Menntamál - 01.10.1946, Blaðsíða 31
MENNTAMÁL
133
Fréttir og félagsmál
9. fulltrúaþing S. í. B.
var haldið í Reykjavík 21.—26. júní s. 1. 37 fullmiar sátu þingið.
Útdráttur úr fundagerðahók þingsins hefur verið sendur kennur-
um, auk þeirra fregna frá þinginu. sem birtust í dagblöðunum. Hcr
verður því látið nægja, að drepa aðeins á helztu samþykktir þess, þær,
er almennt gildi hafa, en auk þess fjallaði þingið um sérmál stéttar-
samtaka kennaranna.
Frœðslulöggjöfin nýja. „Þingið fagnar setningu hinna nýju fræðslu-
laga, en vill jafnframt leggja ríka áherzlu á, að vcl verði vandað til
framkvæmdanna, ef þau eiga að ná tilgangi sínum. Má þar nefna
til dæmis:
1. Mjög bættan og aukinn húsakost.
2. Setningu reglugerða.
3. Útgáfu rækilegra leiðbeininga fyrir skólana.
1 umræðunum sagði fræðslumálastjóri, að skólabílar „myndu
stórum greiða fyrir framkvæmd fræðslulaganna." Mikla áherzlu lagði
hann á skólabyggingar Qg taldi al'ar þýðingármikið, „að þeim yrði
hraðað sem mest."
Námsbcckur. Þingið vill, „að athugun og endurskoðun fari fram á
námsbókum barnaskólanna, nýjar séu gerðar eftir þörfum og aðrar
endurskoðaðar og lagfærðar, m. a. í samræmi við þau viðhorf, er hin
nýju fræðslulög skapa. Vill þingið benda á það sem höfuð-markmið,
að sjálfar námsbækurnar séu stuttar, en auk þess séu gerðar lestrar-
bækur til viðbótar við námsefnið.
Þingið leyfir sér að benda sérstaklega á:
1. Hentugar námsbækur og handbækur til áltliagafræðikennslu í
fyrirhugaðri yngri deild barnaskólanna vantar.
2. Kennslubók í íslandssögu sé endurskoðuð og stvtt, en auk jtess
samið yfirlit yfir tímabilið eftir 1874.
3. Aðalatriði þess námsefnis í náttúrufræði, sem barnaskólum verð-
ur ætlað að kenna, skal sett fram í tiltölulega stuttri kennslu-
bók með svipuðu sniði og bók Bjarna Sæmundssonar.
4. Þörf er á nýrri Iestrarbók, sem brúar bilið milli Unga litla og 1.
flokks lestrarbóka. Auk jtess er brýn þörf á að endurskoða alla
flokka lestrarbókanna að meira eða minna leyti og auka við
1., 2. og 3. flokk þeirra. Hentaði vel, að sú viðbót yrði valin
með hliðsjón af kenpslu í átthagafræði,