkum endurnýjanlegum efn- um. Þannig er áhorfandinn minntur á hring- rás tímans, en í sýningarskrá stendur að sýn- ingin endurspegli „margbrotnar bollaleggingar á hugtökunum tími og end- urtekning“. Kynferðisleg skírskotun Meðal meðlima Distill-hópsins er Banda- ríkjamaðurinn Jaeha Yoo. Yoo nýtir sér meðal annars framsetningu á tuskudýrum og vísa verk hans í minningar frá draumum barnæsk- unnar. „Að stóru leyti snýst sýningin um það hvernig verkin eru unnin og um efnið sem við notum. Við notum efni sótt í hversdaginn og inn á heimilið með móti sem nær út fyrir hefð- bundinn skilning fólks á efninu,“ útskýrir Yoo. Hann segir að í sínu tilfelli hafi hann viljað vekja upp tilfinningar sem tengdust æviskeið- inu mitt á milli tíma sakleysis og þekkingar. „Þetta er tímabilið þegar við verðum siðferði- lega meðvituð um líkama okkar. Ég nota vissulega leikföng en það er óneitanlega smá kynferðisleg skírskotun í verkum mínum. Slíka skírskotun má finna í fleiri verkum á sýningunni.“ Myndlist | Alþjóðlegi listhópurinn Distill afhjúpar hversdaginn í Listasafni Reykjanesbæjar í kvöld Unnið úr heimilisefni með óvæntum hætti Áhorfandinn er minntur á hringrás tímans með endurnýjanlegum efnum. HIN viðamikla einkasýning Hrafnhildar Sigurðardóttur, „Hér“ í Listasafni Árnes- inga, felur í sér sérkennilega blöndu létt- leika, litríkis, leikgleði og húmors við póli- tíska biturð og óhugnanlega þolinmæði. Hekluð, hnýtt og prjónuð verk í yf- irstærðum og mismunandi pólitískar skír- skotanir í titlum þeirra og rituðum texta sýningarinnar bera með sér togstreitu milli fagurfræði þeirra og þeirrar undirliggjandi reiði sem virðist ekki síður hafa verið drif- krafturinn við gerð þeirra. Í efnislega áleitnu verki sem gert er úr mjúkum plaströrum fylltum með varalit og hengt upp á vegg eins og snærishönk þrengir titillinn „Varastækkun?“ óþarflega túlkunina. Þetta á einnig við um sjónrænt áhugavert verk sem samanstendur af hör- þráðum og megrunartöflum og ber titilinn „Ekki minn lífstíll“. Pólitískur rétttrúnaður titlanna nær litlu samhengi við myndræna útfærslu verkanna sem hafa í sér mun víðtækari og áhugaverð- ari túlkunarmöguleika. Listpólitíska verkið „Sjálfsmynd myndlistarkonu – Hver er á spena hvers“ og „Ólögleg möskvastærð“ eru dæmi um verk þar sem titlarnir fela þó að- eins í sér ákveðnar vísanir en rígbinda túlk- unina ekki niður. Hins vegar er það gert í textanum sem fylgir og verður að teljast óþörf stýring. Hið áhugaverða við sýninguna er samt sem áður sú spurning hvernig hægt sé að tjá pólitíska ádeilu eða reiði í verkum sem unnin eru með svo mikilli þolinmæði og fín- legu handbragði. Svarið virðist liggja í því að drifkrafturinn sé reiðin sem umbreytist í logandi úthald, endurtekinn rytma hand- verksins sem hefur ekkert með þolinmæði að gera og er frekar skyldur andstæðu hennar. Óánægjan sem upplifuð er beinist inn á við, að handverkinu, og á kannski eitthvað skylt við sjálfspíningarhvöt sem magnast þar upp vegna ákveðins valdaleysis. Þetta minnir á aldagamalt táknmál kvenna sem tjá sig með þögn og svipbrigðum, líkamsmál bálreiðrar konu sem finnur óánægjunni engan farveg nema í litlum, reiðum hreyf- ingum hárbeittrar heklunálarinnar. Það er þessi þáttur í verkunum sem virk- ar trúverðugastur og sterkastur, ekki síst þegar hið fallega í handverkinu ógnar stöð- ugt þeirri tilfinningu sem verið er að miðla. Hnýtt eða hekluð net eru með skemmti- legri verkum á sýningunni, netið þarf ekki að standa fyrir veiðarfæri eingöngu heldur felur það einnig í sér táknmynd örygg- isnets, hlífðarnets eða tengslanets. Rauðar og bleikar netjur hafa margslungnar skír- skotanir til innviða líkamans jafnt sem fé- lagslegs veruleika. Óhugnaður Medúsu tek- ur á sig margar myndir en þræðir örlaganna rakna upp um leið og við sjáum að vefurinn er samfélagslegur og mann- gerður. Þæfður valmúi í ofskynjunarlitum og gegnsætt girnisverk bjóða upp á lík- amlega upplifun tálmyndarinnar. Sýningin sem heild virkar sjónrænt sem létt, falleg og áhrifarík innsetning en boð- skapur hennar virðist heldur þyngri en ætla mætti í fyrstu. Best tekst til þegar boð- skapurinn er innbyggður í sjónrænan og efnislegan veruleika verkanna og áhorfand- anum sjálfum látið eftir að túlka það sem hann sér. Hárbeittar heklunálar TEXTÍLL Listasafn Árnesinga, Hveragerði Sýningin stendur til 18. júní. Opið alla daga frá kl. 11.00–17.00 Hrafnhildur Sigurðardóttir Þóra Þórisdóttir „Hnýtt eða hekluð net eru með skemmtilegri verkum á sýningunni, netið þarf ekki að standa fyrir veiðarfæri eingöngu heldur felur einnig í sér táknmynd öryggisnets, hlífð- arnets eða tengslanets,“ segir í umsögn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.