Menntamál - 01.10.1946, Blaðsíða 8
110
MENNTAMÁL
HALLDÓR GUÐJÓNSSON, SKÓLASTJÓRI:
Um stöðuskipti kennara
Kennarar breyta mjög um stöður nú. Á ég þar ekki
við þá, sem á stríðsárunum flúðu úr kennarastéttinni af
fjárhagslegum ástæðum, heldur hitt, að kennarar sækja
mjög úr einum stað í annan og sjálfsagt mest til Reykja-
víkur, eins og aðrir.
Við þessu er ekkert að segja. Það er bæði eðlilegt og
að sumu leyti gott, að kennarar breyti til og reyni starfs-
krafta sína víðar en á einum stað. En reglur þær, sem
látnar eru gilda um auglýsingar á stöðum og veitingar
og tilfærslur kennara, eru óheppilegar og óviðunandi.
Almennt hefja barnaskólarnir starf sitt 1. sept. ár hvert
En einmitt um sama leyti, eða seinni hluta ágústmánaðar,
er víðast hvar gengið frá veitingum í nýjar stöður, og í
samræmi við það er kennurum heimilað að segja upp stöð-
um sínum fyrirvaralaust, rétt þegar nýtt skólaár er að
hefjast. Það leiðir aftur af sér nýjar auglýsingar og um-
sóknarfrest og veitingar í stöður eftir að komið er talsvert
fram á skólaárið.
Eins og gefur að skilja, þá er slíkt í mörgum tilfellum
mjög óþægilegt og skaðlegt fyrir starf þess skóla, sem
missir kennara sína, einn eða fleiri, í byrjun starfsárs
og á undir högg að sækja að fá eithvað í staðinn fyrr en
komið er nokkuð fram á starfsárið.
Að sjálfsögðu verður hverjum kennara að vera heimilt
að sækja um hvaða stöðu, er hann vill. Slíkt gildir um
allar stéttir í frjálsu þjóðfélagi. En hitt mun almennt
talið sjálfsagt um aðrar stéttir og stöður, bæði hjá einka-