Samvinnan - 01.06.1969, Blaðsíða 49
einstaklingsins íærist af líkamlegri starf-
semi yfir á huglægt svið. Því verður um að
ræða yíirmagn árásarhvatar sem þarfnast
útrásar. Ekkert sameiginlegt tjáningarform
hefur verið mótað, heldur er þessu ofur-
magni beitt til sjálfsbælingar, andgildis-
háttar, óvirkrar vinnusemi, ófrjós nöldurs
og þrályndis, sem upprætir jafnóðum og til
verða tjáningarform þátttökuhneigðar. ís-
lendingar halda staðfastlega í umgengnis-
hætti, sem áður féllu í löð við svölun árás-
arhvatar með líkamlegu harðræði.
í annan stað er það tjáningarform, sem
þeim er ætlað að beita, aðfengið og ómelt;
það er þróað með þjóðum, þar sem er minni
þáttur árásarhvatar gegn stærri langþró-
aðri þætti þátttökuhneigðar. Þessi aðfengni
tjáningarmáti er samofinn úr trúarhug-
myndum fyrri tíma og ofbeldi, sem þessum
þjóðum er hugleikið nú. Trúarhugmyndirn-
ar eru hluti heimsmyndar fyrri tíma, þegar
lífsbarátta einstaklings var enn líkamleg
og veitti baráttuhvöt hans útrás; heims-
myndin var mótvægi gegn þeirri hættu,
sem einstaklingunum stafaði hverjum af
öðrum, grundvölluð á djúpstæðri þörf á
samvinnu tegundarinnar. Með aukinni á-
herzlu á huglæga vinnu, minni þörf á
hreyfingu til lífsafkomu, aukinni hæfni
kerfis til tryggingar lífsafkomu einstaklings-
ins, dró úr gildi hins fínlega innvirkis trú-
arbragða; útrásarkrafa árásarhvatar varð
yfirsterkari, trúarlífi hnignaði og ofbeldis-
hugsjónir döfnuðu.
Hinn almenni þvergirðingur í dagfari ís-
lendinga hefur að mótvægi sókn í áfengi.
Þessi þvergirðingur eflir yfirsjálf í huga
einstaklinganna, sem þeir eiga örðugt með
að brjótast undan; þess vegna grófgerðir
drykkjuhættir. Öfgar þeirra í atferli,
drykkjumagni, umskipti persónunnar frá
ódrukknu ástandi til drukkins eru almennt
svo mikil, að óhjákvæmilegt er að álykta
sálarástand manna í dagfari þeirra hræsni.
íslendingar þurfa að drekka sig niður úr
kaldranalegri yfirborðsmótun daglegs lífs
síns til þess að geta fengið útrás þátttöku-
hneigð sinni.
Vegna neikvæðishyggju alls þorra manna,
sem víðast hvar annars staðar eru forrétt-
indi unglinga, renna unglingarnir saman við
aldarháttinn. Þeir vaxa upp við að sérhver
farvegur hliðrunar eða fágunar er níddur
niður fyrir augum þeirra. Gamansemi þeirra
verður spegilmynd gamansemi hins sterk-
ari, hins fullorðna; meinlegur hryssingur;
og almennt verða þeir mótaðir í anda nei-
kvæðis. Með kynþroska pilta, við snögg-
virkni árásarhvatar, eflist þörfin á útrás;
hún verður að nokkru við brölt dægurlaga;
en svipt allri viðurkenningu hinna full-
orðnu mótenda umhverfis þeirra kemur
hún fram í dandíisma í klæðaburði og fram-
komu; maðurinn kýs að ögra heiminum
með útliti sínu einu saman; hann verður
formið eitt og stendur á barmi úrkynjunar.
Unglingsstelpur læra samkvæmt sínu kven-
lega eðli að taka þessu sem öðru eins og
sjálfsögðum hlut og hafa vegna þvergirð-
ingsháttar hins kynsins flestar tekið út full-
an andlegan þroska fjórtán ára gamlar.
