Morgunblaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 31.03.2007, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 31. MARS 2007 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR ✝ BergþóraÁrnadóttir fæddist í Reykjavík 15. febrúar 1948. Hún lést á sjúkra- húsinu í Álaborg, Danmörku 8. mars síðastliðinn. Foreldrar henn- ar eru Árni Jóns- son, trésmiður, fæddur á Ísafirði 20.6. 1923, lést 26.8. 1993 í Danmörku, og Aðalbjörg Mar- grét Jóhannsdóttir, fædd á Reykjum á Reykjaströnd 5.3. 1922. Hún er bú- sett í Hveragerði. Systkini Berg- þóru eru; Jón Sverrir, f. 27.1. 1947, d. 6.12. 1954, Bergur Jóhann Sverrisson, f. 2.1. 1942, og Mar- grét Sverrisdóttir, f. 7.12. 1942. Bergþóra giftist aðeins sextán ára gömul árið 1964 Karli Lárusi Valdimarssyni, ættuðum úr Reykjavík, f. 22.2. 1941, d. 13.2. 2001. Faðir hans var Valdimar Lárusson og móðir hans var Birg- itta Guðbrandsdóttir. Bergþóra og Karl eignuðust eitt barn, Birgittu, f. 17.4. 1967. Karl og Bergþóra skildu 1969. Árið 1971 giftist Bergþóra Jóni Ólafssyni frá Trað- arholti, f. 8.7. 1940, d. 24.12. 1987. Þau eignuðust eitt barn, Jón Tryggva, f. 1.4. 1972. Jón ættleiddi Birgittu þegar hún var sex ára. Þau skildu 1982. Árið 1983 giftist Bergþóra Þorvaldi Inga Jónssyni, f. 3.3. 1958, þau skildu 1988. Birg- itta á þrjú börn, Neptúnus, Guð- borgu Gná og Delphin. Jón Tryggvi á þrjár dætur, Valnýju Láru, Andreu Ósk og Helenu Rós. Jón Tryggvi giftist Lindu Sigfús- dóttur í júní 2006. Sambýlismaður Þá átti hún frumkvæði að því að fara á Litla-Hraun og spila fyrir fangana þar og tók gjarnan með sér aðra tónlistarmenn, m.a. Bubba Morthens. Bergþóra og þá- verandi eiginmaður hennar Þor- valdur Ingi gáfu út flestar plötur Bergþóru á tímabilinu 1982 til 1987 og hét útgáfa þeirra Þor. Þau aðstoðuðu við útgáfu á hljóm- plötum eftir aðra. Má þar nefna Rimlarokk með hljómsveit sem stofnuð var af föngum á Litla- Hrauni og Sokkabandsárin með Ásthildi Cesil Þórðardóttur. Berg- þóru verður minnst sem mikils friðarsinna, baráttukonu fyrir kvenfrelsi, náttúruvernd og her- lausu landi. Bergþóra fluttist til Danmerkur árið 1988 eftir skilnað hennar og Þorvaldar. Hún hafði unnið mikið með vísnavinum á Norðurlöndum og átti betur tök á að halda því starfi áfram á meginlandinu. Hún varð fyrir alvarlegu umferðarslysi árið 1993. Hún varð að snúa sér að öðrum viðfangsefnum en að helga líf sitt tónlistargyðjunni en hún náði sér aldrei að fullu eftir þau örkuml sem hún hlaut við slysið. Lög og ljóð hélt hún engu að síður áfram að semja en því miður tók hún ekki upp nema örfá lög eftir slysið. Hún hélt áfram að flytja inn og hvetja tónlistarmenn frá Norð- urlöndum til að koma til Íslands og ber þar helst að nefna Kim Larsen. Lög Bergþóru má einnig finna á hljómplötum vísnasöngvara frá Norðurlöndum. Þegar Bergþóra varð fimmtug tóku velunnarar, vinir og fyrrver- andi samstarfsmenn sig saman og gáfu út safnplötuna Lífsbókina. Í júlí 2005 greindist hún með krabbamein sem varð hennar banamein. Útför Bergþóru fer fram frá Hveragerðiskirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 13. Bergþóru til 17 ára var Peter Sørensen frá Torslev, Dan- mörku, f. 22.3. 