Æskan - 01.11.1971, Blaðsíða 74
Nr. 1, 2 og 3. Efni: Hvítt eða Ijósblátt hörléreft eða fínn ullar-
jafi, lengd 17 cm I allt og breidd 8 cm, rautt fóðurefni, þunnur
pappi eða viesecline í millifóður. Hvítt flúnel í blöð í bókina.
Myllurnar á mynztri nr. 1 eru saumaðar með krosssauml eða
holbeinssporl. Aðferðin við að ganga frá nálabókinni er þannig:
Þegar þú hefur lokið við mynztrið, þá brýtur þú efnið eða brún-
irnar inn, svo það mælist 14X6 cm, sníður fóðurefnið 14X6 cm,
sama ummál á millifóðri, en flónelið í blöðin 13X5 cm, beygðu
fóðrið um hálfan cm á öllum hliðum og varpaðu með smáum
sporum yfir randirnar á flónelsblöðunum og saumaðu þau föst
við fóðrið í miðju. Leggðu siðan millifóður milii efnis og rauða
fóðurefnisins, síðan er lagt niður með fínum sporum. Til þess að
loka bókinnl skuluð þið nota snúru úr perlugarni, 15 cm, tvo
þræði sem saumaðir eru í hvern jaðar.
Nálabókin með fiðrildinu, mynztur 4.
Efni: 2 stykki bómullarefni í lillabláum lit 20X10 cm, og smá-
vegis af rauðu bómullar- eða silkiefni í fiðrildið. Takið mynztrið
upp með kaikipappir og teiknið það á efnið (rauða), reiknið með
hálfum cm, þegar þið klippið til að brjóta inn undir í saum á
fiðrildinu. Búkurinn og fálmararnir á fiðrildinu eru saumaðir með
rauðu garni og búkurinn alveg fylltur með hnappagatasting (hvítu
garni), sjá teikningu, og fyrir innan kantinn eru svo aftur rauð
hnappagataspor, svo þetta virkar dálítið þykkt og lifandi. Fremri
vængirnir eru saumaðir fínt niður á brúnirnar og hringirnir í væng-
broddunum eru saumaðir með hvítu garni (hnappagataspor). Þá
myndast eins og hjól óg í kringum það eru rauðar smáperlur,
eins í miðjum hringnum og utan við búkinn á mlðjum vængnum
(sjá teikningu), einnig rauðar perlur í hverjum fálmara fremst.
Þar sem tvö stykki eru af lillabláa efninu, þarf ekki fóður, en
bara flónel í bókarblöð til að geyma nálarnar í. Saumað saman
á röngunni og snúið við og gengið fallega frá opinu (pressað létt
yfir á röngunni).
Oft er notað filt í nálabækur, og er þá bæði efni og skreyting
úr sama efni. Hér er eitt sýnishorn af því. Þá er bæði notað lim
og saumur við mynztrið. L. M.
s 7 \ / .7
\ / \ z 7jZ
\z
z\
/ S R X ✓ \
' \ X J \
\ I / s /
v, / \ /
\Z \ 7
y\ XX /
z ~sr XX z s xx
-Z xx z V Xx
v ? \ z
V /
\/ \z
A z\
z " K 5 7 5 □
* / V 1
rr P - 2 tráde
&£*= halve korssting
3
72