Æskan

Årgang

Æskan - 01.11.1971, Side 44

Æskan - 01.11.1971, Side 44
I helli eyðimerkurræningjanna andur og grjót hvar sem litiS er, hér og þar meðfram slóð kaupmannanna liggur upp- lituð beinagrind af kameldýri, sem gefizt hefur upp. Yfir eyðimörk- inni lýstu stjörnurnar. Við skin þeirra fóru maður og kona með litið barn í fangi svo hratt sem þau gátu og stefndu í átt til hlns fjarlæga Egyptalands. Kon- an með barnlð sat á asna, en maður- inn gekk vlð hlið þeirra. Allt í einu kastaði hann sér niður og lagði eyrað að jörðinni. „Þeir eru að koma," stundi hann og spratt á fætur aftur, „riddarar Heródes- ar hafa fundið slóð okkar. Við erum glötuð." „Enginn, sem Guð hjálpar, er glatað- ur,“ sagðl konan bllðlega, „við skulum aðelns fylgja stjörnu barnsins hug- hraust, sem hingað til hefur vísað okk- ur veg.“ Hún lelt til himins og benti á skæra stjörnu, sem ein meðal þúsunda ann- arra var ekki kyrr, heldur virtist líða áfram fyrir framan þau. „Sjáðu," sagði hún, „stjarnan beyglr af slóðinni. Fylgdu henni." „Út i eyðimörkina?" muldraði maður- inn efablandinn, „hlustaðu á væl hýen- anna.“ — En hann sneri þó af slóð- inni og fylgdi stjörnunni skæru. Hægt mjökuðust þau áfram. Nokkrir klettadrangar risu upp fyrir framan þau. Daufur Ijósbjarmi skein einhvers staðar milli þeirra. „Þarna er fólk,“ sagði maðurinn, „eig- um við að áræða á fund þess?“ „Fylgjum stjörnu barnsins," sagði konan rólega. Andartaki siðar voru þau við hellis- munna. Maðurinn fór með konuna, barnið og asnann þangað Inn. Svartskeggjaður, kraftalegur maður stóð upp frá eldinum, sem brann innst Inni i hellinum. Hann gekk á móti þeim með blikandi hníf I hendinni. „Hver eruð þið?“ spurði hann hrana- lega. „Ofsótt fólk, sem biður um húsa- skjól,“ svaraði konan mildilega og stelg af baki asnans. Sá svartskeggjaði virti þau vandlega Barnið sjúka virtist öðlast nýtt líf, and- ardráttur þess varð rólegur, hitaroðinn hvarf. I fyrir sér. Sfðan stakk hann hnífnum i beltið og sagði: „Já, sannarlega hljót- ið þið að vera ofsótt fyrst þið leitið skjóls í helli eyðimerkurræningjans. En verið velkomin, þótt þið komið á óheppi- legum tíma. Litli drengurinn minn ligg- ur fyrir dauðanum." „Hvað er að honum?“ spurði konan. „Ég veit það ekki,“ svaraði ræning- inn þunglega, „móðir hans dó nýlega, og ég hef gætt hans eins vel og ég hef getað. Nú er ég hræddur um að ég missi hann iíka — þann eina, sem ég á að, og ég, sem hafði lofað hon- um að verða heiðarlegur maður aftur.“ Ræninginn fór með konuna að hvílu innarlega I hellinum, þar sem drengur- inn lá með mikinn sótthita og gljáandi augu. Hún beygði sig yfir barnið og strauk enni þess. „Ég hef safnað vatni til þess að baða hann,“ hvíslaði ræninginn hás. „Vilt þú baða barn þitt fyrst og drenginn minn á eftir?" Konan kinkaði kolli. Hún afkiæddi næstum nýfætt barn sitt og baðaði það. Því næst baðaði hún sjúkt barn ræn- ingjans varlega og ástúðlega upp úr sama vatni. Þá gerðist dálítið undur- samlegt. Barnið sjúka virtist öðlast nýtt líf, andardráttur þess varð rólegur, hita- roðinn hvarf úr kinnunum. „Faðir," hvíslaði hann, „nú verð ég hraustur.” Ræninginn starði mállaus á gesti sína, á manninn, konuna og barn þelrra, sem hafði undarlegan geislabaug svíf- andi um höfuð sér. Hann féll á kné. „Guð hefur sent ykkur í minn vesæla helli," stundi hann, „litla barnið ykkar hefur bjargað lífi sonar míns. Nú heiti ég því að verða aftur ráðvandur mað- ur.“ Konan kinkaði kolli. „Barn mitt er Guðs sonur,“ sagði hún rólega, „hann heitir Jesús. Hann hefur gert son þinn heilbrigðan aftur, af því að þú hefur borgið llfi okkar i nótt." Næsta morgun yfirgáfu Jósef, María og Jesúbarnið helli ræningjans og héldu áfram flótta sínum til Egyptalands. Ridd- arar Heródesar höfðu gefizt upp við leitina að slóð þeirra. Ræninginn stóð lengl kyrr og horfði á eftir þeim. Fyrir aftan hann lék sér kvikur og ánægður drengur og fullkom- lega hraustur. „Já, þetta barn hefur sannlega ver- ið Guðs sonur," sagði hann og fleygði hníf sínum langt í burtu. ÓÞEKKUR KORKTAPPI Er hægt að blása litlum kork- tappa niður í stóra flösku? „Já, auðvitað,“ svarið ])ið lík- lega flest — cn reynið samt einu sinni. — Leggið mjólkur- fiösku á borðið og setjið lít- inn korktappa i flöskubálsinn. Blásið svo á hann af öllum kröftum — og hvað gerist? ■— Korktappinn liggur kyrr, eða j)á að liann tekur upp á þvi að stökkva út úr flöskunni cins og byssubrenndur. Hvernig í ósköpunum skyldi nú standa á þessari furðulegu begðun korktappans?

x

Æskan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Æskan
https://timarit.is/publication/383

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.