1941. Bergþóra ólst upp við söng og hljóð- færaslátt í Hvera- gerði og byrjaði ung að semja lög við ljóð íslenskra skálda. Fyrstu lög Berg- þóru komu út á safn- plötunni Hrifum 2 árið 1975. Tveimur árum síðar kom Ein- tak út, en það var hennar fyrsta sól- aplata. Á árunum 1982 til 1987 kom síðan hver platan á eftir annarri: Bergmál, Afturhvarf, barnaplatan Ævintýri úr Nykurtjörn (sem var samstarfsverkefni með Geir Atle og Aðalsteini Ásbergi Sigurðssyni) og Það vorar (sem var samstarfsverk- efni með fiðlusnillingnum Graham Smith). Síðasta platan hennar, Í seinna lagi, kom út 1987 en sú plata varð fyrsta verkefni hérlendis til að vera tekið upp beint fyrir sjónvarp og útgáfu. Bergþóra sendi einnig frá sér kassettuna Skólaljóð, en henni var ætlað að hjálpa börnum að læra ljóð utanbókar með söng. Þá komu út eftir hana lög á fjölda safnplatna. Einnig vann hún um nokkurt skeið með hljómsveitinni Hálft í hvoru en hún var einn af stofnendum hennar. Milli þess sem Bergþóra sendi frá sér plöturnar fór hún ófáar hring- ferðir um landið og spilaði m.a. fyr- ir verkafólk, á elliheimilum og á sjúkrahúsum. Þá fékk hún til liðs við sig marga af færustu hljóðfæra- leikurum landsins til tónleikahalds um landsbyggðina. Bergþóra var einn af upphafsmönnum Vísnavina. Mamma fékk í vöggugjöf einstaka tónlistargáfu. Tónlistin var hennar líf og yndi. Sé hana sitja á háa eldhús- kollinum í eldhúsinu í Þorlákshöfn þegar ég var krakki að semja lög á næturnar. Ég man eftir þvældu og út- krotuðu ljóðasafni Steins Steinarr á eldhúsborðinu en ljóð hans voru henni gjöful. Mamma samdi ekki lög eins og önnur tónskáld. Lögin spruttu út úr ljóðunum nær fullsköpuð. Mamma hafði sérstakan gálgahúmor og lífssýn. Allir voru henni jafn mik- ilsverðir. Skipti þar engu hvort við- komandi væri útigangskerling eða forseti, börn vina hennar eða hennar eigin börn. Hennar lífsspeki rúmaðist innan máltækisins: Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott. Það var ekki auðvelt að komast inn fyrir skelina hjá henni og þótt hún hafi gjarnan verið létt í lund og gaman að vera nálægt henni þegar sá gállinn var á henni, þá kraumaði þungur harmur í sálu hennar sem hafði afger- andi áhrif á allt hennar líf. Lífið krefst meira af sumu fólki en öðru. Mamma fékk svo sannarlega vænan skammt til að vinna úr. Kannski varð það henni ofviða undir lokin. Hún var allt- af tilbúin að hjálpa öllum en skildi sjálfa sig og sínar þarfir oft útundan. Mamma kom til Íslands síðasta sum- ar til að vera viðstödd brúðkaup bróð- ur míns. Hún var svo stolt af honum og það geislaði af henni bjartsýnin. Hún var ákveðin að gefast ekki upp í því mótlæti sem að henni steðjaði. Hún var staðráðin í því að láta krabbameinið ekki taka völdin í lífi sínu. Engu skyldi breytt. Hennar lífs- stíll hinn sami uns yfir lauk. Hennar síðasta verk daginn sem hún dó í tví- gang