Æskan - 01.11.1971, Blaðsíða 4
FæSingarstaður Jesús.
Fæðingarkirkjan i Betlehem.
Gröf Rakelar í Betlehem.
borgir og staði. Saga Islands er merkileg saga, sem flest okkar
þekkja að nokkru. Sumt höfum við lesið, annað heyrt. Við þekkj-
um einnig sögu margra einstaklinga, sem lögðu mikið á sig og
lögðu sig alla fram til þess að skila þjóðinni sem beztum og dýr-
mætustum arfi.
Sumir staðir koma oftar við sögu en aðrir, og yfir sumum
þeirra hvílir Ijómi, sem lýsa mun þar til saga okkar er á enda.
Þannig mun einnig verða um borgina Betlehem, sem menn
hafa ort svo fagurlega um allt fram til okkar daga.
Nú þjóta bifreiðirnar fram og aftur um götur borgarinnar og
nærliggjandi staði. Við tökum okkur far með einum þeirra, sem
þýtur frá Jerúsalem með nær 100 km hraða á klukkustund. Það
tekur aðeins örfáar mínútur að aka þessa 14 km leið. Jerúsalem
er að baki okkar og brattur vegur liggur niður Kedrondalinn í
áttina að hinum nýja og góða Betlehemsvegi.
Himinninn hvelfist yfir okkur, en út um glugga bifreiðarinnar
sjáum við kameldýr, asna, bifreiðir og þjótandi flugvélar. Hér
mætast tveir heimar í vaxandi hita og spennu hins hversdagslega
lífs.
Betlehem (sem þýðir brauðhús) á sér langa og merkilega sögu,
sem ekki verður rakin hér. Stundum verður borgin sveipuð hulu
og þoku, og á ýmsum tímum Gamla testamentisins virtist borgin
litla sem enga þýðingu hafa.
En í nágrenni Betlehem dó Rakel og var grafin þar. Enn á
okkar dögum er hennar minnzt og liggur minningargröf hennar
í útjaðri borgarinnar. Þangað streyma oft verðandi mæður til
þess að heiðra minningu hennar.
En í Betlehem var einnig hinn mikli konungur Davíð fæddur,
°g Þess vegna er borgin oft nefnd Davíðs borg, „því að yður
er í dag frelsari fæddur, sem er Kristur Drottinn, í borg Davíðs."
Og í þessari sömu borg átti einnig Messías að fæðast. 750
árum áður en Jesús fæddist, sagði spámaðurinn Mika: „Og þú,
Betlehem Efrata, þótt þú sért einna minnst af héraðsborgunum
í Júda, þá skal þó koma frá þér sá, sem vera skal drottnari
ísrael, og ætterni hans vera frá umliðinni öld, frá fortíðardögum."
Þannig spáði Mika um komu Jesú í þennan heim. Og yfir hell-
inn eða fjárhúsið, sem sagan segir, að Jesús hafi fæðzt I, lét
Konstantín mikli reisa mikla byggingu, kirkju, sem talin er vera
elzta kristna kirkjan, sem varðveitzt hefur allt til okkar daga.
Engispretturnar suða við vegina. Kirkjuklukkurnar hringja til
guðsþjónustu. Þúsundir pflagríma og ferðamanna streyma til
helgra staða til þess að halda heilög jól og minnast þeirra tíma,
er Guð sjálfur sendi son sinn í heiminn til þess að frelsa syndugt
mannkyn.
Sagan rifjast upp og slær ýmsa strengi í hörpu minninganna.
Söngur englanna á Betlehemsvöllum hljómar fyrir eyrum okkar:
„Verið óhræddir, því sjá ég boða yður mikinn fögnuð, sem veitast
mun öllum lýðnum!"
Þeir komu til þess að boða frelsi og frið. Þeir komu með fagn-
aðarboðskapinn mikla um frelsarann. Fylltir eftirvæntingu og
spenningi héldu hirðarnir af stað. Kyrrð og friður rikti allt i
kringum þá og fögnuðurinn varð fullkominn, er þeir fundu Jesú-
barnið reifað og liggjandi í jötu, eins og engillinn hafði sagt þeim.
En skömmu síðar hljómaði hinn ægilegi boðskapur og ógn-
vekjandi — um fjöldamorð meðal barna. — Þar ríkti ekki „friður
á foldu", þar var enginn, sem gat sungið „Fagna þú maður".
Andstæðurnar eru miklar. Annars vegar söngur um frið og frelsi,
hins vegar hatur og sá hryllingur, sem í mannshjartanu getur búið.
En einmitt þess vegna sendi Guð son sinn í heiminn. Við
fæðingu Jesú rættist sá draumur og það fyrirheit, sem engillinn
gaf Jósef: ,,... Þú skalt kalla nafn hans Jesús, þvi að hann mun
frelsa lýð sinn frá syndum þeirra."
Enn á ný kalla kirkjuklukkurnar til guðsþjónustu á helgum
jólum. Enn eru lesnar sögurnar um fæðingu frelsarans. Enn er
minnzt þess tíma, er Jósef og Maria héldu til „borgar Daviðs,
sem Betlehem heitir."
Eru sögurnar ævintýri eða raunveruleiki? Erum við að minnast
fallegra sagna, sem „einu sinni voru“, en hafa enga þýðingu
lengur? Erum við, sem kristnir viljum vera, að leika eitthvert
apaspil?
Hvers vegna stríð og hatur? Hvers vegna eymd og volæði?
Hvers vegna óróleiki og eirðarleysi? Hvers vegna erfiðleikar og
vandamál?
Sumum spurningum lífsins verður aldrei svarað, en lausn allra
vandamála er aðeins að finna á einum stað: Biblíunni.
Ef sagan um Jesúm er aðeins helgisögn eða fallegt ævintýri,
skulum við hætta að leika gervihlutverk á leiksviði heimsins.
En ef sagan er sönn, verðum við að gefa henni enn betri gaum,
svo að hún fái að hafa áhrif á líf okkar, veita okkur blessun og
frið, svo að við fáum einnig sungið af hjarta á þessum jólum:
Heims um ból, helg eru jól.
GLEÐILEG JÓL.
ÞSG
□