Samvinnan - 01.08.1985, Blaðsíða 21

Samvinnan - 01.08.1985, Blaðsíða 21
Fiskiðjan Freyja hf., Suðureyri. Garðskagi hf., Garði. Söltunarfélag Dalvíkur hf., Dalvík, má einnig telja en það fyrirtæki getur þó varla talist frystihús. Þar fer ein- göngu fram rækjuvinnsla. Kirkjusand- ur hf. í Reykjavík keypti frystihús, sem áður hafði verið í eigu Júpiter hf. og Mars hf. og jók þannig framleiðslu sína. Engan veginn er þó hægt að segja að Sambandinu hafi bæst nýtt frystihús við þetta, en vissulega fækk- aði frystihúsum Sölumiðstöðvarinnar um eitt. Frá sama tíma hafa eftirtalin hús farið úr viðskiptum við Sambandið til annarra sölusamtaka: Kirkjusandur hf., Ólafsvík Frystihús Kaupfélags Skagstrend- inga, Skagaströnd Hraðfrystihús Tálknafjarðar hf., Tálknafirði Hvammur hf., Kópavogi Sjöstjarnan hf., Njarðvík Ms Akureyrin, Akureyri. Þar að auki hætti frystihús kaupfé- lags Fram í Neskaupstað starfsemi sinni ogleigði SÚN frystiaðstöðu sína. • Hvað veldur? Eins og af þessu sést hafa fleiri fyrirtæki farið frá Sambandinu en komið hafa. Samt sem áður hefur því verið komið inn hjá almenningi að Sambandið sé að ágirnast fyrirtæki og að Sjávarafurðadeild Sambandsins sé stöðugt að eflast vegna þess að Sam- bandið sé að kaupa frystihus út um allt land. Það er því ekki óeðlilegt að spurt sé hvað valdi því að almenningur fær slíkar upplýsingar. Ekki verður reynt að svara því hér. En rétt er þó að sýna eitt dæmi um hverju mismunandi fréttamat fjöl- miðla getur komið til leiðar. Árið 1980 lagði þáverandi sjávarútvegsráð- herra til við Fiskveiðasjóð íslands að hann lánaði eftirtöldum frystihúsum umfram venjulegar reglur sjóðsins: Hraðfrystihúsi Patreksfjarðar hf., Patreksfirði. Búlandstindi hf., Djúpavogi. ísbirninum hf., Reykjavík. Pormóði Ramma hf., Siglufirði. Þessi frystihús áttu tvennt sameigin- legt: í fyrsta lagi áttu þau það sameig- inlegt að þau voru öll að byggja ný 21

x

Samvinnan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Samvinnan
https://timarit.is/publication/340

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.