og var endurlífguð var að fara á pósthúsið með hálfsmetra syngjandi afmæliskort til ömmu. Um nóttina safnaði hún styrk og eyddi síðasta deginum í þessari jarðvist við að róa þá sem henni voru kærir, sagði að sér liði vel og ekki var langt í gálgahúm- orinn. Hún fór svo að sofa og vaknaði ekki aftur. Ég er þakklát fyrir allt sem við upplifðum saman. Ég mun aldrei elska neinn eins og hana. Hún mun lifa í hjarta mínu og í minning- unum. Ekki deyja fyrr en ég kem til þín Þú frábaðst þér argandi vélarnar – gervilífið og morfínið Ég á ofgnótt líknar að þínu skapi Ég skal lesa fyrir þig Stein Steinarr eða Halldór Laxness Ég skal lesa fyrir þig um lífið eða engil dauðans Bera smyrsl á andlit þitt strjúka burt storknað blóðið í þykku hári þínu Syngja fyrir þig vögguvísurnar sem gleymdist að syngja fyrir þig í bernsku En ekki deyja fyrr en ég kem Söngfugl að hefja sig til flugs Ekki deyja fyrr en ég kemst til þín Líf þitt fjarar út Andlitið slétt Óendanleiki og alheimur stirnir í augum þínum Í svefni sótti engill dauðans þig vafði þig sæbláum kufli og þú söngst í draumi mínum „Veistu að þinn vinur er að deyja“ brostir og hélst þína leið Faðma þig ylvolga kyssi þig þúsund kossa En ekkert er þess megnugt að fá þig til að snúa aftur úr faðmi dauðans Friðurinn fundinn, líkn undan fargi lífsins Og ég sleppi, fagna með þér í hjarta sorgarinnar með lífsbókina syngjandi í hjarta mínu – þegar ég vakna (Ort handa mömmu í mars 2007.) Hvíldu í friði mín kæra. Þín Birgitta Jónsdóttir – stundum Bergþórudóttir. Elsku systir. Það er erfitt að trúa því að engar hringingar, bréf eða pakkar komi oft- ar. Þú hafðir sérstakt lag við að skrifa mjög skemmtileg bréf, einnig voru pakkarnir frá þér frábrugðnir öllum pökkum sem ég fékk. Það var séstök athöfn að opna þá, ótrúlegustu hlutir komu upp úr og hafði ég hina mestu skemmtun af. Það var gott að hitta þig í febrúar, þú varst dagstund hjá mér ég sá þá hvað þú varst orðin mik- ið veik, en ekki vildir þú tala um það. Ég var að vona að þú fengir lengri tíma hjá okkur en kallið kom. Ég gæti skrifað svo miklu meira en stundum eru orð óþörf. Með þessum fáu skrifuðu orðum kveð ég þig í bili því við sjáumst síðar. Þín systir, Margrét. Það var sumarið 1981 sem við Bergþóra kynntumst. Það voru skemmtileg og gjöful ár sem fylgdu. Bergþóra var virt meðal vísnavina á Norðurlöndum og flutti til Danmerk- ur árið sem við skildum. Í dag minnist ég hennar með þakklæti og geymi góðu minningarnar. Ég er svo hepp- inn að börn og barnabörn Bergþóru eru einnig hluti af minni fjölskyldu. Við áttum öll saman yndislegan dag þegar Jón Tryggvi og Linda giftu sig síðastliðið sumar. Þar söng Bergþóra eitt fallegasta lag sitt við ljóð Tóm- asar Guðmundssonar „Þrjú ljóð um lítinn fugl“. Upphafsorðin „Það vorar fyrir alla þá sem unna“ eiga alltaf við. Bergþóra var eins og margir lista- menn ekki allra og of oft „misskilin“. Lítil saga af hennar raunverulega hugarþeli og virðismati. Eftir fjár- hagslegt tap af útgáfu af barnaplöt- unni „Ævintýri úr