Þetta fólk er íbúar Reykjavíkur; það
byggir ísland auk helmings á móti; tvö
hundruð þúsund í allt, móti þeim 3,6 millj-
örðum, sem til eru af tegundinni.
Þróun félagsmála þessa minnihluta er að
kjarna til sú, að A (mælandinn) kaupir sér
stundarvináttu B (áheyrandans) með því
að segja honum af högum C. Fyrir vikið
er B um stund opinskárri í viðmóti sínu
við A. Sú reynsla, sem A ávinnst við það,
er honum gjaldmiðill, sem hann getur á
sama hátt keypt sér fyrir vináttu D. Upp-
hafleg þekking hans á högum C var fengin
með sama móti, og frá D getur hann haldið
áfram koll af kolli.
Séð frá B (eftir að A er þagnaður) eiga
þessi samskipti sér stað þannig: A hefur
sýnt þess merki, að hann muni hlusta, B
talar og gerir þá jafnframt ráð fyrir að
málefni þeirra orða mai'ki hugarástandi A
ramma. B verður nú var við misræmi milli
viðbragða A og þeirra viðbragða, sem hann
telur umræðuefnið gefa tilefni til; öryggis-
leysi eða óvissa í fari A hverfur, það bregð-
ui' fyrir sigurvissu brosi, og augnaráð, sem
nú er dýpra en áður, dvelur í augnabliks-
sjálfstæði við augnaráð hans. Síðan virðist
sektarvitund hið innra bregða svipnum og
gera hann tómlegri; A hefur áskotnazt eitt-
hvað, sem hann telur feng í, og nú dregur
hann sig í hlé inn í sig með feng sinn.
Vegna þessa misræmis slakar B á fylgni
sinni við tjáningu þess, sem hann vildi
segja, og víkur frá efninu í ósjálfráðri við-
leitni að finna þessum óræðu viðbi'ögðum
A ræðan bakgrunn. Það rennur upp fyrir
B, að A stendur öndverður gegn því að
nema á hlutlægan hátt innihald þess, sem
verið er að segja — út af fyrir sig hefur
hann þar með kveðið niður viðleitni manns
til tjáningar — en hefur hins vegar notað
tækifærið til að staðfesta fyrirfram mótaða
skoðun sína um B sjálfan: hrifmáttur orð-
anna hefur aðeins náð að opna hug A að
því marki, að A verður sér sem snöggvast
meir meðvitandi um skoðun sína á þessum
manni, B. Efni þess, sem mælt var, hefur
hann að vísu numið, en aðeins til að setja
það undir stimpilinn B og nota það síðar
(sem kjaftasögu). Þegar B hefur þannig
fundið ræða skýringu á viðbrögðum A, er
algengt, að honum klígi við (sé hann byrj-
andi í þessum hráskinnsleik); hann finnur
mál sitt hanga í lausu lofti, finnur til til-
gangsleysis þess að halda áfram, finnst það
muni þá vera sýndarmennska fyrst og
fremst. Getsakir koma fram í huga hans
um hvað A var að staðfesta í huga sér, og
þær verða enn til að raska þeirri stefnu,
sem hann hugðist marka máli sínu. Undan-
slátturinn verður sýnilegur sem lítið eitt
storkandi bros á vörum hans, og hann verð-
ur neikvæðari í máli sínu, með því að hann
telur sig þá fremur munu hafa traust A
meðan hann mælir. Afleiðing þessara kring-
umstæðna verður, að merking sú, sem B
við upphaf þeirra hélt afmarkaðri í huga
sér, hefur runnið saman við neikvætt inni-
hald þeirra, en það gerir umhugsunarefnið
óþægilegra, veldur aukinni tregðu til að
bera það fram til umræðu á ný, og almennt
gerir samruni velvildar og andúðar menn
að hugarfarslegum daufingjum.
Ástæða þessara kringumstæðna er hug-
leysi. Það er tilefnislaust, því að íslending-
ar hafa einstaklega góða aðstöðu til að
skara fram úr öðrum þjóðum á huglægum
sviðum, þótt þeir séu á eftir vesturheimsk-
unni eins og hundar á eftir fullum rútu-
bíl. 4
49