Menntamál - 01.10.1946, Blaðsíða 18
120
MENNTAMÁL
Guðmundur hefur um langan aldur látið ýmsa félags-
starfsemi mjög til sín taka. Þannig hefur hann margt og
mikið unnið að bindindismálum, lengi verið gæzlumaður
barnastúku og í stjórn Umdæmisstúku Vestfjarða. En
merkast er þó starf hans í ungmennafélagsskapnum. Hann
stofnaði fyrsta ungmennafélagið á Vestfjörðum, Valþjóf
í Önundarfirði (25. jan. 1908), var lengi einn af fremstu
mönnum U. M. F. Árvakurs á Isafirði og í stjórn héraðs-
sambands U. M. F. Vestfjarða og átti sæti sem ritari í
sambandsstjórn U. M. F. íslands 1924—1938. Hann sá
um útgáfu tímaritsins Skinfaxa ásamt Birni skólastjóra
Guðmundssyni á Núpi í hálft annað ár (1928—29). Er
það mikið starf og merkilegt, sem Guðmundur hefur þar
innt af höndum. Það er ekki ofsagt, að margur ísfirðing-
ur á Guðmundi og starfi hans í Árvakri og utan hans
það að þakka, að frístundir hans nýttust betur og urðu
heilladrýgri en ella myndi orðið hafa, því að löngum
hefur verið opið hús hjá Guðmundi fyrir alla þá, sem
eitthvað hafa viljað föndra við útskurð, og aðstoð hans
og leiðbeining jafnan til reiðu. Þá má og geta þess, að
Guðmundur átti drýgstan þátt í, að Árvakur stofnaði
kvöldskóla á ísafirði 1923, og var hann skólastjóri þess
skóla. Hann stóð til 1928, að Iðnskóli ísafjarðar var
stofnaður.
Það er ekki ætlunin með þessum greinarstúf að lýsa
Guðmundi frá Mosdal eða segja rækilega frá störfum
hans. Þó má ekki láta þess ógetið, að Guðmundur er þjóð-
rækinn maður, þótt æsingarlaust sé, og hefur miklar
mætur á sögu þjóðar sinnar og þjóðlegum iðnaði bæði
fyrr og síðar. Og það ætlum við, frændur hans og vinir,
er höfum haft af honum löng og mikil kynni, að ekki
verði annað sannara um hann sagt en að hann sé fast-
lyndur drengskaparmaður. Svo hefur hann reynzt okkur
í hvívetna.
Ólafur Þ. Kristjánsson.