Nykurtjörn“ var Berþóra að leggja í söngferð um land- ið að hausti. Kom heim eftir að vera búin að fá ný vetrardekk undir bílinn. Brosti út að eyrum og sagði að nú væri Nykurtjörnin búin að borga sig. Ég hváði, jú, hún sagðist nánast hafa fengið dekkin gefins hjá viðgerðar- manninum sem átti einhverfan son. Drengurinn hafði aldrei sagt neitt, en hlustað með athygli á plötuna nokkr- um sinnum. Í lok ævintýrisins sagði hann allt í einu „hvert fór Nykurinn“? Sál barnsins hafði opnast. Það voru meira en næg laun og gleðin var ósvikin. Bergþóru var ljóst að mörg börn áttu erfitt með að læra skóla- ljóðin. Það var því ráðist í útgáfu á skólaljóðum á snældu. Ljóðið og lagið er sungið á annarri hliðinni, en um leið og snældunni er snúið við er lagið aðeins með undirleik og börnin geta sungið ljóðið með sínu nefi. Lög Bergþóru eru mörg við góð ljóð sem bæta mannsandann. Því mið- ur eiga orð Bergþóru enn við í laginu „Hver hefur rétt til þess að ræna kyn- slóðirnar sinni ást?“. Í myndbandi Bergþóru við „Lífsbókina“ 1985 var í Bergþóra Árnadóttir FJÖLSKYLDU- HJÁLPIN gengst fyrir fatamarkaði í Kolaport- inu nú um helgina, sem er fyrsta helgin í apríl, og einnig fyrstu helgina í maí. Seldur verður nýr og lítt notaður fatnaður á spottprís – engin flík mun kosta meira en 500 krónur. Það verður boðið upp á herrafatnað, kjóla, kápur, sloppa, náttföt, blússur, pils og buxur – allt ónotuð föt, sem verslanir og heildsölufyr- irtæki hafa gefið Fjölskylduhjálp- inni til styrktar starfseminni. Allur ágóðinn af sölunni rennur í lyfjasjóð samtakanna, sem er síðan notaður til að kaupa lyf handa skjólstæðingum. Fjölskylduhjálpin verður með tvo bása til afnota, og eru þeir látnir í té endurgjaldslaust til styrktar málefn- inu. Bryndís Schram, verndari Fjöl- skylduhjálpar, stendur vaktina ásamt fleiri konum, sem hafa unnið að þessu góða málefni árum saman. Fatnaður á spottprís í Kolaportinu Morgunblaðið/Kristinn Föt Inga Birna Jónsdóttir, Bryndís Schram og Anna Auðunsdóttir stóðu í ströngu fyrir helgina. Í TILEFNI af eins árs rekstr- arafmæli sínu þann 1. apríl ætlar SKO að bjóða viðskiptavinum sín- um upp á ókeypis farsímaþjónustu á afmælisdaginn. Ókeypis verður fyrir alla við- skiptavini SKO að hringja og senda SMS*. Auk þess mun SKO gefa öll- um nýjum viðskiptavinum, sem skrá sig í GSM-þjónustu SKO út fyrstu vikuna í apríl, 1000 króna inneign í afmælisgjöf, segir í til- kynningu. Ókeypis hjá SKO Rangt eftirnafn Í viðtali, sem Daglegt líf átti við þrjá tíundu bekkinga úr Kópavogsskóla sem jafnframt eru við nám í Mennta- skólanum í Kópavogi, misritaðist eftirnafn Guðmundar Más Gunn- arssonar. Hann var sagður Guð- mundsson, sem ekki er rétt, og er beðist velvirðingar á því. Móðir Hansínu var frá Mói Í formála að minningargreinum um Hansínu Jónatansdóttur í blaðinu sl. fimmtudag var sagt að móðir Hans- ínu hafi verið Guðfinna Hansdóttir frá Hrauni. Hún mun hafa verið frá Mói á Húsavík. Hins vegar var fað- irinn, Jónatan Jónasson frá Hrauni. Þá var og sagt frá því að Hansína var tekin í fóstur af föðursystur sinni Sólveigu Jónasdóttur frá Hafralæk en þar átti að standa á Hafralæk. Ein vínbúð Misskilnings gætti í frétt um áform ÁTVR um opnun vínbúðar í Reykja- vík sem birtist í Morgunblaðinu í gær. ÁTVR hefur auglýst eftir hús- næði í hverfum 105 og 108. Einungis er hins vegar áformað að opna eina vínbúð í öðru hvoru þessara hverfa en ekki tvær eins og kom fram í fréttinni. LEIÐRÉTT FRUMSÝNING Ford Edge hjá Brimborg í Reykjavík og á Akureyri verður í dag, laugardaginn 31. mars, milli klukkan 12 og 16 og verða reynsluakstursbílar á staðnum. Ford Edge er nýr sportjeppi frá Ford, sem Brimborg Evrópufrum- sýnir um helgina. Brimborg er fyrsti umboðsaðili Ford í Evrópu sem frumsýnir Ford Edge og samkvæmt upplýsingum frá Ford verður bíllinn ekki fáan- legur annars staðar í Evrópu fyrr en eftir nokkra mánuði vegna mikillar eftirspurnar í N-Ameríku, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Vél- in er 265 hestafla, 3,5 lítra V6-vél. Sjálfskiptingin er sex þrepa og nær bíllinn 100 km/klst. hraða á um sjö sekúndum. Þrátt fyrir að bíllinn hafi ekki ver- ið lengi á markaði hefur hann þegar fengið viðurkenningar fyrir öryggi og ber þar helst að nefna viðurkenn- inguna „Top Safety Pick“ frá banda- rísku samtökunum IIHW, segir í til- kynningunni. Ford Edge fyrst frumsýnd- ur á Íslandi Wieck Ford Edge Brimborg Evrópufrumsýnir nýjan sportjeppa frá Ford um helgina. UNGIR jafnaðarmenn, ungliða- hreyfing Samfylkingarinnar á lands- vísu, vilja að hér á landi verði skap- aðar aðstæður fyrir fjölbreytt atvinnulíf þar sem hátækniiðnaður og sprotafyrirtæki fái að blómstra. Sátt verður að nást um vernd og nýt- ingu íslenskrar náttúru. Tímann þarf að nýta vel og kortleggja og rannsaka hvaða náttúrusvæði skuli vernda. Með því er tryggt að hin ýmsu mannvirki sem ráðist verður í á næstu árum og áratugum lendi ut- an verðmætra náttúrusvæða. Ungir jafnaðarmenn telja því mikilvægt að af stækkun álsversins í Straumsvík verði ekki á næstu árum og hvetja því Hafnfirðinga til að segja nei í íbúakosningunni 31. mars nk., segir í ályktun frá UJ. Gegn stækkun í Straumsvík ATVINNULÍFSHÓPUR Framtíð- arlandsins hefur sent frá sér eft- irfarandi ályktun: „Til umhugsunar fyrir Hafn- firðinga. Með því að samþykkja stækkun álvers hefur eðlileg lang- tímaþróun byggðar á höfuðborg- arsvæðinu verið takmörkuð veru- lega. Hagkvæmt byggingarland fyrir Hafnarfjörð tapast. Stækkun álversins festir Hafnarfjörð í sessi sem suðurjaðar höfuðborgarsvæð- isins. Ef 460 þúsund tonna álver væri byggt annars staðar í Evrópu þyrfti að kaupa losunarkvóta koltvísýrings fyrir einn milljarð króna á ári að lágmarki. Jafn- framt fer því fjarri að stjórnvöld hafi sýnt fram á að orkusala til stóriðju skili viðunandi hagnaði. Íslendingar leysa ekki umhverf- isvanda annarra landa með því að gefa náttúruperlur sínar! Er ekki tímabært að hætta útsölu á nátt- úruauðlindum landsins?“ Tímabært að hætta útsölunni FRÉTTIR
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.